Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐRÆÐUR um framtíð R-lista-
samstarfsins hafa verið settar í salt
yfir jólin, en í gær funduðu oddvitar
flokkanna þriggja ásamt borgar-
stjóra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að hún hafi boðist
til að taka sér frí, meðan hún færi í
þingframboð fyrir Samfylkinguna.
Oddvitum flokkanna lítist misvel á
það tilboð, en unnið verði með það að
leiðarljósi að tryggja framgang
Reykjavíkurlistans.
„Það sem var rætt um og var aðal-
málið var að allir voru samstiga í því
að Reykjavíkurlistinn skipti máli og
við ætluðum að vinna öll að því að
tryggja hann og hafa hagsmuni hans
að leiðarljósi. Síðan myndum við bara
hittast aftur á milli jóla og nýárs, eins
og um var talað,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún þegar hún ræddi við blaðamenn á
tröppum heimilis síns, þar sem fund-
urinn fór fram.
Hún hefur ekki hnikað frá þeirri
ákvörðun að fara í framboð. „Ég hef
boðið það fram að ég sé tilbúin að sitja
áfram sem borgarstjóri og ég sé tilbú-
in að vinna fyrir Reykjavíkurlistann í
hans þágu. Það tilboð mitt stendur,“
sagði Ingibjörg. Hún játti því að hún
hefði boðið sem málamiðlun að taka
sér leyfi frá störfum. Það væri skýrt
kveðið á um það í samþykktum um
stjórn Reykjavíkurborgar að borgar-
ritari væri staðgengill borgarstjóra
og ekki kæmi til greina að annar tæki
við embættinu, farið yrði eftir reglum
borgarinnar hvað það varðaði.
Innt eftir því hvort oddvitar flokk-
anna hafi tekið vel undir þessa lausn
sagði Ingibjörg allan gang vera á því.
Vildi Ingibjörg ekki segja hvort borg-
arfulltrúar Framsóknarflokksins
tækju verr í þann valkost að Ingi-
björg færi í frí en Vinstri grænir. „Við
ætlum að taka okkur hlé yfir jólin og
hugsa okkar gang.“ Aðspurð sagðist
Ingibjörg ekki ætla að leggjast undir
feld í jólafríinu til að íhuga málin. „Ég
ætla bara að fara að halda jól eins og
annað fólk.“
Borgarstjóri býðst
til að taka sér frí
Unnið verði með
það að leiðarljósi
að tryggja fram-
gang R-listans
Morgunblaðið/Kristinn
ALFREÐ Þorsteinsson, oddviti
framsóknarmanna í borgar-
stjórn, segir ekki nóg að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri fari í leyfi, haldi hún
fast við þá ákvörðun sína að
bjóða sig fram til Alþingis. Hún
verði að segja af sér ætli hún
fram. Vill Alfreð helst sjá ópóli-
tískan borgarstjóra, utan hóps
borgarfulltrúanna. Hann segir
nauðsynlegt að þessi mál skýr-
ist fyrir áramót.
Eftir fund með oddvitum
hinna R-lista flokkanna og
borgarstjóra í gær, sagðist Al-
freð bjartsýnn á að hægt verði
að finna grundvöll fyrir áfram-
haldandi samstarfi Reykjavík-
urlistans. „Okkar aðalósk er sú að borg-
arstjóri starfi áfram á óbreyttum grundvelli.
Ef hún hins vegar treystir sér ekki til þess
og vill fara í þetta framboð teljum við að hún
verði að standa upp úr stóli
borgarstjóra og Reykjavíkur-
listinn verði að finna nýjan
borgarstjóra í hennar stað,“
segir Alfreð.
R-listaflokkarnir eigi þó alveg
eftir að ræða hvernig eftirmað-
ur yrði fundinn, verði það nauð-
synlegt. „Borgarstjóri, Ingi-
björg Sólrún, starfaði utan
flokka í þessu samstarfi og ég
held það yrði farsælast að það
yrði leitað að aðila sem stendur
ekki að þessum þremur flokkum
sem standa að Reykjavíkurlista-
samstarfinu til þess að jafnræð-
is verði gætt,“ segir Alfreð.
Inntur eftir því hvort hann hefði
sjálfur áhuga á að gegna emb-
ætti borgarstjóra sagðist Alfreð svo ekki
vera.
Hann neitar því að þreifingar séu hafnar
við Sjálfstæðisflokk um myndun nýs meiri-
hluta, „enda erum við að vinna að því að
þetta Reykjavíkurlistasamstarf haldi
áfram,“ segir Alfreð.
Hann vildi ekki tjá sig um orð Valgerðar
Sverrisdóttur iðnaðarráðherra á heimasíðu
hennar um að með framboði Ingibjargar
væri úti um R-listasamstarfið. Það sem
skipti mestu máli fyrir borgarfulltrúa Fram-
sóknarflokksins sé að samstaða ríki milli
þeirra sem vinni að málefnum flokksins í
Reykjavík og gott samstarf hafi verið milli
manna þar á bæ.
Framsóknarmenn funduðu á sunnudags-
kvöld um stöðuna í R-listasamstarfinu þar
sem stuðningur við borgarfulltrúa Fram-
sóknar var ítrekaður og studd sú afstaða
þeirra að ósamrýmanlegt sé að Ingibjörg
sitji sem borgarstjóri og fari um leið fram til
Alþingis fyrir Samfylkinguna.
Alfreð Þorsteinsson, Framsóknarflokki
Ekki nóg að Ingi-
björg fari í leyfi
Alfreð
Þorsteinsson
STEFÁN Jón Haf-
stein, oddviti Samfylk-
ingar í R-listanum,
segir að grundvallar-
ákvörðun í R-listasam-
starfinu muni liggja
fyrir áður en árið
rennur sitt skeið á
enda. Hann útilokar
algjörlega að Samfylk-
ingin myndi meirihuta
með Sjálfstæðisflokki.
Oddvitar samstarfs-
flokka R-lista funduðu
með borgarstjóra í
gær. „Við vorum sam-
mála um að við værum
að vinna að því að
Reykjavíkurlistasam-
starfið héldi örugglega áfram, það
væri mjög mikilvægt pólitískt fyrir
okkur öll og fyrir Reykvíkinga,“
segir Stefán Jón. Hann vildi ekki
tjá sig um hugsanlegar lausnir á
þeim vanda sem upp er kominn
eða hugsanlegan eftirmann Ingi-
bjargar. Hann segir að menn þurfi
að tala saman sín á milli án milli-
göngu fjölmiðla.
Aðspurður segir hann ummæli
Valgerðar Sverrisdóttur og Hjör-
leifs Guttormssonar, sem eru fé-
lagar í samstarfsflokkum Samfylk-
ingar í borgarstjórn, um að
R-listasamstarfið sé búið að vera,
ekki vera hjálpleg. „Hvort það hef-
ur verið meðvitaður fjandskapur
eða ekki veit ég ekki en það er
allavega ekki hjálplegt. En fólk má
segja það sem það vill.“
Útilokar samstarf
við Sjálfstæðisflokk
Borgarfulltrúar R-listans, að
Ingibjörgu undanskilinni, funduðu
í fyrradag og var nið-
urstaða þess fundar
að vilji væri fyrir því
að halda samstarfinu
áfram. Stefán Jón
segir að menn hafi
viljað setjast niður
eftir flokksfundi
Framsóknar og
vinstri-grænna og
bera saman bækur
sínar beint og milli-
liðalaust. Nú sé
næsta skref að leysa
málin. „Stórir fundir
munu aldrei leysa
málið, það gerist ekki
þannig. Það er gott
að menn hleri sitt
fólk og fái umboð og síðan tekur
hin raunverulega vinna við.
Skeytasendingar utan úr heimi eru
ekki hjálplegar því þetta er okkar
mál borgarfulltrúanna og það er-
um við sem þurfum að bera
ábyrgðina hvernig sem fer,“ segir
Stefán Jón.
„Við þurfum að ná grundvall-
arákvörðun í málinu fljótlega og
hún mun liggja fyrir fyrir áramót.“
Aðspurður um hvaða niðurstöðu
hann óski eftir segist Stefán Jón
umfram allt vilja að Reykjavík-
urlistinn starfi áfram. „Borgarbú-
ar hafa treyst okkur til að vinna
saman og í mínum huga kemur
ekkert annað til greina. T.d. úti-
loka ég algjörlega meirihlutasam-
starf með Sjálfstæðisflokknum í
borginni. [...] Það kemur ekki til
greina að Samfylkingin fari með
Sjáflstæðisflokknum, við unnum
ekki þessar kosningar í vor til að
gera Björn Bjarnason borgar-
stjóra.“
Stefán Jón Hafstein, Samfylkingu
Málið skýrist
fyrir áramót
Stefán Jón
Hafstein
EFTIR fund oddvita R-lista
flokkanna og borgarstjóra á heim-
ili borgarstjóra í gær, sagði Árni
Þór Sigurðsson, forseti borgar-
stjórnar og oddviti Vinstri
grænna, að hann væri bjartsýnni
eftir fundinn en hann var fyrir
hann, um að R-listasamstarfið
gæti haldið áfram.
„Mér finnst allir þarna í [gær-
]morgun hafa talað á þeim nótum
að varðveita R-listann. Það væri
keppikefli númer eitt, tvö og
þrjú,“ segir Árni Þór. Aðspurður
segist hann telja sig hafa heyrt
þennan sáttatón í oddvitum allra
flokkanna.
Aðspurður hvernig honum litist
á þann möguleika að Ingibjörg
Sólrún tæki sér frí frá stjórnun borgarinnar
meðan hún færi í framboð sagðist Árni ekki vilja
tjá sig um það í fjölmiðlum. „Við töluðum um að
ræða frekar í okkar hópi um frekari lausnir eða
hugmyndir að lausnum sem koma
upp. [...] Þetta leysist í samtölum
okkar í milli, en ekki í fjölmiðlum.“
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
arráðherra, Framsóknarflokki, og
Hjörleifur Guttormsson, fyrrver-
andi ráðherra, Vinstri grænum,
hafa bæði á opinberum vettvangi
tjáð sig harðlega um atburði síð-
ustu daga og gagnrýnt framgöngu
Ingibjargar. „Ég veit ekki hvort
svona ummæli hafa nein sérstök
áhrif, auðvitað geta einstakir ein-
staklingar í flokkum okkar haft
skoðanir á þessu og haft leyfi til að
setja þær fram. Við erum auðvitað
bara að vinna að lausn málsins og
verðum að vara okkur við því að
láta ekki einstök ummæli trufla
það,“ segir Árni Þór.
Áfram verði unnið að lausn málsins, en nú
ætli borgarfulltrúar að reyna að komast aðeins í
jólaskap og jólasteik.
Árni Þór Sigurðsson, Vinstri grænum
Bjartsýnni eftir fund-
inn en fyrir hann
Árni Þór
Sigurðsson
Í SAMSTARFSYFIRLÝSINGU Reykjavík-
urlistans, sem samþykkt var í byrjun febrúar
vegna kosninganna í vor er ekki gert ráð fyrir
eftirmanni borgarstjóra hætti hann einhverra
hluta vegna.
Kosningabandalag Framsóknarflokksins,
Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar
– græns framboðs samþykkti 2. febrúar sam-
starfsyfirlýsingu og málefnasamning vegna
sameiginlegs framboðs flokkanna til borgar-
stjórnar í vor sem leið. „Kosningabandalagið
felur í sér samstarf þriggja jafn rétthárra að-
ila,“ segir m.a. „Skal við skipan til starfa á veg-
um kosningabandalagsins tryggt að jöfnuður
sé milli framboðsaðilanna. Jafnræðisregla er
hornsteinn og viðmiðun samstarfsins, hvort
sem um verður að ræða samstarf í meirihluta
eða minnihluta. Miðast samkomulag þetta við
að Reykjavíkurlistinn verði í meirihluta.“
Í yfirlýsingunni er kveðið á um að Samfylk-
ingin tilnefni formann borgarstjórnarflokks
listans fyrsta og fjórða ár kjörtímabilsins,
Framsóknarflokkur annað árið og Vinstri
hreyfingin – grænt framboð það þriðja. Samið
var um skipan 15 efstu sæta á listanum, emb-
ætti forseta og varaforseta og embætti full-
trúa flokkanna í borgarráði. Um borgarstjóra
segir aðeins: „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri skipar áttunda sæti framboðslist-
ans.“
Samstarfsyfirlýsing Reykjavíkurlistans
Ekki gert ráð fyrir eftirmanni borgarstjóra