Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK 42 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss og Dettifoss koma og fara í dag. Breki og Helgafell koma í dag. Linito fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ice Laday kom og fór í gær. Brúarfoss kemur til Straumsvíkur í dag. Ljósafoss fer í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur Skrifstofa s. 551 4349, opin mið- vikud. kl. 14–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 13–16.30 opin smíða- og handavinnustofa. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–12 glerlist, kl. 9–16 handavinna,kl. 10– 10.30 bankinn, kl. 13– 16.30 bridge/vist, kl. 13–16 glerlist. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 14.30 bankaþjónusta, kl. 14.40 ferð í Bónus. Félagsstarf eldri borg- ara í Grafarvogi Korp- úlfarnir, boða til fræðslufundar í Mið- garði, Langarima 21, kl. 10 gestur verður Guðmundur Hallvarðs- son alþingismaður. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9 silkimálun, kl. 13–16 körfugerð, kl. 10–13 op- in verslunin, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. kl. 13.30 bankaþjónusta. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Kl. 9–16.30 postulínsmálun, kl. 13– 16.30 módelteikning. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Kl. 9.30 stólaleikfimi, kl. 10.15 og 11.10 leikfimi, kl. 13 handavinnuhornið, kl. 13 brigemót í Garða- bergi, kl. 13.30 tré- smíði, nýtt og notað. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Tréút- skurður kl. 9, myndlist kl. 10–16, línudans kl. 11, glerlist kl. 13, pílu- kast kl. 13.30, kóræfing kl. 16.30 „Opið hús“ á morgun kl. 14. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Línudans- kennsla kl. 19.15. Gjábakki, Fannborg 8. Venjuleg miðvikudags- dagskrá í dag. Góugleð- in verður fimmtud. 27. feb. kl. 13.20, Þorvald- ur Halldórsson syngur, á dagskrá verður m.a. söngur Kórs Snælands- skóla undir stjórn Heiðrúnar Hákonar- dóttur, Ingibjörg Þor- bergsdóttir syngur, nokkrar dægurperlur við undirleik Kjartans Sigurjónssonar, ljóða- lestur, Sigurlaug Guð- mundsdóttir les frum- ort ljóð, kaffihlaðborð. Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Suðurnesjum Selið, Vallarbraut 4, Njarð- vík. Í dag kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansa frá hádegi spila- salur opinn, kl. 13.30 kóræfing, á morgun fé- lagsvist kl. 13.15. í sam- starfi við Hólabrekku- skóla. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 13–16 handavinnustofan opin. Hraunbær 105. Kl. 9 handavinna, bútasaum- ur, útskurður, kl. 11 banki, kl. 13 bridge. Hvassaleiti 58–60. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 14 dans, kl. 15 frjáls dans, kl. 15 teikn- un og málun. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa, kl. 9–12 tréskurður, kl. 10–11 samverustund, kl. 13–13.30 banki, kl. 14 félagsvist. Messa kl. 10.30 fimmtud. 27., prestur sr. Kristín Pálsdóttir. Vesturgata 7. Kl. 8.25– 10.30 sund, kl. 9.15–16 myndmennt, kl. 12.15– 14.30 verslunarferð kl. 13–14 spurt og spjallað, kl. 13–16 tréskurður. Vitatorg. Kl. 8. 45 smíði, bókband og bútasaumur, kl. 13 handmennt, kl. 13.30 bókband, kl. 12.30 verslunarferð. Bókmenntaklúbbur Hana-nú. Samstarfs- verkefni Hana-nú og Bókasafns Kópavogs kl. 19.30. Barðstrendinga- félagið. Félagsvist í Konnakoti, Hverf- isgötu 105, kl. 20. 30 í kvöld. ITC Melkorka heldur fund í Borgartúni 22, 3. hæð, í kvöld kl. 20, ræðukeppnisfundur. Ættfræðifélagið. Aðal- fundurinn verður 27. febrúar kl. 20.30 í húsi Þjóðskjalasafnsins, Laugavegi 162, 3. hæð. SÍBS, Hafnarfjarð- ardeild heldur aðal- fundinn kl. 20.30 fimm- tud. 27. feb. í safnaðarheimili Hafn- arfjarðarkirkju. Í dag er miðvikudagur 26. febrúar, 57. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Takið því hver ann- an að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar. (Róm. 15, 7.)     Það er athyglisverð nið-urstaða sem Ragnar Árnason, hagfræðipró- fessor við Háskóla Ís- lands, kemst að í grein um byggingu Nátt- úrufræðihúss HÍ í Vatns- mýrinni. Segir hann að uppsafnaður umfram- kostnaður vegna tafa við byggingu hússins nemi 280 milljónum króna á verðlagi þessa árs.     Þrátt fyrir að búið sé aðverja 1,2 milljörðum króna í byggingu hússins á átta árum er það enn ófrágengið. Stefnt er að því að ljúka byggingunni á þessu ári og er áætlað að hún kosti fullbúin 2,2 milljarða króna. „Ljóst er að dýrkeypt mistök hafa verið gerð við byggingu Nátt- úrufræðihúss. Jafnframt liggur fyrir, að í höfuð- atriðum hafa hinar röngu ákvarðanir verið teknar af Háskóla Íslands,“ segir Ragnar og bendir á að vandamálið liggi tæpast í upplýsingaskorti eða van- þekkingu.     Ég sat sjálfur í há-skólaráði þegar þessi mál voru til umræðu og get fullyrt að athygli var vakin á því hversu óráð- legt það væri að hefja byggingaframkvæmdir áður en fjármögnun væri tryggð.“ Hann bendir á að starfsmenn HÍ séu allir ríkisstarfsmenn með trygga ráðningarsamn- inga. Engin dæmi séu um það að stjórnendur skól- ans og aðrir starfsmenn gjaldi þess í starfi eða launum að eiga hlut að þjóðhagslega skaðvæn- legum ákvörðunum. Raunar skipti einnig litlu máli fyrir starfsmenn þegar vel er staðið að málum.     Til samanburðar tók 16ár að byggja Þjóð- arbókhlöðuna en aðeins eitt ár að reisa nýtt og fullkomið hús Íslenskrar erfðagreiningar, við hlið Náttúrufræðihússins. Hús ÍE er um helmingi stærra, um 15 þúsund fermetrar, en byggingarkostnaður álíka hár og áætlað er fyrir Náttúrufræðihús. Þetta setur stórt spurn- ingamerki við ákvarðanir Háskólans og undirbún- ing framkvæmda.     Í erindi sem GunnlaugurKristjánsson, fram- kvæmdastjóri Þróun- arsviðs hjá Íslenskum að- alverktökum, hélt á sínum tíma um fram- kvæmdir við Nátt- úrufræðihús, segir hann að engin samkeppni hafi verið um hönnun hússins, kröfur útboðsgagna hafi verið óskýrar, verktími ekki ljós og allt ferlið þarfnist naflaskoðunar. Sem dæmi megi nefna að hver og einn gluggi á framhlið hússins sé sér- smíðaður í Danmörku, en gluggarnir eru nokkur hundruð. Kennir Háskólinn framkvæmdamönnum framtíðarinnar að fara þannig að? STAKSTEINAR Mistök við byggingu Náttúrufræðihúss Víkverji skrifar... ÞINGVEISLA var haldin fyrirskemmstu, en þá falla flokks- múrarnir og þingmenn allra flokka skemmta sér í fyllsta bróðerni. Ræðuhöld eru bönnuð nema í bundnu máli og jafnvel það er skil- yrðum bundið, eins og sést á eft- irfarandi broti úr inngangsorðum Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, sem beitti fyrir sig fornyrðislagi. Orða hjör er allra vopna hvassastur þeim sem höggstór er. Undan málörvum megi aldregi und blæða svo eigi batni. x x x SALOMÓNSDÓMUR Jóns Krist-jánssonar varð mörgum yrk- isefni. Þjórsárverin eru griðland heiðagæsarinnar og lagði Stein- grímur J. Sigfússon út af því: Jón er með sínum gæsum glaður gerði það sem honum bar. Hann er orðinn heilagur maður að hlífa því sem friðað var. Jón svaraði því um hæl: Vísuna ég mikils met, maðurinn er natinn, ég gæti jafnvel gæsaket gefið þér í matinn. Sem Steingrímur svaraði: Ýmsum sverfur sultur að Salomón um þetta kvað, en þó þú bróðir bjóðir vel ég betri á lífi gæsir tel. x x x ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttirvar ánægð með framboð Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur flokks- systur sinnar. Davíð nú í mörgu mæðist milljörðum hann bætti í sjóðinn. Ingibjörgu ákaft hræðist af því að hana velur þjóðin. Halldór Blöndal svaraði að bragði: Dimmir úti, dauft er blandað, daprast ljóðin, Ásta Ragnheiður orðin þjóðin. x x x VALGARÐUR Egilsson, læknirog eiginmaður Katrínar Fjeld- sted, lætur ekki síður í sér heyra en þingmennirnir. Hann rifjaði upp 230 ára gamla minningu og orti til Ástríðar Thorarensen, eiginkonu Davíðs Oddssonar, sem komin er af Þórarni Thorarensen, sýslumanni á Grund. Hann ku hafa verið 17 ára þegar hann barnaði unga stúlku á Grenivík, síðar formóður Valgarðs: Þórarinn reið með þýðan gang þar hafð’ann stutta áning á Grenivík barnað’ann langa lang langömmu mína táning. Að síðustu er hér vísa Valgarðs um frammámann í viðskiptalífinu sem grenntist: Losnar mikið lýsi og spik lafir á huppi strengur. Bókin selst en brókin helst bar’ekki uppi lengur. Morgunblaðið/Golli Vel fer á með þingmönnum, stund- um á þingi en alltaf í þingveislum. ER ekki kominn tími til að breyta lífeyrissjóðunum? Sem venjulegum launþega svíður mér tilhugsunin um lífeyrissjóðina. Allt sukkið og svínaríið fer í mann. Væri ekki eðlilegt að hver einasti Íslendingur fengi lífeyrissjóðsbók við 16 ára aldur? Þessi bók væri einfaldlega föst í bankan- um. Þangað færu þessi 10%. 4% frá launþega og 6% frá atvinnurekanda. 1% yrði svo tekið af launum manns í sameiginlegan sjúkrasjóð, sem greitt væri úr í veikindum eða slysum. Leyfi fengist síðan til að taka allt að 50% úr bókinni við íbúðakaup. Bókin erfðist til erfingja við andlát manns eða yrði að öðrum kosti laus við 67 ára aldur. Í mörgum tilfellum eru reglur lífeyrissjóða and- snúnar fólkinu sem á sjóð- inn. Tökum sem dæmi lífeyr- issjóð sjómanna. Flestir sjómenn greiða fúlgur til sjóðsins á hverju ári. Ef sjó- maður kaupir sér síðan íbúð og fær sín húsbréf eins og aðrir þá getur hann ekki fengið lífeyrissjóðslán þar sem veðsetning er yfir 60% á íbúðinni. Móðir mín var á sjó í nærri 25 ár. Vantaði nokkra mánuði upp á 25 ár- in til að öðlast rétt til lífeyr- isgreiðslna þegar hún dó. Hvað skyldi hún hafa greitt mikið til sjóðsins? Faðir minn fær víst einhvern „tittlingaskít“ út úr þessum sjóði í dag eftir eiginkonu sína. Ef þau hefðu ekki ver- ið gift, hvað hefði þá orðið um peningana? Er ekki kominn tími til að við launþegar gerum eitt- hvað í málinu? Ásta, fyrrv. sjómannskona. Innheimta fargjalda VARÐANDI rekstur Strætó bs. mætti benda á atriði sem hefur áhrif á rekstur fyrirtækisins en það er innheimta fargjalda. Ótrúlega margir farþegar komast upp með að greiða ekki. Fjöldi fólks er með ýmis kort sem veita frítt far. Margir sturta einhverj- um slatta af mynt í brúsann. Hvernig í ósköpunum eiga vagnstjórar að fylgjast með því að fargjaldið sé rétt? Maður furðar sig á því hve margt fólk er óheiðar- legt, meðal annars roskið fólk. Hendinni er t.d. skellt á miðabrúsann en það dettur bara enginn miði. Þetta sér maður stundum (eða sér ekki miðann). Í þessum efn- um eru vagnstjórar í vanda og þetta er mikill vandi fyr- irtækisins. Hann þarf að leysa. Að lokum vil ég taka fram að ég er mjög ánægður með þjónustu Strætó. Leiða- kerfið er gott, fyrir mig a.m.k., og vagnstjórar eru almennilegir. Það er mín reynsla. Og fargjaldið er alls ekki hátt. Aldraður farþegi. Tapað/fundið Heyrnartæki barns týndist HEYRNARTÆKI fyrir barn töpuðust hinn 11. febr- úar á leið frá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands að Kringlu. Þessi tæki nýtast engum nema eiganda þeirra. Finnandi vinsam- lega hafi samband í síma: 899 8124 eða 865 2200. Svart dömuveski SÁ sem tók upp svarta dömuveskið á gangstéttinni við Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 23. febrúar er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 557 6525. Fundarlaun. Geisladiskahulstur í óskilum Geisladiskahulstur með geisladiskum í fannst milli Lágabergs og Neðstabergs í Breiðholti. Upplýsingar í síma 863 2459. Dýrahald Páfagaukar óskast PÁFAGAUKAR (gárar) óskast gefins ásamt búri. Vinsamlega hafið samband við Jón Inga í síma 824 1825. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Er ekki kominn tími til … Morgunblaðið/Kristinn LÁRÉTT 1 landshluti, 4 hríð, 7 auðlindin, 8 hljóðfæri, 9 rödd, 11 sterk, 13 skjóla, 14 hátterninu, 15 falskur, 17 grannur, 20 ögn, 22 eigri, 23 umturnun, 24 nytjalandið, 25 vota. LÓÐRÉTT 1 blossar, 2 fuglum, 3 duglega, 4 vað á vatns- falli, 5 kyrra, 6 munn- tóbak, 10 skil eftir, 12 stúlka, 13 fát, 15 gamalt, 16 hæðin, 18 málmi, 19 úldna, 20 fjarski, 21 áll. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 rytjulegt, 8 leift, 9 sárum, 10 not, 11 tangi, 13 illur, 15 svöng, 18 skáld, 21 rót, 22 tauta, 23 arinn, 24 rummungur. Lóðrétt: 2 ysinn, 3 jötni, 4 losti, 5 geril, 6 blót, 7 smár, 12 gin, 14 lok, 15 sáta, 16 önugu, 17 gramm, 18 stafn, 19 álinu, 20 dund. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.