Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 13
ÍSLENDINGAR drekka einna
minnst áfengi í Evrópu samkvæmt
tölum í norska blaðinu Dagsavisen.
Norðmenn sitja á botni listans en
Svíar og Íslendingar eru þar rétt
fyrir ofan. Írar tróna á toppi listans
og drekka manna mest í Evrópu.
Dagsavisen fær upplýsingar sínar úr
nýrri skýrslu sem er útgefin af rann-
sóknardeild vímuvarnaráðs í Noregi.
Árið 2000 drakk hver Norðmaður,
15 ára og eldri, að meðaltali 4,3 lítra
af hreinu alkóhóli á meðan hver Íri
drakk að meðaltali 12,3 lítra. Rúm-
enar, Portúgalar og Þjóðverjar
fylgja Írum fast á eftir í neyslu
áfengis. Í könnuninni er allt áfengi
tekið með, smyglað, tollfrjálst og
heimabruggað.
Þrátt fyrir að neysla áfengis í Nor-
egi sé sú minnsta í Evrópu hefur hún
aukist jafnt og þétt síðan árið 1998.
Hún hefur þó ekki náð aftur þeim
toppi sem náðist árið 1980 en þá
drukku Norðmenn 6 lítra að með-
altali af hreinu áfengi sem var það
mesta sem mælst hafði í 140 ár.
Samkvæmt Dagsavisen hefur hátt
verð og tilgangur drykkjunnar mest
áhrif á neyslu. Þar í landi, drekka
menn helst í mannfögnuðum. Á Ír-
landi, í Rúmeníu, Portúgal og fleiri
löndum er hins vegar drukkið meira
dags daglega. Ítalir, Frakkar og
Spánverjar drekka mest Evrópu-
þjóða af léttvínum.
Aukin neysla þrátt fyrir aðhald
Norðurlöndin hafa mjög aðhalds-
sama stefnu í áfengismálum. Þrátt
fyrir það er neysla að aukast á Ís-
landi og í Noregi. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Hagstofu Íslands hefur
neysla Íslendinga aukist úr 4,6 lítr-
um árið 1993 í 6,3 lítra 2002. Þetta er
þveröfug þróun miðað við aðrar
þjóðir í Evrópu eins og t.d. Græn-
land, Finnland og Svíþjóð en þar fer
neysla áfengis minnkandi sem og í
Bandaríkjunum.
Íslendingar
drekka einna
minnst áfengi
ENDURBÆTUR standa nú yfir á
Bláa lóninu í Svartsengi þar sem
m.a. er verið að bæta við gufuböð-
um, heitum pottum og vatnsfalli
með jarðsjó. Ráðgert er að þeim
ljúki í júní nk.
Að sögn Önnu G. Sverrisdóttur,
aðstoðarframkvæmdastjóra Bláa
lónsins hf., eru framkvæmdirnar
bundnar við hluta af lóninu. Um 10
manns hafa unnið að endurbót-
unum, en þær hófust eftir áramót.
Búið er að þurrka upp lítinn
hluta af lóninu en að fram-
kvæmdum loknum verður lónið ör-
lítið stærra. Kostnaður vegna vinnu
við endurbætur á lóninu er áætl-
aður um 50 milljónir, að sögn Önnu.
Unnið að endurbótum á Bláa lóninu
Morgunblaðið/RAXJúlíus Ingvarsson, t.h., og Dimitri Rushid Derti leggja járn í nýjan hluta Bláa lónsins.