Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 35 H efur þú einhvern tímann heyrt minnst á Línu Lang- sokk, sterkustu stelpu í heimi? Stelpuna sem býr ein á Sjónarhóli með hesti og apa? Stelpuna sem á fullan poka af gullpeningum? Nú ætla ég að segja þér frá því sem Lína gerði einu sinni. Það var aðfangadagskvöld og jólaljósin voru tendruð í öllum gluggum litla bæjarins. Það var búið að kveikja ljósin á jólatrjánum. Öll börn voru komin í jólaskap. Nei, eiginlega voru ekki öll börn í jólaskapi. Á annarri hæð í húsi við Hornstræti sátu þrjú lítil grey í eldhúsinu og grétu. Það voru börnin hennar frú Larsson, Pési og Bubbi og Inga litla. Þau grétu vegna þess að mamma þeirra var á spítala. Hugsið ykkur, á aðfangadagskvöldi. Pabbi þeirra var sjómaður og var lengst úti í hafi. Og þau voru ekki heldur með neitt jólatré! Og engar jóla- gjafir! Það var ekkert gott í matinn! Mamma þeirra hafði ekki náð að kaupa í matinn áður en hún veiktist. Það var ekki nema von að börnin grétu! Allt var eins sorglegt og það frekast gat orðið. – Þetta eru ömurlegustu jól sem ég hef átt, sagði Pési. En hann hafði ekki fyrr sleppt orðinu en það heyrðust gífurleg læti úr stigaganginum. Hvað í ósköpunum er þetta, hrópaði Bubbi. Þetta hljómaði undarlega! En þetta var nú ekkert undarlegt, það er ekki und- arlegt að það séu mikil læti þegar hestur fer upp tröpp- ur! Það var hesturinn hennar Línu sem var að koma upp tröppurnar. Og á hestinum sat Lína. Og á Línu var jólatré. Það var í hárinu hennar. Á því var fullt af log- andi kertum, fánum og karamellum. Það var eins og tréð hefði vaxið upp úr hausnum á henni. Kannski hafði það gert það, hver veit. Níels, litli apinn hennar Línu, var einnig með. Hann hljóp á undan og opnaði dyrnar. Pési, Bubbi og Inga litla stukku af eldhúsbekknum og störðu á þau. Á hvað eruð þið að glápa, sagði Lína. Hafið þið aldrei séð jólatré áður? Jú, en aldrei … stamaði Pési. Hvað er þá málið? sagði Lína og hoppaði af hestbak- inu. Grenitré eru einhver algengustu trén okkar. Og nú ætlum við að hoppa í hopplandi þar til gólfborðin svigna. En fyrst … Hún skellti poka á gólfið og upp úr pokanum tíndi hún fullt af gjöfum og fullt af pokum. Í pokunum voru app- elsínur og epli og fíkjur og hnetur og rúsínur og kara- mellur og marsípangrísir. Lína raðaði öllum pokunum upp á eldhúsbekkinn. Þið fáið engar jólagjafir strax, sagði hún. Fyrst ætlum við að dansa með jólatrénu. Áttu ekki við að ætlum að dansa í kringum jólatréð, sagði Pési. Það er einmitt það sem ég sagði ekki, sagði Lína. Get- ið þið frætt mig um hvers vegna jólatré mega aldrei skemmta sér? Þau mega aldrei vera með í dansinum. Þau bara standa þarna kyrr og glápa á meðan fólk hopp- ar og skoppar í kringum þau og skemmtir sér. Vesa- lings, vesalings litlu jólatrén! Lína ranghvolfdi augunum til að sjá jólatréð sem hún var með á hausnum. Þetta jólatré fær að minnsta kosti að skemmta sér með okkur, ég er búin að ákveða það, sagði hún. Ef einhver hefði litið inn um gluggann hjá frú Larsson skömmu síðar þá hefði hann séð svolítið skrýtið. Hann hefði séð Pésa og Bubba og Ingu litlu hlaupa og dansa. Hann hefði líka séð Línu dansa, Línu með jólatré á hausnum, Línu stappandi stóru skónum sínum í gólfið og Línu syngja sterkri og glaðværri rödd: „Hér dansa ég með litla jólatréð mitt, hér dansa ég lengi!“ Það hefur aldrei neitt jólatré skemmt sér eins vel og þetta, sagði Lína ánægð, þegar hún, Pési, Bubbi og Inga litla settust við jólaborðið skömmu síðar. Nei, ég er sammála því, sagði Bubbi og stakk fíkju upp í sig. Og við höfum aldrei skemmt okkur eins vel á að- fangadagskvöld, sagði Inga litla og gleypti heilan marsipangrís í einum bita. Og ímyndið ykkur nú þegar kom að jólagjöfunum. Ímyndið ykkur þegar Pési opnaði pakkana sína og fékk flugvél og lest og þegar Bubbi fékk gufuvél og bíl sem gat keyrt um gólfið, með því að trekkja hann upp, og þegar Inga fann dúkku og lítið gullhjarta! Ljósin á jólatrénu vörpuðu ljóma á glaðleit andlit barnanna og allar jólagjafirnar. Líklega var jólatréð ánægt líka. Þetta var jú fyrsta jólatréð sem fékk að vera með og dansa! Lína Langsokkur heldur upp á jólin Þessi frásögn af jólahaldi Línu Langsokks birtist sem fylgirit með jólatímariti fyrir börn árið 1949. Á forsíðunni var klippimynd af dúkku í líki Línu og var fylgiritið því skiljanlega klippt í sundur í flestum tilvikum. Sagan hefur því fallið í gleymsku en uppgötvaðist á nýjan leik er ritari Astrid Lindgren- stofnunarinnar fann fylgiritið á Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi fyrir skömmu. ©Saltkråkan AB Eftir Astrid Lindgren
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.