Morgunblaðið - 13.02.2003, Page 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2003 43
PATREKUR Jóhannesson, lands-
liðsmaður í handknattleik, hefur
tekið þá ákvörðun að yfirgefa
þýska úrvalsdeildarliðið Essen í
sumar. Samningur Patreks við fé-
lagið rennur þá út en hann hefur
leikið með því undanfarin sex ár.
Patrekur var með tilboð frá Essen
um að framlengja samninginn en
hann tilkynnti forráðamönnum fé-
lagsins í gær að hann ætlaði að fara
frá liðinu í sumar og reyna fyrir sér
á öðrum vígstöðvum.
Patrekur er með tilboð frá þýska
úrvalsdeildarliðinu Grosswallstadt,
sama liði og Snorri Steinn Guð-
jónsson gengur til liðs við á næstu
leiktíð, og Bidasoa á Spáni, sem
Heiðmar Felixson leikur með. Þá
hafa annað spænskt lið, Portland
San Antonio, og Göppingen í
Þýskalandi sýnt íslenska landsliðs-
manninum áhuga en Göppingen
vantar leikstjórnanda eftir að Jörn
Schläger ákvað að skrifa ekki undir
nýjan samning við liðið.
HAUKUR Ingi Guðnason skrifaði
í gær undir samning við Fylki og er
samningurinn til þriggja ára.
MARCEL Desailly, varnarmaður
og hjá Chelsea, lék sinn 103. lands-
leik með Frökkum gegn Tékkum í
París í gærkvöldi og jafnaði lands-
leikjamet fyrrverandi félaga síns
Didier Deschamps.
WALES setti nýtt met undir
stjórn Marks Hughes í gærkvöldi – í
leik gegn Bosníu. Velska landsliðið
hefur leikið níu leiki í röð án þess að
tapa og er það besti árangur liðsins í
127 ára sögu landsliðs Wales.
ÁSTRALAR gerðu sér lítið fyrir
og lögðu Englendinga að velli, 3:1, í
vináttulandsleik á Upton Park.
Þetta er fyrsti sigur Ástrala í við-
ureignum þjóðanna. Sven-Göran Er-
iksson, landsliðsþjálfari Englands,
tefldi fram mörgum nýliðum og þótti
enskum fjölmiðlum nóg um tilrauna-
starfsemi hans.
WAYNE Rooney frá Everton var
einn nýliðanna, og varð yngsti lands-
liðsmaður Englands frá upphafi, ný-
orðinn 17 ára. Annar nýliði, Francis
Jeffers frá Arsenal, skoraði mark
Englands og minnkaði muninn í 1:2.
BRASILÍUMENN urðu að sætta
sig við markalaust jafntefli á móti
Kínverjum. Heimsmeistarararnir
stilltu upp sínu sterkasta liði með
stórstjörnurnar Ronaldo, Rivaldo,
Ronaldinho og Roberto Carlos inn-
anborðs en allt kom fyrir ekki. Ron-
aldo varð fyrir meiðslum í fyrri hálf-
leik og lék ekki í síðari hálfleik.
GUÐNI Bergsson og félagar hans
í Bolton eru í æfingabúðum í Dubai í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um þar sem þeir búa sig undir kom-
andi átök. Næstkomandi helgi er
bikarhelgi og þar sem Bolton er úr
leik ákváðu forráðamenn liðsins að
halda suður á bóginn og æfa við góð-
ar aðstæður í sól og sumaryl.
TEITUR Þórðarson, þjálfari Lyn í
Noregi, vill gjarnan fá einn af sínum
gömlu lærisveinum frá Brann, Pett-
er Furuseth-Olsen, til liðs við Lyn.
Forráðamenn Brann eru ekki reiðu-
búnir til að láta sóknarmanninn af
hendi og hafa sett hátt verð á hann.
BODE Miller frá Bandaríkjunum
varð í gær heimsmeistari í stórsvigi.
Miller var með fjórða besta tímann
eftir fyrri ferðina en náði frábærri
síðari ferð og nældi sér þar með í
önnur gullverðlaun sín á mótinu.
Austurríkismaðurinn Hans Knauss,
hafnaði í öðru sæti og Erik Schlopy,
Bandaríkjunum, varð þriðji.
ÞÓRIR Jónsson úr FH var á dög-
unum kjörinn formaður samtaka
Símadeildarfélaga karla í knatt-
spyrnu. Með honum í stjórn eru
Vignir Þormóðsson úr KA, Ámundi
Halldórsson úr Fylki og Finnur
Thorlacius úr Fram.
FÓLK
SIGURÐUR Bjarnason, lands-
liðsmaður í handknattleik, er
meiddur í hné og hætt er við
að hann verði frá keppni í
nokkurn tíma. Ljóst er að
hann spilar ekki með Wetzlar
í þýsku 1. deildinni á næst-
unni.
„Já, meiðslin í hnénu líta
ekki vel út. Læknarnir hérna
vita þó ekki enn hvað þetta
er en ég fer í aðgerð á morg-
un (í dag) og þá kemur í ljós
hve alvarlegt þetta er og
hversu lengi ég verð frá,“
sagði Sigurður í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sigurður sagði ennfremur
að framhaldið hjá sér væri
óljóst ennþá, hvort hann yrði
áfram með Wetzlar eða
myndi breyta til að þessu
keppnistímabili loknu.
Valsmenn komu til leiks 21 stigi og11 sætum fyrir ofan Aftureld-
ingu í 1. deildinni og það mætti ætla
að þeir hafi haldið að
það eitt og sér myndi
nægja þeim til sig-
urs. Strákarnir úr
Mosó, sem aðeins
hafa fengið 10 stig í deildakeppninni í
vetur og eiga litla von um frekari
frama þar, voru í öðrum hugleiðing-
um. Þeir mættu geysilega einbeittir
til leiks, og þá ekki síður fjölmargir
stuðningsmenn þeirra sem risu á fæt-
ur og lásu dagblöð á meðan leikmenn
Vals voru kynntir. Hvort það sló
Hlíðarendapiltana út af laginu er
ómögulegt að segja, en eftir fimm
mínútur stóð 4:0 fyrir Aftureldingu.
Bjarki Sigurðsson þjálfari hélt sig til
hlés til að byrja með og horfði á læri-
sveina sína útfæra varnarleik sinn á
listilegan hátt. Þeir léku afbrigði af
5/1, komu vel út á móti Snorra Steini
Guðjónssyni og Markúsi Mána Mich-
aelssyni og brutu þannig sóknarleik
Vals á bak aftur. Þegar þeir félagar
fóru að finna leiðir í gegn og minnka
muninn mætti Bjarki sjálfur til leiks
og hjálpaði til við að breikka bilið á ný
með glæsilegum mörkum.
Staðan var 15:10 í hléi og um miðj-
an síðari hálfleik benti fátt til þess að
spennustigið ætti eftir að aukast. Aft-
urelding náði mest sjö marka forskoti
og brautin virtist bein. En þá loks
fóru Valsmenn að sýna lífsmark í
vörn og sókn, auk þess sem Roland
Valur Eradze færðist allur í aukana í
markinu. Hann var daufur í fyrri
hálfleik, meiddist á hné í upphitun og
komst ekki í gang, en þegar allt virt-
ist tapað gaf hann sínum mönnum
tóninn með því að verja tvö vítaköst.
Sóknarleikur Aftureldingar hrundi
gjörsamlega seinni hluta leiksins, lið-
ið skoraði eitt mark á 15 mínútum og
Valur jafnaði í fyrsta skipti, 22:22, úr
vítakasti þegar hálf þriðja mínúta var
eftir. Það gerðist rétt eftir að leik-
klukkan bilaði og róaði um stund
æsta leikmenn, þjálfara og áhorfend-
ur sem voru að bugast af spennunni.
Daði Hafþórsson kom Aftureld-
ingu yfir tveimur mínútum fyrir
leikslok, 23:22, og eftir það voru
markverðirnir í aðalhlutverkum.
Reynir Þór Reynisson, sem átti stór-
góðan leik í marki Mosfellinga, kom í
veg fyrir að Valur jafnaði. Roland
hélt spennu í leiknum með því að
verja tvívegis glæsilega í lokasókn
Aftureldingar og gaf sínum mönnum
eitt tækifæri í viðbót. En það var
Reynir Þór sem sá endanlega um að
koma Mosfellingum í Höllina með því
að verja frá Markúsi Mána 8 sekúnd-
um fyrir leikslok.
Það voru varnarleikurinn og mark-
varslan sem fleyttu leikmönnum Aft-
ureldingar alla leið, ekki síst á loka-
kaflanum þegar Valsmenn voru búnir
að brjóta sóknarleik þeirra algjörlega
niður. Sterk liðsheild, með Reyni Þór
sem besta mann, sigurvilji og stemn-
ing einkenndu leik liðsins. Miðað við
þessa frammistöðu er með ólíkindum
að liðið skuli sitja í 12. sæti 1. deildar.
Reyndar má á sama hátt segja að
það sé einkennilegt að Valsliðið skuli
vera með fjögurra stiga forskot í
deildinni og með svona áframhaldi er
það ekki líklegt til afreka á Íslands-
mótinu. Sóknarleikur þess var ein-
hæfur og ráðleysislegur lengst af og
byggðist nánast eingöngu á Snorra
og Markúsi, sem skoruðu fyrstu níu
mörkin. Horna- og línumennirnir
fengu ekki boltann langtímum sam-
an. En Valsmenn sýndu styrk sinn á
lokakaflanum þegar þeir unnu upp
sjö marka forskot og þrátt fyrir slak-
an leik í 45 mínútur voru þeir merki-
lega nálægt sigrinum.
Patrekur á förum
frá Essen
Patrekur Jóhannesson
Sigurður
í aðgerð
á hné
Reynir kom Aftur-
eldingu í úrslitin
MOSFELLINGAR stigu sannkallaðan stríðsdans á Hlíðarenda í gær-
kvöld þegar Afturelding vann óvæntan en sanngjarnan sigur á
toppliði 1. deildar, Val, 23:22 og tryggði sér sæti í bikarúrslita-
leiknum í Laugardalshöll. Afturelding leikur því til úrslita í annað
skipti í sögu félagsins. Mosfellingar, sem urðu bikarmeistarar árið
1999, mæta þar liði HK og með þessum úrslitum hafa þeir heldur
betur bjargað sínu tímabili fyrir horn.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
& :;
< 9;
4 88- 8
4; &
$ 9% 2
?
=
=
$ 9% 2
% .
78
=
>
=
-
"-
%
)
8
75
>
=
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sverrir Björnsson, leikmaður Aftureldingar, fagnar ógurlega ásamt samherjum og stuðnings-
mönnum liðsins eftir sigurinn á Val. Sverrir mætir sínum gömlu félögum í HK í úrslitaleiknum.