Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 48
KVIKMYNDIR
48 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HRINGURINN byrjar á atriði sem
minnir á vinsælar unglingahrollvekj-
ur en reynist blessunarlega laus við
ódýru einkennin sem eru vörumerki
slíkra mynda. Engin fjöldaslátrun né
blóðstokknar persónur hræðandi
áhorfandann með blikandi eggvopn-
um, holskurðum og ámóta kliskju-
kenndum kryddefnum. Kvikmynda-
gerðarmennirnir róa á áhrifaríkari
mið draugasögunnar, í smiðju jap-
anskra kollega sinna þar sem Hring-
urinn er Hollywood-endurgerð
Ringu, magnaðrar hryllingsmyndar
frá 1997 og hefur verið fáanleg á ís-
lenskum myndbandaleigum í nokkur
ár.
Fyrrgreint upphafsatriði segir af
vinkonunum Katie (Amber Tambl-
yn) og Beccu (Rachael Bella). Katie
tjáir Beccu frá óþægilegri reynslu
sem hún upplifði viku áður, er hún
leigði ásamt vinum sínum dularfullt
myndband sem reyndist innihalda
torkennilega atburði. Að sýningu
lokinni hringdi síminn þar sem
áhorfendunum var tjáð að þeir ættu
sjö daga ólifaða. Og dagar Katie eru
taldir. Hún er myrt á voveiflegan
hátt en Becca gengur af vitinu.
Blaðakonan Rachel (Naomi
Watts) tekur að sér rannsókn máls-
ins þar sem fórnarlambið er í fjöl-
skyldunni. Hún kemst að því að vinir
Katie eru allir dánir og létust á ná-
kvæmlega sama tíma og hún. Rachel
finnur myndbandið, horfir á það og
síminn hringir …
Nú hefst kapphlaup við tímann,
Rachel reynir að bjarga lífi sínu með
því að fá botn í þau skilaboð sem eru
á spólunni og nýtur hjálpar Noah
(Martin Henderson), barnsföður
síns. Rannsóknin leiðir þau til af-
skekktrar eyju utan við Seattle þar
sem óhugnanlegir atburðir liggja í
loftinu.
Ekki er rétt að ræna væntanlega
bíógesti spennunni með frekari upp-
rifjun þessarar nútímaútgáfu upp-
vakningarsögu en óhætt að fullyrða
að öfugt við þjóðsögurnar okkar er
lítil vitglóra í fléttunni. Áhorfendum
er haldið við efnið með myndrænu,
ískyggilegu áreiti sem stigmagnast
fram að skelfilegu atriði sem fær
hárin til að rísa. Myndin er í kulda-
legum grátónum og grænleitum lit-
um sem minna á Særingarmanninn
(The Exorcist). Í ofanálag gerist
Hringurinn að mestu leyti í þung-
búnum rigningarbeljanda sem eykur
enn á ónotin. Líkt og í Norninni í
Blair (The Blair Witch Project) er
það myndbandsupptaka sem er upp-
spretta óhugnaðarins og læðist að
manni sá grunur að höfundar hennar
hafi þjófstolið hugmyndinni frá jap-
önunum. Hringurinn er ólíkt magn-
aðri og þéttari en myndin af norninni
í Blair, prýdd góðum leik Watts
(Mulholland-tröð), Hendersons og
sterkri innkomu aukaleikaranna
Brians Cox og Jane Alexanders.
Kvikmyndatakan er stílhrein og
áhrifarík og tónlist Hans Zimmer
eykur á undirliggjandi óhugnað
kuldahrollsins.
Því miður stenst Hringurinn ekki
nærskoðun, öfugt við Náðargáfuna
(The Gift) og Hina (The Others),
tvær framúrskarandi hrollvekjur frá
síðustu árum. Þegar upp er staðið
kemur í ljós að framvindan er órök-
rétt og margir lausir endar ófrá-
gengnir. Hringnum fyrirgefst í skjóli
myrkra leyndardóma og frumlegra
og fagmannlegra atriða sem sitja í
beinunum er maður heldur út í
myrkt febrúarkvöldið. Einkum er
minnisstæður stigmagnaður tryll-
ingur í hesti sem fælist um borð í
ferju sem flytur Rachel til eyjunnar,
á vit örlaga sinna.
Hringurinn er endurgerð á japönsku myndinni Ringu frá 1997.
Illskeyttur
uppvakningur
THE RING / HRINGURINN
Háskólabíó, Sambíóin Reykjavík
og Akureyri
Leikstjóri: Gore Verbinski. Handrit: Ehren
Kruger, byggt á skáldsögu Koji Suzuki og
kvikmyndahandriti Hideo Nakata. Kvik-
myndatökustjóri: Bojan Bazelli. Tónlist:
Hans Zimmer. Aðalleikendur: Naomi
Watts, Martin Henderson, David Dorf-
man, Brian Cox, Jane Alexander, Lindsay
Frost, Amber Tamblyn, Rachael Bella.
115 mín. DreamWorks. Bandaríkin
2002.
Sæbjörn Valdimarsson
Stóra svið
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Itzik Galili og Ed Wubbe
3. sýn fim 27/2 kl 20 rauð kort
4. sýn sun 2/3 kl 20 græn kort
5. sýn sun 16/3 kl 20 blá kort
Kortagestir athugið áskriftasýning
ATH: Aðeins 8 sýningar
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 28/2 kl 20, Lau 1/3 kl 20
Fim 6/3 kl 20, Fö 14/3 kl 20, Lau 15/3 kl 20,
Fö 21/3 kl 20, Lau 22/3 kl 20
SÖLUMAÐUR DEYR e. Arthur Miller
Fö 7/3 kl 20 AUKASÝNING
Lau 8/3 kl 20 AUKASÝNING
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 2/3 kl 14, Su 9/3 kl 14,
Su 15/3 kl 14, Su 23/3 kl 14
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 038 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20, UPPSELT
Lau 1/3 kl 20, Su 2/3 kl 20, Þri 4/3 kl 20,
Mið 5/3 kl. 20 UPPSELT,
Fi 6/3 kl 20, Su 9/3 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 28/2 kl 20 UPPSELT,
Lau 1/3 kl. 20, Fim 6/3 kl 20, Su 9/3 kl 20
JÓN OG HÓLMFRÍÐUR e. Gabor Rassov
frekar erótískt leikrit í þrem þáttum
Fö 7/3 kl 20 AUKASÝNING
SÍÐASTA SÝNING
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 2/3 kl 20, Lau 8/3 kl 20, Fö 14/3 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 1/3 kl 14, Lau 8/3 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 27/2 kl 20, Lau 8/3 kl 20
Fi 13/3 kl 20, Fö 14/3 kl 20
LÝSISTRATA eftir Aristofanes - LEIKLESTUR
Leikhúsverkefni á heimsvísu gegn stríði!
Má 3/3 kl 20 -
Aðgangseyrir kr. 500 rennur í hjálparsjóð
Takmarkaður sýningarfjöldi
VETRARHÁTÍÐ - LJÓSIÐ Í LEIKHÚSINU
Fjölskyldudagskrá
Lau 1/3 kl 14 - Aðgangur ókeypis
„HANN“ Spunaleikrit e. Júlíus Júlíusson
Sjö leikarar á óvæntu stefnumóti
Su 2/3 kl 20 - 1.500 kr.
mið. 26/2 kl. 11 aukasýn. UPPSELT
mið. 26/2 kl. 14 aukasýn. UPPSELT
fös. 28. feb. kl. 20. Örfá sæti lau.
1. mars. kl. 20. Örfá sæti
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Sýnt í Smiðjunni - s. 552 1971
eftir Sigurð Pálsson
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka
daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19
sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar
4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700
Fös 28/2 kl 21
Lau 1/3 kl 21 Styrktarsýn. Samt. 78
Lau 8/3 kl 21
Sun 9/3 kl 21 Örfá sæti
Fös 14/3 kl 21 Nokkur sæti
Leyndarmál
rósanna
Sýn. fös. 28. feb. kl. 20
sýn. lau. 8. mars kl. 19
Uppistand um
jafnréttismál
Sýn. lau. 1. mars kl. 20
sýn. lau. 1. mars kl. 22.30, uppselt
sýn. fös. 7. mars kl. 20
Miðasölusími sími 462 1400
www.leikfelag.is
fim 27.2 kl. 21, aukasýning, UPPSELT,
föst 28.2 kl. 21, UPPSELT
lau 1.3 kl. 21, 100 SÝNING, UPPSELT
mið 5.3 kl. 21, Öskudagssýn., Örfá sæti,
föst 7.3 kl. 21, UPPSELT
lau 8.3 kl. 21, Örfá sæti,
föst 14.3 kl. 21, UPPSELT,
lau 15.3 kl. 21, Nokkur sæti
föst 21.3 kl. 21, Örfá sæti,
lau 22/3 kl, 21, Laus sæti
"Björk er hin nýja Bridget Jones."
morgunsjónvarpið
ÓSÓTTAR PANANIR SELDAR
FJÓRUM DÖGUM FYRIR SYNINGU
Allt
eins og
blómstrið
eina
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUNNAR
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Tónleikar í bláu röðinni í Háskólabíói
fimmtudaginn 27. febrúar kl. 19:30
Hljómsveitarstjóri: Tõnu Kaljuste
Hamrahlíðarkórarnir
Atli Heimir Sveinsson: Doloroso
Arvo Pärt: Orient & Occident
Arvo Pärt: Cecilia, vergine romana
Ralph Vaughan-Williams: Lundúnasinfónían
Doloroso eftir Atla Heimi er hug-
leiðing um sársauka, söknuð og
missi. Í verkinu er vitnað frjálslega
í sálminn Allt eins og blómstrið eina,
og er eins og einleiksfiðlan syngi
sálminn eftir minni. Sumir segja að
tónlistin geti linað sorg hins jarð-
neska lífs og veitt huggun.
Atli Heimir samdi Doloroso með
það í huga.
Lundúnasinfónía Ralph Vaughan-
Williams hefur aldrei heyrst á
Íslandi og sama gildir um Ceciliu
eftir Arvo Pärt. Cecilia, verndar-
dýrlingur tónlistarinnar, er glænýtt
verk. Það er mikið tilhlökkunar-
efni að heyra Hamrahlíðarkórinn
spreyta sig á verkinu enda er Pärt
mikill aðdáandi kórsins.
Sun. 2/3 kl. 14
Sun 9/3 kl. 14
Sun. 16/3 kl. 14
Sun. 23/3 kl. 14
Sun. 30/3 kl. 14
Miðapanntanir frá kl 13 18 S: 552 3000
Síðustu
sýningar!
Munið hópafsláttinn
Miðasala 5523000 - www.madeinusa.is
SÝNT Í LOFTKASTALNUM
Næstu sýningartímar
fim 27.2 kl. 20.00 Aukasýning
fös 28.2 kl. 20.00 Örfá sæti
fös 28.2 kl. 24.00 Örfá sæti
lau. 8.3 kl. 24.00 Laus sæti
SÖNGLE
IKUR
EFTIR
JÓN
GNARR