Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 51 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 SV. MBL HK DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com Tilnefningar til Óskars- verðlauna þ. á. m. besta mynd 13 Frábær svört kómedía með stór leikurunum Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefn- ingar til Óskar- sverðlauanna í ár fyrir leik sinn í myndinni. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Síðustu sýningar sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i.12 400 kr. Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 RADIO X SV MBL  Kvikmyndir.com  SG DV Daredevil verður frumsýnd eftir 2 daga  kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 12. Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ. á. m. Salma Hyaek sem besta leikona í aðalhlutverki6 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12. Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese með stórleik- urunum Leonardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz. Tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m.besta mynd og besti leikstjóri 10  HJ MBL Sýnd kl. 4. ísl. tal. 400 kr. Síðustu sýningar sýnd kl. 10.15. RADIO X SV MBL  KVIKMYNDIR.COM  SG DV Frábær svört kómedía með stór leikurun- um Jack Nicholson og Kathy Bates sem bæði fengu tilnefn- ingar til Ósk- arsverðlauanna í ár fyrir leik sinn í mynd- inni. Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Daredevil verður frumsýnd eftir 2 daga Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 ára. Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 Kvikmyndir.com SV. MBL HK DV Sýnd kl. 5.30 og 8. ÞAÐ var blásið til stórskemmt- unar í Háskólabíói sl. helgi, hinn heimsfrægi kvikmyndaleikstjóri, framleiðandi og leikari Robert Townsend var með uppistand ásamt íslenskum starfsbræðrum sínum. Townsend þessi er nú reynd- ar ekki neitt heimsfrægur hér á landi, myndir hans hafa fæstar verið sýndar hér og tæplega hafa þeir verið margir áhorfendurnir sem könnuðust við nafn hans áður en kynningarherferð fyrir uppistandið fór af stað. Það breytti hins vegar ekki því að stærsti salur Háskólabíós var smekkfullur á föstudagskvöldið og aukasýningu var bætt við á laugardaginn. Kynnir kvöldsins var að stíga sín fyrstu spor í opinberu uppi- standi. Hann kallar sig Rajeem, klæðir sig sem Indverja og talar ensku með fremur hjákátlegri blöndu af íslenskum og indversk- um hreim. Grínið var að mestu leyti á kostnað Asíu-búa og var, burtséð frá pólitískri rétthugsun, afar lítið fyndið. Fyrstur eiginlegra upphitara var Sigurjón Kjartansson. Þessi „ég-nenni-þessu-eiginlega-ekki- stíll“ sem Sigurjón hefur tamið sér er ákaflega vandmeðfarinn og krefst þess að hver einasti brand- ari sé fyndinn, sem Sigurjón hefur ekki alveg á valdi sínu. Sigurjón átti þó mjög fína spretti inni á milli og skilaði vel volgnandi sal til næsta upphitara sem var Þor- steinn Guðmundsson. Þorsteinn var greinilega í miklu stuði því al- veg frá fyrstu bröndurum hélt hann salnum í hláturgíslingu, varð varla fótaskortur á fyndninni og þegar hann lauk sínu atriði var salurinn orðinn sjóðheitur og tilbú- inn fyrir erlendu stórstjörnuna. Eftir sæmilegt hlé steig á svið blökkumaður nokkur og fyrst í stað hvarflaði að manni að þarna væri Townsend mættur, bara örlít- ið íturvaxnari en á myndum. Svo reyndist þó ekki vera heldur var þetta ónefndur landi hans sem af einhverjum ástæðum var leyft að þreyta uppistandsfrumraun sína þarna. Hann var einkennilega laus við að vera fyndinn auk þess sem illa skildist hvað hann sagði þar sem hann ráfaði um sviðið með hljóðnemann alltof nálægt munn- inum. Stemningin í salnum tók nokkra dýfu við þetta pínlega inn- legg. Hafi menn hald- ið að komið væri að aðalréttinum skjátlaðist þeim, alla vega ef þeir miðuðu við aug- lýsta dagskrá. Í stað Townsends sté á svið Pétur „Ding-dong“ Sig- fússon og var vel tekið. Hann var líka með stórfínt og smellfyndið at- riði en þegar því lauk var upphitun búin að standa yf- ir í hátt í tvo klukkutíma og það eru takmörk fyrir því hve lengi fólk getur hlegið. En nú var kom- ið að því. En áður en Townsend steig á svið var spilað myndband með brotum úr bíómyndum hans (sem fæstir, ef nokkur, viðstaddur hefur séð) sýnt með glymjandi tónlist undir. Þegar því lauk kom vandræðaleg þögn og leið dágóð stund áður en menn átt- uðu sig og klöppuðu. Það er skemmst frá því að segja að uppi- stand Roberts Townsends olli nokkrum vonbrigðum. Hann átti að vísu ágætisspretti inni á milli en snilldin sem maður hafði gert sé vonir um lét ekki á sér kræla. Hann talaði of mikið án þess að vera sérlega fyndinn og eftirherm- ur hans voru heldur klénar þótt þær væru ágætlegar gerðar. Loka- atriði hans var svo alveg mis- heppnað og sat maður bara með stirnað bros undir því. Ég ráðlegg því skipuleggjendum uppákomna af þessu tagi að halda sig við áður auglýsta dagskrá. Ég minnist þess allavega ekki að hafa áður sótt „gigg“ hjá erlendri stórstjörnu þar sem annars uppklöppunaróðir Ís- lendingar klappa kurteislega á meðan viðkomandi hneigir sig og reyna svo að drífa sig út, búnir að fá alltof mikið fyrir peninginn. Upphitað um of Uppistand Háskólabíó Uppistand í Háskólabíói föstudaginn 21. febrúar. Fram kom bandaríski grínistinn Robert Townsend. Á undan hituðu upp Sigurjón Kjartansson, Þorsteinn Guð- mundsson og Pétur „Ding-Dong“ Sigfús- son. Kynnir var Rajeem. ROBERT TOWNSEND Robert Townsend átti að sögn „ágæta spretti“ á mjög svo vænu uppistandi. Ármann Guðmundsson Morgunblaðið/Halldór Kolbeins LISTAMAÐURINN Karl Jóhann Jónsson opnaði sýninguna Albúm í stóra sal Hafnarborgar, menning- ar- og listastofnun Hafnarfjarðar, um helgina. „Þungamiðja sýningarinnar eru portrett af allskonar fólki. Þau eru oft hefðbundin og sýna þekkta jafnt sem óþekkta einstaklinga. Mörg verkin eru sviðsetningar byggðar á einskonar portrett- minnum úr listasögunni þar sem nostalgíu er gefin laus taum- urinn,“ segir á vef Hafnarborgar. Einnig eru á sýningunni „portrett“ af hlutum, einskonar uppstillingar, þar sem undir- strikað er það einstaka í fjöldan- um.Verkin eru flest máluð með ol- íu á striga. Einnig verður gestaverk, höggmynd eftir Þór Sigmundsson steinsmið sem Karl hefur verið í samstarfi við. Karl Jóhann útskrifaðist úr mál- aradeild MHÍ 1993 og hefur starf- að við myndlist og garðyrkju síðan. Karl Jóhann Jónsson með sýningu í Hafnarborg Litið í albúm Svona lítur Arthúr Björgvin út séður með augum Karls Jóhanns. Morgunblaðið/Árni Sæberg Listamaðurinn Karl Jóhann Jónsson ásamt gestunum og viðfangefnunum Arthúri Björgvini Bollasyni, Össuri Skarphéðinssyni og Jóhanni Friðgeirssyni. Sýningin Albúm í Hafnarborg er op- in alla daga nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og henni lýkur 10. mars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.