Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 19
li
f
u
nBrúðkaup
Fimmtudagur 6. mars
Brúðkaupsblað fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 6. mars.
Meðal efnisþátta eru
matur, förðun, hárgreiðsla, fatnaður, skreytingar og gjafir.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á
auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða augl@mbl.is
Auglýsendur pantið fyrir kl. 16 föstudaginn 28. febrúar!
FLUGÖRYGGISFUNDUR verður
haldinn á Hótel KEA í kvöld og hefst
hann kl. 19.50. Þormóður Þormóðs-
son, rannsóknarstjóri Rannsóknar-
nefndar flugslysa, fer yfir flugóhöpp
og flugatvik liðins árs. Þá fjallar Hall-
grímur Jónsson, yfirflugstjóri Flug-
leiða, m.a. um starfsemi „Flight Saf-
ety Foundation“ og nýstofnaða
Íslandsdeild. Snorri Guðmundsson
flugvélaverkfræðingur, sem starfað
hefur við að hanna og þróa nýja gerð
einkaflugvéla, Cirrus-einkaflugvélar,
ræðir um vélarnar sem þykja ein
mesta tæknibylting í flokki fjölda-
framleiddra einkaflugvéla. Arngrím-
ur Jónsson, forseti Flugmálafélags
Íslands og einn eigenda Flugfélagsins
Atlanta, flytur ávarp í upphafi fundar.
Fundur um
flugöryggi
Akureyrarliðin Þór og KA mætast í
úrvalsdeildinni í handknattleik í
Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld,
miðvikudagskvöldið 26. febrúar, kl.
20. Þórsarar unnu síðustu viðureign
liðanna í deildinni með einu marki.
Gera má ráð fyrir að KA-menn
hyggi á hefndir og um hörkuleik
verði að ræða en stemningin er jafn-
an góð þegar liðin mætast.
Í DAG
NEMENDUR í fagurlistadeild
Myndlistarskólans á Akureyri
opna sýninguna „Glás“ í Galleríi
Gersemi, fyrir ofan Bláu könnuna
á fimmtudag, 27. febrúar kl. 17.
Sýningin er samvinnuverkefni
sem byggt er á
sjálfstæðum verkum nemend-
anna í umsjón Hlyns Hallssonar.
Verkin eru fjölbreytt m.a. inn-
setningar, textaverk, videoverk,
ljósmyndir, skúlptúrar, text-
ílverk, grafík og málverk.
Listnemarnir eru Anna Guð-
laug Jóhannsdóttir, Auður Brynj-
ólfsdóttir, Bergþór Mortens,
Björg Eiríksdóttir, Dagrún Sæv-
arsdóttir, Edda Þórey Kristfinns-
dóttir, Edda Sóley Þorsteins-
dóttir, Helga S.Valdimarsdóttir,
Herdís Björk Þórðardóttir, Ingi-
björg Matthíasdóttir, Jóna B. Jak-
obsdóttir, Jóna Hlíf Halldórs-
dóttir, Kjartan Sigtryggsson og
Unnur Óttarsdóttir.
Sýningin verður opin föstudag,
laugardag og sunnudag kl. 14–18.
„Glás“ í
Galleríi
Gersemi
Nemendur í fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri opna sýningu.
SAMNINGUR um samstarf Prok-
aria og auðlindadeildar Háskólans á
Akureyri um rannsóknir og kennslu í
líftækni hefur verið undirritaður.
Samningurinn treystir það samstarf
sem var á milli starfsmanna stofnan-
ana tveggja, jafnframt því sem Prok-
aria mun sjá um kennslu í nýju líf-
tækninámi við auðlindadeild
háskólans.
Eyjólfur Guðmundsson, deildar-
forseti auðlindadeildar, sagði að
samningurinn markaði tímamót í
starfsemi deildarinnar, því henni
væri mikilvægt að vera í góðu sam-
starfi við þá sem nýttu auðlindirnar.
Jakob K. Kristjánsson, forstjóri
Prokaria, kynnti starfsemi fyrirtæk-
isins við undirritunina en um er að
ræða líftæknifyrirtæki sem nýtir nýj-
ustu tækni við rannsóknir og hagnýt-
ingu á erfðaefni úr íslenskri náttúru
og er megináherslan lögð á ensím úr
hveraörverum. Fyrirtækið á nú yfir 5
þúsund örverur, eigin erfðamengi 5
bakteríutegunda og 5 veirutegunda,
en Prokaria er eina fyrirtækið í heim-
inum sem hefur einangrað og rað-
greint hitakærar veirur.
Í tilefni af samningnum við Há-
skólann á Akureyri hafa forsvars-
menn Prokaria ákveðið að veita ís-
lenskum vísindamönnum og
háskólanemum aðgang að erfðaupp-
lýsingum til vísindarannsókna og
námsverkefna. Erfðaupplýsingar eru
á meðal helsu verðmæta fyrirtækis-
ins og tíma þarf til að hagnýta þær.
Fyrirtækið mun því ekki birta upp-
lýsingar opinberlega og verða þær
lokaðar öðrum enn um sinn. Starfs-
menn Prokaria eru 27 talsins og er
það eitt öflugasta fyrirtæki í Evrópu
sem sérhæfir sig í hveraörverum og
vinnslu verðmætra gena beint úr
náttúrunni.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Há-
skólans á Akureyri, sagði mikilvægt
fyrir háskólann að tengjast svo öfl-
ugu rannsókna- og þekkingarfyrir-
tæki, „það er mikil lyftistöng fyrir
Háskólann á Akureyri að tengjast
þeirri öflugu sérfræðiþekkingu sem
Prokaria hefur yfir að ráða“, sagði
Þorsteinn. Hann nefndi að umhverfið
á Akureyri og nágrenni væri vænlegt
varðandi áframhaldandi uppbygg-
ingu á sviði líftækni og benti m.a. á að
mikill áhugi væri fyrir hendi innan
sjávarútvegsfyrirtækja bæjarins, „
sem vilja byggja upp og þróa líftækni
til að auka verðmæti sjávarafla“.
Samstarf milli Prokaria og auðlinda-
deildar Háskólans á Akureyri
Fá aðgang
að erfða-
upplýsingum
GUÐMUNDUR VE landaði um
950 tonnum af loðnu í Krossanesi í
gær og Ísleifur VE kom í Krossa-
nes í gærkvöld með um 1.200 tonn.
Þá landaði Sigurður VE um 1.500
tonnum á mánudag. Með afla Ís-
leifs hefur verið landað yfir 25.000
tonnum af loðnu í Krossanesi frá
áramótum, sem er mjög gott og
svipað magn og á sama tíma í
fyrra, að sögn Hilmars Steinars-
sonar verksmiðjustjóra. Hann
sagði að kvóti skipanna væri langt
kominn og ef ekki kæmi til viðbót-
arkvóti, færi vertíðin að styttast í
annan endann.
Morgunblaðið/Kristján
Skipverji á Guðmundi VE við loðnulöndun í Krossanesi.
Yfir 25.000 tonn af
loðnu í Krossanes
MJÖG harður árekstur varð á
þjóðvegi 1 í Öxnadal um
klukkan níu í gærmorgun, um
einn kílómetra vestan við bæ-
inn Syðri-Bægisá. Vörubíll og
fólksbíll skullu saman af miklu
afli og höfnuðu báðir utan
vegar. Ökumaður fólksbílsins
slasaðist töluvert en klippa
þurfti bíl hans til að ná honum út.
Ökumaður vörubílsins slapp
ómeiddur en báðir ökumennirnir,
sem voru einir í bílum sínum, voru
fluttir á slysadeild FSA.
Slökkvilið Akureyrar sendi tvo
sjúkrabíla, bíl með klippur og
dælubíl á staðinn. Lögreglan lok-
aði veginum um tíma vegna slyss-
ins.
Harður
árekstur
í Öxnadal
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn frá
Akureyri að störfum á slysstað.
Morgunblaðið/Kristján