Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 17 inn í herbergi Stalíns. Þangað máttu þeir ekki fara nema hann bæði þá um það sjálfur. Klukkan 6.30 kviknaði ljós í her- bergi Stalíns og verðirnir róuðust. En þegar klukkan var orðinn tíu voru þeir orðnir stjarfir af hræðslu. Að lokum var Lozgatsjev sendur til að athuga hvort eitthvað amaði að Stalín. blæðingar en aðrir að hann hafi ver- ið myrtur. Radzinski var staðráðinn í að afhjúpa leyndardóminn um dauða Stalíns og fyrir nokkrum ár- um hafði hann uppi á einum af vörð- um einræðisherrans þetta kvöld, Pjotr Lozgatsjev. Frásögn hans varð kveikjan að tilgátu Radzinskis. Lozgatsjev staðfesti að það var ekki Stalín sem skipaði vörðunum að ganga til hvílu, heldur aðalvörður hans, Khrústalev. „Stalín átti það til að hæðast að vörðunum með því að spyrja „viljiði fara í rúmið? – og stara í augu okk- ar,“ sagði Lozgatsjev. „Eins og við hefðum þorað það! Við vorum þess vegna fegnir þegar við fengum þessi fyrirmæli og fórum í rúmið án þess að hugsa okkur um tvisvar.“ Verðirnir sváfu fram eftir og þeg- ar þeir vöknuðu héldu þeir að Stalín vildi sofa út. Þeir biðu í margar klukkustundir og ekkert bólaði á Stalín. Verðirnir voru orðnir áhyggju- fullir en enginn þeirra þorði að fara RÚSSNESKI sagnfræðingurinn Edvard Radzinski fullyrðir að sam- starfsmenn Jósefs Stalíns hafi byrl- að honum eitur til að koma í veg fyr- ir að hann hæfi þriðju heimsstyrjöldina. Þetta kom fram í fræðsluþætti sem breska útvarpið sendi út á mánudaginn var í tilefni af því að 5. mars verður hálf öld liðin frá því að Stalín lést. Kvöldið 28. febrúar 1953 byrjaði eins og venjulega hjá Stalín og nán- ustu samstarfsmönnum hans, Lavr- entí Bería, Níkíta Khrústsjov, Nikol- aj Búlganín og Georgí Malenkov. Þeir horfðu á kvikmynd í Kreml og héldu síðan í hús Stalíns nálægt Moskvu til að halda enn eina drykkjuveisluna. Um nóttina fóru gestirnir heim til sín. Stalín er sagður hafa skipað vörðum sínum að ganga til hvílu og þeir máttu ekki trufla hann. Radzinski þótti mjög undarlegt að Stalín skyldi hafa gefið þessi fyr- irmæli vegna þess að hann var gagn- tekinn af áhyggjum af öryggi sínu, að því er fram kom í „Síðasta leynd- ardómi Stalíns“, þætti BBC Radio 4 um síðustu dagana í lífi einræð- isherrans. Lífvörður leysir frá skjóðunni Ýmsar kenningar hafa komið fram um dauða Stalíns, sumir segja að hann hafi látist af völdum heila- „Ég flýtti mér til hans og spurði: „Félagi Stalín, hvað er að? Hann átti það til að væta sig þegar hann lá þarna,“ sagði Lozgatsjev. „Frá hon- um komu einhver torkennileg hljóð, eins og „ds ds“. Vasaúrið hans og eintak af Prövdu lágu á gólfinu. Úrið sýndi 6.30. Þá hlýtur þetta að hafa komið fyrir hann.“Verðirnir hringdu strax í drykkjufélaga Stal- íns, forsætisnefnd kommúnista- flokksins. Radzinski þykir það grun- samlegt hversu seinir þeir voru að bregðast við og kalla í lækni. Vissu þeir of mikið og þurftu því ekki að flýta sér til „gamla manns- ins“? Radzinski telur svo vera. Myrtur að fyrirmælum Beria? Sagnfræðingurinn heldur því fram að vörðurinn Khrústalev hafi byrlað Stalín eitur að fyrirmælum yfirboðara síns, Lavrentís Bería, yf- irmanns öryggislögreglunnar KGB. Radzinski telur sig einnig vita hvers vegna Stalín hafi verið myrtur. „Allir sem umgengust Stalín vissu að hann vildi stríð – þriðju heims- styrjöldina – og hann ákvað að búa landið undir þetta stríð,“ hefur BBC eftir Radzinski. „Stalín sagði: „Við höfum tækifæri til að skapa komm- úníska Evrópu en við þurfum að hafa hraðan á. En Bería, Khrústsjov, Malenkov og allir eðlilegir menn skildu að það væri hræðilegt að hefja stríð gegn Bandaríkjunum vegna þess að Rússland var fjár- vana. Það var ekki fátækt, heldur sárafátækt, landið hafði verið eyði- lagt í innrás Þjóðverja, átti engan þjóðarauð, aðeins kjarnavopn.“ „Þetta var ástæðan fyrir herferð Stalíns gegn gyðingum, það var ögr- un,“ hélt Radzinski áfram. „Hann vildi að Bandaríkin svöruðu. Og Bería vissi að Stalín hafði ráðgert að hefja brottflutning gyðinga frá Moskvu 5. mars.“ BBC tekur fram að ekki sé óal- gengt að samsæriskenningar hrann- ist upp í Rússlandi, að ein kenning geti af sér aðrar. Nokkrir borg- arbúar segja að rútum hafi verið lagt út um alla Moskvu til að flytja í burtu gyðinga. Aðrir sáu sérstök geymsluhús sem sögð eru hafa verið reist í Kasakstan til að hýsa brott- rekna gyðinga. Var Stalín byrl- að eitur til að afstýra stríði? Reuters Gamlir kommúnistar í Rússlandi hafa Stalín enn í hávegum og myndir af honum eru áberandi í 1. maí-hátíðahöldum og við ýmis tækifæri. ’ Allir sem umgengust Stalín vissu að hann vildi stríð – þriðju heims- styrjöldina. ‘ TILRAUN Norður-Kóreumanna með skammdræga eldflaug hefur valdið aukinni spennu þótt stjórn- völd í grannríkjunum og Bandaríkj- unum vilji ekki gera of mikið úr mál- inu. Varð eldflaugarskotið til að valda nokkurri gengislækkun á fjár- málamörkuðum í Japan og annars staðar í Asíu og varpaði einnig nokkrum skugga á embættistöku Roh Moo-hyuns sem forseta Suður- Kóreu. Hermálayfirvöld í Japan og S- Kóreu sögðu, að eldflauginni, sem er ætlað að granda skipum, hefði verið skotið í fyrrakvöld frá norðaustur- strönd N-Kóreu og hefði hún lent í Japanshafi. Talsmaður Bandaríkja- stjórnar vildi ekki gera of mikið úr tilrauninni en hún var gerð nokkrum klukkustundum áður en Roh Moo- hyun sór embættiseið sem nýr for- seti S-Kóreu í Seoul. Meðal við- staddra við athöfnina voru Colin Po- well, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Junichiro Koizumi, forsætis- ráðherra Japans, og Alexander Downer, utanríkisráðherra Ástralíu. Downer sagði, að eldflaugartil- raun N-Kóreumanna á þessum tíma væri ótrúlega ósvífin og ögrandi en Powell vildi ekki gera of mikið úr málinu og sagði, að vitað hefði verið, að tilraunin stæði fyrir dyrum auk þess sem um gamlan vopnabúnað hefði verið að ræða. Japanskir emb- ættismenn tóku í sama streng en þeir og japönsk stjórnvöld fylgjast grannt með því, sem er að gerast í N-Kóreu og hafa af því miklar áhyggjur. Japanar áhyggjufullir Í ágúst 1998 skutu N-Kóreumenn langdrægri, margþrepa eldflaug yfir Japan og út í Kyrrahaf. Með því sýndu þeir, að þeir réðu yfir eld- flaugum, sem unnt væri að skjóta á Japan og búnum kjarnasprengjum ef því væri að skipta. N-Kóreustjórn hét því síðast í haust að hætta slík- um tilraunum en s-kóreska varnar- málaráðuneytið telur hins vegar, að N-Kóreumenn séu að gera ýmsar tilraunir með Taepodong-1-eldflaug- ar, sem draga 2.500 km, og séu að auki að þróa enn langdrægari flaug- ar. Við embættistökuna í gær hvatti Roh N-Kóreustjórn til að kasta kjarnorkuáætlunum sínum fyrir róða og sagði, að þannig gæti hún tryggt sitt eigið öryggi og alþjóðlega aðstoð við landið. Powell kvaðst telja, að Roh skildi og væri sam- þykkur stefnu Bandaríkjanna gagn- vart N-Kóreu. Aukin spenna vegna eldflaugartilraunar Norður-Kóreustjórn er sögð vera að gera tilraunir með og þróa eldflaugar sem draga lengra en 2.500 km AP Roh Moo-hyun, nýr forseti Suður-Kóreu, ásamt konu sinni, Kwon Yang- sook, við embættistökuna í gær. Seoul, Tókýó. AP, AFP. HÁLFS árs stúlka og þriggja ára drengur voru gefin saman í Nepal á dögunum og hjónavígslan endaði með því að mæður þeirra gáfu brúðhjónunum brjóst. Börnin voru gift þrátt fyrir að lög landsins kveði á um að karl- menn þurfi að vera 21 árs og stúlk- ur 18 ára til að ganga í hjónaband. Þegar hindúaprestur var að gefa börnin saman varð stúlkan svo hrædd að hún fór að gráta. Móðir hennar stöðvaði athöfnina og börn- in fengu brjóstamjólk, að sögn nep- alska dagblaðsins Taja Khabar. Foreldrar barnanna höfðu óttast að þau myndu ekki finna maka síð- ar á ævinni. Fjölskylda brúðarinn- ar vildi halda brúðkaup og eyddi andvirði 80.000 króna í veisluna. Kornung börn gefin saman Katmandu. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.