Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 16
ERLENT 16 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKIR embættismenn leggja nú áherslu á að framtíð Sam- einuðu þjóðanna geti oltið á því hvort öryggisráð SÞ samþykkir nýja álykt- un um Íraksmálin eður ei. Spurn- ingin snúist ekki lengur um það hvort háð verður stríð við Írak, heldur hvort aðildarríki öryggisráðsins séu reiðubúin að eyðileggja trúverð- ugleika ráðsins með því að beita sér gegn samþykkt nýrrar ályktunar sem heimilar hernaðaraðgerðir gegn Írak. Ráðamenn í Washington hafa ítrekað sagt að öryggisráðið hætti að skipta máli eða hafa áhrif ef það bregðist skyldum sínum í Íraksmál- inu. Er augljóst af öllu, nú þegar ný ályktun þeirra um Íraksmálin er komin fram, að þeir ætla að setja þessa afstöðu í forgrunn til að reyna að hafa áhrif á afstöðu þjóðanna sem eiga fulltrúa í öryggisráðinu. Dagblaðið The Washington Post hefur eftir háttsettum embættis- manni í Washington að John R. Bolt- on aðstoðarutanríkisráðherra hafi í samtölum við háttsetta rússneska embættismenn á mánudag sagt hreint út að Bandaríkin ætli „að taka slaginn“ hvort sem öryggisráðið leggur blessun sína yfir herför eða ekki. „Samstaða innan ráðsins er það sem hér er í húfi,“ sagði heimild- armaður blaðsins. Sömu sögu hafi fulltrúi ónefnds ríkis í öryggisráðinu að segja; Bandaríkjamenn reyni nú að sýna fulltrúum í öryggisráðinu fram á að andstaða við ályktunina sé til einskis – en geti hins vegar haft alvarlegar afleiðingar. „Þú munt ekki taka ákvörðun um það hvort háð er stríð í Írak eða ekki,“ sagði þessi diplómati að bandarískir embættismenn hefðu sagt honum. „Sú ákvörðun er okkar, og við höfum þegar tekið hana. Hún er endanleg. Spurningin núna er að- eins sú hvort öryggisráðið fylkir liði um hana eða ekki.“ Gert til að „hjálpa“ Blair George W. Bush Bandaríkjaforseti heldur sig enn við þá línu á opinber- um vettvangi að engin ákvörðun hafi enn verið tekin um það hvort ráðist verður á Írak. Háttsettir embætt- ismenn eru þó ekkert að leyna þeirri skoðun sinni á fundum með erlend- um starfsbræðrum sínum að stríð sé óhjákvæmilegt. Og í fyrradag lét Condoleezza Rice, þjóðarörygg- isráðgjafi Bush, þau orð falla að eng- inn ætti að vanmeta þann staðfasta ásetning Bandaríkjastjórnar að af- vopna Írak með einum eða öðrum hætti. Barátta Bandaríkjastjórnar fyrir því að fá öryggisráðið til að sam- þykkja nýja ályktun hófst fyrir al- vöru um helgina, en Bretar og Spán- verjar lögðu ályktunina síðan fram á mánudag. Orðalag hennar er ekki með þeim hætti að hernaðarárás sé beinlínis heimiluð; enginn þarf þó að velkjast í vafa um að samþykkt henn- ar felur í sér einmitt þetta. Embættismenn Bandaríkja- stjórnar telja enn að ályktun nr. 1441, sem var samþykkt í nóvember, feli í raun í sér heimild til hernaðar- aðgerða hlíti Írakar ekki skilyrð- islaust öllum skilmálum hennar. Ráðamenn í Washington munu hins vegar hafa ákveðið að verða við ósk- um sinna helstu bandamanna í þess- um pólitísku átökum – þ.e. Spánverja og Breta – um að fá samþykkta nýja ályktun í öryggisráðinu; í því skyni að reyna að draga úr mikilli andstöðu í þessum löndum við hernaðaríhlutun í Írak. Dagblaðið The New York Times fullyrðir raunar í gær að ákvörðun um að leggja fram nýja ályktun í öryggisráðinu hafi fyrst og fremst verið tekin til að létta undir með Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sem hefur sætt mikilli gagnrýni heima fyrir vegna stuðn- ings síns við áform Bandaríkja- manna. Aðrir ötulir bandamenn Bush – Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, og Silvio Berlusconi, for- sætisráðherra Ítalíu – eiga þó við sömu erfiðleika að etja og Blair og hafa því einnig talið mikilvægt að fá sérstaka heimild frá öryggisráðinu. Spurningin sem greinilega leikur á vörum margra áhrifamanna í Banda- ríkjunum er þó sú hvort Bush hafi ekki tekið óþarfa áhættu með því að gera þessa tilraun til „að hjálpa vin- inum Blair“, eins og það er orðað í The New York Times í gær. Sitji Frakkar, Þjóðverjar og Rússar við sinn keip sé nefnilega hætta á að víg- staða þeirra, sem vilja ráðast til at- lögu gegn Saddam Hussein Íraks- forseta, veikist við það að nýrri ályktun sé hafnað í öryggisráðinu. Uppgjör í öryggisráðinu? Þannig varaði Richard Holbrooke, fyrrverandi sendiherra Bandaríkj- anna hjá SÞ, við því í grein í The Washington Post á sunnudag að þó að eðlilegt hafi verið að verða við ósk- um Blairs, til að styrkja stöðu hans, þá væri hættan sú að Bush „lenti í ógöngum“ og að til afdrifaríks upp- gjörs myndi koma í öryggisráðinu. Ólíklegt væri nefnilega að önnur ályktun fengist samþykkt, enda væru Frakkar, Þjóðverjar og líklega Rússar jafnandsnúnir hernaðar- áformum Bandaríkjanna og áður. „Af þessu leiðir að það bandalag sem Bandaríkin veita forystu á það nú á hættu að grafið verði undan þeim mikla sigri sem náðist er ályktun 1441 fékkst samþykkt, með því að annarri ályktun, sem engan veginn var nauðsynleg, verði hafnað með þorra atkvæða,“ sagði Holbrooke. Þar með liti svo út að það væru þeir, sem í kjölfarið efndu til hernaðar- aðgerða, sem væru brotlegir við vilja öryggisráðsins, en ekki Saddam Hussein. Vissulega gætu aðgerðir Íraka breytt þessari stöðu algerlega. Þann- ig leit allt út fyrir í gær að Saddam hygðist hafna kröfu Hans Blix, yf- irmanns vopnaeftirlitsnefndar SÞ, um að eyðileggja Al Samoud 2- eldflaugar sínar. Slík ákvörðun gæti orðið til þess að andstæðingar hern- aðaraðgerða breyttu afstöðu sinni; enda Saddam þá augljóslega farinn að hunsa vilja vopnaeftirlitsmanna. „Ef Saddam er nógu heimskur til að neita að afvopnast, þá munu Banda- ríkin fá þessa ályktun samþykkta,“ sagði Holbrooke í samtali við New York Times í gær. Ekki borin upp til atkvæða? Tæknilega séð geta Bandaríkja- menn farið fram á að öryggisráðið greiði atkvæði um ályktunina sólar- hring eftir að hún er komin fram. Ekki er þó gert ráð fyrir að örygg- isráðið greiði atkvæði um hana fyrr en að tveimur vikum liðnum eða svo. Þennan tíma munu Bandaríkjamenn nota til að reyna að tryggja að tilskil- inn meirihluti fulltrúa öryggisráðsins – níu af fimmtán – greiði atkvæði með samþykkt ályktunarinnar og að hvorki Frakkar, Rússar né Kínverjar beiti neitunarvaldi sínu. Þetta mun ekki verða auðvelt verk – nema Saddam geri eitthvað í milli- tíðinni sem breytir myndinni – því eins og staðan er núna mætti gera ráð fyrir að a.m.k. Frakkar myndu einmitt beita neitunarvaldinu. Ef aðeins er talað um þær tíu þjóð- ir, sem eiga sæti í ráðinu um þessar mundir en hafa ekki neitunarvald, þá geta Bandaríkin í dag einungis bókað stuðning Spánverja og Búlgara við nýja ályktun. Öruggt er talið að Sýr- land og Þýskaland greiði atkvæði gegn samþykkt ályktunarinnar og að Pakistan segi annaðhvort nei eða sitji hjá. Því verða hin ríkin fimm, sem eiga sæti í ráðinu, öll að samþykkja ályktunina eigi hún að ná fram að ganga. Þar er um að ræða Mexíkó, Chile, Angóla, Gíneu og Kamerún; hafa ráðamenn í Washington þegar hafist handa við að reyna að fá þessar þjóðir til liðs við sig. Virðist sem Bandaríkin myndu fyllilega sætta sig við að tryggja stuðning níu af 15 þjóðum í örygg- isráðinu, þar sem tvær yrðu á móti en aðrar – þ.á m. þær sem hafa neit- unarvald – sitja hjá. Hvort hægt verður að fá Kína, Frakkland og Rússland, sem öll hafa neitunarvald, til að kjósa að beita því ekki, er óljóst á þessari stundu og The Washington Post hefur eftir bandarískum embættismanni að Bandaríkin muni leggja mat á stöð- una þegar þar að kemur. Sýnist mönnum sem ekki sé líklegt að álykt- unin fáist samþykkt verði tekin „taktísk ákvörðun“ um það hvort ályktunin verður borin upp til at- kvæða eður ei. Að ráðast í hernaðar- aðgerðir án þess að hafa hlotið til þess beina heimild kunni að vera betri kostur en að heyja stríð sem ör- yggisráðið hafi beinlínis lýst sig and- vígt. Segja framtíð SÞ ráðast af afdrifum ályktunar Reuters Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er hann ræddi Íraksmálið á þingi í gær. Hafnaði hann tillögu Frakka og Þjóðverja um meiri tíma fyrir vopnaeftirlitið og sagði, að aldrei myndi neitt finnast án samstarfs Íraksstjórnar. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa ákveðið að leggja fram nýja álykt- un um Íraksmálin í ör- yggisráði SÞ til að hjálpa Tony Blair að eiga við almennings- álitið í Bretlandi. ’ Að ráðast í hern-aðaraðgerðir án þess að hafa hlotið til þess beina heimild kunni að vera betri kostur en að heyja stríð sem öryggisráðið hafi beinlínis lýst sig andvígt. ‘ SADDAM Hussein Íraksforseti segir Íraka ekki ráða yfir eldflaugum sem dragi lengra en skilmálar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segja fyrir um. Því hyggist Írakar ekki verða við þeirri kröfu Hans Blix, yfirmanns vopnaeft- irlits Sameinuðu þjóðanna, að þeir hefji að eyðileggja eldflaugarnar fyrir næstu helgi. Ná- inn aðstoðarmaður Íraksforseta sagði þó í gær að enn væri verið að skoða þessa kröfu Samein- uðu þjóðanna. Saddam Hussein sagði í viðtali við banda- ríska sjónvarpsmanninn Dan Rather á mánu- dag að Írakar ættu þann kost einan að verja hendur sínar þar sem Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að láta sverfa til stáls. „Stjórn litla Bush hefur ákveðið að hundsa vilja alþjóða- samfélagsins … og því geta Írakar ekki annað en varið land sitt,“ sagði Saddam Hussein m.a. í samtalinu við Rather en þetta er fyrsta við- talið sem hann veitir vestrænum fréttamanni í meira en tíu ár. Rather gerði grein fyrir helstu efnisatriðum viðtalsins í gær og á mánudag en viðtalið verður sýnt í heild á bandarísku CBS- sjónvarpsstöðinni í dag, miðvikudag, í frétta- þættinum 60 Minutes II. Hussein neitaði því einnig að eldflaugarnar sem deilt er um dragi lengra en kveðið er á um í vopnahlésskilmálum Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1991. Þar segir að Írakar megi ekki ráða yfir eldflaugum sem draga lengra en 150 kíló- metra. Hans Blix segir hins vegar að flaug- arnar, sem eru af gerðinni al-Samoud 2, dragi allt að 190 kílómetra. Því beri Írökum að eyða þeim og hefja það starf fyrir næsta laugardag. „Við eigum ekki eldflaugar sem draga lengra en kveðið er á um,“ sagði Íraksforseti í viðtal- inu. Helsti vísindaráðgjafi Saddams Husseins sagði hins vegar í samtali við fréttamenn í Bagdad í gær að enn væri verið „að skoða“ þessa kröfu Sameinuðu þjóðanna. Írakar hafa látið að því liggja að þeir vilji semja um að eld- flaugunum verði breytt og að hugsanlega komi til greina að eyða hluta þeirra. Erfið staða Íraka Fréttaskýrendur segja ljóst að eldflauga- deilan muni reynast Írökum erfið mjög. Ákveði þeir að hundsa kröfu vopnaeftirlitsmanna um eyðingu þeirra gefi þeir Bretum og Banda- ríkjamönnum tilefni til að halda því fram að Írakar hafi brotið efnislega gegn skilmálum Sameinuðu þjóðanna. Slík brot réttlæti að her- valdi verði beitt samkvæmt ályktun Samein- uðu þjóðanna nr. 1441. Ákveði Írakar á hinn bóginn að farga eld- flaugunum muni það draga úr getu þeirra til að verjast hugsanlegri innrás Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra. Eldflaugarnar eru þær langdrægustu sem Írakar eiga og yrði þeim því trúlega beitt á fyrstu stigum átaka. Ekki liggur fyrir hversu margar eldflaugar af gerðinni al- Samoud 2 Írakar eiga en talið er að þær kunni að vera um 100. Þær geta borið 300 kíló- gramma sprengjuhleðslu en deilt er um drægni þeirra. Írakar halda því fram að eld- flaugarnar hafi sumar hverjar reynst draga lengra en 150 klílómetra vegna þess að þær hafi verið reyndar án miðunarbúnaðar og sprengjuhleðslu. Vill einvígi við Bush Í viðtalinu við Dan Rather lýsti Saddam Hussein yfir því að hann vildi mæta George W. Bush Bandaríkjaforseta í kappræðu um gervi- hnött. Þar gætu þeir rætt Íraksmálið og rök- stuðning Bandaríkjamanna fyrir nauðsyn þess að farið verði með hernaði gegn Írökum. Heimsbyggðin gæti síðan fylgst með. Talsmaður Bush Bandaríkjaforseta sagði að áskorun Saddams Husseins væri ekki tekin al- varlega. Engin þörf væri á slíkri rökræðu. „Af- vopnun Íraka er það eina sem þörf er á,“ sagði talsmaðurinn Ari Fleischer. Eldflaugadeilan Írökum erfið Saddam Hussein segir flaugarnar ekki brot á skilmálum Sameinuðu þjóðanna Bagdad. AFP. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.