Morgunblaðið - 26.02.2003, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 51
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m. besta
mynd
13 Frábær svört
kómedía með stór
leikurunum Jack
Nicholson og
Kathy Bates sem
bæði fengu tilnefn-
ingar til Óskar-
sverðlauanna í ár
fyrir leik sinn í
myndinni.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Síðustu sýningar sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i.12 400 kr.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
RADIO X
SV MBL
Kvikmyndir.com
SG DV
Daredevil verður frumsýnd eftir 2 daga
kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 12.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ. á. m.
Salma Hyaek sem besta leikona í aðalhlutverki6
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i 12.
Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese með stórleik-
urunum Leonardo DiCaprio, Daniel Day-Lewis og Cameron Diaz.
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna,
þ.á.m.besta
mynd og besti
leikstjóri
10
HJ MBL
Sýnd kl. 4. ísl. tal.
400 kr.
Síðustu sýningar sýnd kl. 10.15.
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
Frábær svört
kómedía með
stór leikurun-
um Jack
Nicholson og
Kathy Bates
sem bæði
fengu tilnefn-
ingar til Ósk-
arsverðlauanna
í ár fyrir leik
sinn í mynd-
inni.
Sýnd kl. 4.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Daredevil verður frumsýnd eftir 2 daga
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16 ára.
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK DV
Sýnd kl. 5.30 og 8.
ÞAÐ var blásið til stórskemmt-
unar í Háskólabíói sl. helgi, hinn
heimsfrægi kvikmyndaleikstjóri,
framleiðandi og leikari Robert
Townsend var
með uppistand
ásamt íslenskum
starfsbræðrum
sínum. Townsend
þessi er nú reynd-
ar ekki neitt
heimsfrægur hér á
landi, myndir hans
hafa fæstar verið
sýndar hér og
tæplega hafa þeir
verið margir
áhorfendurnir sem
könnuðust við
nafn hans áður en
kynningarherferð
fyrir uppistandið
fór af stað. Það
breytti hins vegar
ekki því að stærsti
salur Háskólabíós
var smekkfullur á
föstudagskvöldið
og aukasýningu
var bætt við á
laugardaginn.
Kynnir kvöldsins var að stíga
sín fyrstu spor í opinberu uppi-
standi. Hann kallar sig Rajeem,
klæðir sig sem Indverja og talar
ensku með fremur hjákátlegri
blöndu af íslenskum og indversk-
um hreim. Grínið var að mestu
leyti á kostnað Asíu-búa og var,
burtséð frá pólitískri rétthugsun,
afar lítið fyndið.
Fyrstur eiginlegra upphitara
var Sigurjón Kjartansson. Þessi
„ég-nenni-þessu-eiginlega-ekki-
stíll“ sem Sigurjón hefur tamið sér
er ákaflega vandmeðfarinn og
krefst þess að hver einasti brand-
ari sé fyndinn, sem Sigurjón hefur
ekki alveg á valdi sínu. Sigurjón
átti þó mjög fína spretti inni á
milli og skilaði vel volgnandi sal til
næsta upphitara sem var Þor-
steinn Guðmundsson. Þorsteinn
var greinilega í miklu stuði því al-
veg frá fyrstu bröndurum hélt
hann salnum í hláturgíslingu, varð
varla fótaskortur á fyndninni og
þegar hann lauk sínu atriði var
salurinn orðinn sjóðheitur og tilbú-
inn fyrir erlendu stórstjörnuna.
Eftir sæmilegt hlé steig á svið
blökkumaður nokkur og fyrst í
stað hvarflaði að manni að þarna
væri Townsend mættur, bara örlít-
ið íturvaxnari en á myndum. Svo
reyndist þó ekki vera heldur var
þetta ónefndur landi hans sem af
einhverjum ástæðum var leyft að
þreyta uppistandsfrumraun sína
þarna. Hann var einkennilega laus
við að vera fyndinn auk þess sem
illa skildist hvað hann sagði þar
sem hann ráfaði um sviðið með
hljóðnemann alltof nálægt munn-
inum. Stemningin í salnum tók
nokkra dýfu við þetta pínlega inn-
legg.
Hafi menn hald-
ið að komið væri
að aðalréttinum
skjátlaðist þeim,
alla vega ef þeir
miðuðu við aug-
lýsta dagskrá. Í
stað Townsends
sté á svið Pétur
„Ding-dong“ Sig-
fússon og var vel
tekið. Hann var
líka með stórfínt
og smellfyndið at-
riði en þegar því
lauk var upphitun
búin að standa yf-
ir í hátt í tvo
klukkutíma og það
eru takmörk fyrir
því hve lengi fólk
getur hlegið.
En nú var kom-
ið að því. En áður
en Townsend
steig á svið var
spilað myndband með brotum úr
bíómyndum hans (sem fæstir, ef
nokkur, viðstaddur hefur séð) sýnt
með glymjandi tónlist undir. Þegar
því lauk kom vandræðaleg þögn og
leið dágóð stund áður en menn átt-
uðu sig og klöppuðu. Það er
skemmst frá því að segja að uppi-
stand Roberts Townsends olli
nokkrum vonbrigðum. Hann átti
að vísu ágætisspretti inni á milli
en snilldin sem maður hafði gert
sé vonir um lét ekki á sér kræla.
Hann talaði of mikið án þess að
vera sérlega fyndinn og eftirherm-
ur hans voru heldur klénar þótt
þær væru ágætlegar gerðar. Loka-
atriði hans var svo alveg mis-
heppnað og sat maður bara með
stirnað bros undir því. Ég ráðlegg
því skipuleggjendum uppákomna
af þessu tagi að halda sig við áður
auglýsta dagskrá. Ég minnist þess
allavega ekki að hafa áður sótt
„gigg“ hjá erlendri stórstjörnu þar
sem annars uppklöppunaróðir Ís-
lendingar klappa kurteislega á
meðan viðkomandi hneigir sig og
reyna svo að drífa sig út, búnir að
fá alltof mikið fyrir peninginn.
Upphitað um of
Uppistand
Háskólabíó
Uppistand í Háskólabíói föstudaginn 21.
febrúar. Fram kom bandaríski grínistinn
Robert Townsend. Á undan hituðu upp
Sigurjón Kjartansson, Þorsteinn Guð-
mundsson og Pétur „Ding-Dong“ Sigfús-
son. Kynnir var Rajeem.
ROBERT TOWNSEND
Robert Townsend átti að sögn
„ágæta spretti“ á mjög svo
vænu uppistandi.
Ármann Guðmundsson
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
LISTAMAÐURINN Karl Jóhann
Jónsson opnaði sýninguna Albúm í
stóra sal Hafnarborgar, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
um helgina.
„Þungamiðja sýningarinnar eru
portrett af allskonar fólki. Þau
eru oft hefðbundin og sýna þekkta
jafnt sem óþekkta einstaklinga.
Mörg verkin eru sviðsetningar
byggðar á einskonar portrett-
minnum úr listasögunni þar sem
nostalgíu er gefin laus taum-
urinn,“ segir á vef Hafnarborgar.
Einnig eru á sýningunni
„portrett“ af hlutum, einskonar
uppstillingar, þar sem undir-
strikað er það einstaka í fjöldan-
um.Verkin eru flest máluð með ol-
íu á striga. Einnig verður
gestaverk, höggmynd eftir Þór
Sigmundsson steinsmið sem Karl
hefur verið í samstarfi við.
Karl Jóhann útskrifaðist úr mál-
aradeild MHÍ 1993 og hefur starf-
að við myndlist og garðyrkju
síðan.
Karl Jóhann Jónsson með sýningu í Hafnarborg
Litið í
albúm
Svona lítur Arthúr
Björgvin út séður
með augum Karls
Jóhanns.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listamaðurinn Karl Jóhann
Jónsson ásamt gestunum og
viðfangefnunum Arthúri
Björgvini Bollasyni, Össuri
Skarphéðinssyni og Jóhanni
Friðgeirssyni.
Sýningin Albúm í Hafnarborg er op-
in alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17 og henni lýkur 10. mars.