Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 16
ERLENT
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞINGMENN Repúblikanaflokks-
ins í öldungadeild Bandaríkja-
þings kusu sér nýjan leiðtoga í
gær í kjölfar afsagnar Trents
Lotts fyrir helgi. Þingmennirnir,
sem flestir eru komnir til síns
heima vegna jólahátíðanna, áttu
saman símafund í gær og völdu
þeir þar Bill Frist, öldungadeild-
arþingmann frá Tennessee, til að
taka við af Lott. Mun Frist því
taka við hlutverki leiðtoga meiri-
hluta repúblikana í öldungadeild-
inni á fyrsta fundi nýs þings 7.
janúar nk.
Lott neyddist til að segja af sér
fyrir helgi vegna ummæla sem
hann lét falla fyrir tæpum 3 vikum
í 100 ára afmælisveislu Stroms
Thurmonds, sem er að ljúka
stjórnmálaferli sínum um þessar
mundir. Mátti túlka orð hans þar
þannig að hann væri að mæla bót
þeirri stefnu sem áður réð ríkjum
í Suðurríkjum Bandaríkjanna og
markaðist af andstöðu við að
svertingjum yrðu veitt aukin lýð-
réttindi.
Tilraunir Lotts seinna til að
biðjast fyrirgefningar féllu í
grýttan jarðveg og rifjað var upp
að hann hefði látið svipuð ummæli
falla áður, auk þess sem hann
hefði á þingmannsferli sínum m.a.
greitt atkvæði gegn tillögu þess
efnis að fæðingardagur Martins
Luthers Kings yrði opinber frí-
dagur í Bandaríkjunum.
Lott sagðist á sunnudag hafa
fallið í gildru pólitískra andstæð-
inga sinna. „Það er til hópur fólks í
Washington sem hefur í langan
tíma verið að reyna að negla mig,“
sagði Lott. „Þegar þú kemur frá
Mississippi, ert íhaldsmaður og
kristinnar trúar þá er ljóst að
mörgum líkar það illa. Ég féll í
gildru þessa fólks og get því ekki
kennt neinum um ófarnirnar
nema sjálfum mér.“
Efnaður hjartaskurðlæknir
Chuck Hagel, þingmaður frá
Nebraska, sagði fyrir símafund-
inn í gær að líklega yrði Frist ein-
róma kjörinn leiðtogi repúblikana,
sem í kosningum í haust tryggðu
sér meirihluta í öldungadeildinni.
Frist er vel stæður hjarta-
skurðlæknir en ekki ýkja þekktur
meðal almennings. Hann er fimm-
tugur að aldri og var kjörinn á
þing fyrir átta árum. Hann hefur
viðurkennt að hafa neytt kosn-
ingaréttar síns fyrr en hann var
orðinn 36 ára gamall. „Ég kom úr
öðrum geira mannlífsins [en póli-
tíkinni] og það er kostur,“ sagði
Frist í síðustu viku.
Repúblikanar vonast til þess að
með Frist í forystu takist þeim að
skapa sér jákvæðari ímynd; ekki
síst vonast þeir til að Frist höfði til
minnihlutahópa. Sumir segja
hann þó síst íhaldsamari en Lott.
Engum blandast hins vegar hugur
um að Frist er sérfróður um heil-
brigðismál og hann hefur reglu-
lega tekið þátt í hjálparstarfi í
Afríku og víðar. Frist er ennfrem-
ur álitinn bandamaður George W.
Bush Bandaríkjaforseta.
OSKAR Lafontaine, fyrrver-
andi fjármálaráðherra Þýska-
lands, gagnrýndi í gær Gerhard
Schröder kanslara og flokks-
bróður sinn í þýzka Jafnaðar-
mannaflokkn-
um SPD fyrir
að áforma að
veita skatt-
svikurum sak-
aruppgjöf.
Tók Lafon-
taine undir
hvatningu til
um fjögurra
milljóna opinberra starfs-
manna um að þeir fari í alls-
herjarverkfall, sem yrði það
fyrsta í áratug. Opinberir
starfsmenn vilja fá 3% launa-
hækkun til samræmis við aðra
hópa en ríki og sveitarfélög
hafa boðið mun minna. Ef
samningaviðræður bera ekki
árangur á næstunni gætu
verkalýðsfélögin, sem þegar
hafa staðið fyrir skæruverkföll-
um sem m.a. lömuðu almenn-
ingssamgöngur nýlega, látið
fara fram atkvæðagreiðslu um
allsherjarverkfall.
Lafontaine sagði af sér emb-
ætti fjármálaráðherra og for-
manns SPD árið 1999 en hann
taldi sig ekki geta stutt stefnu
Schröders.
Khatami til
Pakistans
MOHAMMAD Khatami, for-
seti Írans, hóf í gær þriggja
daga opinbera heimsókn til
Pakistans. Þykir heimsóknin
marka tímamót í samskiptum
ríkjanna, en þetta er fyrsta
heimsókn íransks ráðamanns
til Pakistans frá því talebana-
stjórninni í Afganistan var
steypt fyrir ári. Khatami átti
viðræður við Perez Musharraf,
forseta Pakistans, og hinn nýja
forsætisráðherra landsins, Mir
Zafarullah Kham Jamali. Að
sögn embættismanna er
ástandið í heimshlutanum efst
á dagskrá viðræðnanna, eink-
um Íraksmál og spennan í sam-
skiptum Pakistana og Indverja.
Rauður
khmeri
dæmdur
DÓMSTÓLL í Kambódíu
dæmdi í gær einn æðstu manna
Rauðu khmeranna í lífstíðar-
fangelsi fyrir að hafa lagt á ráð-
in um rán og morð á þremur
vestrænum
ferðamönnum
fyrir átta ár-
um. Sam Bith,
69 ára, er einn
æðsti foringi
Rauðu khmer-
anna sem
dreginn hefur
verið fyrir
dómstóla. Bith var fundinn sek-
ur um að hafa ráðgert morð á
Ástrala, Breta og Frakka árið
1994, mörgum árum eftir að
Rauðu khmerunum var steypt
af valdastóli í Kambódíu og
störfuðu því sem skæruliða-
samtök. Undir forystu hins al-
ræmda Pol Pots réðu þeir ríkj-
um í landinu á árunum 1975 til
1979 og gerðu landið að einum
allsherjarvígvelli.
STUTT
Lafon-
taine
hvetur til
verkfalls
Oskar Lafontaine
Sam Bith
AKIHITO Japanskeisari kom stutt-
lega fram opinberlega í gær og
heilsaði þegnum sínum við keis-
arahöllina í Tókýó í tilefni af því að
hann átti afmæli. Hrópuðu menn
þá: „Banzai!“ Á japönsku mun það
vera ósk um langlífi. Auk þess að
taka virkan þátt í heillaóskahróp-
unum halda hér tryggir þegnar
keisarans á loft gunnfána keis-
aradæmisins, „ríkis hinnar rísandi
sólar“, en hann hefur ekki verið
notaður opinberlega frá lokum síð-
ari heimsstyrjaldar árið 1945.
Keisarinn varð 69 ára í gær. Í
ávarpi er hann flutti sagði hann
meðal annars að hann hefði skiln-
ing á því, að efnahagsörðugleikar
gerðu landsmönnum erfitt fyrir um
þessar mundir.
Reuters
Banzai! Repúblikanar
velja Bill Frist
til forystu
Washington. AP, AFP.
Bill Frist Trent Lott
ÞAU ummæli Alans Greenspans,
seðlabankastjóra Bandaríkjanna, að
efnahagslífið sé að vinna sig út úr
erfiðleikunum hafa haft góð áhrif á
verðbréfamarkaðinn vestra. Er því
nú spáð, að það muni taka vel við sér
á árinu 2004 eða strax og áhyggjum
af Írak og hugsanlegum hernaði þar
léttir.
Kermit Schoenholtz, hagfræðing-
ur hjá Citigroup-bankanum, sagði
um helgina, að óvissan um framvind-
una í Íraksmálum myndi halda aftur
af efnahagslífinu enn um sinn. Það
væri hins vegar búið að laga sig vel
að nýjum aðstæðum eftir þensluna á
síðasta áratug og gæti því tekið vel
við sér strax og spennan í Miðaust-
urlöndum minnkaði. Hagfræðing-
arnir hjá Citigroup spá því, að hag-
vöxtur í Bandaríkjunum verði 2,5% á
komandi ári en 4,2% 2004.
Bjartsýni
Greenspan nefndi það sama í ræðu
sinni í síðustu viku en bætti við, að
lágir vextir og aukin framleiðni væru
farin að skila sér. Kæmi það meðal
annars fram í því, að aukinnar bjart-
sýni væri farið að gæta í ýmsum
framleiðslugreinum.
Hagfræðingar hjá fjármálafyrir-
tækinu Morgan Stanley eru líka
sammála um, að nýtt hagvaxtarskeið
sé framundan en þó ekki fyrr en
ástandið í alþjóðamálum batnar.
Bandaríkin
Íraksdeila
tefur fyrir
hagvexti
Washington. AFP.
RANNSÓKN í leyniskyttumálinu
svokallaða í Bandaríkjunum þykir
hafa leitt í ljós að táningurinn John
Lee Malvo hafi skotið flest ef ekki öll
fórnarlambanna tíu. Gæti þessi nið-
urstaða torveldað þau áform sak-
sóknara að fara fram á dauðadóm yf-
ir John Muhammad, sem flestir
höfðu talið höfuðpaurinn í málinu.
Muhammad, sem er 41 árs, og
Malvo, sem er 17 ára, hafa verið
ákærðir fyrir að hafa myrt tíu manns
og sært þrjá til viðbótar í úthverfum
Washington og nágrannasveitar-
félögum á þriggja vikna tímabili í
október.
Þá eru þeir grunaðir um árásir í
Georgíu, Alabama, Louisiana og
Washington-ríki. Þeir gætu átt yfir
höfði sér dauðadóm verði þeir fundn-
ir sekir.
„Það er ekki margt sem bendir til
sektar Muhammads og þess vegna
verður mjög snúið að sýna fram á að
hann hafi tekið í gikkinn,“ sagði hátt-
settur löggæslumaður í samtali við
New York Times.
Malvo sagður hafa játað
sum morðanna
Fyrir nokkru var fullyrt í fjölmiðl-
um vestra að Malvo hefði gengist við
því við yfirheyrslur að hafa verið að
verki í nokkrum byssuárásanna.
Meðal sönnunargagna sem benda til
sektar hans eru hár sem fundust í
bíl, sem lögregla telur hafa verið not-
aðan við árásirnar, og sem DNA-
rannsóknir sýna að eru úr Malvo. Þá
fundust fingraför hans á blaði sem
fannst á einum árásarstaða, auk þess
sem rannsóknir á munnvatnssýni,
sem fannst nálægt einum árásar-
staðanna, þykja benda til að þar hafi
Malvo verið á ferð.
Leyniskyttumálið í Bandaríkjunum
Malvo líklega
oftast að verki
Centreville í Virginíu. AP.
Reuters
John Lee Malvo er hann var leiddur
fyrir dómara í nóvember sl.