Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 33
PETER Jackson færir kvikmynda-
aðdáendum hér annan hluta hringa-
dróttinsþríleiksins sem svo sannar-
lega hefur verið beðið eftir um allar
jarðir, en fyrsti hluti þríleiksins var
jólamynd síðasta árs og þriðji hlut-
inn verður svo jólamynd næsta árs.
Eins og flestum er kunnugt, eru
myndirnar byggðar á einu vinsæl-
asta ævintýri allra tíma, Lord of the
Rings, eftir J.R.R. Tolkien þar sem
Hobbitinn Fróði heldur áfram för
sinni ásamt Gandálfi og öðrum fræg-
um persónum bókanna. Fyrsti hlut-
inn, Hringadróttinssaga: Föruneyti
Hringsins, sópaði að sér fjölda bíó-
gesta, og er þess vænst að annar
hlutinn verði ekki síður vinsæll, en
sú mynd ber undirtitilinn „Turnarnir
tveir“ sem farið hefur fyrir brjóstið á
ýmsum í kjölfar hryðjuverkanna í
New York í september í fyrra.
Leikstjórinn Peter Jackson skrif-
aði kvikmyndahandritið í samvinnu
við Philippa Boyens, en í myndinni
er í raun verið að flakka á milli
þriggja sagna. Frodo og Sam halda
leið sinni áfram að Mount Doom með
það að markmiði að eyða hringnum.
Merry og Pippin eru í haldi Ork-
anna, en eins og menn kunna að
muna, voru þeir teknir höndum í lok
fyrstu myndarinnar. Svo sjá áhorf-
endur söguna með augum Aragorns,
Legolasar og Gimla sem elta Ork-
ana.
Þrátt fyrir að myndirnar séu
byggðar á fjörgömlum ævintýrum,
telja margir að boðskapurinn sé
tímalaus og eigi því vel við í dag.
Ekki veiti til dæmis af að minna á
gildi og virðingu fyrir náttúrunni
gegn ráðandi öflum samtímans þar
sem græðgi og peningahyggja fari
fremst í flokki auk þess sem óaft-
urkræf eyðilegging á náttúrunni
standi ekki í vegi fyrir ákvarðana-
töku stjórnvalda. Yfirvofandi árásir
úti í heimi minni svo óneitanlega á
eyðileggjandi afl Saurons í mynd-
inni.
Stenst tímans tönn
Laugarásbíó, Regnboginn, Smárabíó,
Kringlubíó, Borgarbíó Akureyri og Bíó-
höllin Akranesi frumsýna The Lord of
the Rings: The Two Towers á annan í jól-
um.
Leikarar: Sean Astin, Dominic Mon-
aghan, Ian McKellen, John Rhys-Davies,
Christopher Lee, Cate Blanchett, John
Noble, Elijah Wood, Billy Boyd, Viggo
Mortensen, Orlando Bloom, Liv Tyler og
Brad Dourif.
Annar hluti Hringadróttinssögu ber undirtitilinn Turnarnir tveir, en það
hefur farið fyrir brjóstið á ýmsum í kjölfar hryðjuverkanna í New York.
HEIMSKAUTAFARINN Roald
Amundsen náði fyrstur manna að
stíga fæti sínum á suðurpólinn árið
1911. Sú ferð hef-
ur lengi verið í
minnum höfð, því
að honum tókst
með miklu harð-
fengi að verða
mánuði á undan
öðrum fræknum
pólfara, R.F.
Scott, enda þótt
hinn síðar nefndi
hefði lagt tveimur
mánuðum fyrr af
stað. Lykillinn að velgengni Amund-
sens var sá, að hann hafði 97 græn-
lenzka sleðahunda með í för.
Frásagnir Amundsens og fleiri af
svaðilförum í heimskautaferðum
hafa löngum heillað ungt æskufólk.
Það eru þó ekki nema tiltölulega fáir,
sem láta til leiðast að takast slíka
ferð á hendur. Bæði er það, að menn
verða að vera mjög sterkir, andlega
sem líkamlega, hafa góðan búnað og
ekki sízt hafa sterka bakhjarla og
styrktaraðila. En það er annað, sem
er sameiginlegt þessum afreks-
mönnum og það er, að þeir eru
haldnir ríkri frásagnargleði.
Í nóvember 1997 héldu þrír hug-
rakkir félagar á vit mikilla ævintýra.
Þeir höfðu ákveðið að ganga á skíð-
um á suðurpólinn. Slík ferð krefst
mikils og vandaðs undirbúnings og
var aðdragandi ferðarinnar bæði
langur og býsna erfiður á köflum.
Eftirminnileg eru orð móður bókar-
höfundar: »Það duga engar úrtölur,
þegar vinna þarf afrek.«
Hinn tólfta nóvember hófst gang-
an mikla og lauk ekki fyrr en á fyrsta
degi nýs árs eða 51 degi seinna og þá
höfðu þeir félagar gengið rétt rúma
þúsund kílómetra við kaldar og erf-
iðar aðstæður.
Nöfn þeirra, sem lögðu í þessa
miklu göngu, eru sennilega flestum
kunn, en það voru þeir Ingþór
Bjarnason, Haraldur Ólafsson og
Ólafur Örn Haraldsson.
Ólafur hefur nú skráð sögu þessa
leiðangurs. Hann lýsir eins og bezt
verður á kosið öllu umstanginu, sem
fylgir ferð sem þessari, og einkan-
lega göngunni sjálfri. Allri er frá-
sögninni mjög í hóf stillt, en hún er
skýr og látlaus í hvívetna. Samt sem
áður er mjög auðvelt að gera sér í
hugarlund við hvílík reginöfl var að
glíma. Ekki er ósennilegt, að bókin
verði til þess að hvetja upprennandi
ofurhuga til dáða.
Bókin er prýdd fjölmörgum
myndum, bæði smáum sem stórum.
Vissulega er myndefnið ekki mjög
fjölbreytt og margar myndir æði
keimlíkar. Á hinn bóginn gefa þær
mjög góða sýn á umhverfið. Að auki
eru fáeinar vandaðar töflur og skrár
yfir tölulegar staðreyndir. Hönnun
og allur frágangur bókarinnar er
mjög til fyrirmyndar.
BÆKUR
Náttúrufræðirit
Höfundur: Ólafur Örn Haraldsson. 160
bls. Útgefandi er Hið íslenska bók-
menntafélag, Reykjavík 2002.
SUÐUR Á PÓLINN – ÍSLENSKI SKÍÐALEIÐ-
ANGURINN
Pólfarar
Ólafur Örn
Haraldsson
Ágúst H. Bjarnason
Ali
can
te
Ver›lækkun!
Sumarhúsaeigendur á Spáni!
Beint leiguflug til Alicante
-takmarka› sætaframbo›.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Sala hefst á ód‡ru sumarfargjöldunum
til Alicante 27. desember.
Flugdagar eru 11. og 24. apríl, 21. maí og alla miðvikudaga í sumar.
Flogið er í beinu leiguflugi með Flugleiðum í morgunflugi.
*Verðdæmi: M. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. 36.630 kr. á mann
ef 2 ferðast saman . Innifalið er flug og flugvallaskattar.
Munið, að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum 5.000 kr.
og VR ávísunum að eigin vild og lækka ferðakostnaðinn.
Félagsmenn í Félagi Sumarhúsaeigenda á Spáni fá 2.000 kr. afslátt á mann,
ef 20 sæti eða fleiri eru bókuð saman.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa. Fyrstir bóka fyrstir fá.
Ver› frá
Opnum kl. 10 föstudaginn 27. desember.
32.245 kr./mann*