Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ LANDSVIRKJUN telur arðsemi af breyttri Norðlingaölduveitu, eins og hún var lögð upp í úrskurði setts umhverfisráðherra, nægjanlega miðað við fyrstu skoðun á úrskurð- inum. Hefur því verið ákveðið að hefja strax framhaldsviðræður við Norðurál um orkuöflun vegna stækkunar álversins á Grund- artanga úr 90 í 180 þúsund tonn. Jafnframt halda áfram viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur og Hita- veitu Suðurnesja þar sem ætlunin er að orkuöflunin verði samstarfs- verkefni orkufyrirtækjanna þriggja. Þess er vænst að flýta megi útboðum þannig að verklegar fram- kvæmdir geti hafist þegar á þessu ári. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, telur að ef allt gangi eftir eigi að vera hægt að byrja afhendingu orku til Norðuráls í lok árs 2005 og fullum afköstum verði náð í upphafi ársins 2006. Landsvirkjun sendi í gær frá sér tilkynningu um málið þar sem fram kemur að fyrstu niðurstöður á úr- skurði setts umhverfisráðherra um Norðlingaölduveitu séu jákvæðar með tilliti til arðsemi verkefnisins. Í tilkynningunni segir að mikilvægt sé að flýta þessum framkvæmdum eins og kostur sé, til að hægt verði að dreifa fyrirhuguðum stóriðju- verkefnum og koma í veg fyrir of mikið framkvæmdaálag á árunum 2005 og 2006. Vegna breytinga sem gera þurfi á veitunni í samræmi við úrskurð setts umhverfisráðherra, Jóns Kristjánssonar, sé nauðsynlegt að frekari rann- sóknir eigi sér stað í sumar. Í úrskurðinum var einkum kveðið á um að uppistöðulón færi út úr frið- lýstu svæði Þjórsárvera og gerð var tillaga um lónhæð í 566 metra yfir sjáv- armáli. Samkvæmt því færi flat- armál lónsins úr tæpum 30 ferkíló- metrum niður í um þrjá ferkílómetra. Í úrskurðinum heim- ilaði Jón einnig gerð setlóns undir jökli austan Arnarfells með miðlun vatns í Þjórsárlón og tilheyrandi leiðigörðum, stíflum og skurðum. Landsvirkjun ekki bundin af lóni í 566 metra hæð yfir sjó Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir við Morg- unblaðið að vandlega hafi verið far- ið yfir úrskurð Jóns Kristjánssonar um verulega breytta útfærslu á Norðlindaölduveitu. Fyrirtækið hafi fundið fyrir miklum stuðningi og ánægju með úrskurðinn. Hann leggur áherslu á að Landsvirkjun vilji finna hagstæðustu útfærsluna á grundvelli úrskurðarins og minnir á að fyrirtækið sé ekki bundið af til- lögu Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, VST, um lónhæð í 566 mys. Landsvirkjun sé aðeins bundin af því að fara með lónið út fyrir frið- lýsta svæðið og því geti lónhæðin farið í allt að 568,5 metra. Þetta eigi eftir að ákveða nánar eftir frekari rannsóknir, m.a. á því hvar stífl- ustæðið og veituleiðir eigi að koma. „Okkar markmið er fyrst og fremst að halda okkur utan frið- landsins, í samræmi við úrskurð- inn,“ segir Friðrik en Landsvirkjun mun á næstunni einnig eiga við- ræður við Umhverfisstofnun og heimamenn um skipulagsmál og fleiri þætti. Landsvirkjun og Norðurál und- irrituðu viljayfirlýsingu í ágúst sl. um að unnið yrði að orkuöflun vegna áforma um stækkun álvers- ins í tveimur áföngum, fyrst úr 90 þúsund tonna ársframleiðslu í 180 þúsund tonn og síðan upp í 240 þús- und tonna álver. Reiknað var með að Landsvirkjun myndi útvega orku sem svarar til 70 MW afls í fyrri áfanga, Orkuveita Reykjavíkur 40 MW og Hitaveita Suðurnesja 40 MW. Með úrskurði setts umhverf- isráðherra gæti vantað upp á 10–15 MW hjá Landsvirkjun sem þyrfti að fá annars staðar. Mikilvægt að byrja á þessu ári Friðrik segir að vegna mats á um- hverfisáhrifum Norðlingaölduveitu hafi málið tafist en nú verði þess freistað að flýta framkvæmdum eins og mögulegt er. Ef samningar náist á grundvelli viðræðna og fyrr- nefndrar viljayfirlýsingar segir Friðrik að framkvæmdir geti jafn- vel hafist þegar á þessu ári við vissa Landsvirkjun telur arðsemi af breyttri Norðlingaöldu Eftir stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga yrði framleiðslugeta verksmiðjunnar 180 þúsund tonn. Mögulegt að Norðurál fái orku afhenta undir lok 2005 og í ársbyrjun 2006 Friðrik Sophusson Framkvæmdum flýtt eins og mögulegt er GUÐMUNDUR Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að þar sem þegar hafi verið tekin ákvörðun um að flýta framkvæmdum við Nesjavalla- virkjun, þaðan sem áætlað er að um 40 MW komi vegna fyrirhugaðrar stækkunar Norðuráls, þurfi ekki að grípa til sérstakra aðgerða vegna yfirlýs- ingar Landsvirkjunar um að flýta framkvæmdum við Norðlingaöldu- veitu. Í síðustu viku var ákveðið að Orkuveitan myndi flýta fram- kvæmdum fyrir um 1.200–1.700 milljónir króna svo meginþungi þeirra verði á þessu ári og því næsta í stað áranna 2005–2006. Áætlað er að fjórða vélasamstæðan við Nesjavallavirkjun, sem eykur raforkuframleiðslu úr 90 MW í 120 MW, verði tilbúin um áramótin 2005–6, en fram- kvæmdir munu hefjast strax í vor. Eftir er að ganga frá nokkr- um atriðum við Landsvirkjun „Við höfðum reiknað með því að fara hratt í þessa virkjun fyrir Norðurál, en við þurfum að herða okkur enn frekar,“ sagði Guð- mundur í gær. „Þar sem orkan mun koma frá Nesjavöllum, þar sem við höfum verið með virkjun í fimmtán ár, er ekki margt nýtt sem við eigum von á þar,“ segir Guðmundur spurður um hvort fara þurfi í rannsóknir á svæðinu til að flýta enn frekar fyrir framkvæmd- um. Guðmundur segir að enn eigi eft- ir að ganga frá nokkrum atriðum við Landsvirkjun varðandi orkuöfl- unina. „Það er verið að ganga frá magni, verði, tímasetningum og af- hendingu og þess háttar endan- lega. Það verður gengið frá þessu að einhverju leyti í þessari viku, en það mun taka einhverjar vikur að ganga endanlega frá samningnum.“ Guðmundur Þóroddsson, forstjóri OR „Höfðum reikn- að með að fara hratt í virkjun“ Guðmundur Þóroddsson JÚLÍUS Jóns- son, forstjóri Hitaveitu Suður- nesja, segir að fyrirtækið geri sér vonir um að geta staðið við sinn hluta af sam- komulagi um raf- orkuöflun vegna stækkunar Norð- uráls og jafnvel lagt til aukaorku. „Mér skilst að með úrskurði varðandi Norðlingaöldu hafi tapast um 100 gígavattsstundir frá því sem áætlað var. Við gerum okkur von- ir um að geta útvegað það sem upp á vantar. Ég held að á þessum tíma séum við þeir einu sem gætum útveg- að það.“ Samkvæmt samkomulagi milli Landsvirkjunar, Hitaveitunnar og Orkuveitu Reykjavíkur átti Lands- virkjun að útvega 70 MW en Orkuveit- an og Hitaveitan 40 MW hvor fyrir sig. Júlíus segir að aðilar samkomu- lagsins muni funda á morgun þar sem farið verður ofan í saumana á málinu. „Þetta snýst um að allir þrír fari af stað, ég held að það sé ekki hægt að útvega þetta [orkuna] innan þessa tíma nema allir leggist á eitt,“ sagði Júlíus. „Þetta er eins og við ætluðum alltaf að gera, að vera tilbúnir fyrir 2005. Við erum þegar byrjaðir, erum búnir að bora þrjár holur og höfum verið í vinnslurannsóknum sem nauð- synlegar eru úti á Reykjanesi, mjöð- urinn er erfiður þar.“ Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja Getum vonandi útveg- að meiri orku Júlíus Jónsson RAGNAR Guð- mundsson, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Norðuráls, segir að fyrstu niður- stöður Lands- virkjunar um Norðlingaöldu- veitu og ákvörð- un um áfram- haldandi viðræður séu já- kvæðar fréttir fyrir Norðurál og mikilvægur áfangi í þá átt að stækkun álversins verði að veru- leika. Framkvæmdum seinki þó um eitt ár, miðað við upphaflegar áætlanir fyrirtækisins. „Þetta þýðir að við getum farið að leita í fullri alvöru eftir samn- ingum um fjármögnun stækkunar- innar og sölu aukinnar framleiðslu. Ég geri ráð fyrir að endanleg mynd verði komin á þetta eftir fjóra til sex mánuði. Að þeim tíma loknum ætti að vera hægt að taka endanlega ákvörðun um stækk- unina. Þetta er hins vegar mjög mikilvægur áfangi í því að koma málinu vel áfram,“ segir Ragnar en stækkun Norðuráls er talin kosta fyrirtækið um 25 milljarða króna. Ragnar segir að upphaflega hafi Norðurál verið með óskir um að stækkað álver, með 180 þúsund tonna ársframleiðslu, yrði tekið í notkun undir lok árs 2004. Nú sé ljóst að því seinki um að minnsta kosti eitt ár. Það eigi þó ekki að hafa alvarleg áhrif. Þá gera áætl- anir ráð fyrir að álver Norðuráls verði stækkað í 240 þúsund tonn árið 2009. „Við höfum ekki sett mönnum neina úrslitakosti hvað dagsetn- ingar varðar heldur reynt að vinna sameiginlega að því að finna lausn- ir sem allir geta lifað með. Um- hverfismatsferlið tók lengri tíma en við sáum fyrir í upphafi en nú er því lokið,“ segir Ragnar. Endurskoðun skattasamnings Eitt af því sem Norðurál hefur óskað eftir við stjórnvöld er end- urnýjun á fjárfestingarsamningi við stjórnvöld. Að sögn Ragnars var fyrst farið fram á slíkar við- ræður vorið 2001 en núgildandi samningur frá árinu 1996 miðast við ákveðna stærð álvers, ákveðin fasteignagjöld, skattprósentur og fleiri atriði. Norðurál hefur m.a. óskað eftir því að greiða sambæri- legan tekjuskatt og Alcoa samdi um, þ.e. 18%, en Norðuráli ber að greiða 33% tekjuskatt líkt og Alcan í Straumsvík. Viðræður um fjárfestingarsamninginn hófust þegar í gær með fulltrúum iðn- aðarráðuneytisins. Ragnar Guðmundsson Norðuráli Jákvæðar frétt- ir og mikil- vægur áfangi Ragnar Guðmundsson GÍSLI Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi og hafnarstjóri Grundartanga- hafnar, segist vera afar ánægð- ur með yfirlýs- ingu Landsvirkj- unar frá því í gær um Norð- lingaölduveitu og stækkun Norðuráls. „Við höfum lagt mikið upp úr því að þetta mál fái farsælan fram- Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akraness Afar ánægður með yfirlýsingu Landsvirkjunar Gísli Gíslason VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir yfirlýsingu Landsvirkjunar vera mjög já- kvæðar fréttir. Hún staðfesti að úrskurður setts umhverfisráð- herra um Norð- lingaölduveitu hafi verið réttur. Valgerður hyggst á ríkisstjórnar- fundi næsta föstudag kynna tvö frumvörp sem stefnt er að fáist af- greidd fyrir þinglok í næsta mán- uði. Valgerður segir að samkvæmt úrskurðinum náist að tryggja tvennt, annars vegar næga orku til að hægt verði að ráðast í stækkun Norðuráls og hins vegar sé vernd- un Þjórsárvera tryggð. Að sögn Valgerðar liggur fyrir nýlegt samkomulag við sveitar- félögin á Vesturlandi og hafnarsjóð vegna stækkunar Norðuráls. Hún telur allar líkur á að framkvæmdir við stækkunina geti hafist strax í haust, það sé mjög mikilvægt vegna annarra stóriðjuverkefna. Valgerður vonast til þess að frumvörpin nái fram að ganga áður en þingstörfum ljúki í marsmán- uði. Það eigi að takast þar sem þingmenn séu vel inni í málinu. Frumvörpin eru annars vegar vegna breytinga á lögum um raf- orkuver, þ.m.t. Norðlingaölduveitu og gufuaflsvirkjanir Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suður- nesja, og hins vegar vegna stækk- unar Norðuráls í tveimur áföngum, upp í 240 þúsund tonn. Að sögn Valgerðar er síðarnefnda frum- varpið svipaðs eðlis og vegna Alcoa í Reyðarfirði. Norðurál hefur óskað eftir sams- konar fjárfestingarsamningi og Al- coa og þar með sömu tekju- skattsprósentu, eða 18% í stað 33%. Aðspurð segist Valgerður ekki geta upplýst um innihald frumvarpsins. „Við skiljum þær óskir Norður- áls að samningurinn verði í sam- ræmi við það sem samið var um við Alcoa,“ segir Valgerður. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra Tvö frumvörp vegna stækk- unar Norðuráls Valgerður Sverrisdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.