Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 25
stjórnmálasögunni, þar sem litríkir
einstaklingar hafa talið sig þurfa að
klífa nýja tinda, takast á við áskor-
anir samtímans.
Það er manndómur á bak við svona
ákvarðanir, kjarkur og bardagaeðli.
Þetta er ekki flótti frá ábyrgð né
heldur svik við kjósendur. Þetta er ný
áskorun.
Það er vitaskuld hægt að sitja sem
fastast, sigla lygnan sjó og halda sér
rígfast í embætti og valdastóla, þegar
þangað er náð. Láta sig daga uppi í
öryggi og umhverfi hæginda og heið-
ursmerkja og hugljúfra minninga.
En bardagamaðurinn lætur sér ekki
slíkt lynda. Þess vegna kemst fólk af
þessu tagi upp á toppinn, af því að
það nærist á baráttu, ögrun og átök-
um. Á íþróttamáli heitir það að hafa
keppnisskap. Keppnismaðurinn rís
upp úr ládeyðunni og lognmollunni,
bítur á jaxlinn, tekur áhættu, berst til
sigurs. Bardagafólk er bardagafólk
af því að það er bardagafólk. Þess
vegna hrífur það aðra með sér. Þess
vegna er það til forystu fallið. Jafnvel
þótt það tapi.
Mér finnst miklu skemmtilegra að
líta á uppákomuna hér í höfuðborg-
inni, í kringum Ingibjörgu Sólrúnu,
þessum augum, heldur en að velta
henni upp úr svikum eða launráðum.
Ég vil langtum fremur eiga kost á að
kjósa slíka frambjóðendur, hvar í
flokki sem þeir standa, heldur en hina
tegundina, sem miðar allt við lang-
varandi frama og slímsetu fram í póli-
tískt andlát sitt. Og mér líkar miklu
betur við það samfélag og samtíð,
sem býður upp á fulltrúa og fram-
bjóðendur og fólk, sem líður ekki lit-
laust og látlaust framhjá manni í bið-
röðum mannvirðingarstigans og
enginn veit hvað heitir eða hver það
er. Fyrr en það er jarðað í hinum
pólitíska grafreit.
EKKI langt frá bænum, þarsem ég var í sveit, forðumdaga, bjuggu fimm bræð-ur, sem allir pipruðu ogvoru sagðir svo líkir og lit-
lausir, að það þótti ekki taka því að
vita hver héti hvað. Það var ekki fyrr
en þeir voru greftraðir, sem nauðsyn
þótti að bera kennsl á þá.
Stundum rifjast þetta upp fyrir
mér, þegar stjórnmálamenn ber á
góma. Þeir eru hver öðrum líkir og
því miður, sumir hverjir, litlausar
strengjabrúður á að líta og það tekur
því varla að leggja
það á minnið
hvað þeir
heita. Jæja,
það er nú
kannske ekki
alveg sann-
gjarnt að kveða upp svona
sleggjudóm en þetta getur líka
átt við hinn gráklædda góð-
borgara samtímans, fólkið sem
klæðir sig eins, hagar sér eins
og hugsar eins. Ef það hugsar
þá á annað borð um eitthvað
annað heldur en innlit og útlit.
Og budduna sína.
Litrófið í mannlífinu virðist
stundum ekki vera fyrirferð-
armikið, með allri virðingu fyr-
ir menntun og mannvirð-
ingum.
Auðvitað, þegar að er gáð,
erum við öll hvert öðru ólík. Og
það leynast sterkar persónur
og litríkir einstaklingar innan
um í fjöldanum og öll heitum
við eitthvað og erum eitthvað. Tökum
meira að segja upp á því, stöku sinn-
um, að gera eitthvað óvænt. Þá tekur
grámyglan á yfirborðinu stakkaskipt-
um og breytist bæði í líf og lit. Og
mikið lifandi skelfing lifnar allt um-
hverfið við, þegar sérvitringar og
furðufuglar lífga upp á selskapinn,
feta ótroðnar slóðir og rífa sig upp úr
meðalmennskunni. Gefa dauðann og
djöfulinn í almenningsálitið, frama-
potið og tröppustigann í valdabarátt-
unni. Ganga jafnvel á móti straumn-
um, til móts við nýja hugsun, ný
markmið. Bjóða átökunum birginn.
Þetta gerist stundum í viðskiptalíf-
inu, við búferlaflutninga, við upp-
stokkun í lífsmunstri einstaklinga eða
fjölskyldna. Einhvern tímann í fyrra
heyrði ég af manni á besta aldri, sem
tók hatt sinn og staf, yfirgaf gott
embætti, seldi frá sér eignirnar og
fór að hjóla upp um fjöll og firnindi.
Skoða heiminn, skoða sig um. Leita
að sjálfum sér. Þessum manni var
hins vegar nauðsynlegt og nokkuð
tafsamt að sannfæra vini sína og
vandamenn um að hann hefði ekki
verið rekinn, hann hefði ekki dottið á
höfuðið, hann var satt að segja með
öllum mjalla og hefði tekið sína
ákvörðun að sjálfsdáðum og af full-
komlega yfirlögðu ráði.
Þetta dæmi og þessi hugsun
hvarflaði að mér, þegar að allt fór á
annan endann, við það að Ingibjörg
Sólrún steig upp úr borgarstjóra-
stólnum og flestir virtust sammála
um að hún væri ekki með réttu ráði;
að Ingibjörg hefði leikið hroðalega af
sér að fórna borgarstjóraembættinu
fyrir hugsanlega varamennsku á
þingi!
Já, já, kannske var þetta afleikur
eða mistök í atburðarásinni. En
kannske var þetta líka ómeðvituð
(eða meðvituð) hvöt til að takast á við
nýja brekku? Er það ekki langur og
góður tími að vera borgarstjóri í tæp-
an áratug, er það ekki fínn árangur
að ná kosningu þrisvar sinnum? Allt
hefur sinn tíma og allt hefur sín tak-
mörk. Sigrarnir voru í höfn. Fagn-
aðarlátunum lokið. Og hvað svo?
Hvað gerði ekki Davíð Oddsson,
þegar hann var borgarstjóri? Steig út
á sviðið og bauð sig fram gegn sitj-
andi formanni Sjálfstæðisflokksins.
Lagði allt undir. Og hvað gerði ekki
Björn Bjarnason, þegar hann yfirgaf
menntamálaráðuneytið og hellti sér
út í óvissu borgarstjórnarkosning-
anna? Og fleiri dæmi mætti nefna úr
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Ellert B.
Schram
Út frá öðru
sjónarhorni
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 25
alltaf á föstudögumDAGLEGT LÍF
.
NÁMSKEIÐ Á VORÖNN 2003
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda – framhalds –
og talæfingaflokkum
ENSKA
Enska I frh.
Enska II
Enska II frh.
Enska III frh.
Enska tal og leshópur I
Enska tal og leshópur II
DANSKA
Danska I - II
NORSKA
Norska I - II
Norska III
SÆNSKA
Sænska I - II
Sænska III
FRANSKA
Franska I
Franska I frh.
ÍTALSKA
Ítalska I
Ítalska I frh.
SPÆNSKA
Spænska I
Spænska I frh.
Spænska II
Spænska II frh.
Spænska III frh.
ÞÝSKA
Þýska I
Þýska I frh.
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
FRÍSTUNDAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
GLERLIST
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GLER – OG POSTUL-
ÍNSMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
LEIRMÓTUN I
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
LEIRMÓTUN II
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
LJÓSMYNDATAKA
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
SILFURSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
TRÉSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
STAFRÆN MYNDA-
TAKA Á VIDEOVÉL OG
KLIPPING
1 viku námskeið
12 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMSTEPPI
Framhald
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
BÚTASAUMSKLÚBBUR
3 miðvikud. Kl. 19:30
Einu sinni í mánuði
FATASAUMUR/BARNA-
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
CRACY QUILT
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
Kántrý föndur:
ÍKONAGERÐ
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
HURÐARKRANS ÚR
BIRKI
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
JÓLAFÖNDUR Í
FEBRÚAR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
KÁNTRÝ STENSLAR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
Tölvunámskeið:
WORD OG WINDOWS
fyrir byrjendur
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
WORD II
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
EXCEL
fyrir byrjendur
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
INTERNETIÐ OG
TÖLVUPÓSTUR
1 viku námskeið
8 kennslustundir
FINGRASETNING OG
RITVINNSLA
8 vikna námskeið
16 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækja
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
FRANSKIR SMÁRÉTTIR
OG BÖKUR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
SPELT
Bakað úr spelti
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna - pasta - og grænmetis-
réttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
MATARMIKLAR SÚPUR
OG HEIMABAKAÐ
BRAUÐ
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
SPENNANDI BÖKUR
OG INNBAKAÐIR
VEISLURÉTTIR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
ÞJÓÐBÚNINGUR -
SAUMAÐUR
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
SKRAUTSAUMUR -
BALDERING
Saumað með silfurþræði
5 vikna námskeið
15 kennslustundir
Garðyrkjunámskeið:
TRJÁKLIPPINGAR
1 viku námskeið
4 kennslustundir
GRÓÐUR OG
GARÐRÆKT
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
TRJÁRÆKT Í SUMAR-
BÚSTAÐALANDINU
1 viku námskeið
4 kennslustundir
Snyrtinámskeið:
PROFESSIONAILS
NAGLANÁMSKEIÐ
Eitt kvöld – 4 kennslustundir
HIRÐING
HÚÐARINNAR
Eitt kvöld – 4 kennslustundir
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ
NO NAME
Eitt skipti – 4 kennslustundir
Snyrtinámskeiðin eru haldin í sam-
starfi við Naglaskóla Professionails
og Förðunarskólann NO NAME
Innritun í þessi námskeið er í
síma 553 7900 kl. 10 - 18
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkja félagsmenn sína til náms í Kvöldskóla Kópavogs,
t.d. BSRB, BHMR, Efling - stéttarfélag,VR og Starfsmannafélag Kópavogs.
Fyrstu námskeiðin hefjast 22. janúar
Innritun og upplýsingar um námskeiðin kl. 16-20 í símum 564 1507,
564 1527 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla á sama tíma.
Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is Vefsíða: kvoldskoli.kopavogur.is