Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 17
inn í herbergi Stalíns. Þangað máttu
þeir ekki fara nema hann bæði þá
um það sjálfur.
Klukkan 6.30 kviknaði ljós í her-
bergi Stalíns og verðirnir róuðust.
En þegar klukkan var orðinn tíu
voru þeir orðnir stjarfir af hræðslu.
Að lokum var Lozgatsjev sendur til
að athuga hvort eitthvað amaði að
Stalín.
blæðingar en aðrir að hann hafi ver-
ið myrtur. Radzinski var staðráðinn
í að afhjúpa leyndardóminn um
dauða Stalíns og fyrir nokkrum ár-
um hafði hann uppi á einum af vörð-
um einræðisherrans þetta kvöld,
Pjotr Lozgatsjev. Frásögn hans varð
kveikjan að tilgátu Radzinskis.
Lozgatsjev staðfesti að það var
ekki Stalín sem skipaði vörðunum að
ganga til hvílu, heldur aðalvörður
hans, Khrústalev.
„Stalín átti það til að hæðast að
vörðunum með því að spyrja „viljiði
fara í rúmið? – og stara í augu okk-
ar,“ sagði Lozgatsjev. „Eins og við
hefðum þorað það! Við vorum þess
vegna fegnir þegar við fengum þessi
fyrirmæli og fórum í rúmið án þess
að hugsa okkur um tvisvar.“
Verðirnir sváfu fram eftir og þeg-
ar þeir vöknuðu héldu þeir að Stalín
vildi sofa út. Þeir biðu í margar
klukkustundir og ekkert bólaði á
Stalín.
Verðirnir voru orðnir áhyggju-
fullir en enginn þeirra þorði að fara
RÚSSNESKI sagnfræðingurinn
Edvard Radzinski fullyrðir að sam-
starfsmenn Jósefs Stalíns hafi byrl-
að honum eitur til að koma í veg fyr-
ir að hann hæfi þriðju
heimsstyrjöldina. Þetta kom fram í
fræðsluþætti sem breska útvarpið
sendi út á mánudaginn var í tilefni af
því að 5. mars verður hálf öld liðin
frá því að Stalín lést.
Kvöldið 28. febrúar 1953 byrjaði
eins og venjulega hjá Stalín og nán-
ustu samstarfsmönnum hans, Lavr-
entí Bería, Níkíta Khrústsjov, Nikol-
aj Búlganín og Georgí Malenkov.
Þeir horfðu á kvikmynd í Kreml og
héldu síðan í hús Stalíns nálægt
Moskvu til að halda enn eina
drykkjuveisluna.
Um nóttina fóru gestirnir heim til
sín. Stalín er sagður hafa skipað
vörðum sínum að ganga til hvílu og
þeir máttu ekki trufla hann.
Radzinski þótti mjög undarlegt að
Stalín skyldi hafa gefið þessi fyr-
irmæli vegna þess að hann var gagn-
tekinn af áhyggjum af öryggi sínu,
að því er fram kom í „Síðasta leynd-
ardómi Stalíns“, þætti BBC Radio 4
um síðustu dagana í lífi einræð-
isherrans.
Lífvörður leysir frá skjóðunni
Ýmsar kenningar hafa komið
fram um dauða Stalíns, sumir segja
að hann hafi látist af völdum heila-
„Ég flýtti mér til hans og spurði:
„Félagi Stalín, hvað er að? Hann átti
það til að væta sig þegar hann lá
þarna,“ sagði Lozgatsjev. „Frá hon-
um komu einhver torkennileg hljóð,
eins og „ds ds“. Vasaúrið hans og
eintak af Prövdu lágu á gólfinu. Úrið
sýndi 6.30. Þá hlýtur þetta að hafa
komið fyrir hann.“Verðirnir
hringdu strax í drykkjufélaga Stal-
íns, forsætisnefnd kommúnista-
flokksins. Radzinski þykir það grun-
samlegt hversu seinir þeir voru að
bregðast við og kalla í lækni.
Vissu þeir of mikið og þurftu því
ekki að flýta sér til „gamla manns-
ins“? Radzinski telur svo vera.
Myrtur að
fyrirmælum Beria?
Sagnfræðingurinn heldur því
fram að vörðurinn Khrústalev hafi
byrlað Stalín eitur að fyrirmælum
yfirboðara síns, Lavrentís Bería, yf-
irmanns öryggislögreglunnar KGB.
Radzinski telur sig einnig vita hvers
vegna Stalín hafi verið myrtur.
„Allir sem umgengust Stalín vissu
að hann vildi stríð – þriðju heims-
styrjöldina – og hann ákvað að búa
landið undir þetta stríð,“ hefur BBC
eftir Radzinski. „Stalín sagði: „Við
höfum tækifæri til að skapa komm-
úníska Evrópu en við þurfum að
hafa hraðan á. En Bería, Khrústsjov,
Malenkov og allir eðlilegir menn
skildu að það væri hræðilegt að
hefja stríð gegn Bandaríkjunum
vegna þess að Rússland var fjár-
vana. Það var ekki fátækt, heldur
sárafátækt, landið hafði verið eyði-
lagt í innrás Þjóðverja, átti engan
þjóðarauð, aðeins kjarnavopn.“
„Þetta var ástæðan fyrir herferð
Stalíns gegn gyðingum, það var ögr-
un,“ hélt Radzinski áfram. „Hann
vildi að Bandaríkin svöruðu. Og
Bería vissi að Stalín hafði ráðgert að
hefja brottflutning gyðinga frá
Moskvu 5. mars.“
BBC tekur fram að ekki sé óal-
gengt að samsæriskenningar hrann-
ist upp í Rússlandi, að ein kenning
geti af sér aðrar. Nokkrir borg-
arbúar segja að rútum hafi verið
lagt út um alla Moskvu til að flytja í
burtu gyðinga. Aðrir sáu sérstök
geymsluhús sem sögð eru hafa verið
reist í Kasakstan til að hýsa brott-
rekna gyðinga.
Var Stalín byrl-
að eitur til að
afstýra stríði?
Reuters
Gamlir kommúnistar í Rússlandi hafa Stalín enn í hávegum og myndir af
honum eru áberandi í 1. maí-hátíðahöldum og við ýmis tækifæri.
’ Allir sem umgengust Stalín
vissu að hann vildi
stríð – þriðju heims-
styrjöldina. ‘
TILRAUN Norður-Kóreumanna
með skammdræga eldflaug hefur
valdið aukinni spennu þótt stjórn-
völd í grannríkjunum og Bandaríkj-
unum vilji ekki gera of mikið úr mál-
inu. Varð eldflaugarskotið til að
valda nokkurri gengislækkun á fjár-
málamörkuðum í Japan og annars
staðar í Asíu og varpaði einnig
nokkrum skugga á embættistöku
Roh Moo-hyuns sem forseta Suður-
Kóreu.
Hermálayfirvöld í Japan og S-
Kóreu sögðu, að eldflauginni, sem er
ætlað að granda skipum, hefði verið
skotið í fyrrakvöld frá norðaustur-
strönd N-Kóreu og hefði hún lent í
Japanshafi. Talsmaður Bandaríkja-
stjórnar vildi ekki gera of mikið úr
tilrauninni en hún var gerð nokkrum
klukkustundum áður en Roh Moo-
hyun sór embættiseið sem nýr for-
seti S-Kóreu í Seoul. Meðal við-
staddra við athöfnina voru Colin Po-
well, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Junichiro Koizumi, forsætis-
ráðherra Japans, og Alexander
Downer, utanríkisráðherra Ástralíu.
Downer sagði, að eldflaugartil-
raun N-Kóreumanna á þessum tíma
væri ótrúlega ósvífin og ögrandi en
Powell vildi ekki gera of mikið úr
málinu og sagði, að vitað hefði verið,
að tilraunin stæði fyrir dyrum auk
þess sem um gamlan vopnabúnað
hefði verið að ræða. Japanskir emb-
ættismenn tóku í sama streng en
þeir og japönsk stjórnvöld fylgjast
grannt með því, sem er að gerast í
N-Kóreu og hafa af því miklar
áhyggjur.
Japanar áhyggjufullir
Í ágúst 1998 skutu N-Kóreumenn
langdrægri, margþrepa eldflaug yfir
Japan og út í Kyrrahaf. Með því
sýndu þeir, að þeir réðu yfir eld-
flaugum, sem unnt væri að skjóta á
Japan og búnum kjarnasprengjum
ef því væri að skipta. N-Kóreustjórn
hét því síðast í haust að hætta slík-
um tilraunum en s-kóreska varnar-
málaráðuneytið telur hins vegar, að
N-Kóreumenn séu að gera ýmsar
tilraunir með Taepodong-1-eldflaug-
ar, sem draga 2.500 km, og séu að
auki að þróa enn langdrægari flaug-
ar.
Við embættistökuna í gær hvatti
Roh N-Kóreustjórn til að kasta
kjarnorkuáætlunum sínum fyrir
róða og sagði, að þannig gæti hún
tryggt sitt eigið öryggi og alþjóðlega
aðstoð við landið. Powell kvaðst
telja, að Roh skildi og væri sam-
þykkur stefnu Bandaríkjanna gagn-
vart N-Kóreu.
Aukin spenna vegna
eldflaugartilraunar
Norður-Kóreustjórn er sögð vera að gera tilraunir með
og þróa eldflaugar sem draga lengra en 2.500 km
AP
Roh Moo-hyun, nýr forseti Suður-Kóreu, ásamt konu sinni, Kwon Yang-
sook, við embættistökuna í gær.
Seoul, Tókýó. AP, AFP.
HÁLFS árs stúlka og þriggja ára
drengur voru gefin saman í Nepal
á dögunum og hjónavígslan endaði
með því að mæður þeirra gáfu
brúðhjónunum brjóst.
Börnin voru gift þrátt fyrir að
lög landsins kveði á um að karl-
menn þurfi að vera 21 árs og stúlk-
ur 18 ára til að ganga í hjónaband.
Þegar hindúaprestur var að gefa
börnin saman varð stúlkan svo
hrædd að hún fór að gráta. Móðir
hennar stöðvaði athöfnina og börn-
in fengu brjóstamjólk, að sögn nep-
alska dagblaðsins Taja Khabar.
Foreldrar barnanna höfðu óttast
að þau myndu ekki finna maka síð-
ar á ævinni. Fjölskylda brúðarinn-
ar vildi halda brúðkaup og eyddi
andvirði 80.000 króna í veisluna.
Kornung börn gefin saman
Katmandu. AFP.