Morgunblaðið - 24.12.2002, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 67
www.regnboginn. is
Sýnd kl. 4 og 8.
Sýnd kl. 2.30, 6.30 og 10.30.
YFIR 45.000 GESTIR
DV
RadíóX
Sýnd kl. 2.30, 5.30, 8.30 og 11.10. B.i.12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Hverfisgötu 551 9000
Sýnd kl. 2, 6 og 10.Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.
Nýr og betri
1/2SV. MBL
Kvimyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL
Sýningatímar gilda
26-27 desember
Sýnd kl. 2, 4 og 6 með íslensku tali.
Sýningatímar gilda 26-27 desember
DVRadíóX
YFIR 45.000 GESTIR.
Sýnd kl. 8 og 11. B. i. 12 ára.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt
á hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri
um Gull Eyjuna eftir Robert Louis
Stevenson
l i i i
i í il i i l i i
ll j i i
Sýnd kl. 2.20, 3.30, 5.45, 7, 9, 10.30 og powersýning 12.30 eftir miðnætti.
Sýnd í A-sal á stærsta THX tjaldi landsins 2.20, 5.45, 9 og 12.30 eftir miðnætti.
Sýnd í nýjum og glæsilegum B-sal kl. 3.30, 7 og 10.30.
Sýnd í -sal á st rsta T tjaldi landsins 2.20, 5.45, 9 og 12.30 eftir iðn tti.
POWE
RSÝN
ING
kl. 1
2.30
eftir
miðn
ætti
Á STÆ
RSTA
THX
tJALD
I LAN
DSINS
Kvimyndir.com
1/2HK DV
“Mögnuð upplifun”
FBL
Á DÖGUNUM heimsótti sjónvarps-
maðurinn Jón Ársæll Þórðarson
kvikmyndaborgina Los Angeles en
hann dvaldi í góðu yfirlæti hjá Sig-
urjóni Sighvatssyni og fjölskyldu
hans í viku. Með í för var mynda-
tökumaðurinn Steingrímur Jón
Þórðarson og er afraksturinn tveir
þættir í þáttaröðinni Sjálfstæðu
fólki, þar sem skyggnst er inn í líf
Sigurjóns.
„Sigurjón er okkar frægasti
kvikmyndaframleiðandi. Hann hef-
ur gert ameríska drauminn að
veruleika sínum,“ útskýrir Jón Ár-
sæll.
„Við fylgdumst með lífi og starfi
þeirra hjóna, sérstaklega Sigurjóni,
sem er í brennidepli í þáttunum,“
segir hann en Sigurjón er kvæntur
Sigríði Þórisdóttur en hjá þeim býr
kjördóttirin Sigurborg Sigurjóns-
dóttir.
Jón Ársæll fylgist með störfum
Sigurjóns hjá Palomar Pictures og
kynnist nokkrum frægum leikurum
í leiðinni. „Við lentum í samkvæmi
með stjörnunum í Hollywood ásamt
Sigurjóni. Ég ræddi lengi við Kevin
Spacey. Hann hældi Sigurjóni á
hvert reipi í mín eyru. Ég hitti líka
gamla kvennabósann og refinn
Hugh Hefner, ásamt hópi íðilfag-
urra kvenna, og töframanninn Dav-
id Copperfield,“ segir Jón Ársæl og
geta áhorfendur kynnst þeim nánar
í Sjálfstæðu fólki. „Svo hittum við
aðra stjörnu okkar Íslendinga og
glæsilegan fulltrúa, Höllu Linker.
Hún var skærasta stjarna okkar í
bandarísku sjónvarpi um árabil,“
segir hann en Halla er gift dipló-
matanum Francisco Aguirre.
„Við fengum að upplifa Holly-
wood eins og hún gerist í kvik-
myndunum,“ segir Jón Ársæll, sem
var ánægður með Bandaríkjaför-
ina.
Jón Ársæll heimsótti Sigurjón Sighvatsson
Sjálfstætt
fólk í
Hollywood
Jón Ársæll.
Þátturinn Sjálfstætt fólk um Sig-
urjón Sighvatsson, fyrri þáttur,
verður á dagskrá Stöðvar 2 á jóladag
klukkan 20.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík efnir til
miðnæturmessu á aðfangadags-
kvöld. Prestur er séra Hjörtur
Magni Jóhannsson en í messunni
koma meðal annarra fram Anna Sig-
ríður Helgadóttir og Páll Óskar
Hjálmtýsson söngvari og Monika
Abendroth hörpuleikari flytja ís-
lensk jólalög og jólasálma.
Páll Óskar segir að messan sé
hugsuð sem slökunar- og íhugunar-
stund fyrst og fremst, allt hið verald-
lega sé að baki, því ljúki kl. 18:00 um
kvöldið, og því eigi fólk að geta hug-
leitt boðskap jólanna um miðnættið,
en messan hefst kl. 23.30 og stendur
í klukkutíma.
„Þau í Fríkirkjunni leituðu til okk-
ar Moniku og við stukkum hæð okk-
ar í loft upp, fannst þetta frábært
tækifæri,“ segir Páll Óskar og bætir
við að þau Monika muni flytja jólalög
og sálma sem ekki heyrist nógu oft
opinberlega að þeirra mati,
„Svo klárar þetta ákveðinn hring
hjá mér persónulega, því þetta verða
fyrstu jólin sem ég held án foreldra
minna sem eru nú bæði látin. Þau
voru virkir þátttakendur í Fríkirkju-
kórnum og ég fór alltaf með þeim í
messu og því verður þetta sérstakt
fyrir mér.“
Páll Óskar
og Monika í
Fríkirkjunni
Páll Óskar og Monika Abendroth.