Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 45
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir framhaldsnámskeiði fyrir
þjálfara helgina 7.- 9. mars nk. Námskeiðið er framhald af þjálfaranámskeiði
1a - almennum hluta.
Námskeiðið, sem er samræmt fyrir allar íþróttagreinar, er 20 kennslustundir,
að meginhluta bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna í íþróttum. Haldið
verður áfram að fjalla um þroskaferli barna, þ.e. vaxtarþroska og
hreyfiþroska. Einnig er fjallað um undirstöðuatriði kennslufræði, mikilvægi rétt
mataræðis, fyrstu viðbrögð við íþróttameiðslum og fleira.
Nemandi, sem lýkur þessu námskeiði ásamt því að ljúka sérgreinahluta
þjálfarastigs 1b, hlýtur réttindi sem þjálfari hjá börnum 12 ára og yngri undir
eftirliti yfirþjálfara.
Námskeiðið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst
kl. 18:00 föstudaginn 7. mars og lýkur um kl. 16:00 sunnudaginn 9. mars.
Skráning fer fram á skrifstofu ÍSÍ í síma 514 4000.
Netfang: andri@isisport.is. Skráningu þarf að vera lokið fyrir
miðvikudaginn 5. mars nk. Verð 8.000 kr.
Nánari uppl. er hægt að nálgast á heimasíðu ÍSÍ, www. isisport.is
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir
Þjálfaranámskeið 1b
- almennur hluti
HANNES Jón Jónsson, hand-
knattleiksmaður frá Selfossi,
hefur samið við spænska 2.
deildarliðið Naranco frá
borginni Oviedo og mun
Hannes leika með liðinu
næstu þrjá mánuði.
„Ég er búin að dvelja hér í
viku til reynslu og við kom-
umst að samkomulagi um að
ég yrði hér út leiktíðina,“
sagði Hannes Jón í gær en
hann er markahæsti leik-
maður Íslandsmótsins. „Liðið
er í fallbaráttu en ætlar að
gera allt til þess að forðast
fallið en portúgalskur lands-
liðsmaður bættist í hópinn á
dögunum. Næsti leikur liðsins
er á laugardag og það verður
spennandi að taka þátt í þessu
verkefni sem ég lít á sem æv-
intýri og kannski stökkpall í
eitthvað meira og stærra ef
vel gengur. Það er erftitt að
gera sér grein fyrir því
hvernig styrkleikinn er á
þessari deild en það sem ég
hef upplifað á æfingum hjá
liðinu lofar góðu og hraðinn
er mun meiri en ég átti von á.
Að auki er æft mikið meira
hér á Spáni en á Selfossi þar
sem meistaraflokkur karla
fær aðeins að æfa fjórum
sinnum í viku,“ sagði Hannes
Jón Jónsson.
Hannes Jón
samdi við
Naranco
„LIÐ sem leika í Meistaradeild Evr-
ópu fá 2,5 til 3,7 milljarða ísl. kr. á
hverju ári í tekjur vegna þátttöku
sinnar þar og þetta fé verður til
þess að önnur lið eiga erfitt með að
keppa við þau á jafnréttisgrund-
velli.
Þau lið sem eru ekki í Meist-
aradeildinni eiga í erfiðleikum þeg-
ar þau reyna að fá til sín leikmenn
enda getum við t.d. ekki greitt
sömu laun og þau lið sem eru í
Meistaradeildinni. Þetta er víta-
hringur sem erfitt er að eiga við og
bilið á milli liðanna er að aukast –
og það er fjármagnið sem spilar þar
stærstan þátt,“ segir Kevin Keegan
knattspyrnustjóri enska úrvals-
deildarliðsins Manchester City en
hann telur litlar líkur á því að liðið
hans geti skipað sér í fremstu röð
miðað við núverandi aðstæður. „Ef
knattspyrna væri aðeins viðskipti
væru samkeppnisyfirvöld eflaust að
kanna málið á þessari stundu. Við
munum samt sem áður reyna það
sem við getum til þess að komast í
þennan hóp,“ bætir Keegan við en
hann telur að Ma. City geti enn
tryggt sér rétt í UEFA-keppninni
en Charlton er sem stendur í sjötta
sæti deildarinnar, sjö stigum á und-
an City sem er í ellefta sæti.
„Meistara-
deildin skap-
ar ójöfnuð“
Kevin Keegan
Reuters
REIKNA má með að róðurinn geti
orðið þungur fyrir lið Gróttu/KR
um næstu helgi þegar liðið sækir
sænska úrvalsdeildarliðið Sävehof
heim í fyrri viðureign liðanna í 8
liða úrslitum Áskorendakeppni
Evrópu í handknattleik. Sävehof
hefur verið á gríðarlegri siglingu á
undanförnum vikum. Liðið hefur
ekki tapað leik á árinu og í síðustu
11 leikjum sínum í deildinni er upp-
skeran 10 sigrar og eitt jafntefli.
Sävehof sigraði Skvöde í fyrra-
kvöld, 30:24, og er í 2.–3. sæti úr-
valsdeildarinnar ásamt Drott með
39 stig en í toppsætinu eru Magnus
Wislander og samherjar hans í Red-
bergslid með 45 stig.
Fyrri leikur Sävehof og Gróttu/
KR verður í Scandinavium-höllinni
í Gautaborg á laugardaginn og síð-
ari leikurinn helgina eftir á Sel-
tjarnarnesi.
Mótherjar
Gróttu/KR
í vígamóði
ÖRN Sölvi Halldórsson frá GR
og Steinunn Eggertsdóttir úr GKj
verða verða liðsstjórar á vegum
Golfsambands Íslands á þessu ári.
Örn Sölvi mun sjá um piltalands-
liðið en Steinunn hefur stúlkna-
landsliðið á sinni könnu.
BRYNJAR Björn Gunnarsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu og
miðvallarleikmaður, framherjinn
Chris Iwelumo og varnarmaðurinn
Sergei Shtaniuk koma allir inn í lið
Stoke í kvöld sem tekur á móti
Walsall í ensku 1. deildinni í knatt-
spyrnu.
ÞEIR voru allir í leikbanni þegar
Stoke steinlá fyrir Nottingham
Forest í deildarleik á City Ground í
Nottingham um síðustu helgi, 6:0.
ÍSLENSKU leikmennirnir í
norska liðinu Haslum voru at-
kvæðamiklir þegar liðið sigraði
Oppsal, 27:21, í B-úrslitum norsku
1. deildarinnar í fyrrakvöld. Heimir
Örn Árnason var maður leiksins og
skoraði sex mörk, sem og Daníel
Ragnarsson, og Theódór Valsson
skoraði þrjú mörk.
HASLUM stendur vel að vígi í úr-
slitakeppninni. Haslum og Krist-
ianstad eru með 18 stig en Haslum
á leik til góða, Heimdal og Fyll-
ingen eru með 16 stig. Fjögur efstu
liðin vinna sér sæti í norsku úrvals-
deildinni og tvö efstu fá sæti í 8-liða
úrslitum um meistaratitilinn.
FÓLK
Sókn Víkinga var ekki burðugfyrstu mínúturnar en uppskar
þó fimm mörk úr fimm sóknum.
Valsstúlkum voru
hinsvegar mislagð-
ar hendur, ekkert
gekk upp í sókninni
og vörnin illa á
verði. Svo skildu leiðir þegar Vík-
ingar börðust fyrir hverjum bolta,
reyndu ákaft að finna fjölina og
fundu hana. Sama er ekki hægt að
segja um gestina frá Hlíðarenda,
sem voru alls ekki með einbeit-
inguna í lagi og gengi liðsins í
samræmi við það enda munaði tíu
mörkum í leikhléi, 16:6. Á fyrstu
mínútu eftir hlé komust Víkingar í
13 marka forystu en leyfðu sér þá
að slaka örlítið á. Nógu mikið til
að Valsstúlkur skoruðu þrjú mörk
í röð en Víkingum reyndist auðvelt
að ná aftur öllum völdum á vell-
inum. Áfram héldu þær baráttunni
og voru oft reknar af velli en það
sló ekkert á baráttuna.
„Við áttum alls ekki von á
þessu,“ sagði Guðrún Hólmgeirs-
dóttir eftir leikinn en hún skoraði
7 mörk Víkinga, mörg hver úr erf-
iðum færum. „Við höfum ekki spil-
að nógu góða vörn uppá síðkastið
og því verið að ströggla í und-
anförnum leikjum en núna small
hún saman og við náðum að keyra
á þær. Það er munurinn frá síð-
asta leik og þá fylgir góð mark-
varsla og hraðaupphlaupin,“ bætti
Guðrún við og leit raunsæjum aug-
um á framtíðina. „Nú verðum við
að gleyma þessum leik því hann
hefur enginn áhrif í næsta. Þá er
að duga eða drepast og við verðum
að komast niður á jörðina.“ Flestir
leikmanna Víkinga áttu góðan leik.
Helga Torfadóttir í markinu varði
oft vel, ekki bara auðveldu skotin
sem sluppu framhjá vörninni. Fyr-
irliðinn Helga Birna Brynjólfsdótt-
ir fór fyrir liði sínu, skoraði mörg
góð mörk og átti góðar sendingar,
sem gáfu mörk. Gerður Beta Jó-
hannsdóttir var góð eins og Anna
Kristín Árnadóttir.
„Það klikkar allt hjá okkur,“
sagði Hafdís Guðjónsdóttir úr Val
eftir leikinn. „Við komumst aldrei í
gír. Spilum langt undir getu og
þegar vörnin er ekki nógu góð,
sem sést best á því að við fáum á
okkur sextán mörk fyrir hlé, geng-
ur sóknin heldur ekki upp og allt
verður erfiðara. Víkingsstelpur
eru miklu grimmari í öllum að-
gerðum og við náum aldrei taki á
þeim í vörninni. Við vissum hvern-
ig Víkingar kæmu stemmdir til
leiks og það kom okkur ekkert á
óvart en við vorum ekki með frá
byrjun til enda og Víkingar áttu
sannarlega sigurinn skilinn fyrir
meiri leikgleði og baráttu.“ Aðeins
var hægt að merkja baráttuvilja
hjá Berglindi Hansdóttur í mark-
inu og Drífu Skúladóttur, aðrir
leikmenn voru ekki alveg með
hugann við leikinn og náðu sér
ekki á strik.
KA/Þór stóð í FH
Á Akureyri stóð KA/Þór lengi
vel í FH og var staðan í leikhléi
15:12 fyrir Hafnfirðinga en eftir
hlé náðu þeir að síga framúr. Inga
Dís Sigurðardóttir var atkvæða-
mest hjá KA/Þór með 9 mörk og
Ásdís Sigurðardóttir 5 en hjá FH
skoraði Björk Ægisdóttir 7 og Sig-
rún Gilsdóttir sex.
Haukastúlkur náðu strax undir-
tökunum gegn Gróttu/KR á Sel-
tjarnarnesi. Höfðu 4 til 5 marka
forskot, sem fór upp í níu mörk
eftir hlé og þar með var björninn
unninn. Eva Margrét Kristinsdótt-
ir skoraði 6 af mörkum Gróttu/KR
en Hanna G. Stefánsdóttir níu fyr-
ir Hauka.
Valsstúlkur sáu aldrei
til sólar gegn Víkingum
VÍKINGSSTÚLKUR uppskáru ríkulega í Víkinni í gærkvöldi þegar
þær fengu Val í heimsókn. Jafnræði var með liðunum fyrstu mín-
úturnar en síðan héldu Víkingar áfram að reyna komast í gang og
tókst það á meðan gestirnir frá Hlíðarenda koðnuðu niður. Úrslitin
voru því alveg í samræmi við leikinn, tólf marka sigur – 28:16. Á Sel-
tjarnarnesi unnu nýbakaðir bikarmeistarar Hauka öruggan 28:21
sigur á Gróttu/KR og á Akureyri hafði FH betur gegn KA/Þór, 27:21.
Morgunblaðið/Golli
Valsstúlkan Eygló Jónsdóttir tekur á Gerðu Betu Jóhannsdótt-
ur, leikmanni Víkings.
Stefán
Stefánsson
skrifar
NÍU íslenskir snókerspilarar verða
meðal keppenda á Norðurlanda-
mótinu sem fram fer í Tampere í
Finnlandi. Þetta er í fjórða sinn
sem Norðurlandamót er haldið í
íþróttinni og eru íslensku kepp-
endurnir staðráðnir í að end-
urheimta titilinn sem Finninn Villa
Pasanen krækti í í fyrra.
Fyrstu tvö árin sigraði Jóhannes
B. Jóhannesson á mótinu en í
fyrra tapaði Brynjar Valdimarsson
naumlega fyrir Pasanen í úrslit-
um.
Landsliðið skipa Jóhannes B. Jó-
hannesson, Ásgeir Ásgeirsson,
Gunnar Hreiðarsson, Sumarliði
Gústafsson, Arnar Petersen, Ragn-
ar Páll Dyer, Sturla Jónsson,
Ágúst Ágústsson og Jónas Þór
Jónasson.
Mótið hefst á föstudaginn og
lýkur á sunnudaginn.
Snókerspil-
arar á Norð-
urlandamót