Morgunblaðið - 24.12.2002, Síða 72
JÓLAFAGNAÐUR Verndar og
Hjálpræðishersins verður haldinn
í dag, aðfangadag, í Herkast-
alanum, Kirkjustræti 2 í Reykja-
vík, og hefst með borðhaldi klukk-
an 18.
Allir þeir sem ekki hafa tök á að
dveljast hjá vinum og vandamönn-
um á aðfangadagskvöld eru hjart-
anlega velkomnir á jólafagnaðinn.
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðis-
hersins
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
„VIÐ þurftum aðeins að bregða okkur úr bíln-
um til þess að sinna smáverkefni og okkur
þótti ekki taka því að fara í jakkana. Það var
svo hlýtt úti og mælirinn í bílnum hjá okkur
sýndi tíu stiga hita,“ sagði Pétur Guðmunds-
son, útivarðstjóri hjá Lögreglunni í Reykjavík,
en hann og Eiríkur Rafn voru við eftirlit á
Laugaveginum. „Það er mjög margt fólk í
bænum, búið að loka flestum hliðargötum og
Laugavegurinn bara orðinn göngugata. Það er
mjög fín stemning, létt yfir fólki og hálfgert
Majorka-veður í Reykjavík.“
Morgunblaðið/Júlíus
Pétur Guðmundsson útivarðstjóri og Eiríkur Rafn Rafnsson lögreglumaður voru léttklæddir og skapléttir við eftirlit í mannmergðinni í miðbænum.
Brosandi í jólablíðunni
MORGUNBLAÐIÐ kemur
næst út föstudaginn 27. desem-
ber. Um jólin verður frétta-
þjónusta á Fréttavef Morgun-
blaðsins, mbl.is. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is eða
hringja í síma 861 7970.
Fréttavakt
á mbl.is
yfir jólin
LJÓST er að álverið í Straumsvík
(ISAL) mun setja framleiðslumet á
árinu, samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Rannveigu Rist, for-
stjóra ISAL, í gær.
Rannveig bendir á í leiðara í ISAL
tíðindum að árið sem senn er á enda
hafi að mörgu leyti verið gott. Flest-
ar kennistærðir í rekstrinum séu já-
kvæðar og framleiðslumet verði
slegið enn eitt árið, þar sem útlit sé
fyrir að verksmiðjan nái 173 þúsund
tonna markinu áður en nýtt ár geng-
ur í garð. Það er nærri því 7% meiri
framleiðslugeta en stefnt var að með
stækkun verksmiðjunnar árið 1997.
Betri nýting á kerum
„Þessi árangur byggist að miklu
leyti á straumhækkunum og tækni-
legum breytingum í kerskálum, en
ekki síður betri nýtingu í kerum og
stöðugri rekstri. Möguleikar á frek-
ari framleiðsluaukningu eru tak-
markaðir, en þó stefnum við að því
að framleiða 176 þúsund tonn á
næsta ári,“ segir hún.
Rannveig segir í samtali við Morg-
unblaðið að næsta ár leggist vel í sig.
,,Álverð er að vísu lágt en mér sýnist
að okkur ætli að takast að framleiða
heldur meira og þau gefa vel þessi
aukatonn sem við getum bætt við í
sömu verksmiðju,“ segir hún.
Álverið í Straumsvík var stækkað
árið 1997 og var ársframleiðslugeta
verksmiðjunnar þá 162 þúsund tonn.
Nú fimm árum síðar eru framleidd
11 þúsund tonn umfram það magn í
sömu verksmiðju. „Við getum vel við
það framleiðslumagn unað,“ segir
Rannveig.
Framleiðslumet sett
hjá ISAL á árinu
AÐEINS eitt fiskiskip verður á
sjó um jólin en það er Stígandi VE
77 frá Vestmannaeyjum. Að sögn
Þorsteins Viktorssonar, útgerðar-
manns Stíganda, er stefnt að því
að Stígandi sigli áleiðis af stað til
Þýskalands 1. janúar með afla.
„Þeir eru að trolla einhvers staðar
í myrkrinu á Reykjaneshryggnum
núna en það hefur verið frekar ró-
legt fiskerí til að byrja með. Það
eru sextán manns í áhöfninni og
ég reikna með að þeir fái ham-
borgarhrygg á aðfangadagskvöld,
rétt eins og við hin,“ sagði Þor-
steinn.
Aðeins eitt fiskiskip á sjó um jólin
Fá hamborgar-
hrygg á Hryggnum
Margar
garðyrkju-
stöðvar eru
á söluskrá
ÓVENJU margar garðyrkjustöðvar
eru til sölu um þessar mundir, að
sögn Magnúsar Leópoldssonar hjá
Fasteignamiðlun. Þar eru sex stöðv-
ar á söluskrá, sem eru víða um Suð-
urland og í Borgarfirði.
Helgi Jóhannesson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, segir
margt geta skýrt þessa þróun.
Blómaframleiðendur hafi átt í erfið-
leikum vegna offramleiðslu og lágs
verðs. Grænmetisbændur hafi ekki
fengið hátt verð fyrir framleiðsluna
og grænmetisverð hafi ekki fylgt
kostnaðarhækkunum. Þá bjóði land-
búnaðarráðuneytið garðyrkjubænd-
um sem vilja hætta framleiðslu upp á
úreldingu. Þeir sem hafi ákveðið að
fara þá leið vilji líklega sjá hvort þeir
geti fengið meira fyrir stöðina á al-
mennum markaði þar sem úrelding-
arbætur séu frekar lágar. Helgi seg-
ir Samband garðyrkjubænda ekki
hafa samanburð á fjölda stöðva á
sölu á milli ára og því erfitt að segja
til um hvort óvenjumargar stöðvar
séu nú til sölu. Samkvæmt aðlögun-
arsamningi sem gerður var við garð-
yrkjubændur í upphafi ársins, verða
30 milljónir króna settar árlega yfir
fimm ára tímabil til úreldingar.
Vaxtarmöguleikar í tómötum
Ólafur Friðriksson, deildarstjóri í
landbúnaðarráðuneytinu, segir að
tilgangurinn sé að hjálpa mönnum,
sem það vilji, að komast út úr grein-
inni. Bendir Ólafur á að aðrir fram-
leiðendur hafi valið að stækka og því
keypt aðrar stöðvar. Offramleiðsla
sé ekki vandamál hjá garðyrkju-
bændum, miklir vaxtarmöguleikar
séu t.d. í tómötum þótt paprika hafi
frekar átt undir högg að sækja.
HJÓN sluppu ómeidd er bíll þeirra
valt á Mývatnsheiði vestan Másvatns
í gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Húsavík var glerhálka á
þriggja til fjögurra kílómetra kafla á
þessari leið en annars eru vegir á
svæðinu víðast auðir.
Bíllinn er stórskemmdur eftir
veltuna.
Sluppu
ómeidd
eftir bílveltu