Morgunblaðið - 24.12.2002, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Spil 1
Suður gefur, AV á hættu.
Norður
♠ 843
♥ --
♦ 8642
♣KDG1084
Suður
♠ ÁKD52
♥ G964
♦ ÁK
♣Á3
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 2 grönd
Pass 4 hjörtu * Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
* Einspil eða eyða í hjarta
(splinter).
Útspil: Hjartatvistur.
Hvernig er best að spila?
Spil 2
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 52
♥ Á53
♦ K8532
♣Á53
Suður
♠ ÁK6
♥ KD742
♦ Á9
♣K76
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 tígull Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 5 grönd
Pass 6 tíglar Pass 7 hjörtu
Pass Pass Pass
Þetta eru hræðilegar sagnir, enda
samningurinn eftir því. Útspil vest-
urs er lauftía.
Hvernig er best að spila?
Spil 3
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 53
♥ 65
♦ ÁG109542
♣109
Suður
♠ ÁD7
♥ ÁD2
♦ K3
♣ÁKD65
Vestur Norður Austur Suður
-- 3 tíglar Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: spaðagosi.
Hvernig er best að spila?
Spil 4
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♠ ÁDG109
♥ 108
♦ Á1094
♣KD
Suður
♠ K8
♥ ÁD97
♦ D87
♣ÁG109
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 grand
Pass *2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass 6 grönd Allir pass
* Yfirfærsla í spaða.
Útspil: Laufátta.
Hver er áætlunin?
Spil 5
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 7
♥ 43
♦ Á10765
♣ÁK832
Suður
♠ ÁK
♥ ÁKDG109
♦ 9842
♣6
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
Pass 2 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: Spaðagosi.
Hver er áætlunin?
Spil 6
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♠ G654
♥ D62
♦ Á
♣DG543
Vestur Austur
♠ D ♠ 982
♥ G1097 ♥ K543
♦ KD1087654 ♦ 9
♣-- ♣109876
Suður
♠ ÁK1073
♥ Á8
♦ G32
♣ÁK2
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
3 tíglar 3 spaðar Pass 4 lauf
Pass 4 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Pass 7 spaðar !
Pass Pass Pass
Útspil: Tígulkóngur.
Nú fær lesandinn að sjá allar
hendur og mun ekki af veita. Hvern-
ig á sagnhafi að krækja í 13 slagi?
Jólabridsþrautir
ALLTAF fylgir því viss hátíðleiki þegar slemma er sögð við spilaborðið. And-
artakið fyrir útspilið er þrungið eftirvæntingu, andstæðingarnir íhuga sagnir af
kostgæfni og sagnhafi dregur djúpt andann, svolítið smeykur um að blindur
standi ekki undir væntingum. Bútar og geim eru hverdagsleikinn við spila-
borðið, en nú eru jól og hátíð í bæ – rétti tíminn til að spila slemmur. Hér á eftir
fara sex slemmuspil, þar sem lesandinn er í öllum tilfellum í sæti sagnhafa í suð-
ur. Verkefnið er að finna bestu leiðina til vinnings, en svörin verða birt í blaðinu
í sérstökum þætti milli jóla og nýárs. Góða skemmtun og gleðilega hátíð.
Guðmundur Páll Arnarson.
1. Hvítur leikur og vinnur.
2. Hvítur leikur og vinnur.
3. Hvítur leikur og vinnur.
4. Hvítur leikur og vinnur.
5. Hvítur leikur og vinnur.
6. Hvítur leikur og vinnur.
Jólaskákþrautir
JÓLASKÁKÞRAUTIRNAR í ár koma úr ýmsum
áttum og flestir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi til að glíma við. Ein staðan er úr kapp-
skák, önnur úr bréfskák, sú þriðja kom upp í fjöl-
tefli, ein á sér ókunnan uppruna o.s.frv. Hvítur á
leik í öllum þrautunum. Lausnir verða birtar eftir
jólin.
Gleðileg jól!
JÓHANN Hjartarson og Helgi
Ólafsson urðu efstir og jafnir á fyrsta
Jólaskákmóti Búnaðarbankans sem
haldið var sl. laugardag í aðalútibúi
bankans, Austurstræti 5. Jóhann og
Helgi hlutu 10 vinninga í 13 skákum.
Þriðji varð Hannes Hlífar Stefánsson
með 9½ vinning. Alls tóku 14 skák-
menn þátt í mótinu, þar af átta af níu
íslensku stórmeisturunum. Árni
Tómasson bankastjóri setti mótið og
lék fyrsta leiknum í skák Friðriks
Ólafssonar og Karls Þorsteins.
Mótið var afar spennandi. Jóhann
náði snemma forystunni, en um mið-
bik mótsins skaust Hannes fram úr
honum eftir tvær tapskákir Jóhanns.
Eftir það hélt Hannes forystunni allt
þar til í lokaumferðinni og fátt virtist
geta komið í veg fyrir sigur hans.
Lokaumferðin réð hins vegar úrslit-
um á mótinu, er Hannes tapaði fyrir
Helga Ólafssyni, sem komst við það í
efsta sæti ásamt Jóhanni Hjartar-
syni. Lokastaðan:
1.–2. Helgi Ólafsson og Jóhann
Hjartarson 10 v.
3. Hannes Hlífar Stefánsson 9½ v.
4.–5. Helgi Áss Grétarsson og Jón
Viktor Gunnarsson 9 v.
6. Þröstur Þórhallsson 8 v.
7. Karl Þorsteins 7 v.
8. Jón L. Árnason 5½ v.
9. Margeir Pétursson 5 v.
10.–11. Bragi Þorfinnsson og Björn
Þorfinnsson 4½ v.
12. Friðrik Ólafsson 4 v.
13. Ágúst Sindri Karlsson 3½ v.
14. Sigurður Daði Sigfússon 1½ v.
Skákstjóri var Gunnar Björnsson.
Mótið var afar vel sótt af áhorfendum.
Árni Tómasson lofaði því við verð-
launaafhendingu í mótslok að Jóla-
skákmót Búnaðarbankans yrði árleg-
ur skákviðburður.
Karpov sigraði Kasparov
Karpov sigraði Kasparov í fjögurra
skáka einvígi sem fram fór í New
York, 19. og 20. desember. Úrslitin
urður 2½-1½ Karpov í vil. Þetta eru
óvænt úrslit, en þrátt fyrir að Kasp-
arov geti státað sig af því að hafa ver-
ið sterkasti skákmaður heims frá
1985 hefur honum aldrei tekist að
hrista Karpov alveg af sér. Kasparov
vann fyrstu skákina, en Karpov jafn-
aði metin í annarri skákinni og sigraði
aftur í þeirri þriðju. Fjórðu skákinni
lauk svo með jafntefli. Karpov hefur
gengið vel undanfarið, sérstaklega í
atskák. Þau tímamörk virðast hins
vegar ekki henta Kasparov vel og má
m.a. benda á afar slakan árangur
hans í Heimurinn–Rússland nýverið.
Jóla- og flugeldaskákmót TK
Jólahraðskákmót Taflfélags Kópa-
vogs verður haldið fimmtudaginn 26.
desember kl. 14. Teflt verður í félags-
heimili TK í Hamraborg 5, þriðju
hæð. Að venju verða vegleg verðlaun í
boði.
Flugeldamót Taflfélags Kópavogs
verður síðan haldið sunnudaginn 29.
desember kl. 14 á sama stað. Vegleg
flugeldaverðlaun í boði.
Jólahraðskákmót á Akureyri
Föstudagskvöldið 27. desember kl.
20 heldur Skákfélag Akureyrar jóla-
hraðskákmót í opnum flokki og er það
opið öllum. Daginn eftir, laugardag-
inn 28. desember kl. 13:30, er svo
barna- og unglingaæfing hjá félaginu
að venju.
Jólahraðskákmót TR
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur fer fram 28. desember
og hefst kl. 14. Teflt verður í einum
flokki eftir Monrad-kerfi. Tveir efstu
keppendurnir vinna sér rétt til þátt-
töku í Nýársmóti Skeljungs sem fer
fram 29. desember.
Jólamót Hellis á ICC
Taflfélagið Hellir heldur jólamót
félagsins í annað sinn mánudaginn 30.
desember í samstarfi við ICC. Mótið
fer fram á Netinu á ICC-skákþjón-
inum. Það hefst kl. 20 og lýkur um kl.
22:30. Góð verðlaun eru í boði, pen-
ingaverðlaun og frímánuðir frá ICC.
Öllum er heimil þátttaka sem er
ókeypis.
Jóhann og Helgi sigruðu á
Jólaskákmóti Búnaðarbankans
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks.is
Jóhann Hjartarson og Friðrik Ólafsson.
Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsileg
kampavínsglös
fyrir áramótin