Morgunblaðið - 08.01.2003, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.01.2003, Qupperneq 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg móðursystir okkar, GUÐRÚN ÞÓRA VÍGLUNDSDÓTTIR frá Höfða í Biskupstungum, lést á jóladag á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd aðstandenda, Þórhildur og Helga Sigurðardætur. Bróðir okkar og frændi, HAFSTEINN MAGNÚSSON frá Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30. Systkini og frændfólk. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG SIGURGEIRSDÓTTIR, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 10. janúar kl. 13.30. Súsanna Kr. Stefánsdóttir, Páll Ólason, Þuríður Pálsdóttir, Knútur Kristinsson, Súsanna Kr. Knútsdóttir, Hólmfríður Knútsdóttir, Páll Óli Knútsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI GESTSSON, Efstaleiti 14, Reykjavík, sem andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 28. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er góðfúslega bent á Minningarsjóð líknardeildar LSH, Kópavogi. Jónína Árnadóttir, Már Jónsson, Gestur Árnason, Judith Anna Hampshire, Börkur Árnason, Lísa-Lotta Reynis Andersen, Ásta Árnadóttir, Jón Grétar Margeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁRMANNSDÓTTIR, Sílalæk, Aðaldal, verður jarðsungin frá Neskirkju laugardaginn 11. janúar kl. 14. Vilhjálmur Jónasson, Sigrún Baldursdóttir, Andrés Sverrir Jónasson, Guðlaug Þóra Bragadóttir, Halldór Jónasson, Elínborg Rósa Hólmgeirsdóttir, Elín Jónasdóttir, Emil Ragnarsson, Hálfdánía Árdís Jónasdóttir, Rafn Hugi Arnbjörnsson, Guðmundur Karl Jónasson, Þröstur Jónasson, barnabörn og barnabarnabörn. Sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi, JÓN BENEDIKTSSON, Höfnum á Skaga, sem lést mánudaginn 30. desember sl., verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 9. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Landspítalann. Sigurlaug Magnúsdóttir, Birna Jónsdóttir, Eiríkur Jónmundsson, Guðrún Blöndal, Lára Bjarnadóttir, Sigvaldi Thordarson, Ingibjörg Gunnarsdóttir, afabörn og langafabörn. Útför móður okkar, systur, tengdamóður og ömmu, SVANBORGAR JÓNSDÓTTUR, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, Árskógum 2, áður til heimilis í Glæsibæ 17, Reykjavík, fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 9. janúar kl. 10.30. Jarðsett verður frá Stað í Steingrímsfirði laugardaginn 11. janúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á FAAS (Félag áhugafólks og aðstandenda alzheimerssjúklinga.) Sigmar Bent Hauksson, Guðrún Björk Hauksdóttir, Rúnar Bachmann, Jón Víðir Hauksson, Brynhildur Barðadóttir, Katrín Jónsdóttir og barnabörn. Náttúrubarn. Allir sem þekktu Guðrúnu Víglundsdóttur frá Höfða í Biskupstungum, geta verið sam- mála því að þetta eina orð lýsti henni vel. Rúna ólst upp og bjó í sveitinni sinni, lengst af ævinni. Fluttist suður til Settu systur sinn- ar 1980, er búskapur lagðist af á býlinu hennar. Bjó á heimili systur sinnar þangað til hún fluttist á Eir fyrir tæpum 5 árum. Rúna frænka gekk ekki sömu götu og fjöldinn. Ef hún væri að alast upp í dag, þá hefði hún lík- lega hlotið einhvers konar ein- hverfugreiningu. Slíkar skilgrein- ingar var ekki búið að finna upp á GUÐRÚN ÞÓRA VÍGLUNDSDÓTTIR ✝ Guðrún ÞóraVíglundsdóttir fæddist á Höfða í Biskupstungum 10. nóvember 1918. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir, 25. desember síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru hjónin Víg- lundur Helgason, bóndi og búfræðing- ur, f. 1875, d. 1944, og Jóhanna Þor- steinsdóttir, f. 1880, d. 1954. Systkini hennar voru Sesselja Þórdís, f. 1907, Gunnþórunn, f. 1909, Helga, f. 1909, Magnús, f. 1912, Þorsteinn, f. 1922, auk þeirra Margrét og Þórður er lét- ust í æsku. Guðrún var síðust eft- irlifandi þeirra systkina. Útför Guðrúnar Þóru fór fram í kyrrþey. æskudögum hennar, hún þótti aðeins svo- lítið sérstök. Snemma kom í ljós að hún var vel greind. Lærdómur var ekki vandamál, minnið eins og tölva. Alla tíð las hún mikið og mundi það vel. Ævistarf Rúnu var við búskapinn í Höfða, þar sem henni leið vel innan um búsmalann og náttúruna. Ómælda virðingu bar hún fyrir öllu sem lífsandann dró, allt frá flugum til stórgripa. Öllum dýrum bar að sýna virðingu ekki síður en mann- fólkinu. Hin samhentu Höfðasystk- ini stóðu sameiginlega að búrekstri eftir foreldra sína og stóðu að mik- illi uppbyggingu um miðja öldina, undir forystu Magnúsar bróður þeirra. Um 20 ára skeið var ráðs- maður þeirra Stefán Guðmunds- son, sem bjó á Höfða ásamt Rúnu og nöfnu hennar Jónsdóttur. Það samstarf var farsælt og hafa trú- lega verið bestu ár Rúnu. Nokkrir fastir menningarvið- burðir voru í lífi Rúnu. Hún fór alltaf á sumarskemmtunina á Álfa- skeiði. Þá var ferjað yfir Hvítá, komið við í Auðsholti og þegnar trakteringar. Á Álfaskeiði hitti Rúna ýmsa ættingja, svo sem frá Þórarinsstöðum. Hundurinn Lubbi fékk að fara með í þessar ferðir og stóð spangólandi í brekkunni þegar sungið var. Skálholtshátíð var fast- ur liður hjá Höfðafólkinu, það þótti tilhlýðilegt að sækja hátíðina, enda á næsta bæ. Það var fastur liður að skiptast á blöðum við fólkið í Hrosshaga. Rúna fór með Mogg- ann í poka á bakinu og fékk Tím- ann í staðinn. Er Magga í Hross- haga tók á móti Rúnu, þá spurði hún oftar en ekki, hvort hún hefði orðið einhvers vör. Fylgjur og draugar voru eðlilegur þáttur í mannlífsflórunni. Álfar og huldu- fólk voru einnig þekkt og þóttu jafn eðlileg og mannfólkið. Rúna hafði séð bláklædda huldukonu við Lindina og huldubörn við Steðjann á Melnum. Heyjað var í Tunguey og komið þar upp engjatjaldi. Heyið var bundið í bagga og ferjað yfir Hvítá. Þar hittust menn frá Höfða, Hvítárbakka, Halakoti og Bræðratungu en þar voru allir í sömu erindagjörðum við heyskap. Þannig var einangrunin rofin með ýmsum föstum samskiptum, við fólk á nálægum bæjum. Rúna hafði gaman af að veiða á færi í Víkinni. Margir ættliðir barna muna eftir því að hafa farið með henni út í Dráttarmýri að vitja um færin í Víkinni. Hún sagði börnunum sögur á leiðinni, eina á leiðinni norður eftir og aðra á bakaleiðinni. Rúna kvaddi síðust sinnar kyn- slóðar og var hún hafsjór af fróð- leik um fyrri tíð sem nú er glat- aður. Þó voru örnefni jarðarinnar skráð eftir henni af Örnefnastofn- un og á síðustu árum bætti hún við þá skrá í sumarheimsóknum að Höfða. Rúna sem stóð okkur svo nærri, auðgaði líf okkar með hrekkleysi og manngæsku. Með söknuð og þakklæti í huga kveðjum við frænku okkar. Við viljum þakka starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Eir, fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Árni, Þórhildur og Helga. Elsku mamma, nú ert þú búin að kveðja okkur. Við förum að hugsa um hvað þú varst okkur mikils virði í gegnum tíðina, alltaf var HERMÍNA MARINÓSDÓTTIR ✝ Hermína Mar-inósdóttir fædd- ist í Siglufirði 24. september 1919. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Seli á Ak- ureyri 21. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrarkirkju 3. janúar. hægt að treysta á mömmu, hún var sem klettur í hafinu, mið- punktur tilverunnar. Mamma var mikil baráttukona, hún var ein af stofnendum stéttarfélagsins Ein- ingar á Akureyri og vann fjöldamörg ár á Útgerðarfélagi Akur- eyrar og átti þaðan góðar minningar, vann hún þar við fisk- vinnslu í bónus og var hún talin vera mjög fær í sínu starfi og fljót eftir því. Þau eignuðust fjórtán börn, sex syni, einn af þeim dó í fæðingu, og sjö dætur. Hún var rík af and- legum auð því alltaf sagði hún að börnin væru það dýrmætasta sem væri hægt að eignast og við ættum að hlúa að þeim eins lengi og við gætum því við værum með þau að láni og guð hafi valið okkur til þess að hugsa um þau og varð- veita. Mamma var trúuð kona og sagði alltaf þegar einhver mótbyr varð að við yrðum að yfirstíga hann því okkur væri ætlað þetta. Mamma gekk í gegnum ýmislegt á sínum 83 árum, hún var alltaf heilsuhraust og skilur maður ekki hvernig hún komst í gegnum þetta allt með öll þessi börn. Við munum alltaf minnast þín elsku mamma mín með söknuði í hjarta og eftirsjá. Það var oft glatt á hjalla og hamagangur í öskjunni þegar við systurnar vorum að alast upp og oft þurfti að stilla til friðar en með þinni stóísku ró gastu allt- af náð okkur niður. Þú hafðir í mörg horn að líta og langar okkur að kveðja þig með bæninni sem þú kenndir okkur þegar við vorum litlar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Kveðja þínar dætur, Ragnheiður og Sóley. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.