Morgunblaðið - 24.12.2002, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 61
DAGBÓK
Gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár
með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
G.V.F. ehf
Óskum viðskiptavinum
okkar gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Tímapantanir virka daga í síma 568 6311.
Auður Smith MRCOG
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Hef opnað lækningastofu
í Læknastöðinni ehf., Glæsibæ
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur milda skapgerð og
þér gengur vel að lynda við
fólk en jafnframt ertu með
báða fætur á jörðinni. Þú
lætur erfiðleika ekki hafa of
mikil áhrif á þig. Árið fram-
undan einkennist af annríki.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vikan hefst með krafti. Þú
kemur miklu í verk, m.a.
vegna þess að aðrir hlusta
á þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Í dag er heppilegt að vinna
að málum í sambandi við
útgáfufyrirtæki, fjölmiðla,
menntastofnanir, erlend
ríki og ferðir. Þú getur
hjálpað einhverjum í fjöl-
skyldunni.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Greiddu úr flækjum í sam-
bandi við eignir, sameigin-
lega ábyrgð og eignaskipti.
Vinsamlegar viðræður við
systkini og ættingja bera
ávöxt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er gott að tala um
peninga við nána ættingja
eða félaga. Reyndu að
skipuleggja eyðsluna en
ekki óttast örlæti.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er gæfuríkt ár. Í dag
eru bæði tunglið og Júpíter
í merki þínu. Njóttu þessa
happs og einbeittu þér að
því að koma á umbótum í
vinnunni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft að láta fjölskyldu-
mál til þín taka en þú þarft
einnig að sinna þér. Ef þú
ferð ekki vel með þig nýtist
þú engum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Í dag er gott að ræða við
vini. Reyndu að hitta kunn-
ingja í hádeginu eða í
kvöld. Þá er gott að fara í
bíó, tónleika eða á íþrótta-
viðburði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú skalt hefja vikuna á að
ræða við yfirmann þinn.
Reyndu að vera samninga-
lipur en þú getur haft mikil
áhrif um þessar mundir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að komast í burtu á
næstunni en ferðalög auka
á lífsgleði þína.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Bæði sólin og Merkúr eru í
merki þínu og það eykur
þér kraft í samræðum við
aðra. Ekki óttast að takast
á við erfið og viðkvæm mál.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Reyndu að sýna hógværð
og samvinnulipurð í byrjun
vikunnar og brostu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að vera skipulagð-
ari í vinnunni í dag. Aðrir
kunna að vilja hjálpa þér.
Hópumræður kunna að
verða gagnlegar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, 25. desem-
ber, verður sextugur Elías
Einarsson, veitingamaður,
Klettagötu 16, Hafnarfirði.
Eiginkona hans er Ólöf Eyj-
ólfsdóttir. Þau taka á móti
gestum í Borgartúni 6 (Rúg-
brauðsgerðinni) föstudaginn
27. desember frá kl. 18.
90 ÁRA afmæli. Í dag,24. desember, er ní-
ræð Hanna A. Þórðardóttir
frá Sauðanesi á Langanesi,
nú til heimilis að hjúkrun-
arheimilinu Sóltúni,
Reykjavík. Í kvöld verður
hún, ásamt fjölskyldu sinni,
á heimili dóttur sinnar að
Miðvangi 135, Hafnarfirði.
70 ÁRA afmæli. Í dag,24. desember, verður
sjötugur Kristján J. Ólafs-
son, húsgagnabólstrari,
Hraunbæ 54, Reykjavík.
Eiginkona hans er Anna
Sigurjónsdóttir. Þau taka á
móti ættingjum og vinum
28. desember í Félagsheim-
ili Óháða safnaðarins við
Háteigsveg milli kl. 15–18.
90 ÁRA afmæli. Annan íjólum, 26. desember,
verður níræður Sigurður
Kristjánsson, tæknifræð-
ingur og fyrrv. yfirkennari
við Iðnskólann í Reykjavík,
Vesturgötu 7 (áður Miklu-
braut 24). Hann verður með
fjölskyldu sinni á afmælis-
daginn.
BRÁÐUM KOMA
BLESSUÐ JÓLIN
Bráðum koma blessuð jólin,
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt,
í það minnsta kerti og spil.
Hvað þá verður, veit nú enginn.
Vandi er um slíkt að spá.
Eitt er víst, að alltaf verður
ákaflega gaman þá.
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT
Sumt í tilverunni ráða menn
við, annað ekki. Þannig er
það líka við spilaborðið:
Norður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á652
♥ D10653
♦ ÁK
♣K6
Suður
♠ KDG7
♥ 82
♦ 986543
♣9
Vestur Norður Austur Suður
– 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur trompar út. Hvern-
ig er best að spila?
Þetta spil vinnst aldrei
nema hægt sé að nýta tígul-
inn. Og það tekst varla ef lit-
urinn brotnar 4-1. Sagnhafi
verður að sætta sig við það að
tígullinn þurfi að vera 3-2. En
þar fyrir þarf hann ekki endi-
lega að stóla líka á hagstæða
tromplegu. Hann gæti ráðið
við 4-1 legu í spaða, en þá
verður að taka fyrsta slaginn
í borði á spaðaás:
Norður
♠ Á652
♥ D10653
♦ ÁK
♣K6
Vestur Austur
♠ 10843 ♠ 9
♥ ÁK ♥ G974
♦ D102 ♦ G7
♣Á1054 ♣DG8732
Suður
♠ KDG7
♥ 82
♦ 986543
♣9
Rétta spilamennskan er
þessi: Spaðaás í fyrsta slag,
síðan ÁK í tígli. Svo spaði
heim og tígull trompaður í
borði. Vestur á þrílit í tígli
með spaðalengdinni og getur
því ekkert gert. Nú á sagn-
hafi enn tromp í blindum til
að spila heim. Tíu slagir.
Samgangurinn fer allur í
hönk ef sagnhafi tekur fyrsta
slaginn heima. Svolítið
lúmskt spil.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
60 ÁRA afmæli. Mið-vikudaginn 25. des-
ember verður sextugur Sím-
on Páll Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri Golf-
klúbbs Borgarness. Af því
tilefni taka hann og eigin-
kona hans, Þuríður Jóhanns-
dóttir, á móti ættingjum og
vinum í Félagsheimilinu Val-
felli, föstudaginn 27. desem-
ber nk. frá kl. 18–22.
1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Bb5
Rd4 4. Ba4 g6 5. Rf3 Bg7 6.
O-O a6 7. Rxd4 cxd4 8. Re2
b5 9. Bb3 Bb7 10. d3 d5 11.
Rg3 h5 12. exd5
Rf6 13. f4 Bxd5
14. f5 O-O 15.
Bg5 Bxb3 16.
axb3 Rd5 17. De2
Dd6 18. Hae1
Hac8 19. Re4
Dc6 20. Hf2 Bf6
21. Dd2 Hc7 22.
Bxf6 Rxf6 23.
fxg6 fxg6 24. Dh6
Rh7 25. Hxf8+
Rxf8 26. Hf1 De8
27. Rg5 e5
Staðan kom
upp á heims-
meistaramóti 20
ára og yngri sem
lauk fyrir skömmu í Goa í
Indlandi. Heimsmeistarinn
Levon Aronjan (2581) hafði
hvítt gegn Preetham
Sharma (2311). 28. Hxf8+!
og svartur gafst upp enda
verður hann manni undir
eftir 28... Dxf8 29. Dxf8+
Kxf8 30. Re6+.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Ég gæti nú sagt þér að frú-
in í nr. 8 heldur við herrann
í nr. 17, en ég er ekki mikið
fyrir slúður.
FRÉTTIR
SAMTÖK ferðaþjónustunnar hafa
sent borgarstjórn Reykjavíkur er-
indi þar sem skorað er á borgar-
stjórn að falla frá þeim áformum að
loka öllum leikskólum borgarinnar í
fjórar vikur yfir sumartímann.
Í erindinu segir að með slíkri lok-
un á háannatíma í ferðaþjónustu sé
starfsfólki í greininni og vinnuveit-
endum þess gert mjög erfitt um vik.
Vegna mismunandi þarfa atvinnu-
lífsins sé óheppilegt að foreldrar hafi
ekki einhvern sveigjanleika og geti
dreift frídögum sínum.
Fallið verði
frá lokun
leikskóla yfir
sumartímann
ÍSLANDSBANKI færði á dögunum
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra
styrk vegna starfsemi Reykjadals,
en þar er boðið upp á sumar- og
vetrardvöl fyrir fötluð börn og
ungmenni. Íslandsbanki hefur und-
anfarin ár varið andvirði jólakorta
til viðskiptavina til styrktar góðum
málefnum og kemur sú fjárhæð í
hlut Reykjadals að þessu sinni.
Gjöfin rennir stoðum undir það
starf sem gefur árlega um 200
fötluðum börnum og ungmennum
tækifæri til að taka þátt í hefð-
bundnu sumarbúðastarfi, upplifa
ævintýri tilverunnar í hópi með
jafnöldrum, skemmta sér og öðlast
dýrmætar minningar. Það er
ómetanlegt fyrir félagið að fá
stuðning sem þennan til að geta
haldið úti öflugu starfi fyrir þenn-
an hóp.
Íslandsbanki styður
starf Reykjadals
Vilmundur Gíslason, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra, og Eva Þengilsdóttir ráðgjafi taka við styrknum frá Huldu Dóru
Styrmisdóttur, framkvæmdastjóra markaðs- og kynningarmála hjá Ís-
landsbanka.
Í ÁR verður boðin sú nýjung í þjón-
ustu hjá verslunum 10-11 að hafa
þær opnar meira og lengur yfir há-
tíðarnar en áður.
Í sólarhringsbúðunum í Lágmúla,
Sporhömrum í Grafarvogi og Stað-
arbergi í Hafnarfirði verður aðeins
lokað frá kl. 16 á aðfangadag til mið-
nættis á jóladag og um áramót frá kl.
18 á gamlársdag til miðnættis á ný-
ársdag. Í öðrum verslunum 10-11
verður opið kl. 9-23 alla daga yfir há-
tíðarnar nema 24. des. en þá verður
opið kl. 9-16, 25. des. verður lokað,
31. des. verður opið kl. 9-18 og 1. jan.
lokað.
Opið lengur
um hátíðarnar
í 10–11