Morgunblaðið - 13.02.2003, Síða 20
LANDIÐ
20 FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÓTEL BORGARNES
Sími 437 1119
hotelbo@centrum.is
Árshátíðir
Ráðstefnur
Fundir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
1. flokkur 1989: Nafnverð:
500.000 kr.
50.000 kr.
5.000 kr.
Innlausnarverð:
1.727.977 kr.
172.798 kr.
17.280 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð:
500.000 kr.
50.000 kr.
5.000 kr.
Innlausnarverð:
1.525.592 kr.
152.559 kr.
15.256 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
3.083.433 kr.
308.343 kr.
30.834 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð:
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
2.866.124 kr.
286.612 kr.
28.661 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
12.648.266 kr.
2.529.653 kr.
252.965 kr.
25.297 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
11.668.928 kr.
2.333.786 kr.
233.379 kr.
23.338 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.948.360 kr.
1.989.672 kr.
198.967 kr.
19.897 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð:
5.000.000 kr.
1.000.000 kr.
100.000 kr.
10.000 kr.
Innlausnarverð:
9.766.497 kr.
1.953.299 kr.
195.330 kr.
19.533 kr.
Innlausnardagur 15. febrúar 2003.
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
Húsbréf
KRAKKARNIR úr 9. og 10. bekk
Höfðaskóla stóðu fyrir íþróttamara-
þoni um síðustu helgi. Voru krakk-
arnir á fullu við íþróttaæfingar frá
klukkan 6 á föstudagskvöld til
klukkan 12 á hádegi á laugardag.
Höfðu krakkarnir safnað áheitum
áður en þessi 18 tíma törn byrjaði og
söfnuðust í ferðasjóð um 400 þúsund
krónur.
Tveir elstu bekkir Höfðaskóla
stefna á að fara í skólaferðalag til
Danmerkur í vor. Hafa krakkarnir
verið duglegir að afla fjár í ferðasjóð
sinn með sölumennsku, vinnu og
skemmtunum. Íþróttamaraþonið
var því einn þáttur í fjáröflun þeirra
fyrir ferðina.
Maraþonið fór þannig fram að
krakkarnir skiptu sér í þrjá hópa og
síðan voru alltaf tveir hópar inni á
vellinum í einu en einn hópur hvíldi
sig. Hver íþróttagrein var stunduð í
klukkutíma í senn en þá tók næsta
grein við. Krakkarnir voru því á
fullu í 40 mínútur en hvíldu síðan í
20.
Endað með teygjuæfingum
Greinarnar sem krakkarnir æfðu
og kepptu í voru margs konar; fót-
bolti, badminton, körfubolti, frjálsar
íþróttir, blak, eróbikk og kántrý-
dansar. Maraþonið endaði svo með
rólegum teygjuæfingum undir
stjórn skólahjúkrunarfræðingsins
en síðan fóru krakkarnir hver til
síns heima að sofa og hvíla sig enda
margur orðinn framlágur eftir að
hafa hamast á fullu í 18 klukkutíma.
Foreldrar krakkanna skiptust á
að vera með þeim í íþróttahúsinu all-
an tímann og sáu um að krakkarnir
hefðu nóg að bíta og brenna meðan
á átakinu stóð. Var tekið til þess hve
krakkarnir sýndu mikinn íþrótta-
anda því ekki féll eitt styggðaryrði
þeirra á milli þótt mörgum hlypi
kapp í kinn í sumum keppnunum.
Krakkarnir voru þreyttir þegar maraþoninu lauk á laugardag enda ferðasjóðurinn 400 þúsund krónum ríkari.
Ferðasjóðurinn digrari
eftir íþróttamaraþon
Skagaströnd
Í VETUR festi Skútustaðahreppur
kaup á öflugum snjótroðara til að
nota á skíðasvæðinu í Sandabotna-
fjalli við Kröflu.Troðarinn er frá
Kassbohrer í Austurríki með 240
ha vél og í mjög góðu ástandi.
Nutu menn góðrar aðstoðar Ak-
ureyringa þegar hann var keypt-
ur. Fyrir tveimur vetrum var sett
upp togbraut í fjallinu og þannig
komið til móts við mikinn skíða-
áhuga í sveitinni. Fljótt sýndi sig
að ekki er boðlegt skíðasvæði
nema því fylgi snjótroðari og því
var ráðist í þessi kaup. Hrepp-
urinn á troðarann en Íþrótta-
félagið Mývetningur annast rekst-
urinn. Á sama stað er einnig mjög
gott gönguskíðaland. Nægur og
góður snjór er nú í Mývatnssveit,
þótt ekki sé hægt að tala um snjó-
þyngsli.
Morgunblaðið/BHF
Snjótroðari Mývetninga í brekkunni.
Mývetningar troða snjóinn
Mývatnssveit
FIMMTUDAGINN 6. febrúar þótti ásæða til að draga
fána að húni við bæjarskrifstofurnar í Snæfellsbæ í Röst á
Hellissandi. Tilefnið var að þá um daginn hafði mennta-
málaráðherra, Tómas Ingi Olrich, samþykkt stofnun fram-
haldsskóla á Snæfellsnesi. Sveitarfélögin á Snæfellsnesi
hafa komið sér saman um að skólinn verði í Grundarfirði,
miðsvæðis milli þéttbýlisstaðanna Hellissands, Ólafsvíkur
og Stykkishólms. Þau hafa í sameiningu beitt sér fyrir
framgangi þessa málefnis á undanförnum misserum. Skól-
inn á að taka til starfa haustið 2004. Í ár verður ráðinn
starfsmaður til að undirbúa starfsemina.
Sú frétt birtist á sama tíma og ákvörðunin um skóla-
stofnunina að Vegagerðin myndi bjóða út innan fárra daga
framkvæmdir við brúar- og vegagerð yfir Kolgrafarfjörð á
norðanverðu Snæfellsnesi.
Vinna við verkið hæfist á komandi hausti og yrði lokið
2005, þó með von um að að umferð gæti hafist um veginn á
haustdögum 2004.
Þessi vegagerð mun breyta miklu fyrir Snæfellinga.
Auk þess að stytta vegalengd og losna við erfiða vegar-
kafla vegna veðuraðstæðna verður eftir að brúin kemur á
Kolgrafarfjörð allt samstarf íbúanna innan Snæfellsness
auðveldara og sjálfsagðara.
Kolgrafarfjörður brúaður
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Flaggað við bæjarskrifstofur Snæfellsbæjar í tilefni af
samykkt um framhaldsskóla á Snæfellsnesi.
Hellissandur
VOLG mjólk beint úr
kúnum þykir góður
drykkur og þann drykk
kunna margir vel að
meta.
Petrína Rós, sem er
virðuleg fimm ára læða
ættuð úr Laxárnesi í
Aðaldal, er mikið fyrir
mjólk. Best þykir henni
að geta tekið svolítinn
toll af spenvolgri, freyð-
andi mjólk sem ætluð er
kálfum í lok mjalta.
Á myndinni má sjá hvar Petrína
Rós hefur komið sér vel fyrir við
kálfafatið og rennir ljúflega niður
volgum sopanum sem fer vel í mag-
ann. Að því loknu er gott að fá sér
lúr í dúnmjúku kattarúminu og
sofna sætum blundi því ekki er
hægt að segja að naumt sé skammt-
að í kálfafatið og læðan verður
ágætlega södd af drykknum.
Petrína Rós kann vel að meta það þegar hún
kemst í að drekka glóðvolga kálfamólkina.
Mjólk er mjög góð
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon