Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 14

Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 14
„Kabúl-yfirlýsingin“ Friður við grannríkin STJÓRNVÖLD í Afganistan undir- rituðu á sunnudag svokallaða „Kab- úl-yfirlýsingu“ en hún kveður á um frið við nágrannaríkin sex. Vonast er til, að með yfirlýs- ingunni verði bundinn endi á öll afskipti þeirra af afgönskum inn- anríkismálum. Undirritunin átti sér stað er rétt ár var liðið frá því Hamid Karzai tók við sem forseti afg- önsku bráðabirgðastjórnarinnar en í júní sl. hlaut hann formlegt kjör. Auk Afgana undirrituðu „Kabúl- yfirlýsinguna“ fulltrúar stjórnvalda í Kína, Pakistan, Íran, Túrkmenistan, Úsbekistan og Tadsíkistan en að auki voru við undirritunina fulltrúar Indlands, Sádi-Arabíu, Tyrklands, Evrópusambandsins, Sameinuðu þjóðanna og Bandaríkjanna. Karzai sagði í ræðu að öryggi og friður í Afganistan væri forsenda framfara í öllum heimshlutanum. „Vinnum að því, að þetta svæði verði laust við starfsemi öfgamanna, hryðjuverk og fátækt,“ sagði hann. Hamid Karzai Kabúl. AP. ERLENT 14 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÚÐUMYND af Jesú Kristi ásamt öðrum minjagripum í anda krist- indómsins í verslun skammt frá Fæðingarkirkjunni í Betlehem á Vesturbakkanum. Íbúarnir hafa ekki farið varhluta af meira en tveggja ára, blóðugum átökum Pal- estínumanna og Ísraela sem varpa dimmum skugga á jólahátíðina sem nú gengur í garð. Margir íbúa Betle- hem eru kristnir. „Við munum leita hughreystingar í miðnæturmess- unni, að öðru leyti verða engin há- tíðarhöld,“ sagði Johnny Babun sem rekur bílaþvottastöð og verkstæði. Talsmenn Ísraelshers segja að út- göngubanni verði aflétt í Betlehem næstu daga ef allt verði með ró og spekt. Staðfest var á sunnudag að palestínska heimastjórnin hefði frestað fyrirhuguðum þing- og leið- togakosningum sem áttu að fara fram 20. janúar.AP Skuggi ófriðar yfir Betlehem BANDARÍSKA tímaritið Time hefur nefnt þrjár konur sem „Menn ársins“ og allar fyrir að hafa skýrt frá alvarlegum yfir- sjónum eða sviksemi á vinnu- stað sínum. Coleen Rowley, starfsmað- ur FBI, bandarísku alríkislög- reglunnar, skýrði frá því hvernig stofnunin hefði brugðist og ekki fylgt eftir vísbendingum um hryðjuverkin í Bandaríkj- unum og þær Sherron Watkins og Cynthia Cooper sögðu frá umfangsmiklum fölsunum í bókhaldi fyrirtækjanna Enrons og WorldComs. Er þeim hrósað fyrir mikið hugrekki. Jólasveinn í önnum JÓLASVEININUM í Græn- landi hafa borist meira en 60.000 bréf og um 200.000 tölvupóstskeyti frá börnum um allan heim. Þau gleyma því hins vegar stundum að láta eigið heimilisfang fylgja og því er dá- lítið erfitt fyrir jólasveininn að þakka þeim fyrir tilskrifið. Þótt heimilisfangið fylgi, þá er það oft illskiljanlegt og hafa þau japönsku valdið aðstoðarmönn- um jólasveinsins sérstökum heilabrotum. Ef unnt er að ráða fram úr heimilisfanginu fá börnin kveðju frá jólasveinin- um en gjafaóskir þeirra verður einhver annar að uppfylla. Herliði beitt í Venesúela HERLIÐ beitti táragasi þegar það réðst til atlögu gegn hundr- uðum andstæðinga Hugo Cha- vez, forseta Venesúela, í Mara- caibo í gær þegar þeir ætluðu að sýna áhöfnum olíuskipa, sem eru í verkfalli, stuðning. Cha- vez hefur svarið þess eið að ná aftur stjórn á olíuiðnaði lands- ins sem hefur lamast vegna verkfallsins. Hann sagði að verkfallsmenn yrðu reknir og sóttir til saka fyrir þann skaða sem þeir hafa valdið með því að leggja niður vinnu. Sagði for- setinn að forstjóri ríkiolíufyrir- tækisins PDVSA hefði þegar hafizt handa við að reka menn. Fullyrti Chavez að olíuútflut- ingur væri að hefjast á ný. Verkfallsmennirnir krefjast af- sagnar Chavez. Styður pal- estínskt ríki BANDARÍSKI öldungadeild- arþingmaðurinn Joeseph Lieb- erman, sem var varaforsetaefni Al Gores í forsetakosningunum 2000, lýsti í gær yfir ein- dregnum stuðningi við sjálf- stætt palestínskt ríki. Gerði hann það á fundi með palest- ínskum embættismönnum í Ramallah á Vesturbakkanum. Sagði hann, að fyrr myndi eng- in lausn fást á deilum Ísraela og Palestínumanna. Lieberman, sem er gyðingur, er hugsan- legur frambjóðandi demókrata í forsetakosningunum 2004. STUTT Þrjár kon- ur eru „Menn ársins“ FULLTRÚAR Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar (IAEA) í Vín harma þá ákvörðun stjórnvalda í Norður-Kóreu að taka niður eftirlits- myndavélar í kjarnorkustöðvum sín- um og rjúfa innsigli sem erindrekar IAEA og Sameinuðu þjóðanna hafa sett á tækjakost í kjarnorkustöðinni í Yongbyon. Aðgerðir Norður-Kóreu- manna hafa verið gagnrýndar af þjóð- um heims og Mark Gwozdecky, tals- maður IAEA, sagði í gær að einu notin sem þeir gætu hugsanlega haft af aðstöðunni í Yongbyon, sem þar til um helgina var innsigluð, væri til framleiðslu plútons í kjarnorku- sprengjur. Vinnslu var hætt í kjarnorkustöð- inni í Yongbyon, sem er um 80 km norður af höfuðborginni Pyongyang, árið 1994 í samræmi við samning sem þá var gerður við Bandaríkjamenn. Hafa erindrekar IAEA síðan þá haft eftirlit með því að N-Kóreumenn stæðu við sinn hluta samningsins. Um helgina greindu fulltrúar stofn- unarinnar hins vegar frá því að stjórnvöld í Norður-Kóreu hefðu tek- ið innsiglin af eldsneytisgeymi sem í voru 8.000 úranstautar. „Þar sem úr- anstautarnir geyma töluvert magn af plútoni eru þessar aðgerðir [Norður- Kóreu] andstæðar þeirri áherslu sem lögð hefur verið á að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna,“ sagði Mohamed ElBaradei, fram- kvæmdastjóri IAEA, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á sunnudag. Sagðist ElBaradei harma mjög að stjórnin í Pyongyang skyldi ekki hafa svarað óskum hans um viðræður um málið. Talsmenn Norður-Kóreustjórn- ar sögðu hins vegar í gær að IAEA hefði ekki orðið við óskum þeirra um að rjúfa innsiglin af tækjakostinum í kjarnorkuvinnslustöðinni. Því hefðu þeir orðið að gera það sjálfir. Tengist ekki raforkuframleiðslu Bandaríkjamenn, sem eru helsti bandamaður Suður-Kóreu, hafa gefið til kynna að þeir vilji semja um lyktir deilna um áform Norður-Kóreu- stjórnar. Þeir ljá þó ekki máls á bein- um viðræðum nema Norður-Kórea leggi fyrst til hliðar áætlanir um framleiðslu kjarnorkuvopna. Norður-Kóreumenn gáfu til kynna í gær að semja mætti um málið en sögðu forsenduna þá að Bandaríkin yrðu við gamalli kröfu þeirra um samning milli Suður-Kóreu og Norð- ur-Kóreu sem fæli í sér fyrirheit um að ríkin réðust ekki hvort gegn öðru. Lou Fintor, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, sagði menn þar á bæ hafa miklar áhyggjur af þró- un mála um helgina enda ljóst að úr úranstautunum í Yongbyon mætti auðveldlega vinna plúton í kjarnorku- sprengjur. Sagði öldungadeildarþing- maðurinn Joseph Biden reyndar að innan fárra mánaða gætu Norður- Kóreumenn verið búnir að framleiða fjórar til fimm kjarnorkusprengjur til viðbótar við þær sem þeir eiga þegar. Óttast menn nú vaxandi spennu á Kóreuskaganum en tvær vikur eru liðnar síðan Norður-Kóreumenn sögðust ætla að opna kjarnorkustöðv- ar sínar á ný til að framleiða rafmagn. Fintor sagði úranstautana í Yong- byon ekkert hafa með framleiðslu raf- magns að gera. Ákvörðun N-Kóreu- stjórnar hörmuð Hafa rofið inn- sigli á tækjakosti í kjarnorkustöð- inni í Yongbyon Seoul. AP. EFTIRLITSMENN Sameinuðu þjóðanna héldu áfram störfum sínum í Írak í gær en á sama tíma flugu skeytin á milli stjórnvalda í Bagdad og Washington. Er Flóttamanna- stofnun SÞ farin að búa sig undir hernað í landinu og mikinn fólksflótta þaðan. Eftirlitsmennirnir skoðuðu á þremur stöðum nærri Bagdad í gær og þar á meðal verksmiðju, sem var lokað fyrir þremur árum, en hún framleiddi áður þurrmjólkurduft. Voru gerðar loftárásir á hana 1991 og aftur 1998 vegna grunsemda um, að þar væru einhver önnur efni fram- leidd. Amir al-Saadi, ráðgjafi Saddams Husseins Íraksforseta, sagði á sunnudag, að Írakar væru reiðubúnir að svara öllum spurningum Breta og Bandaríkjamanna og bauð hann að auki fulltrúum CIA, bandarísku leyniþjónustunnar, að koma til lands- ins og skoða það, sem þeir vildu. Hefur Bandaríkjastjórn vísað þessu boði á bug og talsmaður hennar sagði, að það væri Íraksstjórnar sjálfrar að sýna fram á, að öllum ger- eyðingarvopnum hefði verið eytt. Hátt í milljón manns gæti flúið Flóttamannastofnun SÞ tilkynnti í gær, að hún væri farin að búa sig und- ir hernað í Írak og mikinn flótta- mannastraum þaðan. Hefðu matar- birgðir verið sendar til ýmissa staða í Mið-Austurlöndum af þeim sökum auk þess sem ýmis aðildarríki hefðu verið beðin að veita stofnuninni 37,4 milljóna dollara neyðarframlag, um 2,8 milljarða ísl. kr. Breska dagblaðið The Times sagði í gær og hafði eftir heimildamönnum í SÞ, að Flóttamannastofnunin byggist við, að allt að 900.000 manns muni flýja frá Írak komi til árása á landið en talsmaður Alþjóða Rauða kross- ins, sem fór að efla viðbúnað sinn vegna hugsanlegs stríðs í Írak fyrir hálfum mánuði, vill ekki reyna að geta sér til um flóttamannafjöldann. Sérfræðingar yfirheyrðir Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar, sagði í gær, að eftirlitsmenn henn- ar í Írak væru farnir að yfirheyra íraska sérfræðinga og ynnu nú að því að fara með þá, sem það vildu, úr landi. Hefur Bandaríkjastjórn lagt mikla áherslu á, að írösku sérfræð- ingarnir verði yfirheyrðir utan Íraks og telur, að þá fyrst þori þeir að segja frá því, sem þeir vita. Búa sig undir mikinn straum flóttamanna AP Jólatréssali í Bagdad hjálpar til við að koma tré fyrir í bíl. Kristnir menn í Írak eru um ein milljón og halda þeir jól með líku sniði og á Vesturlöndum. Sameinuðu þjóðirnar telja auknar líkur á að til hernaðaraðgerða komi í Írak Bagdad, Washington. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.