Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
#$
%
&
'
!"
(
)*
+,-**"+.-**
/ 0 1
23
HUGMYNDIR eru uppi um að svo-
kölluð hringtorgslausn verði notuð
við útfærslu mislægra gatnamóta
Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar
og hefur bæjarráð Kópavogs sagt sig
jákvætt í garð þeirra. Ekki er þó útlit
fyrir að ráðist verði í gerð gatnamót-
anna á næstu árum.
Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar,
umdæmisstjóra Vegagerðarinnar í
Reykjanesumdæmi, hafa ýmsar
lausnir verið uppi á og meðal annars
hefur verið litið til mislægu gatna-
mótanna við Höfðabakka og Mjódd í
Reykjavík í því sambandi.
„Þegar umferðarspár voru endur-
skoðaðar eftir að Svæðisskipulaginu
lauk komu fleiri lausnir til skoðunar,
meðal annars svona stórt hringtorg
og það er sú lausn sem þarna er verið
að tala um.“
Hann segir útfærslu slíkra gatna-
móta verða á þá leið að hringtorgið
verði hluti af tveimur brúm yfir
Reykjanesbrautina. „Þannig að um-
ferð af Arnarnesveginum fer alltaf á
þetta hringtorg á Reykjanesbrautina
og rampar af og frá Reykjanesbraut
koma einnig inn á hringtorgið.“ Slíkt
torg kæmi í stað umferðarljósa, sem
tryggi jafnara umferðarflæði yfir
gatnamótin allan daginn.
Að sögn Þórarins Hjaltasonar,
bæjarverkfræðings í Kópavogi,
ganga Vegagerðin og bæjaryfirvöld í
Kópavogi út frá því að ráðast fyrst í
tvöföldun Reykjanesbrautarinnar
brautarinnar að Kaplakrika, áður en
hafist verði handa við gatnamótin en
stefnt er að því að byrja á tvöföldun
brautarinnar í vor.
Jónas staðfestir þetta og segir það
ráðast af samgönguáætlun, sem nú er
til umfjöllunar Alþingis, hvenær
fræmkvæmdir við gatnamótin geti
hafist. „Hvort það er einhvers staðar
á árunum 2005–2010 verður að koma í
ljós,“ segir hann.
Hringtorg verði við
mislæg gatnamót
Ráðist verður í tvöföldun Reykjanesbrautarinnar áður en hafist verður
handa við gerð mislægra gatnamóta við Arnarnesveg. Hugmyndir eru um
að þau verði með svokallaðri hringtorgslausn eins og hér sést.
Kópavogur/Garðabær
TÖLVUR verða innan skamms hluti af daglegu
starfi krakkanna á leikskólum Kópavogs gangi ný
áætlun um tölvuvæðingu skólanna eftir. Faglegur
hluti áætlunarinnar var nýlega samþykktur í leik-
skólanefnd bæjarins en unnið er að því að útbúa
fjárhagsáætlun fyrir verkið.
Að sögn Sesselju Hauksdóttur leikskólafulltrúa
er með áætluninni verið að móta stefnu um hvern-
ig vinna eigi með tölvur og börn og hvaða hug-
myndafræði eigi að liggja þar að baki.
„Stefnan er að líta á tölvuna sem eitt af leikefn-
unum í leikskólanum og börnin hafi frjálsan að-
gang að tölvum líkt og með annað efni á borð við
skæri, lit og leir,“ segir hún. „Það gilda í raun ná-
kvæmlega sömu lögmál um þetta. Síðan er valið
hvaða forrit þau fá að leika sér með þannig að þau
fá að sjálfsögðu ekki ofbeldisforrit og annað slíkt.
Auk þess er lögð áhersla á samvinnu fleiri barna
við tölvuna þannig að þau séu ekki ein við hana.“
Sendi foreldrum sínum myndir í tölvupósti
Sesselja segir gert ráð fyrir að allir leikskól-
arnir verði komnir með einhvers konar tölvu-
vinnslu fyrir börnin innan eins til tveggja ára en
stefnt sé að því að markmiðum áætlunarinnar
verði fullkomlega náð á næstu fjórum árum.
Aðspurð segir hún tölvukost og tæki oft hafa
hamlað slíku starfi innan leikskólanna enda sé
dýrt að tölvuvæða skólana. „Við ætlumst líka til
þess að tölvurnar geti ráðið við að börnin fari inn
á Netið til að afla sér upplýsinga og þau geti sent
tölvupóst og myndir. Hugmyndin er að þau geti
sent foreldrum sínum myndir, t.d. af þeim verk-
efnum sem þau hafa verið að gera. Þannig að það
þarf dálítið öflug tæki fyrir þau en það þarf ekk-
ert endilega mjög mikið af þeim.“
Þá segir hún stefnuna að stafrænar upptöku-
vélar, skjávarpar og annað verði í hverjum leik-
skóla en eftir eigi að þróa með hvaða hætti þessi
tæki verði nýtt í starfi með börnunum.
Börn og starfsfólk uppgötvi í sameiningu
Sesselja segir að samfara þessari áætlunargerð
hafi leikskólinn Arnarsmári farið af stað með þró-
unarverkefni um tölvunotkun barna og viðbrögð
barnanna hafi ekki látið á sér standa. „Þær í Arn-
arsmára eru reyndar ekki búnar að vinna lengi
við tölvur með börnunum en þetta er mjög vinsælt
hjá þeim – þó ekki þannig að þau hætti að kubba
eða fara í hlutverkaleik eða annan leik. Þetta er
orðið hluti af eðlilegu umhverfi mannsins alls
staðar og þarna líka en það þarf að passa svolítið
upp á að menn fari ekki að líta á þetta sem eitt-
hvað mikilvægara en eitthvað annað, þetta er
bara eitt af tilboðunum.“
Jafnframt því að fjalla um tölvunotkun
barnanna tekur áætlunin einnig til með hvaða
hætti starfsfólk leikskólanna getur nýtt sér tölv-
urnar og segir Sesselja að undanfarið hafi eitt-
hvað verið um að starfsmenn sæki námskeið í
tölvunotkun. „En svo er galdurinn líka að það er í
lagi að starfsmennirnir uppgötvi notkunarmögu-
leikana með börnunum. Við erum ekki beinlínis
að kenna þeim heldur erum við að hjálpa þeim að
uppgötva. Stundum er fullorðna fólkið samferða
þeim í því og það er það alskemmtilegasta.“
Kubbar, litir, leir og tölva
Morgunblaðið/Sverrir
Tölvan er greinilega mjög spennandi viðfangsefni ef marka má viðbrögð Stefaníu Katrínar, Söndru
Kristínar og Gísla Snæs, sem öll leika sér daglega í tölvum á leikskólanum Arnarsmára.
Kópavogur
Áætlun um tölvuvæð-
ingu leikskólanna sam-
þykkt í leikskólanefnd
UNDIRBÚNINGUR við byggingu
nýs hafnarbakka við Norðurbugt
stendur nú yfir en til stendur að
lengja Norðurgarð um 150 metra.
Að sögn Jóns Þorvaldssonar, for-
stöðumanns tæknideildar Reykja-
víkurhafnar, ganga framkvæmdirn-
ar út á að setja uppfyllingar ofan á
botnlögin í höfninni og í efnaskipta-
skurð sem grafinn var um síðustu
áramót. „Síðan verður stálþil rekið
þarna niður og bryggja stöguð og
stífð inn í fyllinguna.“
Jón segir þó óljóst hvenær ráðist
verði í gerð stálþilsins. „Reykjavík-
urhöfn stendur frammi fyrir því þeg-
ar til lengri tíma er litið að þurfa að
koma sjávarútvegsmálum úr austur-
höfninni út af fyrirhuguðu tónlistar-
og ráðstefnuhúsi og það má segja að
þetta sé fyrsti áfanginn í því máli,“
segir hann.
Morgunblaðið/RAX
Norðurgarður lengdur
Grandi
STEFNT er að því að byggja
tvo nýja stúdentagarða með
samtals 160–210 íbúðum á
næstunni í Reykjavík. Sam-
komulag milli Félagsstofnunar
stúdenta og Reykjavíkuborgar
þar um er á lokastigi að því er
fram kemur í fréttatilkynningu
frá Stúdentaráði Háskóla Ís-
lands.
Segir í tilkynningunni að
verið sé að ganga frá lausum
endum og tæknilegum atriðum
samkomulagsins en annar
garðanna verður í miðborg
Reykjavíkur en hinn á Hlíð-
arenda, nærri félagsheimili
Vals.
Byrjað að byggja á
Valssvæðinu í haust
Er gert ráð fyrir að hefjast
handa við byggingu stúdenta-
íbúðanna á Valssvæðinu í
haust og að fljótlega eftir það
verði ráðist í gerð 80–130
íbúða garðs við Lindargötu.
„Stúdentaráð hefur í vetur
lagt á það mikla áherslu að
stúdentaíbúðum verði fjölgað
enda er ástandið á leigumark-
aði verulega óhagstætt og
íbúðaverð á almennum fast-
eignamarkaði hátt,“ segir í til-
kynningunni.
Tveir
nýir
stúdenta-
garðar
Reykjavík