Morgunblaðið - 26.02.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 11
verkþætti. Það sé í raun mikilvægt
til að koma í veg fyrir of mikið
framkvæmdaálag í lok árs 2005 og í
byrjun ársins 2006 vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og álvers Alcoa í
Reyðarfirði. Óhjákvæmilega verði
þó töluvert um að vera um einhvern
tíma.
„Við höfum rætt um þetta við iðn-
aðarráðuneytið og sagt að við vilj-
um gjarnan koma til móts við óskir
Norðuráls og grípa til aðgerða til
að flýta framkvæmdum. Meðal ann-
ars væri mögulega hægt að flýta út-
boðum sem kæmi að gagni. Hin
orkufyrirtækin þurfa einnig á sín-
um undirbúningstíma að halda
vegna rannsóknaborana. Fyrir þau
skiptir miklu að endanleg ákvörðun
liggi fyrir sem allra fyrst,“ segir
Friðrik en þetta mál verður m.a.
lagt fyrir stjórnir Landsvirkjunar
og Orkuveitu Reykjavíkur á fund-
um þeirra í næstu viku og stjórn
Hitaveitu Suðurnesja í lok þessarar
viku.
Aðspurður telur Friðrik að
Landsvirkjun, ásamt öðrum orku-
fyrirtækjum, eigi að geta byrjað að
afhenda Norðuráli orku seint á
árinu 2005, ef allt gangi eftir.
Snemma árs 2006 eigi stækkað ál-
ver að hafa náð fullum afköstum.
Spurður um hvaða framkvæmdir
Landsvirkjun gæti ráðist í á árinu
segir Friðrik að finna þurfi ganga-
leið úr uppistöðulóninu yfir í veit-
urnar sem renna síðan í Þórisvatn.
Einfaldari framkvæmdir verði við
setlónið sem geti hafist síðar á
þessu ári, ef tími vinnist til að bjóða
út verkin.
„Staðan í dag er sú að í stað þess
að bíða og láta rannsóknir fara
fram fyrst, sem hefði stefnt fram-
kvæmdunum í hættu, er hugmyndin
að fara rækilega ofan í það á næstu
dögum hvort ekki næst sam-
komulag á milli aðila. Þrátt fyrir að
rannsóknir fari fram í sumar þá
teljum við að útreikningar, sem nú
liggja fyrir, bendi eindregið til þess
að framkvæmdin sé arðsöm með til-
lliti til allra þeirra skilyrða sem
settur umhverfisráðherra lagði
fram,“ segir Friðrik Sophusson.
veitu nægjanlega
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
gang. Þetta er einstakt tækifæri
til að efla svæðið norðan Hval-
fjarðar enn frekar. Við treystum
því að yfirlýsing Landsvirkjunar
muni leiða til farsællar niðurstöðu
innan skamms tíma,“ segir Gísli.
Atvinnuleysi hefur farið vaxandi
á Vesturlandi líkt og annars staðar
í landinu og Gísli telur að þrátt
fyrir tímabundnar mótvægisað-
gerðir ríkisstjórnarinnar þá sé
besta lausnin sú að sjá varanleg
atvinnutækifæri verða til með
stækkuðu álveri á Grundartanga.
Starfsmenn Norðuráls í dag eru
um 200 talsins en með stækkun
upp í 180 þúsund tonn gætu bæst
við 150 ný störf við álverið.
„Ég er afar bjartsýnn á að þetta
verkefni nái fram að ganga og
þykist vita að unnið verði að því
hörðum höndum. Þó að einhver
vinna sé eftir þá hefur Landsvirkj-
un stigið verulega stórt skref,“
segir Gísli.
Í NOKKRUM greinum í nýjasta hefti tímaritsins
Nature er fjallað um rannsóknir sem byggjast á
erfðaefni hvatbera og m.a. vikið að rannsóknum
DeCode og vísindamanna í Oxford á íslensku þjóð-
inni.
Íslendingar meðal sundur-
leitustu þjóða Evrópu
Í Nature segir að nýjar athuganir sýni að vafa-
samara sé að treysta niðurstöðum slíkra rann-
sókna en talið hafi verið til þessa þar sem villur í
gagnagrunnum sem notaðar eru við slíkar rann-
sóknir séu mjög algengar. Er þar vísað sérstak-
lega til nýlegrar greinar eftir Peter Forster, sér-
fræðings við háskólann í Cambridge, sem nýlega
birtist í Annals of Human Genetics þar sem hann
veltir einnig upp spurningunni um áreiðanleika
erfðarannsókna af þessu tagi í sakamálum.
Þá segir í Nature að á grunni rannsókna af
þessu tagi hafi sérfræðingar DeCode haldið því
fram að Íslendingar væru tiltölulega einsleit þjóð
og að rannsóknir á erfðamengi Íslendinga ásamt
með góðum heilbrigðisupplýsingum auðveldi þeim
leitina að arfgengnum sjúkdómum. Nú hafi Einar
Árnason við líffræðistofnun Háskóla Íslands hins
vegar bent á í grein að ályktanir sérfræðinga De-
Code standist ekki vegna villna í hluta þeirra
gagnagrunna sem þeir studdust við. Einar end-
urmat gögnin án þess að nota umrædda gagn-
runna og segir í niðurstöðum hans að Íslendingar
séu á meðal sundurleitustu þjóða Evrópu. Í Nat-
ure segir að vísindamenn DeCode geri ekki at-
hugasemdir við þau gögn sem Einar styðst við í
rannsókn sinni en hann hafi aftur á móti mistúlkað
þau. Haft er eftir Kára Stefánssyni, forstjóra Ís-
lenskrar erfðagreiningar, að villur í gagnagrunn-
unum hafi „takmörkuð“ áhrif á stöðu Íslendinga
meðal Evrópuþjóða að því er varðar einsleitni eða
sundurleitni. Þá segja þeir að umfangsmiklar
erfðaupplýsingar um íslensku þjóðina muni vissu-
lega koma að gagni við leit á erfðatengdum sjúk-
dómum burtséð frá því hvort hún teljist mjög eins-
leit eða ekki.
Vísað til „umdeildrar greinar“
Einars Árnasonar
Í annarri grein í sama hefti af Nature er tekið
fram að grein Forsters hafi verið „pöntuð“ sem
viðbót við „umdeilda grein“ þar sem því er hafnað
að Íslendingar séu minna sundurleitir en aðrar
evrópskar þjóðir. Er þar verið að vísa til greinar
Einars Árnasonar og er tekið fram að ekki sé
komin fram niðurstaða um að hve miklu leyti villur
í gagnagrunnum hafi haft áhrif á spurninguna um
eins- eða sundurleitni Íslendinga. Þá er og bent á
það að sumir vísindamenn dragi í efa áhrif villn-
anna á lokaniðurstöður rannsóknanna og er haft
eftir tölfræðingi við háskólann í Oxford að það sé
væntanlega aðeins í fáum tilvikum að villurnar
hafi áhrif á niðurstöður rannsóknanna.
Tímaritið Nature fjallar um rannsóknir á hvatberaarfgerðum
Deilt um einsleitni eða
sundurleitni þjóðarinnar
STIGAHÆSTU menn á Stórmóti
Hróksins, Adams og Shirov, tefldu
spennandi skák í gærkvöld. Adams
náði betra tafli og hafði örugg tök á
stöðunni. Shirov átti að auki mun
minni umhugsunartíma og greip
hann þá til þess ráðs að fórna manni
til að rugla Adams í ríminu. Þetta
tókst vel, tíminn jafnaðist og þá lék
Adams sig í mát.
Það er sannarlega ekki á hverjum
degi sem 4. sterkasti skákmaður
heims leikur sig í mát, jafnvel þótt
hann sé í tímahraki.
Hvítt: Michael Adams
Svart: Alexei Shirov
Sikileyjarvörn
1.e4c5 2.Rf3 Rc6 3.Bb5 e6 4.Bxc6
bxc6 5.b3 Re7 6.Bb2 Rg6 7.h4 h5
8.e5 d6
Nýr leikur í þessari stöðu, þótt
hann komi síðar í mörgum tilvikum.
Svartur á athyglisverða leið, 8...c4!?
9.bxc4 Hb8 10.Bc3 c5 11.d3 Be7
12.Rbd2 f5 13.exf6 gxf6 14.De2 Kf7
15.0–0 Bb7 16.Hfe1 Dc7 17.De3
Hbg8 18.Re4 e5 19.Bb2 d6 20.c3 Rf4
21.Rg3 f5, með miklu spili (German-
Milos, Buenos Aires 1997).
9.exd6 Dxd6 10.De2 f6 11.De4
Kf7 12.Rc3 e5 13.0–0–0 Be7 14.d3
Be6 15.g3 Had8 16.Hhf1 Bh3
17.Hg1 Bg4 18.Hde1 De6 19.Rd2
Hd4 20.Dg2 Hhd8 21.f3 Bh3 22.Df2
Bf5 23.Rce4 Dd7 24.g4 --
Adams vill ekki opna svarta bisk-
upnum leið með því að taka skipta-
muninn, en ekki er að sjá, að staðan
sé hættuleg fyrir hann, eftir 24.Bxd4
cxd4 25.Rc4 o.s.frv.
24...Be6 25.Rc4 hxg4 26.fxg4
Bxc4
Hugsanlegt er fyrir svart að drepa
á g4, t.d. 26...Bxg4!? 27.Re3 (27.Dg3
Bh5) 27...Bh5 28.Rf5 Hb8 29.Ba3
Hb5 og erfitt er að koma auga á leið
fyrir hvít til að brjótast í gegn.
27.dxc4 Rf4 28.Df3 a5 29.a4 Db7
30.g5 Hb8 31.gxf6 gxf6 32.Hg4 --
Ef til vill er 32.Dg4!? enn sterkari
leikur, t.d. 32. -- Hxc4 33.He3 Hd4
34.Dg7+ Ke6 35.Hf1 Rd5 36.He2 og
ólíklegt er, að svarti lifi þetta af.
Sjá stöðumynd
32...Rd3+!
Shirov verður að reyna að grugga
stöðuna, því að annars segir slæm
kóngsstaða hans til sín að lokum.
33.cxd3 Dxb3 34.Dg2 Bf8
35.Hg6?! --
Hvítur hefði átt að leika 35.Dc2,
t.d. 35. -- Hxd3 36.Hf1 Hf3 37.Dxb3
Hxf1+ 38.Kc2 Hxb3 39.Kxb3 f5
40.Rg5+ Kf6 41.Hg2 o.s.frv.
35...Dxd3 36.Hxf6+ Ke7
37.Bxd4?? --
Ótrúlegt, Adams sést yfir einfalt
mát! Keppendur áttu lítið eftir af
umhugsunartímanum í þessari
flóknu stöðu, hvítur fjórar mínútur á
4 leiki, þegar hann lék 37. leikinn, en
þá átti svartur aðeins tvær. Svartur
hótar 37. -- Hxc4+, svo að hvítur
gerir best í að tryggja sér jafnteflið,
með 37.Hf7+ Kxf7 38.Hf1+ Ke7
39.Dg5+ Kd7 40.Hf7+ Ke8
41.Hxf8+ Kxf8 42.Df6+ Kg8
43.Dg5+ Kf7 44.Df6+ Kg8 (44...Ke8
45.Dxe5+ Kf7 46.Df4+ Kg7
47.Bxd4+ cxd4 48.De5+ Kh7
49.Rg5+ Kg6 50.Dxb8) 45.Dg5+,
með þráskák.
37...Hb1+ mát!
Adams lék sig í
mát gegn Shirov
Bragi Kristjánsson
SKÁK
Alexei Shirov sigraði Michael Adams. Morgunblaðið/Ómar
FJÖLMARGIR ungir og efnilegir
skákáhugamenn hafa stundað nám
í Skákskóla Hróksins og Eddu
undanfarna daga en kennslunni
lýkur í dag. Þar hafa þeir lært
margt um herkænsku og herbrögð
sem koma sér vel þegar skákin er
annars vegar.
Skákskólinn hefur haft aðstöðu
á Kjarvalsstöðum og hefur Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir verið
meðal leiðbeinenda. Nemendur
sem nú „útskrifast“ hafa verið
mjög áhugasamir og eiga eflaust
eftir að nota sitthvað af lærdómi
sínum í tilraunum til að sigra
verðuga andstæðinga í framtíð-
inni.
Morgunblaðið/Ómar
„Ég veit það, ég veit það!“ hrópuðu krakkarnir í Skákskóla Hróksins einum
rómi þegar leiðbeinandinn spurði um tæknileg atriði sem snúa að skákinni.
Herbrögð kennd
í Skákskólanum
ALEXEI Shirov sigraði Adams í
sjöundu umferð stórmóts Hróksins
og er nú einn efstur með 5,5 vinn-
inga. Macieja vann McShane, Bacr-
ot vann Helga Áss, Stefán og
Hannes Hlífar skildu jafnir svo og
Kortsnoj og Sokolov. Sokolov og
Macieja eru 2.–3. sæti með fimm
vinninga og Kortsnoj og Adams í
4.–5. sæti með fjóra vinninga. Átt-
unda umferðin hefst kl. 17 í dag og
þá teflir Macieja við Shirov, Sokol-
ov við Adams, M (8) Hannes Hlífar
glímir við Kortsnoj, Stefán teflir við
Bacrot og McShane Helga Ás Grét-
arsson.
Shirov aftur efstur
KOSNINGAR til stúdentaráðs
Háskóla Íslands (SHÍ) og Há-
skólafundar hefjast í dag og þeim
lýkur á morgun, fimmtudag.
Þrjár fylkingar stúdenta berj-
ast um völdin í stúdentaráði að
þessu sinni: Vaka, félag lýðræð-
issinnaðra stúdenta, Röskva,
samtök félagshyggjufólks og Há-
skólalistinn.
Fyrir ári sigraði Vaka í kosn-
ingunum en þá hafði Röskva
stjórnað stúdentaráði í 12 ár. Nú
býður Háskólalistinn fram í
fyrsta sinn og segja fulltrúar
hans að listinn sé óháður pólitísk-
um flokkum og stefnum.
Kosið er um 18 sæti í stúd-
entaráði og sex sæti á Háskóla-
fundi. Sú fylking sem hlýtur
meirihluta atkvæða fer með
stjórn stúdentaráðs.
Allir stúdentar í Háskóla Ís-
lands eru kjörgengnir og geta
kosið í hvaða kjördeild sem er.
Kjörfundur er opinn frá kl. 9 til
13 í dag og frá kl. 9 til 18 á morg-
un.
Kosningar í HÍ í
dag og á morgun