Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 13
Á
m
i
ð
vi
k
u
d
ö
g
u
m
k
l.
2
1
.
0
0
Law & Order
Refurinn Lennie Briscoe og hinn
geðþekki Reynaldo Curtis leysa sakamál
í New York og leita uppi glæpamenn.
En ekki er sopið kálið þó í ausuna
sé komið, því McCoy saksóknari
og félagar hans þurfa að tryggja
að glæponarnir komist bak við lás og slá.
Law & Order í kvöld kl. 22.00.
Kraftmikill og fjölbreyttur þáttur um allt
sem viðkemur daglegu lífi Íslendinga.
Fólki er ekkert mannlegt óviðkomandi;
tíska, heilsa, kjaftasögur, fordómar,
mannleg samskipti og fólk í sinni
fjölbreytilegustu mynd.
Fólk með Sirrý í kvöld kl. 21.00.
M
i
ð
v
i
k
u
d
a
g
a
r
alltaf ókeypis
KAUPÞING hefur áhuga á að taka
þátt í frekari samruna á norrænum
fjármálamarkaði í gegnum JP Nord-
iska, segir Sigurður Einarsson, for-
stjóri Kaupþings banka, í samtali við
Morgunblaðið. Í Dagens Industri í
fyrradag er viðtal við Sigurð, þar
sem haft er eftir honum að Kaup-
þing vilji kaupa eignastýringarfyr-
irtæki og er sænska fyrirtækið
Trevise sérstaklega nefnt í því sam-
bandi.
Sigurður segir að Kaupþing hafi
skoðað vel möguleika á að kaupa
eignarstýringarfyrirtæki ytra. „Sá
markaður er svokallaður magn-
markaður og byggist á fjölda við-
skiptavina. Reksturinn þarf að ná
ákveðinni stærð til að verða hag-
kvæmur. Við höfum verið að skoða
hvort okkar rekstur yrði ekki hag-
kvæmari með því að bæta slíkri
starfsemi við hann,“ segir hann, „þó
er ekki þar með sagt að við höfum
ekki áhuga á annars konar fjármála-
fyrirtækjum og eignum.“
Getur tekið skamman tíma
Hann segist ekki geta tjáð sig um
hvort eitthvað standi til í þessum
efnum á næstunni. „Þessi mál geta
komið upp mjög skjótt, en þau geta
líka tekið afar langan tíma.“
Að sögn Sigurðar er JP Nordiska
nú rekið með hagnaði. „Við fækk-
uðum starfsfólki um 150 manns, eins
og komið hefur fram. Í Svíþjóð er
mjög dýrt að segja fólki upp og því
tekur töluverðan tíma að þessar ráð-
stafanir skili tilætluðum sparnaði.
Sá sparnaður hefur hins vegar verið
að koma fram núna í janúar og febr-
úar,“ segir hann.
Sigurður segir að ætlunin sé að
JP Nordiska fari að bjóða upp á
svipaða þjónustu og Kaupþing banki
hafi boðið hér heima, þ.e. þjónustu
fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.
„Fyrst þurfum við auðvitað að ráða
til þess fólk, en við stefnum að því að
þessi starfsemi verði komin í gang í
lok þessa árs,“ segir hann.
Í viðtali í Dagens Industri svarar
Sigurður þeirri gagnrýni sem komið
hefur fram í Svíþjóð, um að Kaup-
þing líkist frekar áhættufyrirtæki
en banka, ekki síst vegna eignar-
hluta í óskráðum félögum. „Við höf-
um fylgt öllum EFTA-reglum um
mat á óskráðum eignum. Við höfum
meira að segja verið frekar íhalds-
samir í þeirri viðleitni okkar og
gengið lengra ef eitthvað er. Það er
nú einu sinni þannig, að við höfum
prýðisgóða reynslu af þessari að-
ferð,“ segir Sigurður.
Fjármálaheimurinn
að breytast
Hann segir að mikilvægast sé, að
fjármálaheimurinn sé að breytast á
þann veg að fyrirtæki samþykkja í
æ minni mæli að greiða mjög háa
þóknun, ef bankarnir eru ekki reiðu-
búnir til að taka áhættuna. „Það höf-
um við verið að gera hjá okkar við-
skiptavinum og það hefur gefist
okkur mjög vel.“
Þá segir Sigurður að skilgreining-
in á banka þurfi ekki endilega að
vera stofnun sem veiti veðlán til hús-
næðiskaupa, eins og viðtekin skoðun
virðist vera í Svíþjóð.
Kaupþing leitar eftir
sameiningu í Svíþjóð
STJÓRN Sparisjóðs Siglufjarðar
samþykkti einróma á fundi sínum í
gær tilboð Sparisjóðs Mýrasýslu í
allt stofnfé þess fyrrnefnda. Fyrir
átti Sparisjóður Siglufjarðar 40%
stofnfjár í Sparisjóði Mýrasýslu.
Ólafur Marteinsson, stjórnarfor-
maður Sparisjóðs Siglufjarðar, segir
að viðskiptin hafi verið samþykkt
með fyrirvara um samþykkt Fjár-
málaeftirlitsins.
Um 20 manns vinna hjá Sparisjóði
Siglufjarðar, en sparisjóðurinn mun
starfa áfram í óbreyttri mynd.
Sparisjóðir
sameinast
STOFNFISKUR hf. hefur keypt öll
hlutabréf í írska fyrirtækinu Galway
Aquatic Enterprise Ltd. (GAEL)
sem verður hluti af dótturfélagi
Stofnfisks í Írlandi.
Stofnfiskur er stærsti framleiðandi
á Íslandi á laxahrognum og er nú með
alls fimm starfsstöðvar, fjórar á suð-
vesturhorni landsins og eina á Norð-
urlandi. Fyrirtækið er auk þess leið-
andi í kynbótarannsóknum fyrir
fiskeldi. Galway Aquatic er seiða-
framleiðslufyrirtæki og framleiðir
milli 4–5 milljónir laxaseiða fyrir
áframeldi á ári.
Vigfús Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Stofnfisks, segir að með kaup-
unum skapist tækifæri fyrir Stofnfisk
að útvíkka starfsemi sína og komast
lengra inn í framleiðsluferlið. Hann
segir að Stofnfiskur hafi átt í nánu
samstarfi við Galway Aquatic um
margra ára skeið og átt lítinn hluta í
félaginu.
„Fyrirtækið býr við mjög góðar að-
stæður, þar eru vatnsgæði mikil og
það uppfyllir ströngustu heilbrigðis-
kröfur. Þessi kaup opna okkur þann-
ig dyr inn á markaði Evrópusam-
bandsins, meðal annars Skotland, þar
sem eru mikil umsvif í fiskeldi. Jafn-
framt munu þessi kaup gefa okkur
tækifæri til uppbyggingar á öðrum
eldistegundum en laxi, tegundum
sem hentar betur að ala innan landa
Evrópusambandsins. Eins má nefna
að á Írlandi eru stundaðar mjög öfl-
ugar rannsóknir á sviði fiskeldis sem
munu á efa nýtast okkur í framtíðinni
og við munum leggja áherslu á ýmis
rannsókna- og þróunarverkefni þar.“
Vigfús segir að ekki sé fyrirhugað
að flytja neitt af núverandi starfsemi
Stofnfisks á Íslandi til Írlands. Hann
segir að viðskipti Stofnfisks við lax-
eldisfyrirtæki í Skotlandi hafi vaxið
ört á undanförnum árum og með
kaupunum á írska fyrirtækinu verði
hægt að færa þjónustuna nær við-
skiptavinunum. „Megin markmiðið
með kaupunum er að njóta þeirrar
tækniþekkingar sem fyrir hendi er á
Írlandi og nálægðar við markaðinn.
Þannig hyggjumst við styrkja enn
stoðir fyrirtækisins og leggja grunn
að enn meiri vexti,“ segir Vigfús.
Stofnfiskur
kaupir
írskt seiða-
fyrirtæki
♦ ♦ ♦