Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HJÁ Pharmaco hf. er unnið að því að koma á fót skrifstofu í Svíþjóð og er stefnt að því að hún taki til starfa á þessu ári. Róbert Wess- man, forstjóri Pharmaco, segir að þetta tengist því að sænska lyfjaeftirlitið hafi nýlega sam- þykkt markaðsleyfisumsóknir fyrir samheitalyf frá fjórum markaðsaðilum af þunglyndislyfi danska lyfjarisans Lundbeck, Cipramil. Þar á meðal sé lyfið Citalopram, sem dótturfyrirtæki Pharmaco í Danmörku, United Nordic Pharma, hefur fengið samþykki sænska lyfjaeftirlitsins fyrir. Það var hins vegar annað dótturfyrirtæki Pharmaco, Omega Farma, sem þróaði Citalopram á sínum tíma. Að sögn Róberts er veltan með Cipramil í Svíþjóð um fimm milljarðar íslenskra króna á ári. Hann segir að ef vel takist til megi gera ráð fyrir að Pharmaco geti jafnvel náð nokkur hundruð milljóna króna veltu með sam- heitalyfið Citalopram. Reynt að stöðva framleiðslu Citalopram Töluvert hefur verið fjallað í dönskum fjöl- miðlum að undanförnu um tilraunir danska lyfjarisans Lundbeck til að halda samheita- lyfjafyrirtækjum eins og Pharmaco frá mark- aði. Frumlyfjaframleiðendur eins og Lundbeck fá 20 ára einkaleyfavernd til að standa straum af þróunarkostnaði og til að ná ávöxtun á fjár- muni sem settir eru í þróun. Að þeim tíma liðn- um er heimilt að selja samheitalyf, þ.e. lyf sem sýnt hefur verið fram á að hafi sömu virkni og uppfyllir sömu gæðakröfur og frumlyfið. Róbert segir að lyfjaverð lækki ávallt þegar samheitalyf kemur á markað auk þess sem frumlyf tapi þá markaðshlutdeild. Það sé því klár hagur neytenda að á markað komi sam- heitalyf um leið og einkaleyfi viðkomandi frum- lyfs rennur út. „Tekjur Lundbeck koma fyrst og fremst frá þessu eina lyfi, Cipramil,“ segir Róbert. „Fyr- irtækið hefur því gripið til þess ráðs að fara fram á lögbann vegna sölu samheitalyfsins og lögsótt alla þá aðila sem selja citalopram frá Pharmaco í þeirri von að seinka því ferli að samheitalyfið komist á markað. Lundbeck reyndi að stöðva innkomu Citaloprams frá Pharmaco árið 2000 þegar fyrirtækið keypti eina hráefnabirgja Omega Farma, ítalska fyr- irtækið VIS. Með þessu var ætlunin að seinka innkomu samheitalyfsins á meðan Lundbeck markaðssetti nýja útgáfu af Cipramil, sem þeir kalla Cipralex. Þróun á Cipralex var hins veger sein fyrir auk þess sem Pharmaco tókst að ná inn nýjum hráefnabirgja, fyrirtækinu Matrix á Indlandi. Þetta varð hins vegar til þess að seinka markaðsetningu Omega Farma á sam- heitalyfinu um nokkra mánuði.“ Íslenskt hugvit stenst samkeppnina Danska blaðið Börsen sagði frá því fyrir skemmstu að Lundbeck hefði verið heimilað seint á síðasta ári að gera úttekt á Matrix, hrá- efnabirgja Pharmaco. Hópur manna frá Lund- beck, ásamt hlutlausum matsmönnum, tók út framleiðsluferlana hjá Matrix. Niðurstaða út- tektarinnar var á þá leið að Matrix væri ekki að brjóta á einkaleyfum Lundbeck. Róbert segir að eftir heimsókn eftirlitsmann- anna til Matrix, svo og eftir að lögbannskröfu Lundbeck hafi verið vísað frá m.a. í Þýska- landi, Hollandi, Spáni, Noregi, Finnlandi og Bretlandi, megi segja að Lundbeck sé að tapa slagnum við samheitalyfjafyrirtækin sem selja Citalopram frá Pharmaco. Börsen og Jyllands-Posten hafa greint frá því að Lundbeck hafi boðið Matrix 300 millj- ónir danskra króna fyrir að hætta að selja hrá- efnið sem Pharmaco notar í framleiðslu á cita- lopram töflum. Haft er eftir Asbjörn Abrahamsen af þessu tilefni í Börsen, en hann er forstjóri norska samheitalyfjafyrirtækisins Ratiopharm, að möguleikar Lundbeck á að koma í veg fyrir framleiðslu á samheitalyfjum jafngildum Cipramil séu eftir þetta úti. Róbert Wessman segir að slagurinn við Lundbeck sýni hversu mikilvægt sé að staðið sé vel að þróun samheitalyfja. Þetta sýni einn- ig hvernig íslenskt hugvit geti staðist sam- keppni við alþjóðleg lyfjafyrirtæki eins og Lundbeck. Þunglyndislyf frá Pharmaco samþykkt fyrir markað í Svíþjóð Fyrirtækið stefnir að opnun skrifstofu í Svíþjóð á árinu Velta Pharmaco með samheitalyfið Citalopram í Svíþjóð gæti jafnvel náð nokkur hundruð millj- ónum króna, samkvæmt upplýsingum frá Róberti Wessman, forstjóra fyrirtækisins. SALA á 2,5% hlutafjár ríkisins í Landsbanka Íslands hf., sem hófst klukkan 10 í gær, lauk á innan við mínútu. Um var að ræða hlut að nafnverði 170,5 milljónir króna. Útboðsgengið var 3,73 og var sölu- andvirði 2,5% hlutar ríkisins því um 636 milljónir króna. Ríkið á nú engan hlut í Lands- banka Íslands en það seldi um síð- ustu áramót Samsoni fjárfesting- arfélagi 45,8% hlut í bankanum. Kemur sér vel til atvinnuuppbyggingar Valgerður Sverrisdóttir, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, segist gleðjast yfir hve vel hafi tekist til með sölu á hlut ríkisins í Lands- bankanum. Hún segir þetta vera í takt við breytta tíma. Það eigi ekki að vera hlutverk ríkisins að reka banka. Hlutverk ríkisins í þessum efnum verði þó áfram mikilvægt við að tryggja eðlilegt umhverfi og eftirlit. Þá segir hún að það fjár- magn sem fáist við söluna á 2,5% hlut ríkisins í Landsbankanum muni koma sér vel til atvinnuupp- byggingar. 2,5% hlutur ríkisins í LÍ seldist á innan við mínútu VÆNTINGAVÍSITALA Gallup hækkar annan mánuðinn í röð og mælist 106,6 stig fyrir febrúarmán- uð. Vísitalan var 103,1 stig í janúar en 98,8 stig í desember 2002. Vísital- an nú er svipuð og í nóvember síðast- liðnum en þá var hún 107,0 stig. Hún er hins vegar 6,9 stigum undir því sem hún hefur verið hæst, frá því mælingar hennar hófust í mars 2001, en vísitalan mældist 113,5 stig í sept- ember á síðasta ári. Meðalgildi væntingavísitölunnar á þeim tíu mánuðum ársins 2001 sem hún var mæld var 82,4 stig. Á árinu 2002 var meðalgildi vísitölunnar 103,6 stig. Væntingavísitala Gallup mælir tiltrú og væntingar fólks til efna- hagslífsins, atvinnuástandsins og heildartekna heimilisins. Hún er mæld á sama hátt og Consumer Confidence Index í Bandaríkjunum. Í tilkynningu frá IMG segir að í Bandaríkjunum sé vísitalan talin hafa gott forspárgildi um þróun á einkaneyslu. Vísitalan getur tekið gildi á bilinu 0–200. Hún tekur gildið 100 þegar jafnmargir eru jákvæðir og nei- kvæðir, en er hærri þegar fleiri eru jákvæðir en neikvæðir.   ()*+, -.   $  . . -  / 0 1 $  .. .  / 0 1 ((,+2 *3+* 4(+* (()+3 !" #" "" $" %" !" #" "             Væntinga- vísitala Gall- up hækkar MOKVEIÐI er nú á loðnumiðunum og fylla skipin sig hvert á fætur öðru í fáum köstum. Loðnan veiðist nú á um 10 faðma dýpi norður af Tvískerjum. Loðnufryst- ing er nú komin á fullt skrið víðast hvar en loðnan er smá og hentar illa til frystingar á Japansmarkað. Loðnufrysting hófst hjá Vinnslu- stöðinni hf. í Vestmannaeyjum um síðustu helgi en Þór Vilhjálmsson innkaupastjóri segir að enn hafi lítið verið fryst á Japan. „Við höf- um aðallega fryst á Rússlands- markað enn sem komið er. Loðnan er því miður of smá til að frysta hana á Japan. Það er vitanlega hvimleitt, því hrognafyllingin í henni er hæfileg og hún er sömu- leiðis átulaus. Við vonum að úr rætist en það er hins vegar oft þannig að loðnan er stærst í fyrstu göngunni.“ Mörg loðnuskip eru nú langt komin með kvóta sína og vonast loðnusjómenn eftir að kvótinn verði aukinn. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson RE hefur verið að mæla stofnstærð loðnunnar og samkvæmt heimildum sækist mæl- ingin seint. Niðurstöðu mæling- anna er að vænta á næstu dögum. Hjálmar Vilhjálmsson leiðang- ursstjóri segir lítið af fjögurra ára kynþroska loðnu í veiðinni og varla að vænta stærri loðnu úr þessu. Uppistaðan í veiðinni sé þriggja ára loðna og hún sé vel haldin. Loðnan of smá fyrir Japan Morgunblaðið/Sigurgeir Loðnufrysting er hafin hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum en hingað til hefur aðeins verið fryst fyrir Rússlandsmarkað. NÝJAR reglur um upplýsingagjöf um launakjör stjórnenda verða kynntar á fjölmiðlafundi í Kauphöll Íslands í dag. Í tilkynningu frá Kauphöllinni segir að hinn 8. október 2002 hafi stjórn Kauphallar Íslands sam- þykkt að skipa starfshóp til að gera tillögur til stjórnar um breytingar á reglum um upplýsingaskyldu útgef- enda hlutabréfa um starfskjör og hlutabréfaeign stjórnenda. Mark- miðið með starfi hópsins var að smíða skýrari og gagnsærri reglur um þetta efni sem tækju mið af hliðstæðum reglum í kauphöllum vestan hafs og austan. Í samþykkt stjórnarinnar segir, að tillögur starfshópsins skuli taka bæði til upplýsingagjafar í skráningarlýs- ingu og viðvarandi upplýsinga- skyldu. Starfshópinn skipuðu Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, en hann var for- maður hópsins, Árni Tómasson, bankastjóri Búnaðarbanka Íslands hf., Viðar Már Matthíasson, pró- fessor í Háskóla Íslands, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Ritari hópsins var Ragnar Þ. Jónasson, lögfræðingur í Kaup- höll Íslands. Í tilkynningunni segir að á fjöl- miðlafundinum verði kynnt í hverju reglurnar felast í meginatriðum en um mikilvæga breytingu á upplýs- ingagjöf til markaðarins sé að ræða. Kauphöll Íslands Nýjar reglur um upplýs- ingagjöf um launakjör ♦ ♦ ♦ AÐALFUNDUR Þróunarfélags Íslands ákvað í gær, að nafni fé- lagsins yrði breytt í Framtak Fjárfestingarbanka hf. Þróunarfélag Íslands varð til í núverandi mynd með sameiningu Þróunarfélagsins og Eignarhalds- félagsins Alþýðubankans í októ- ber. Ásmundur Stefánsson, for- stjóri félagsins, segir að fyrsta verk stjórnar hafi verið að móta stefnu þess. „Í stuttu máli má segja að hún hafi falist í því að auka virka þátttöku í umbreyting- arverkefnum, til að mynda þegar fé vantar inn í fyrirtæki. Það getur verið vegna eigendaskipta, sam- runa eða útrásar, svo dæmi séu nefnd,“ segir Ásmundur, „þá er einnig horft til þess að veita stuðn- ing með þátttöku í stjórnum fyr- irtækjanna.“ Þróunar- félagið verð- ur Framtak BAUGUR-ID tilkynnti í gær að fé- lagið hefði enn aukið hlut sinn í breska matvörufyrirtækinu Big Food Group (BFG), með kaupum á 2,1 milljón hlutum í fyrirtækinu. Eignarhlutur Baugs hækkaði þar með í 21,3%, eða 73.191.564 hluti. Talsmaður Baugs í Bretlandi sagði í samtali við Morgunblaðið að einfaldlega hefði verið um gott kaup- tækifæri að ræða, en bréf í BFG hafa lækkað að undanförnu. Stefna Baugs væri að kaupa í vænlegum breskum smásölufyrirtækjum. Kaupverð bréfanna fékkst ekki gefið upp, en ef miðað er við gengi í lok síðustu viku og á mánudag nam það um 130 millj- ónum króna. Baugur kom- inn í rúmt 21% í BFG ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.