Morgunblaðið - 26.02.2003, Side 20
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
„SVO eru konur sem harðbanna
mér að hætta. Ég verð kannski að
vera til hundrað ára aldurs,“ segir
Soffía Þorkelsdóttir sem rekið hefur
hannyrðaverslunina Álftá í Keflavík
í fimmtíu ár en hún er einnig þekkt-
ur myndlistarmaður í bæjarfélag-
inu.
Soffía stofnaði hannyrðaversl-
unina á neðri hæð íbúðarhúss síns á
Ásabraut 10 í Keflavík á árinu 1953
og þar er búðin enn til húsa. Versl-
unina kenndi hún við bæinn Álftá á
Mýrum þar sem Soffía er fædd og
alin upp. „Ég hafði mikinn áhuga á
handavinnu og hafði lengi langað til
að vera með eitthvað tengt slíku,“
segir Soffía um aðdragandann að
stofnun verslunarinnar. Hún segir
að engin handavinnubúð hafi þá
verið í Keflavík. Eftir að hún byrjaði
hafi verið opnaðar slíkar búðir en
allar hætt aftur, sumar eftir stuttan
tíma. „Ég var í eigin húsnæði, það
var hægara en að vera í dýru leigu-
húsnæði,“ segir Soffía.
Soffía sem orðin er 87 ára er allt-
af sjálf í versluninni en segir að dótt-
ir sín, Ása Ólafsdóttir myndlist-
armaður, hafi verið mikið með sér í
búðinni fyrr á árum. Hún er með op-
ið eftir hádegi virka daga og hefur
lokað um helgar.
Soffía telur að áhugi á handa-
vinnu hafi síst minnkað. Viðskiptin
gangi hins vegar upp og niður, held-
ur hafi dregið úr síðustu árin og þó
sérstaklega á síðasta ári. „Mér
finnst konur ekki hafa eins mikla
peninga nú til dags,“ segir hún. Þá
telur hún að aukið atvinnuleysi á
Suðurnesjum eigi þátt í samdrætt-
inum, margir hafi orðið fyrir upp-
sögnum.
Það er mikið til sama fólkið sem
kemur aftur og aftur í búðina til
Soffíu, mest konur úr Reykjanesbæ
og nærliggjandi stöðum eins og
Garði, Sandgerði og jafnvel úr
Grindavík. Þá er það ekki alveg
óþekkt að karmenn reki inn nefið.
Soffía segist vita til þess að einstaka
maður sé að prjóna sokka og svo
komi fyrir að þeir komi til að kaupa
garn í fluguhnýtingu.
Soffía segir að konurnar vilji ekki
að hún hætti með verslunina. „Þær
segjast ekki nenna að fara til
Reykjavíkur eftir einhverju smá-
legu og svo er líka orðið lítið um
handavinnubúðir í Reykjavík,“ segir
hún.
Þótt stundum sé lítið að gera við
verslunarstörfin kvartar Soffía ekki
undan aðgerðarleysi. Hún er með
vinnustofu inn af búðinni og þar ver
hún lausum stundum til að mála
myndir. Hún hefur haft það að
áhugamáli nánast jafnlengi og
verslunarreksturinn.
„Eiríkur Smith listmálari kenndi
okkur í Baðstofunni í tólf ár. Við
höfðum haft ýmsa ágæta kennara
áður en ég lærði mest hjá Eiríki,“
segir Soffía.
Vatnslitakassinn er opinn á vinnu-
stofunni inni af búðinni enda segir
Soffía að handhægast sé að grípa í
vatnslitapenslana. „Olíulitirnir eru
líka skemmtilegir en þá verður mað-
ur helst að hafa lokað vegna óþrifn-
aðarins sem fylgir þeim.“Annars
segist hún vera gjörn á að prófa
nýtt. Nefnir sem dæmi klippimyndir
sem hún hefur verið dugleg við að
gera. Segir að þær séu skemmti-
legar enda dugi þá ekki að hugsa
um fyrirmyndir heldur verði hún að
hugsa verkið sjálf frá grunni. Hún
segist alltaf selja eina og eina mynd.
„Konurnar
harðbanna
mér að loka“
Morgunblaðið/Helgi BjarnasonSoffía Þorkelsdóttir hefur rekið hannyrðaverslunina Álftá í Keflavík í fimmtíu ár.
Keflavík
Grípur í penslana
þegar enginn
er í búðinni
fólk meira á veitingastaðinn en áð-
ur. Í þeim tilgangi verður aukið við
framboðið á matseðlinum og til
stendur að halda einhvers konar
uppákomur tvisvar í mánuði, helst
með lifandi tónlist. Anton og Inga
Fríða segja að Sandgerðingar séu
áhugasamir um það sem gert sé í
bæjarfélaginu og fjölmenni yfirleitt
PITSUSTAÐURINN Mamma mia
hefur opnað að nýju í Sandgerði
eftir gagngerar endurbætur og
stækkun. Eigendurnir reyna með
þessu að sækja á ný mið.
Anton Ólafsson og Inga Fríða
Guðbjörnsdóttir hafa rekið Mömmu
miu í rúm tvö ár. Reksturinn bygg-
ist mest á að útbúa pitsur og senda
heim til fólks. Þó hefur verið að-
staða á veitingastaðnum til að bera
fram pitsur og aðrar léttar veit-
ingar.
Veitingastaðurinn er við Hafn-
argötu, í endanum á gömlu salthúsi.
Aðstaðan var lítil og nauðsynlegt
að ráðast í breytingar. Anton segir
að þau hafi ákveðið að stíga skref í
viðbót, fá aukið húspláss, end-
urnýja staðinn og stækka. Opnuðu
þau nýja veitingasalinn um helgina.
Þau munu leggja áherslu á að fá
á slíka viðburði. „Annars hefur
þetta gerst svo hratt hjá okkur að
við höfum ekki haft ráðrúm til að
átta okkur á því hvernig við getum
best nýtt þessa aðstöðu. Það verður
að koma í ljós,“ segir Inga Fríða.
Í nýja salnum eru sjónvörp og
einnig stórt tjald til að horfa á út-
sendingar. Anton segir að áhuga-
menn um knattspyrnu og aðrar
íþróttir hafi komið saman á gamla
staðnum til að fylgjast með leikjum
sinna liða og öðrum íþrótta-
viðburðum. Umtalsverður hluti við-
skiptanna hafi til þessa tengst
íþróttunum. Með nýja salnum batni
aðstaðan fyrir þennan hóp til mik-
illa muna.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Inga Fríða Guðbjörnsdóttir og Anton Ólafsson með dætrunum, Bríeti Sif og Söru Rún Hinriksdætrum.
Viljum fá
fleira fólk
inn á
staðinn
Sandgerði
ALLS hófu 2.863 nemendur nám í
átta grunnskólum á Suðurnesjum í
haust. Flestir eru í Heiðarskóla í
Keflavík, 492.
Hagstofan hefur gefið út upplýs-
ingar um fjölda nemenda í skólum
landsins í haust.
Þar kemur fram að Heiðarskóli
og Holtaskóli, báðir í Keflavík, eru
fjölmennstu skólarnir á svæðinu. Í
Heiðarskóla eru 492 nemendur og
478 í Holtaskóla. Fámennasti skól-
inn er Stóru-Vogaskóli í Vatns-
leysustrandarhreppi með 178 nem-
endur.
Grunnskólanemendum á Suður-
nesjum hefur fjölgað um liðlega
sextíu frá haustinu á undan, úr
2.802 í 2.863.
Hagstofan hefur einnig gefið út
tölur um starfslið grunnskóla í
haust. Þar kemur fram að tæplega
72% þeirra sem starfa við kennslu
í grunnskólum Suðurnesja hafa
kennsluréttindi.
Er það heldur hærra hlutfall en
á síðasta vetri en talsvert undir
landsmeðaltali sem er liðlega 80%.
!"
#$
&%
& '
&(!)(*&
!
"!
Flestir nem-
endur í
Heiðarskóla
Suðurnes
BÆJARSTJÓRN Reykjanes-
bæjar hefur samþykkt tillögu
umhverfis- og skipulagsráðs að
breytingum á umferð í Kefla-
vík.
Einstefna verður á Garða-
vegi til norðurs, frá Tjarnar-
götu að Aðalgötu. Þá verður 30
km hámarkshraði á Garðavegi.
Einstefna á
Garðavegi
Keflavík
SVÆÐIÐ „Broadstreet“ við Seltjörn sem Lit-
boltafélag Suðurnesja og Vélhjólaíþróttafélag
Reykjaness hafa formlega fengið afnot af til æf-
inga og keppni tekur nafn sitt af fjarskiptasendi-
stöð sem varnarliðið rak þar til ársins 1955.
Steyptu húsatóftirnar sem blasa við af Reykjanes-
brautinni eru byggingar fjarskiptastöðvarinnar.
Þessi stöð var upphaflega reist á stríðsárunum,
samkvæmt upplýsingum Friðþórs Eydal upplýs-
ingafulltrúa varnarliðsins, og stóð þá við gamla
Grindavíkurveginn þar sem hann lá frá vegamót-
um gamla Keflavíkurvegarins uppi á Vogastapa
og niður að Seltjörn. Húsið sem þarna stendur eft-
ir var reist yfir starfsemina árið 1948 er stöðin
þjónaði þá fjarskiptum vegna Keflavíkurflugvallar
sem þá var rekinn af bandarísku verktakafyrir-
tæki.
Eins og sést á þessu er það ekki rétt sem fram
kom í blaðinu á dögunum að rústir gamals her-
sjúkrahúss væru á „Broadstreet.“ Friðþór segir
að þessu sé oft ruglað saman. Spítalinn stóð á flöt-
inni sem Reykjanesbrautin liggur um austast á
Vogastapanum, þ.e. strax þegar komið er upp
fyrstu brekkuna á leið frá Reykjavík. Þar liggur
vegur á hægri hönd upp á gamla Keflavíkurveginn
og var upphaflega vegurinn niður í spítalakamp-
inn. Spítalinn eyðilagðist í bruna árið 1946 og það
sem eftir stóð var fjarlægt. Þar sjást því engar
húsatóftir. Þó má enn sjá norðanvert við Reykja-
nesbrautina á leið upp brekkuna steypta brunna á
stangli sem marka legu skolplagnarinnar sem lá
frá spítalanum og til sjávar í Vogavík.
Gapandi tóftir fjarskiptasendistöðvar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Leifar húss fjarskiptasendistöðvar varnarliðsins
á „Broadstreet“, skammt frá Seltjörn.
Broadstreet