Morgunblaðið - 12.01.2003, Page 53

Morgunblaðið - 12.01.2003, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 53 Sýnd kl. 1.45 og 3.45 íslenskt tal. / Sýnd kl. 1, 2, 3, 4, 5 og 6 íslenskt tal. / Sýnd kl. 2 og 4 íslenskt tal. / Sýnd kl. 2 og 4 íslenskt tal. / Stórkostlegt ævintýri frá Disney byggt á hinu sígilda og geysivinsælu ævintýri um Gulleyjuna eftir Robert Louis Stevenson Sýnd kl. 2 og 5 Ísl. tal. Sýnd kl. 6 og 9.15 enskt tal. / Sýnd kl. 1 og4 Ísl. tal. / Sýnd kl. 3 Ísl. tal. Mbl 1/2 Kvikmyndir.isi i .i Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 7, 9, 10.10 og 11.15. ÁLFABAKKI AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI AKUREYRI E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I Roger Ebert Kvikmyndir.is HL MBL Sýnd kl. 1.45, 3.45, 5.45, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 7, 8, 9 og 11. / Sýnd kl. 6 og 10. / Sýnd kl. 2, 6 og 8 ./ EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.45, 8 og 10.15. B. I. 16. KRINGLAN ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI Robert DeNiro, BillyCrystalog LisaKudrow(Friends) eru mætt aftur í frábæru framhaldi af hinni geysivin- sælu gamanmynd AnalyzeThis. FRUMSÝNING Hún var flottasta pían í bænum verið að leita langt yfir skammt. Krukkuðu eitthvað í genunum í henni í móðurkviði,“ segir Arnbjörg en í sögunni leita foreldrarnir að fullkomnari einstaklingi í gegnum tæknina. Máni verður mennskur, fallinn engill, í sögunni. Þó hann sé ekki lengur engill hefur hann máttinn til að hjálpa Sól. „Draumur engils er úti,/ en um leið annar draumur rétt að hefjast,“ segir í textanum við „Sól, ég hef sögu að segja þér“ af Öðrum mána. Ofverndaðir englar Skoplegustu atriðin í verkinu eru þegar Máni fer að upplifa mannlegar tilfinningar. „Englar lifa í svo vernd- uðu umhverfi. Ég fór að pæla í þessu. Ætli það sé nokkuð varið í að vera engill? Hann kippir sér ekkert upp við að hafa þurft að vera í pilsi og lítur á það sem hvern annan búning. „Þetta er bara búningur, englafötin mín,“ segir hann en viðurkennir að hafa fundið fyrir ákveðnu frjálsræði. Sex dansarar úr Íslenska dans- flokknum taka þátt í sýningunni og „Það er rosalega gaman fyrir það fyrsta að vinna með svona færu fólki. Þetta er frábær dansflokkur,“ segir Bergur, sem fannst gaman að fylgj- ast með muninum á vinnuferlinu innan dans- og leiklistarinnar. „Það var gaman að vinna með þeim og sjá þetta sameinast,“ segir Arnbjörg. „Sjá koma leik í þau og dans í leikarana. Svo syngja þau með í kórnum,“ segir hún. Á stundum bergmála dansararnir tilfinningar Sólar og Mána á sviðinu, útskýrir Bergur. „Þau kannski sýna það sem Sól og Máni eru að hugsa en þora ekki að gera,“ segir Arnbjörg. Söngleikir skemmtilegt form Söngurinn ræður að sjálfsögðu ríkjum líkt og dansinn eins og venja er í söngleikjum. „Ég hef alltaf haft gaman af söngleikjum. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt form þegar vel tekst til. Ég hafði ofsalega gam- an af söngva- og dansmyndum þegar ég var lítil. Ég horfði á Kabarett með Lizu Minelli svona fimm- hundruð sinnum. Ég kunni hana gjörsamlega utanað, án þess að kunna neina útlensku. Svo var ég í dansi og tónlist og mig langaði að geta sameinað þetta meira,“ segir Arnbjörg, sem stígur nokkur dans- spor á sviðinu. Snúningssviðið er notað í sýning- unni og jafnframt gerist hún í hæstu hæðum, enda koma englar við sögu. Sem sagt, sviðið snýst, englar fljúga og hlutir hækka og lækka. Arnbjörg og Bergur útskýra að leikmyndin líti út fyrir að vera ein- föld en sé í raun flókin og mikil tækni á bakvið hana. Þau eru sam- mála um að nokkurn tíma hafi tekið að venjast þessu. Arnbjörg og Bergur eru sammála um að aðdráttarafl leiklistarinnar sé sterkt þrátt fyrir að segja megi að þetta sé ekkert sérstaklega fjöl- skylduvænt eða öruggt starf, eins og Bergur bendir á. „Þetta er ofboðs- lega fjölbreytt. Það er enginn dagur eins og annar,“ segir Arnbjörg. „Þetta er erfitt starf. Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert,“ segir Bergur og Arnbjörg samsinnir. „Þetta er svo lifandi skepna, leik- húsið,“ segir Bergur. Blaðamaður tekur undir það og getur margt óvænt komið upp í leikhúsi en hann fylgdist með rennsli á sýningunni í vikunni þar sem Arnbjörg söng með aðstoð Stefáns Hilmarssonar vegna þess að bráðahálsbólga gerði vart við sig. Hún var óðum að ná sér þegar blaðamaður ræddi við hana en segir þetta taka á taugarnar. „Ég get ekk- ert gert nema beðið til Guðs,“ segir hún og bætir við að hún sé reyndar í sérmeðferð hjá háls-, nef- og eyrna- lækni. Þau segjast hlakka til frumsýn- ingarinnar en Arnbjörg segir að ákveðinn fiðringur grípi alltaf um sig. „Alveg frá fiðringi uppí skíta- hræðslu,“ bætir Bergur við. „Ég er til dæmis búin að vera í skítahræðsl- unni í vikunni útaf röddinni,“ segir Arnbjörg. Tilfinningahernaður „Leikari verður að láta af ákveð- inni stjórn yfir sjálfum sér. Fela leikstjóranum stjórnina. Maður verður að laga sig að ákvörðunum annars manns eins og í hernaði. Nema hvað þarna er um tilfinningar að ræða, segir Bergur. Í ljósi þess er gott að leikstjórinn sé enginn Hitler en þau tala bæði vel um Hilmar Jónsson, og segja það gott að vinna með honum. Arnbjörg er ánægð með að hafa fengið góð tækifæri svo skömmu eft- ir útskrift. Henni finnst hún hafa strax lært mikið af því að starfa með sér reyndari leikurum. „Ég var svo skíthrædd í sumar að ég þorði eiginlega ekki að gera neitt. Mér fannst ég þurfa að spila svo rétt úr hlutunum. Það var búið að prenta inní mann í skólanum að maður fengi ekkert að gera. Ég var hrædd um að standa ekki undir þessu,“ segir Arn- björg og virðist því vart trúa því að hafa strax fengið tvö aðalhlutverk. „Leikari er alltaf dæmdur af síð- ustu leiksýningunni, sem hann var í, sama hvað hann hefur leikið mikið, segir Bergur spekingslega. Geta áhorfendur dæmt sjálfir um frammistöðu þeirra í Borgarleikhús- inu en þess má geta að uppselt er á fyrstu tvær sýningarnar og auka- sýningu á þriðjudag. Áhorfendur geta haft bjartsýnina í farteskinu en að minnsta kosti sigr- ar ástin, hið góða, í Sól & Mána eins og segir í laginu „Að lokum“ af Log- andi ljósi: „Þið stóðuð af ykkur styrj- öld og vá,/ höfðuð sigur að lokum. Þið eigið hvort annað héðan í frá,/ höfðuð sigur að lokum.“ Söngleikurinn Sól & Máni er sýndur á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. ingarun@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.