Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                    BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FLESTIR muna trúlega eftir mynd- inni í bókinni „Jólin koma“ eftir Jó- hannes úr Kötlum. Þar sem Grýla er að elta börnin og teygir fram kruml- una eftir þeim, svo langt sem hún getur. Litlum sonarsyni mínum leist ekki á blikuna um daginn þegar við vorum að skoða bókina. Litlu brúnu augun urðu full af hræðslu og hann sagði: „Amma, þetta er ég, Grýla er að reyna að ná í mig!“ Ég fullvissaði hann um að Grýla væri dauð og því til sönnunar sýndi ég honum mynd- ina þar sem Grýla liggur í „bólinu“ sínu og hefur gefið upp öndina. Og hann tók gleði sína aftur. Í kvæðinu segir: „Á börnunum valt það hvort Grýla átti gott, hvort hún átti mat í sinn poka og sinn pott“ Í dag er þetta ekki svo einfalt. Í dag veltur það ekki á börnunum nema að litlu leyti hvort sú Grýla, sú eiturlyfjakrumla, sem nú teygir sig eftir börnunum okkar, nær þeim eða ekki. Við getum ekki ætlast til þess að börn innan við fermingu hafi þroska til að skynja þær hörmungar sem krumla eiturlyfjanna hefur í lófa sér. Fyrir nokkru síðan horfði ég á myndina Devil’s Advocate. Djöfull- inn leikur þar stórt hlutverk. Kannski væri vert fyrir þá sem selja börnunum okkar eitur, og þar með eyðileggja líf þeirra og margra ann- arra, að hugleiða fyrir hvern þeir vinna. Það væri kannski tími til þess á aðfangadagskvöld þegar þeir eru komnir í sparifötin og líta í spegil. Kannski þeir ættu þá að staldra við og athuga hvort það eru þeir sjálfir sem sjást í speglinum. Eða er það kannski einhver ófreskja sem ágirnd og gegndarlaus sjálfselska hefur skapað? Sjálfur Myrkrahöfðinginn kannski? Eins væri gott fyrir þá að hugleiða hvar börnin sem þeir seldu eiturlyf á Þorláksmessu væru stödd þegar þeir setjast við steikina sem var keypt fyrir eiturpeningana. Enginn vafi er á því að nú er kom- inn tími til að staldra við og athuga hvert stefnir. Ef hinir alræmdu sölu- menn dauðans geta óáreittir athafn- að sig á lóðum grunnskólanna, þá held ég að illa sé komið og meira en mál að tekið verði á málinu af meiri alvöru en hingað til. Ég álít að ekki sé rétt að líta á þetta sem eitthvað náttúruafl sem enginn getur ráðið við. Á ekki við um þetta eins og margt annað, að „vilji er allt sem þarf“? Í Mattheusarguðspjalli 6:19-21 segir: „Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu þar sem mölur og ryð eyðir, og þar sem þjófar brjótast inn og stela, en safnið yður fjársjóðum á himni, þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þar sem þjófar brjótast ekki inn og stela. Því að þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ Í þessu felst meiri sannleikur en margir kannski sjá, því hvar er hug- ur þinn nema þar sem gersemar þín- ar liggja. Ég hef vissu fyrir því að ef efn- ishyggja þessarar þjóðar væri minni en hún er, og dansinn í kringum gull- kálfinn ekki eins trylltur, væri ekki svo komið í þessum málum og öðrum sem börnunum okkar tilheyra. Hvers vegna er svo margt af unga fólkinu okkar í þeirri sálarkreppu sem raun ber vitni. Hvar liggur meinið? Brún augu lítils drengs, full af trúnaðartrausti, horfa á ömmu. Hjá henni er hann öruggur og ekkert illt getur náð í hann. Enn um sinn getur amma passað drenginn sinn en hún er hrædd. Hún segir að Grýla með stóru krumluna sé dauð en hún veit betur! Meðan þjóðin dansar í kringum gullkálfinn og skilur ekki hvar henn- ar mesti fjársjóður er, verður kruml- an ekki kveðin niður og unga fólkið finnur ekki þá fótfestu og sálarró sem þarf, til að takast á við lífið. ÁSLAUG KJARTANSDÓTTIR, Mýrarbraut 1, 870 Vík í Mýrdal. Krumlan Frá Áslaugu Kjartansdóttur: ER styttist til jóla og áramóta hugsa menn oft til atburða líðandi árs og hvað upp úr stendur. Þá verður manni enn frekar hugsað til þeirra er einmana, sjúkir og sorg- mæddir eru. Það hefur margt jákvætt skeð í pólitík líðandi árs t.d hefur Samfylk- ingin farið í gegnum sveitarstjórnar- kosningar sem hún kom vel út úr, sér- staklega þó í Hafnarfirði er hún vann hreinan meirihluta eftir óstjórn og ringulreið íhalds og framsóknar þar í bæ. Í þeim sveitarstjórnarkosningum þurrkaðist framsókn meðal annars út í Hafnarfirði. Vissulega var tekist á um hreina pólitík í Hafnarfirði í kosningunum 25. maí síðastliðinn, enn búumst við til baráttu við íhaldsöflin hvar í flokki sem þau annars finnast, á vori kom- anda. Þar verður væntanlega tekist á um hreina pólitík að mínu mati, eins og gert var í Hafnarfirði. Hvort það verða íhalds- og gróðasjónamið sem ráða munu ferðinni á næstu árum eða stefna jafnaðarmanna sem byggist á samhygð og samhjálp. Samfylkingin mun á komandi mán- uðum enn frekar skerpa sína lífssýn í málefnum þeirra er halloka hafa farið á þessu ári og gefa þeim betri von um bjartari tíma á komandi árum, ef jafn- aðarmenn fá til þess fylgi og það afl í komandi alþingiskosningum sem þarf til að breyta þessu þjóðfélagi. Um leið og ég sendi öllum jafnaðar- mönnum bestu jóla- og nýarsóskir sendi ég baráttukveðjur og von um bjartari tíma í alþingiskosningunum 10. maí n.k. JÓN KR. ÓSKARSSON, eftirlaunaþegi, Smyrlahrauni 25, 220 Hafnarfirði. Hugleiðing á jólaföstu Frá Jóni Kr. Óskarssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.