Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 51
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 51
Í KOSNINGABARÁTTUNNI síð-
astliðið vor kom fram að skuldir borg-
arinnar hefðu margfaldast á síðustu
átta árum, eða um það bil tífaldast.
Þessi niðurstaða var ekki hrakin þrátt
fyrir tilraunir til að breiða yfir stað-
reyndina með ýmiss konar útúrsnún-
ingum og reiknikúnstum.
Nú þegar umræður eiga að standa
yfir um fjárhagsáætlun R-listans
bregður svo við að enginn og allra síst
fréttastofurnar, virðist hafa hugmynd
um að fjármál borgarinnar séu á dag-
skrá. Af hverju? jú, athygli manna er
beint í annan farveg. Enn eru það yf-
irhylmingar og stærðfræðilegir loft-
fimleikar sem villa mönnum sýn.
Fyrst var fjárhagsáætlunin klofin
upp svo engin leið væri fyrir venjulegt
fólk að fá heildarsýn yfir málið, síðan
er borgarbúum boðið upp á flugelda-
sýningar. Kannast einhver við aðferð-
arlýsinguna?
„Gefið lýðnum brauð og leika“
sagði Neró og lagði eld að Rómar-
borg. Eitthvað í líkingu við þetta eru
Reykvíkingar að uppskera núna, en
meðan leikarnir standa er allt annað
gleymt. Meiri leik! hrópar bara lýð-
urinn og er nú svo komið að menn
muna ekki lengur um hvað uppákom-
urnar snúast. Í Kastljósi fyrir u.þ.b.
tveimur vikum var landsfrægur
skemmtikraftur spurður hvað hann
væri að fást við. Í ljós kom að hann
hafði verið ráðinn af Reykjavíkurborg
til að troða upp á einhverri samkomu.
Tilefnið var þó eitthvað á reiki í hug-
arskotum hans og ekki að undra, því
erfitt er að henda reiður á hvað
skemmtanastjóri borgarinnar býður
uppá næst. Listamaðurinn tók sig þó
saman í andlitinu og svaraði spurn-
ingunni á þá leið að hann ætti að
skemmta á Lækjartorgi á „menning-
ar, eee-eitthvað jóla“. Tilsvarið sýnir í
hnotskurn tómleikann sem taumleys-
ið leiðir af sér.
En hvað með fjárhagsáætlunina?
Þegar fyrri umræða fór fram og í ljós
kom að álögur á borgarbúa áttu að
þyngjast til muna og draga átti úr
sjálfsagðri þjónustu við aldraða og
barnafólk, var ótrúlegri umræðu um
ábyrgðarstöðu Reykjavíkurborgar
vegna Kárahnjúkavirkjunar hrundið
af stað. Mál sem borgin hefur staðið
frammi fyrir mánuðum saman. Eins
og leirinn í Jöklu botnféll fjárhags-
áætlunin í yfirlýsingagleði borgarfull-
trúa R-listans og frjálsra. Ekki einu
sinni upplýsingar um 11 milljónirnar,
sem R-listamenn hafa ákveðið að taka
af gamalmennum til að skemmta
sjálfum sér, hafa náð eyrum almenn-
ings. En þótt öll umræða sé drepin í
dróma í ráðhúsi Reykjavíkur stöðvar
það ekki tímans rás. Nú er komið að
annarri umræðu um fjármál borgar-
innar. Í þetta sinn er það samstæðu-
reikningur borgarinnar sem á að
ræða, Lína net með meiru. Hvað
skeður þá? Ný bomba springur. Ingi-
björg Sólrún ætlar í framboð. Fjár-
hagsáætlunin vermir aftur vara-
mannabekkinn. Fer Ingibjörg á þing?
Verður hún áfram borgarstjóri? Er
naflinn á konunni ílangur eða í hring?
Málefnaleysið um R-listasamstarfið
kemur nú berlega í ljós – engin fram-
tíðarsýn, bara grímulaus valda-
græðgi. Framsókn og vinstri-grænir
taka þátt í leiknum og láta eins og um
stórmál sé að ræða. Bakvið tjöldin
fara nú viðskiptin fram. Ef að líkum
lætur fær Framsókn Kárahnjúkaá-
byrgðina uppáskrifaða, VG fær að
flytja það sem eftir er af Geldinganes-
inu vestur í bæ og Ingibjörg heldur
stólnum og fær að bjóða sig fram til
þings. Samstarfið er jú svo ljómandi
gott. Allir græða nema borgarbúar
sem eiga að punga út fyrir fjárhags-
áætluninni án þess að vita uppá hvað
hún hljóðar.
Gamalt máltæki segir að „Sjaldan
launi kálfur ofeldið“. Forfeður okkar
leituðu gjarnan skýringa á mannlegri
hegðun í dýraríkinu. Halldór og
Steingrímur eru tæpast einni kynslóð
frá sveitinni og hefðu því átt að geta
sagt sér hvað af hlytist þegar gauks-
unginn er fóðraður of rausnarlega?
Fjármál og flugeldar
Eftir Ragnhildi
Kolka
„Allir græða
nema borg-
arbúar.“
Höfundur er meinatæknir.
Wokpanna, gæði í gegn
Klapparstíg 44 - sími 562 3614
10, 12 og 14 tommu
Verð frá kr. 1.995
Meðlagsgreiðendur!
Vinsamlegast gerið skil hið fyrsta
og forðist vexti og kostnað
Lágmúla 9 - 108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is
Banki 0139-26-4700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101