Morgunblaðið - 08.01.2003, Page 39

Morgunblaðið - 08.01.2003, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 39 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake STEINGEIT Afmælisbörn dagsins: Þú ert ötul(l) og lætur fátt standa í vegi fyrir því að þú náir takmarki þínu. Temdu þér hógværð. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur lag á að koma að hlutunum úr óvæntri átt og það laðar að þér samstarfs- menn sem kunna að meta hæfileika þína. Naut (20. apríl - 20. maí)  Forðastu að taka þátt í hlut- um sem eru einskis virði og því hrein tímasóun. Notaðu heldur tímann til að byggja þig upp á jákvæðan hátt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Öllu má ofgera og nú er kom- inn tími til þess að þú slakir aðeins á og farir að hugsa um hvað það er sem skiptir mestu máli í lífinu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það gefur lífinu lit að hitta góða vini og ræða lífsins gagn og nauðsynjar og skiptast á skoðunum. Þá má líka heil- mikið af því læra. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auð- æfi í einu vetfangi. Sígandi lukka er best og þeir hlutir, sem þú vinnur fyrir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þér finnst álagið í vinnunni vera orðið fullmikið. Reyndu þá að bregðast við því þar, en láttu ekki pirringinn bitna á þínum nánustu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ert einhvern veginn ekki alveg með sjálfum þér og þarft því að taka þér tak. Líttu málin raunsönnum aug- um og þá sést að flest er í lagi. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er í lagi að treysta sínum nánustu fyrir sínum framtíð- ardraumum. En aðrir sjá ekki öll mál í sama ljósi og þá er það þolinmæðin sem gildir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Það tekur á taugarnar þegar þeir sem manni eru kærir sýna þrjósku og afneita stað- reyndum. Gefstu ekki upp því þér verður þakkað þótt síðar verði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú gerir sjálfum þér stóran greiða ef þú ræðst á þau mál sem hafa valdið þér hugar- angri. Þungu fargi verður af þér létt um leið og þú hefst handa. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nú er rétti tíminn til þess að bera upp spurningu, sem hef- ur lengi verið að brjótast um í þér. Vertu viðbúinn svari, sem er á hvern veg sem er. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag. Láttu freistingar lönd og leið og líttu ekki upp fyrr en þú hefur lokið því sem fyrir ligg- ur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 85 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. janúar, er 85 ára Páll Guð- jónsson, kaupmaður, nú bú- settur á Hrafnistu í Hafn- arfirði. Páll er að heiman í dag. 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. jan- úar, verður fimmtugur Stef- án Stefánsson, deildarstjóri háskóla- og vísindadeildar menntamálaráðuneytisins. Stefán og eiginkona hans, Hulda Ólafsdóttir, taka á móti gestum í dag kl. 18 í sal Lögreglufélagsins, Brautar- holti 30. LJÓÐABROT ÍSLAND Grænum lauki gróa túnin, gyllir sóley hlíða syllur, færa víkur flyðru á vori, fuglar syngja í Trölladyngjum, sauðir strjálast hvítir um heiðar, hossar laxi straumur í fossi, bella þrumur á brúnum fjalla, blár er himinn, snarpur er Kári. Þorleifur Repp 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. Rc3 Rd4 5. Ba4 c6 6. Rxe5 d6 7. Rd3 d5 8. e5 Re4 9. O-O b5 10. Bb3 a5 11. a4 b4 12. Re2 Rxb3 13. cxb3 Ba6 14. Rdf4 d4 15. d3 Rc5 16. Rg3 Dd7 17. He1 O- O-O 18. Re4 He8 19. Rxc5 Bxc5 20. Bd2 Bb6 21. Df3 Kb8 22. Dg3 g6 Staðan kom upp á Ólympíu- skákmótinu í El- ista sem fram fór 1998 og hafði Sergei Movsesjan SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. hvítt gegn stórmeistaranum Bogdan Lalic. 23. Rxg6! og svartur gafst upp þar sem eftir 23... hxg6 24. e6+ Bc7 25. exd7 Hxe1+ 26. Hxe1 Bxg3 27. He8+ er fokið í flest skjól fyrir svartan. MJÖG góð þátttaka var í hinni árlegu bridshátíð Borgnesinga sem fram fór um síðustu helgi á Hótel Borgarnesi. Það er Brids- félag Borgarness sem stendur fyrir hátíðinni í samvinnu við hótelið og Sparisjóðinn. Á laugardeg- inum var spiluð sveita- keppni með þátttöku 32ja sveita, en tvímenningur á sunnudeginum þar sem 64 pör kepptu. Sveitakeppn- ina unnu þau Ljósbrá Bald- ursdóttir, Matthías Þor- valdsson, Anton Haralds- son og Bjarni H. Einars- son, sem spiluðu undir nafni Íslenskra aðalverk- taka. Sigurvegarar tví- menningsins eru þeir Gísli Steingrímsson og Sveinn R. Þorvaldsson. Lítum á spil frá sveitakeppninni: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁK2 ♥ D10982 ♦ Á6 ♣D74 Vestur Austur ♠ 10543 ♠ 986 ♥ ÁK76 ♥ G43 ♦ K10872 ♦ DG43 ♣-- ♣1096 Suður ♠ DG7 ♥ 5 ♦ 95 ♣ÁKG8532 Spilaðar voru 8 umferðir af stuttum leikjum raðað eftir stöðu (monrad). Þetta spil kom upp í næstsíðustu umferð þar sem sigursveit- in keppti við sveit Páls Valdimarssonar sem end- aði í öðru sæti. Matthías og Ljósbrá eru í NS gegn Þórði Björnssyni og Þresti Ingimarssyni: Vestur Norður Austur Suður Þórður Ljósbrá Þröstur Matthías -- -- -- 1 lauf Dobl 1 hjarta 2 tíglar 3 lauf 3 tíglar 3 spaðar Pass 4 lauf 5 tíglar 6 lauf Pass Pass Pass Útspil í tígli er banvænt en það er erfitt að gagn- rýna Þórð fyrir að leggja niður hjartakónginn. Eftir þá byrjun var einfalt mál fyrir Matthías að fríspila fimmta hjartað og losa sig þar við tígultapslaginn heima. Unnið spil og 12 IMPar til sigursveitarinnar en á hinu borðinu létu NS duga að spila geimsögn. Sigursveitin skoraði 21,5 stig að jafnaði sem er harla gott. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson BRÚÐKAUP. Hinn 28. sept- ember 2002 voru gefin saman í hjóna- band í Grafar- vogskirkju af séra Vigfúsi Þór Árnasyni þau Ólafía I. Þorvaldsdóttir og Steinar Garðarsson. Heimili þeirra er í Reykjavík. 50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8. janúar, er fimmtug María Sigurðardóttir, Hafnar- bergi 9, Þorlákshöfn. Af því tilefni taka hún og eig- inmaður hennar, Böðvar Gíslason, á móti ættingjum og vinum í Versölum, sal Ráðhúss Ölfuss, laugardag- inn 11. janúar kl. 17–20. Bridsdeild Samiðnar Keppni um járnsmíðabikarinn lauk fimmtudaginn 12. desember. Röð efstu para varð: Ólafur Ingvarsson - Zarioh Hamedi 60,5 Guðni Pálmi Oddsson - Árni Valsson 52,4 Garðar Ólafsson - Óskar Baldursson 51,4 Bridsdeild Samiðnar spilar annan hvern fimmtudag á Suðurlandsbraut 30, 2. hæð. Spilamennska hefst kl. 19:30. Alltaf létt og skemmtileg stemning og heitt kaffi á könnunni! Fimmtudaginn 9. janúar er spiluð eins kvölds hraðsveitakeppni. Allir félagar í Samiðn eru velkomnir. Hjálpað er til við myndun sveita. Nánari upplýsingar veita Snorri Ei- ríksson í síma 567-7140 og Ómar Ol- geirsson í síma 869-1275. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Góð þátttaka hjá Bridsfélagi Selfoss og nágrennis í upphafi nýs árs Fyrsta keppni nýs árs var eins kvölds tvímenningur, sem var spilað- ur 2. janúar sl. Góð þátttaka var í mótinu, eða 13 pör. Röð efstu para varð þessi: Ólafur Steinason – Guðjón Einarsson 186 Kristján M. Gunnarss. – Björn Snorras. 185 Garðar Garðarsson – Auðunn Herm. 181 Gunnar Þórðarson – Una Árnadóttir 177 Höskuldur Gunnarss. – Jón S. Péturss. 168 Magnús Guðmundss. – Gísli Hauksson 165 Meðalskor var 156 stig. Næsta mót er aðalsveitakeppnin sem hefst 9. janúar. Garðar Garðars- son tekur við skráningu, en pörum verður raðað í sveitir til að mynda sveitir sem jafnastar að styrkleika. Sú breyting hefur verið ákveðin á dagsetningu Suðurlandsmótins í sveitakeppni að spilað verður föstu- daginn 17. og laugardaginn 18. janúar. Spilað verður í Þingborg. Garðar Garðarsson tekur við skráningu í síma 862-1860. Skráningarfrestur rennur út miðvikudagskvöldið 15. janúar. Bridsfélag Kópavogs Um leið og Bridsfélag Kópavogs óskar öllum bridsspilurum landsins fjær og nær gleðilegs spilaárs með þökkum fyrir hin liðnu, er vakin at- hygli á að nú stendur fyrir dyrum að- alsveitakeppni félagsins. Nk. fimmtudagskvöld, 9. janúar, kl. 19.30, er fyrirhugað að sveitakeppnin hefjist og mun það ráðast af fjölda sveita hversu mörg keppniskvöldin verða. Aðstoðað verður við myndun sveita ef með þarf og hægt að tilkynna þátttöku til Lofts í síma 553 6120 / 554 5186 / 897 0881. Við minnum á að „það er gott að spila í Kópavogi“. Að venju er spilað í Þinghóli, Hamraborg 11, 3. hæð. www.starri.is Sérhæfing í Intel-vörum Móðurborð - Örgjörvar - Flatir skjáir 3ja ára ábyrgð Hvernig átti ég að vita að öll fjölskyldan væri í felum inni í runnanum …? Með morgunkaffinu (30 rúmlesta skipstjórnarréttinda) 15. janúar til 24. mars. Kennsla í Austurbugt 3 frá kl. 19-23 mánudaga og miðvikudaga. Ekki missa af þessu námskeiði. Innritun í síma 898 0599 og 588 3092. bha@centrum.is www.siglingaskolinn.net Siglingaskólinn Meðlimur í Alþjóðasambandi siglingaskóla. NÁMSKEIÐ TIL PUNGAPRÓFS SKEMMTUN FYRIR ALLA Í DANSHÚSINU KÓPAVOGI danshusid@islandia.is - www.islandia.is/danshusid Innritun til 12. janúar, sími 862 6168 eða Dansfélagið Hvönn Enskuskóli Erlu Ara auglýsir enskunám í Hafnarfirði Skráning stendur yfir í síma 891 7576 eftir kl. 16 alla daga. Sjá nánar um starfsemi skólans á www.simnet.is/erlaara 10 getustig. Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.