Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ M ér er til efs að betur sé hægt að búa sig undir líf- ið en með því að moka flór. Sú göfuga iðja stælir bæði líkamann og sálina, eykur innri ró og hent- ugra námskeið í vana er varla til. Og vaninn er allt sem þarf, ekki satt, til að komast af? Hvað er lífið svo sem annað en vani, eða í það minnsta einhvers konar endurtekning? Hjá flest- um, altjent. Borða yfir sig á jól- unum, fara á skíði um páskana, kaupa nammi á laugardögum og slást um helgar. Er ekki Ísland svona? Flórmokstur var þeim sem þetta skrifar býsna erfiður, ung- um dreng, en dýrmætur með framtíð- ina í huga. Upp- handleggs- vöðvarnir stæltust eilít- ið, þannig að á skólaárunum var auðvelt að lyfta blýanti, og heil- inn þjálfaðist samtímis þó að aldrei yrði hann fljótur að leggja saman eða draga frá. Svo þegar farið var að geta af sér afkvæmi; já, reynslan nýttist einhvern veginn af sjálfu sér þegar farið var að skipta um bleyju eða skeina. Fyrstu dagana á vorin braut sveinninn að vísu heilann af illri nauðsyn í sveitinni; dreifði hug- anum í þeim tilgangi einum að koma skynjuninni upp og út fyrir mörk lyktarinnar, en eftir að skítalyktin var orðin hluti af honum sjálfum og hreyfingin næsta sjálfvirk; rekunni rennt eftir flórnum, undir mykjuna og sveiflað yfir að hjólbörunum, var upplagt að láta hugann reika. Tóm gafst til íhugunar. Einn daginn kemur að því að fjósamaðurinn verður forvitinn og spyr sjálfan sig: Hver er til- gangurinn? Við stundum hey- skap í sumar til þess að skepn- urnar fái eitthvað að éta í vetur til þess að við getum étið þær næsta sumar! En hvað svo? Hví þessi dvöl á jörðinni ef þetta er tilgangurinn; ef í raun er meira og minna verið að fást við það sama alla daga? Lifir ekki stór hluti mannkyns afar óspennandi lífi? Sofa, éta, vinna. Ef til vill veltir fólk því ekki sérstaklega fyrir sér, en sums staðar þar sem maður hefur kíkt á mannlífið – hvort það sem er í fátækrahverfi á Indlandi eða á túndrum Síberíu – er lífið satt að segja ansi fábrotið. Sofa, anda. Og þegar að er gáð er það sjálfsagt eins hjá fína fólkinu hvar sem er; að vísu fínni föt, betri matur, betri hús, betri bílar, meiri peningar, en jafnan eitthvað keimlíkt dag frá degi. Maðurinn annaðhvort leitar í þetta far eða sættir sig vona vel við þetta. Maðurinn, hinn viti borni mað- ur, er sífellt er að reyna að kom- ast upp sömu brekkuna. Það er ekki fyrr búið að þvo bílinn en orðið er tímabært að þvo hann aftur. Eða slá lóðina. Fólk er vart sofnað fyrr en kom- inn er fótaferðatími. Varla komið á fætur áður en það þarf aftur að fara að sofa. Og strangt til tekið er fólk vart fætt fyrr en það er dáið. Hver er tilgangurinn fyrst tíminn er svona naumur? Ég fæ aldrei svar. Og vaninn verður að vana. Eftir flórnum, undir mykjuna og sveiflað yfir að börunum; svona gekk þetta á meðan fram- tíðin var skipulögð við undirspil jökulárinnar sem streymdi fram skammt neðan bæjarins. Ég vissi það ekki þá; það vissi reyndar enginn þá, en þetta er ein frægasta á landsins. Jökulsá í Fljótsdal. Henni er líklega al- veg sama; rennur í sínum farvegi af gömlum vana og frændur mín- ir, þeir fáu sem eftir eru, vakna við niðinn að morgni og sofna við hann að kvöldi. Ég man sjálfur hvað það var notalegt. Hvernig skyldi nið- urinn breytast þegar áin verður blá en ekki brún? Verða ef til vill meira og minna andvaka. Máttur vanans er svo mikill. Eftir flórnum, undir mykjuna og sveiflað yfir að börunum. Þessari snjöllu uppfinningu, hjólbörunum, var svo ekið út og sturtað í hauginn. Samkvæmt vana. Hlandinu var líka ausið úr flórnum; með gallons blikkbrúsa undan smurningu frá Esso, sér- staklega klipptum til þessa verk- efnis. Fyrst á vorin þurfti átak til að ganga til starfans, en hann varð fljótt álíka auðveldur og það að klappa hundinum. Framtíðin; þá sneist hún um sauðburð og rúning, heyskap, girðingavinnu, bað á laugardag- inn, kannski að gelda hest. Nú snýst framtíðin um að vekja krakkana tímanlega til að þau komist í skólann á réttum tíma og að eyða ekki meiru en sem nemur yfirdrættinum á tékkareikningnum. Skyldi vaninn geta elst af fólki? Er einhver hér á landi full- komlega sáttur við að ekki byrji að snjóa fyrir klukkan sex á að- fangadagskvöld? Þurfum við að búa okkur undir að venjast því óvenjulega eða eru náttúruöflin að gera gys að okkur tímabundið? Hvað á mað- ur að halda? Síðan hafist var handa við byggingu fjölnota íþróttahúss, sem blasir við út um eldhúsgluggann hjá mér, – og það er aðallega reist í þeim til- gangi að akureyrskir knatt- spyrnumenn geti æft við sömu aðstæður og sunnanmenn – hef- ur sumarið neitað að fara. Getur það verið einskær til- viljun að Akureyrarvöllur er sjaldan jafngrænn í júní og hann var í gær? Við, sem teljum okkur til sam- félags kristinna, vitum að minnsta kosti að jólin koma allt- af á sama tíma. Og þau fara líka alltaf aftur. Þá hefst fólk handa við að rembast upp sömu brekkuna og í fyrra; janúar, febrúar, mars … Í júní og júlí er komið upp á topp en svo hallar undan fæti á ný. Og einn daginn er allt búið. Hvað svo? Líkaminn og sálin Hlandinu var ausið úr flórnum; með gallons blikkbrúsa undan smurningu. Fyrst á vorin þurfti átak til að ganga til starfans, en hann varð fljótt álíka auð- veldur og það að klappa hundinum. VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Baldur Frederiksen, útfararstjóri. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR SVEINSSON, Hlíðargötu 39, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðviku- daginn 18. desember. Jarðsett verður frá Safnaðarheimilinu Sand- gerði föstudaginn 27. desember kl. 14.00. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Guðmundur G. Haraldsson, Majbritt Haraldsson, Guðbjörg Haraldsdóttir, Skúli Guðmundsson, Sigrún H. Haraldsdóttir, Hjálmar Georgsson, Haraldur B. Haraldsson, Arna S. Árnadóttir, Helgi Haraldsson, Helga Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát okkar elskulega KRISTINS MORTHENS, Fjallakofanum í Kjós. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina Elsku afi minn. Minningarnar streyma fram við andlát þitt. Alltaf var gott að koma til þín og ömmu og ævinlega létuð þið mig finna hvað ég var velkomin. Það var oft svo gaman hjá okkur þegar við fórum í útileg- urnar og eins man ég allar stund- irnar sem við áttum upp í Breiðholti yfir spilum. Alltaf varstu eins og einn af krökkunum. Ég var á margan hátt ólík ykkur, til dæmis vantaði alveg í mig íþróttagenið (og vantar enn), en þú fyrirgafst mér það. Það vafðist ekki fyrir þér að mæta mér á mínu áhugasviði og þú taldir ekki eftir þér þótt ég þrælaði þér í að útbúa fyrir mig reikningsdæmi eða þrautir í tíma og ótíma, alltaf þóttistu hafa jafngaman af því og öllum fótbolt- anum og ærlsaleikjunum sem önnur barnabörn lokkuðu þig fyrirhafnar- laust í. Að mæta barni á þess eigin for- sendum, beygja sig niður í augnhæð þess sjálfs, er það besta sem hægt er að gefa því og ómetanlegt veganesti fyrir hvert barn að njóta þess frá fullorðnu fólki. Dætur mínar, Agnes og Diljá, hafa eins og ég átt öruggt skjól hjá þér og ömmu og þær voru alsælar þegar þær fengu að heim- sækja ykkur. Ég er mjög þakklát fyrir að þær fengu tækifæri til að kveðja þig á spítalanum eins og við hin, þetta var dýrmæt stund fyrir okkur öll. Það er sárt að kveðja þig, elsku afi minn, en ég hughreysti mig við orð Diljár þegar ég sagði henni að þú værir dáinn. Mamma, ég er sorg- mædd en samt er ég svolítið glöð í hjartanu af því að nú er hann ekki lengur svona veikur. Takk fyrir allt, elsku afi minn, það er gæfa mín að hafa átt afa eins og þig. Ragna Bjarnadóttir. GUÐ- BJÖRN BJARNA- SON ✝ Guðbjörn Bjarnason fæddist íReykjavík 3. ágúst 1927. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi hinn 3. desember síðast- liðinn og var útför hans gerð frá Grensáskirkju 11. desember.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.