Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 65
Jennifer Aniston fékk
Emmy-verðlaun í ár,
sem besta aðalleikkona í
gamanþætti fyrir hlut-
verk sitt í Vinum.
LEIKARARNIR í bandarísku sjónvarpsþátt-
unum Vinum hafa fallist á að leika í tíundu
þáttaröðinni.
Sjónvarpsstöðin NBC greiðir framleiðanda
þáttanna, Warner Bros., um tíu milljónir
dala fyrir hvern þátt, eða um 850 milljónir
króna. Er sjónvarpsþátturinn því einhver sá
dýrasti sem um getur.
Til þessa hefur Warner Bros. sett upp sjö
milljónir dala, eða um 600 milljónir króna,
fyrir hvern þátt.
Laun sexmenninganna verða ekki af verra
taginu. Jennifer Aniston, Courteney Cox,
Lisa Kudrow, Matt LeBlanc, Matthew
Perry og David Schwimmer fá eina milljón
dala fyrir hvern þátt, eða um 85 milljónir
króna.
Vinir voru næstvinsælustu sjónvarps-
þættirnir í ár í Bandaríkjunum á eftir
CSI: Crime Scene Investigation sem sýndir
eru á CBS. Þá hlutu þeir Emmy-verðlaun
sem bestu gamanþættirnir og Aniston var
valin besta gamanleikkonan.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 65
21.12. 2002
9
4 5 4 6 4
0 1 4 8 2
25 26 28 36
13
18.12. 2002
12 14 15
17 21 37
26 40
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4741-5200-0002-4854
4548-9000-0059-0291
4539-8500-0008-6066
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA Íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýnd.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir
sýningar. Sími 562 9700
Jólasýning lau 28/12 kl. 21
Gleðileg jól
BANDARÍSKIR bíógestir tóku
öðrum hluta Hringadróttinssögu,
Turnunum tveimur, fagnandi og
var myndin sú mest sótta þar-
lendis um helgina. Gnæfa Turn-
arnir yfir Two Weeks Notice,
rómantíska gamanmynd með
Söndru Bullock og Hugh Grant í
aðalhlutverkum. Hún situr í öðru
sæti bandaríska bíólistans og er
ný inn á listann.
Sjaldan hefur framhalds-
myndar verið beðið með eins
mikilli eftirvæntingu og nú. End-
urspeglast það í að tekjurnar af
fyrstu myndinni, Föruneyti
hringsins, voru 35% minni en af
Turnunum yfir frumsýningarhelg-
ina.
Turnarnir tveir hafa hlotið góða
dóma og má búast við því að ís-
lenskir bíógestir eigi eftir að
flykkjast á myndina. Hún verður
frumsýnd hérlendis annan í jólum.
Óður Martins Scorceses til
skuggahliða New York-borgar,
Gangs of New York, er ein af fjór-
um myndum, sem komast nýjar inn
á listann eftir helgina. Myndin,
sem er með stórstjörnunum Leon-
ardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis
og Cameron Diaz í aðalhlut-
verkum, naut nokkurra vinsælda
og situr í fjórða sæti.
Öskubuskuævintýri Jennifer
Lopez, Maid in Manhattan, sem
var á toppnum í síðustu viku, situr
í þriðja sæti listans.
Harry Potter, geimævintýri Star
Trek-fólks og James Bond njóta
enn vinsælda og sitja í áttunda, ní-
unda og tíunda sæti listans.
Turnarnir tróna á toppnum
!
" ! ##
$ %
&'()
'*(*
''(+
,('
-(&
&('
*()
*()
*(*
*(+
'+'()
'*(*
.)()
,('
//(0
&('
'.(-
//0(,
/&()
'.0()
Gollrir kemur mikið við sögu í fram-
haldsmynd Hringadróttinssögu.
Áfram Vinir
Fallast á að gera tíundu þáttaröðina
Reuters
FÖSTUDAGINN 27. des-
ember mun þýska þung-
kjarnasveitin Heaven Shall
Burn heimsækja landann í
annað sinn og leika í Tjarn-
arbíói. Síðast kom hún hing-
að í sumar og lék við góðan
orðstír í Tónabæ.
Sveitin hefur verið starf-
andi síðan 1996 og tónlistin
er nýstárleg blanda svartþung-
arokks, þungkjarna, dauðarokks og
mulningsrokks (e. grindcore) sem
fengið hefur suma til að nefna þetta
„dauða-kjarna“ (e. death-core).
Nýjasta plata sveitarinnar,
Whatever It May Take,
kom út á þessu ári og hefur
fengið lofsamlega dóma.
Sveitin er afar pólitísk og
fjalla textarnir um hvers-
kyns misrétti og fordóma
en jafnframt fylgja meðlim-
ir lífsspeki beinu brúnar-
innar eða „straight edge“,
eru allir grænmetisætur,
dýraverndunar- og umhverfissinnar,
snerta ekki á vímuefnum og eru á
móti ábyrgðarlausu kynlífi.
Íslensku sveitirnar I adapt, And-
lát, Vígspá og Spildog hita upp. Tón-
leikarnir hefjast kl. 19.00.
Heaven Shall Burn á Íslandi