Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MBA nám
Háskólinn í Reykjavík
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F/
SI
A
.I
S
H
IR
2
03
48
0
2.
20
03
Opinn kynningarfundur
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 17:15
í Háskólanum í Reykjavík
Vertu velkomin(n) á fundinn og fáðu svör hjá
nemendum í MBA náminu og forsvarsmönnum
námsins við spurningunni - af hverju þú átt að
velja MBA nám við Háskólann í Reykjavík.
www.ru.is/mba
RÍKISENDURSKOÐUN hefur gert alvar-
legar athugasemdir við fjölmörg atriði í fjár-
mála- og eignaumsýslu Löggildingarstofu
undanfarin ár. Meðal annars eru gerðar at-
hugasemdir við bifreiðakaup stofnunarinnar,
sem voru án heimildar, kaup á ýmsum bún-
aði sem ekki finnst í stofnuninni og greiðslur
verktakalauna til ættingja yfirmanna. Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, hefur sent forstjóra Löggilding-
arstofu bréf þar sem fram kemur að í
athugun sé að veita honum tímabundna
lausn frá embætti vegna „stórfelldrar óreiðu
á bókhaldi og fjárreiðum stofnunarinnar“,
eins og þar segir.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar er gerð í
framhaldi af endurskoðun ársreiknings Lög-
gildingarstofu fyrir árið 2001, þar sem talin
var þörf á að endurskoða ákveðna þætti í
starfsemi stofnunarinnar. Í skýrslunni er
þess getið að veikindi fyrrverandi skrifstofu-
stjóra hafi haft umtalsverð áhrif á rekstur
stofnunarinnar fram á sl. ár. Hins vegar sé
rétt að taka fram að nýr skrifstofustjóri hóf
störf á árinu 2002 og stofnunin hafi gripið til
víðtækra aðgerða til að bæta úr ýmsu sem
athugasemdir séu gerðar við í skýrslunni.
57 farsímar – 20 starfsmenn
Fram kemur að Löggildingarstofa keypti
57 farsíma á tímabilinu 1999 til ágúst 2002
samkvæmt könnun á bókhaldsgögnum en
starfsmenn stofnunarinnar voru þá um 20.
Af 57 símum fundust 18 símar ekki þrátt fyr-
ir sérstaka eftirgrennslan. Verðmæti þeirra
er áætlað um 700 þúsund krónur.
Þá kom í ljós að töluvert vantaði af tölvu-
búnaði stofnunarinnar. Við nánari eftir-
grennslan var upplýst að ýmis búnaður var í
vörslu fyrrverandi starfsmanna og fleiri að-
ila. Ekki var hægt að gera grein fyrir tölvu-
búnaði að kaupverði nálægt tveimur millj-
ónum króna.
Dýrasti einstaki tölvuhluturinn sem ekki
fannst í eignatalningunni var segulbandsaf-
ritunarstöð sem keypt var árið 2000 fyrir
rúma hálfa milljón króna. Í ljós kom að hún
var enn í vörslu fyrirtækisins sem seldi hana
stofnuninni og var ónotuð. Sams konar afrit-
unarstöð fannst í talningunni og segir í
skýrslu Ríkisendurskoðunar að kaup á
tveimur slíkum stöðvum séu óskiljanleg í
ljósi þess að afkastageta hvorrar um sig sé
langt umfram þarfir stofnunarinnar.
Áætluð heildarkaup Löggildingarstofu á
tölvubúnaði á umræddu tímabili er 17 millj-
ónir króna sem Ríkisendurskoðun telur
óeðlilega hátt í ljósi eðlis og umfangs starf-
seminnar. Telur Ríkisendurskoðun að stofn-
unin hafi átt að nýta sér rammasamninga
sem Ríkiskaup hafa gert við nokkur önnur
tölvufyrirtæki um afslátt af tölvubúnaði.
Fjarskiptakostnaður stofnunarinnar þykir
sömuleiðs óvenjuhár miðað við stærð henn-
ar.
Í skýrslunni er á það bent að dóttir fyrr-
verandi skrifstofustjóra fékk á árunum
1999–2002 greitt fyrir aðstoð við skrifstofu-
störf og voru greiðslurnar í formi verktaka-
greiðslna. Voru störf hennar að mestu unnin
á heimili fyrrverandi skrifstofustjóra. Til
viðbótar munu önnur skyldmenni skrifstofu-
stjórans fyrrverandi hafa fengið greiðslur
fyrir ýmis störf gegn framlögðum reikning-
um.
Í skýrslunni er bent á að grunnlaun nokk-
urra starfsmanna stofnunarinnar séu mun
hærri en samningar sem gerðir hafa verið
við viðkomandi stéttarfélög og dæmi um að
starfsmaður hafi fengið helmingi hærri
grunnlaun en samkvæmt samningi.
Athugasemdir eru gerðar við bifreiðakaup
Löggildingarstofu. Árið 2001 keypti stofn-
unin Toyota Landcruiser jeppa fyrir um 4
millj. kr. til afnota að mestu fyrir forstjóra
stofnunarinnar og kom hún í stað annarrar
bifreiðar. Engin heimild var hinsvegar í fjár-
lögum fyrir kaupunum.
Telur forstjóra ótvírætt ábyrgan
Talsvert er um rangfærslur í bókhaldi
stofnunarinnar að því er fram kemur í
skýrslu Ríkisendurskoðunar og skortur er á
bókhaldsgögnum.
Kostnaður vegna ferðalaga starfsmanna
Löggildingarstofu nam í fyrra 12 m. kr. Tel-
ur Ríkisendurskoðun það há útgjöld þegar
20 starfsmenn eigi í hlut.
Í bréfi iðnaðar- og viðskiptaráðherra til
forstjóra Löggildingarstofu segir að óreiða í
eignarkaupum stofnunarinnar felist einkum í
að ráðist hafi verið í kaup án þess að fyrir
lægi þörf, tilefni eða eðlileg tengsl við starf-
semi stofnunarinnar, mjög hafi skort á að-
hald með umfangi kaupa. Telur ráðuneytið
að kaup á dýrri jeppabifreið til afnota fyrir
forstjóra feli í sér „óforsvaranlega meðferð
fjármuna“ miðað við hvernig fjárhag stofn-
unarinnar var háttað á þeim tíma og hún
brjóti gegn „vönduðum stjórnsýsluháttum í
umgengni með opinbert fé“. Ráðuneytið tel-
ur ámælisvert að viðgengist hafi í stórum stíl
að fela venslamönnum starfsmanna að taka
að sér verkefni í verktöku án þess að þau
hafi verið boðin út eða önnur hlutlæg aðferð
viðhöfð við val verktaka. Slík verktaka sé til
þess fallin að rýra traust til stofnunarinnar
út á við. Telur ráðuneytið forstjórann ótví-
rætt ábyrgan fyrir þeirri óreiðu sem ein-
kennt hafi kaup á verktakaþjónustu.
Í bréfinu er á það bent að Löggilding-
arstofa hafi um árabil verið rekin með stór-
felldum halla og nú sé svo komið að það fé
sem stofnuninni var lagt til í upphafi sé upp-
urið. Segir þar að vanræksla forstjórans fel-
ist bæði í því að stuðla að óreiðu með því að
sinna ekki stjórnunarskyldum og með því að
samþykkja bersýnilega óþörf útgjöld. Er
það, að mati ráðuneytisins, sérstaklega al-
varlegt þar sem forstjóra hafi verið ljóst að
fjárhagsstaða Löggildingarstofu væri ófull-
nægjandi og fyllsta aðhalds því þörf í fjár-
reiðum. Fram kemur að samanlagður rekstr-
arhalli Löggildingarstofu vegna áranna 2000
og 2001 nam rúmlega 60 milljónum króna.
Ráðherra telur í bréfi sínu tilefni til að
veita forstjóranum lausn frá embætti um
stundarsakir. Er honum veittur frestur til
föstudags til að koma að andmælum.
Ríkisendurskoðun og iðnaðarráðherra gera alvarlegar athugasemdir við starfsemi Löggildingarstofu
„Stórfelld óreiða
á bókhaldi og
fjárreiðum“
Morgunblaðið/Sverrir
Löggildingarstofan er til húsa við Borgartún.
GYLFI Gautur Pétursson, forstjóri Lög-
gildingarstofunnar, segir það beinlínis
rangt að tala um óreiðu í bókhaldi stofn-
unarinnar. Þá bendir Gylfi jafnframt á að
fram komi í skýrslunni að stofnunin hafi
gripið til víðtækra aðgerða til að bæta úr
því sem athugasemdir hafi verið gerðar
við.
Aðspurður segir Gylfi að hann hafi haft
afnot af bifreið stofnunarinnar frá 1997 og
síðan hafi sú bifreið einfaldlega verið end-
urnýjuð þegar hún var orðin þriggja ára
gömul. Um þetta hafi stjórninni verið
kunnugt en þegar athugasemd hafi samt
sem áður verið gerð vegna þessa hafi bif-
reiðin einfaldlega verið seld og málinu lok-
ið, löngu áður en nokkur athugun hófst
hjá Ríkisendurskoðun.
„Ég hef greitt hlunnindaskatt af afnot-
um mínum af bifreiðinni frá upphafi. Um
þetta allt var samkomulag við þáverandi
ráðuneytisstjóra,“ segir Gylfi.
Aðspurður um tölvukaup stofnunarinnar
segir Gylfi að þau hafi verið í verkahring
skrifstofustjóra en hann hafi auk þess þeg-
ið ráðgjöf sérfræðings sem fenginn var til
að fara yfir málin. „Það er ekki rétt að
kaupin hafi verið utan rammasamnings
sem var við Einar J. Skúlason. Hins vegar
var bent á að of mikið hafi verið keypt og
það er annað mál og ég hefði ef til vill átt
að taka eftir því.“
Spurður um ferðakostnað Löggilding-
arstofunnar segir Gylfi að alltaf sé hægt
að gagnrýna stofnanir fyrir slíkt.
Gylfi Gautur bendir á að í skýrslu Rík-
isendurskoðunar komi orðrétt fram að „al-
varleg veikindi fyrrverandi skrifstofu-
stjóra höfðu umtalsverð áhrif á rekstur
stofnunarinnar“. Gylfi segir að það sé allt-
af erfitt að fjalla um veikindi af þessu tagi
og hann vilji ekki gera það opinberlega, en
þau hafi nú verið dregin fram í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
Gylfi segist munu skila andmælum og
þar muni sjónarmið hans verða skýrð nán-
ar. „Mál þetta kann að snúast um hugs-
anlega ábyrgð mína á starfsmönnum mín-
um. Ég mun að sjálfsögðu axla þá ábyrgð
sem mér ber.“
Rangt
að tala
um óreiðu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
talsmaður Samfylkingarinnar,
sagði laun forstjóra Kaupþings „út
úr Íslandskortinu“ í fréttaþættin-
um Hér og nú í Ríkisútvarpinu í
gærmorgun.
„Enda má kannski segja að
Kaupþing sé vaxið út úr kortinu.
Þessi laun endurspegla fyrst og
fremst hvílík reginhöf aðskilja þá
sem hæst hafa launin og svo al-
menna launþega. Það er auðvitað
ákveðin hætta á því að menn sem
hafa slík laun rofni úr tengslum við
raunveruleikann.“
Þá sagði hún hæpið að miða við
laun í útlöndum hvað þetta varðar
en Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings, sagði í þættinum að
enginn lyfti brúnum yfir launa-
greiðslunum erlendis.
„Almenningi í öðrum löndum
finnst nóg um þær launagreiðslur
sem forstjórar þar taka. Það má
kannski á móti segja að það er
kostur að Kaupþing hefur höfuð-
stöðvar sínar hér á landi og for-
stjóri fyrirtækisins telur fram til
skatts hér,“ sagði Ingibjörg Sól-
rún.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gagnrýnir laun forstjóra Kaupþings
Hætt við að menn rofni úr
tengslum við raunveruleikann
HAGASKÓLI sigraði spurn-
ingakeppni grunnskólanna eftir
spennandi baráttu við Foldaskóla í
gærkvöldi. Þríeykið sigursæla,
Björn Reynir Halldórsson, Magnús
Þorlákur Lúðvíksson og Halla
Oddný Magnúsdóttir, hlaut 37 stig
en lið Foldaskóla 33. Endasprett-
urinn var harður hjá Foldaskóla en
það dugði þó ekki til að jafna stiga-
fjölda Hagaskóla sem gekk út með
verðlaunagrip ÍTR.
Hagaskóli
vann spurn-
ingakeppni
grunnskólanna
Morgunblaðið/Jim Smart