Morgunblaðið - 08.01.2003, Síða 36

Morgunblaðið - 08.01.2003, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. PRÓFESSOR Dick Ringler við Wisconsin-háskólann í Bandaríkjun- um er sérfræðingur í enskum mið- aldabókmenntum og norrænum fræðum. Í des. sl. hélt hann mjög áhugaverðan fyrirlestur um ljóða- gerð Jónasar Hall- grímssonar og þýð- ingar sínar á ljóðum hans. Bókin um Jónas nefnist „Bard of Ice- land“ og er frum- raun til kynningar á ljóðagerð Jónasar á alþjóðlegum markaði. Mér finnst sérlega áhugavert að prófessorinn leggur höfuðáherslu á, hve stuðlar eru geysilega mikilvægir í ljóðum Jónasar. Sérstaka athygli vek- ur er hann upplýsir að séu ljóðin þýdd yfir í prósa eða óbundið mál, þá glat- ast í raun allt, sem mestu máli skiptir. Þetta er vissulega merkileg og tímabær hugleiðing, ekki síst með til- liti til sorglegrar misþyrmingar á ljóðagerð okkar nú um stundir! Það er vissulega býsna kaldhæðn- islegt að mikilsvirtur erlendur fræði- maður í norrænum fræðum skuli leggja sérstaka áherslu á að ljóðagerð okkar hrapar úr efstu þrepum niður í þau neðstu, ef stuðlanna þrískipta grein er forsmáð! Flótti frá okkar merku menningararfleifð í ljóðagerð getur kollvarpað sérstöðu okkar á þessu sviði. Fjölnismenn voru á sínum tíma kyndilberar í sjálfstæðis- og menn- ingarbaráttu þjóðarinnar. Jónas Hall- grímsson skipaði veglegt sæti í þeirra hópi. Hin snjöllu ættjarðarljóð hans voru mikilvæg og vöktu þjóðina til ástar á fósturjörðini. Efldu jafnframt samhug hennar og baráttuþrek. Prófessor Ringler leggur mikla áherslu á að ljóðagerð Jónasar eigi brýnt erindi á alþjóðlegan markað og spáir að ljóð hans eigi eftir að vekja mikla og verðskuldaða athygli. Hinsvegar munu ýmsum þykja djarfar hugmyndir hans um að Jónas eigi skilið heiðurssæti við hlið Snorra Sturlusonar og Laxness. Engu að síð- ur er þetta býsna hressileg hugleið- ing, ekki síst þegar höfð er í huga nið- ursveiflan sem herjað hefur á hluta ljóðagerðarinnar frá því um miðja síð- ustu öld. Allavega er þetta framtak til vand- aðrar þýðingar á ljóðum Jónasar mjög lofsvert og þjóðin stendur í þakkarskuld við prófessor Ringler, vegna áhuga hans og virðingar fyrir ljóðhefð okkar og mikilvægi Jónas Hallgrímssonar sem ljóðskálds. GUÐMUNDUR GUÐMUNDARSON, fyrrv. framkvæmdastjóri. Einstakt menningar- afrek í ljóðagerðinni Frá Guðmundi Guðmundarsyni Guðmundur Guðmundarson SIGRÚN Björnsdóttir skrifar grein, sem hún kallar ,,Skyldi ég tóra til jóla“ og birtist í Morgunblaðinu 21. desember sl. Tilefni greinarskrifa Sigrúnar er afskráning skjaldkirtils- lyfsins Thyroxin-Natrium frá Nyco- med Danmark A/S (ND) snemma árs 2002 og tregða Lyfjastofnunar til að veita sjúklingum undanþágur vegna lyfsins. Gremja Sigrúnar er skiljanleg, fær ekki lyf, sem hún hef- ur tekið árum saman og hefur gagnast henni vel, en afstaða Lyfja- stofnunar er líka skiljanleg, vinna við undanþágur mann- og tímafrek og búið að skrá samskonar lyf, m.a. að frumkvæði Lyfjastofnunar. Sem framkvæmdastjóri nýbakaðs um- boðsaðila ND á Íslandi, er mér málið skylt og því finn ég mig knúinn til að leggja orð í belg. Það var í lok árs 2001, sem fulltrú- ar ND komu að máli við mig og inntu mig eftir því, hvort Gróco ehf væri tilbúið að taka við umboðinu fyrir ND á Íslandi. Málið átti sér nokkurn aðdraganda, sem ekki er ástæða til að tíunda frekar hér, og skemmst frá því að segja að við þekktumst þetta boð. Það kom mér hins vegar í opna skjöldu, þegar mér var tilkynnt að ND hygðist eingöngu halda áfram markaðssetningu þriggja lyfja á Ís- landi, önnur lyf fyrirtækisins, þ.m.t. Thyroxin-Natrium, yrðu afskráð. Mér fannst þetta misráðið, ekki síst í tilviki Thyroxin-Natrium, sem var eina lyfið sinnar tegundar á íslenska markaðinum, en talsmönnum ND varð ekki haggað. Þegar þeir voru inntir eftir því af hverju þeir gripu til þessara örþrifaráða, var helst á þeim að skilja að kostnaður við að viðhalda markaðsleyfum fyrir ódýr, gömul sérlyf á þessum litla markaði væri orðinn svo óheyrilegur að það borg- aði sig ekki. Þegar við tókum við um- boðinu voru því allar þessar afskrán- ingar afstaðnar í samráði við fyrr- verandi umboðsmann. Eftir því sem leið á árið 2002 fjölg- aði mjög símhringingum til okkar frá læknum, lyfjabúðum og síðast en ekki síst sjúklingum, sem voru að spyrjast fyrir um Thyroxin-Natrium og hvort það væri nokkur möguleiki að afskráning þess yrði afturkölluð. Eftir nokkurt þóf fengum við leyfi ND til að sækja um afturköllun af- skráningarinnar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þegar þetta er ritað er Lyfjastofnun búin að sam- þykkja málaleitan okkar fyrir sitt leyti og einungis beðið eftir að Lyfja- verðsnefnd samþykki umbeðið heild- söluverð. Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa hingað til verið óþreytt við að gagn- rýna lyfjafyrirtækin og helst á heil- brigðisyfirvöldum að skilja að hremmingar heilbrigðiskerfisins séu lyfjafyrirtækjunum að kenna. Þessi sömu yfirvöld hafa hins vegar drjúg- ar tekjur af skráðum lyfjum og kostnaður lyfjaframleiðenda og um- boðsmanna við að sækja um og við- halda markaðsleyfum lyfja vex ár frá ári. Lyfjafyrirtækin eru hluti heil- brigðiskerfisins og axla fúslega þá ábyrgð, en þau stunda líka viðskipti og lyf lúta lögmálum viðskipta, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. ARI KR. SÆMUNDSEN, framkvæmdastjóri Gróco ehf., Lynghálsi 13, 110 Reykjavík. Já, þú munt tóra! Frá Ara Kr. Sæmundsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.