Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ N eville Chamberlain forsætisráðherra Breta lét undan yfirgangi nasista árið 1938, skömmu fyrir heimsstyrjöldina síðari. Winston Churchill hélt því fram að það hefðu verið mistök. Hann sagði við Chamberlain: „Þér var gefinn kostur á að velja milli stríðs og vansæmdar. Þú valdir vansæmd og hlýtur stríð.“ Í Englandi hefur skapast hefð fyrir hárfínni og oft kaldhæðinni kímni – svokölluðum breskum húmor. Churchill hafði þessa náðargáfu og má segja að hún hafi verið andstæða þess sem hann lýsti í fari ræðumanna á borð við Charles Ber- esford lávarð: „Áður en þeir stíga upp í pontu, þá vita þeir ekki hvað þeir ætla að segja. Á með- an þeir tala, þá vita þeir ekki hvað þeir eru að segja. Og eftir að þeir eru sestir, þá vita þeir ekki hvað þeir hafa sagt.“ Það var mikil upplifun að heyra breskan húmor á uppi- standi í The Comedy Store í Lundúnum. Þéttsetinn bekkur áhorfenda hló hjartanlega að beinskeyttum bröndurum um náungann og aldrei meira en þegar aðrir áhorfendur úr saln- um voru teknir fyrir. Sjaldnast áttuðu þeir sig á því að þeir væru í raun að hlæja að sjálfum sér – því brandararnir áttu jafnan víða skírskotun. Enda sagði Jonathan Swift að háðsádeila væri eins konar speg- ill sem fólk speglaði sig í og sæi ásjónu allra annarra en sína eig- in. Ef einhver ætlaði líka að vera fyndinn og kallaði fram úr saln- um, þá var honum umsvifalaust velt upp úr tjöru eins og í villta vestrinu, svo biksvartur var húmorinn. Aðferðafræðin var einföld. Ef framíkallinu var ætl- að að vera fyndið, þá var hinn meinti brandari krufinn háðskt af þeim sem stóð á sviðinu. Þeg- ar brandari er strípaður með slíkri greiningu, stendur sá sem sagði brandarann nakinn eftir. Uppistand hefur löngum tíðk- ast á Íslandi. Og skemmtikröfur áhorfenda eru ekki síður miklar, þótt skemmtikraftarnir gefi sig út fyrir að hafa annan og virðu- legri starfa. Það má segja að uppistandið hefjist fyrir alvöru þegar líður að kosningum. Þá fljúga hnúturnar á milli fram- bjóðenda og menn sem annars eru samstarfsmenn og jafnvel vinir fara í hár saman. Á þjóðarsviðinu getur mælsk- an verið stjórnmálamönnum til framdráttar, en þó getur hún komið þeim í koll. Þannig eru sumir stjórnmálamenn svo hrifn- ir af eigin mælsku að þeir ráða hreinlega ekki við sig. Þeir ráð- ast fram á völlinn á röngum tíma og af misráðnum tilefnum. Og eiga fyrir vikið á hættu að vera ekki teknir alvarlega. Benjamin Disraeli var bent á að róttæklingurinn og mælsku- maðurinn John Bright hefði komist áfram af eigin rammleik og væri sjálfskapaður. „Ég veit hann er það,“ sagði Disraeli. „Og hann dáir skapara sinn.“ Sumum ræðumönnum finnst sem þeir þurfi að vera grófir og dónalegir til að vera hnyttnir í tilsvörum. Oftast verður það að- eins neyðarlegt og til marks um takmarkaða kímnigáfu eða orða- forða. Listin er að slá andstæð- inginn út af laginu án sárinda eða fúkyrðaflaums. Stundum er það gert með því að leggja út af orðum viðkomandi eða jafnvel taka undir með honum. Af Ólafi Thors eru til margar góðar sögur. Þannig á hann að hafa lofað kjósendum sínum raf- magni á framboðsfundi, en ekki varað sig á því að rafmagnið var nýkomið. Guðmundur I. Guð- mundsson þingmaður Alþýðu- flokksins stóð þá upp og kveikti ljós í fundarsalnum. „Þarna sjáið þið,“ sagði þá Ólafur. „Maður er ekki fyrr bú- inn að sleppa orðinu, en það er komið í framkvæmd.“ Margir fara þá leið að leggja út af orðum andstæðinga sinna, þannig að þau hafi öfug áhrif. Í vorkosningunum árið 1946 héldu sumir því fram að það ættu að vera tveir kjördagar í sveitum. Halldór Kristjánsson á Kirkju- bóli var í framboði fyrir Alþýðu- flokkinn á móti Ásgeiri Ásgeirs- syni, sem síðar varð forseti. Halldór greip fram í á öllum fundum og sagði: „Hvað um tvo kjördaga í sveitum?“ Ásgeir lét sem hann heyrði það ekki þangað til á síðasta fundinum á Suðureyri í Súg- andafirði. Þá svaraði Ásgeir: „Mér hefur hingað til nægt einn dagur til að vera kjörinn á þing, en ég efast um að Halldóri nægi tveir.“ Það má segja að tilsvörin sem skráð hafa verið á spjöld sög- unnar séu flest í þeim dúr, að framíköllum er snúið upp í aula- fyndni. Enda er húmor í eðli sínu aulahúmor. Það er ekki hægt að taka hann alvarlega. Gildir þá einu þótt fyrirspyrj- andanum hafi verið dauðans al- vara. Hnyttni telst víst seint mjög málefnaleg, en áhrifarík er hún. Hvað geta stjórnmálamenn líka sagt í endalausu argaþrasi kosninganna? Það er nú einu sinni svo að stjórn landsmálanna verður að taka mið af ytri skil- yrðum. Ef teflt er fram löngum loforðalista er það ekki trúverð- ugt af því kringumstæður breyt- ast. Að ætla að halda í þau öll yrði aðeins til marks um þver- móðsku. Kominn er urgur í frambjóð- endur fyrir kosningarnar í vor. Ef til vill er alvaran meiri en á dögum Disraelis og Churchills, Ólafs Thors og Ásgeirs Ásgeirs- sonar. Nú keppast fjölmiðlar við að sundurgreina miskunnarlaust alla hnyttni sem kastað er fram. Eftir standa berstrípaðir fram- bjóðendur með langa óskalista, sem þjóðin hefur ekki efni á. Og það er ekkert fyndið. Hnyttni í tilsvörum Uppistand hefur löngum tíðkast á Íslandi. Og skemmtikröfur áhorfenda eru ekki síður miklar, þótt skemmti- kraftarnir gefi sig út fyrir að hafa annan og virðulegri starfa. VIÐHORF Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is ✝ Jón Guðmunds-son fæddist á Blesastöðum á Skeiðum 14. mars 1911. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 13. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Guð- mundur Magnússon, f. 1878, d. 1972, og Kristín Jónsdóttir, f. 1886, d, 1971, ábú- endur á Blesastöðum á Skeiðum. Jón var elstur 16 systkina en þau voru: Magnús, f. 1912, d. 1997, Hermann, f. 1913, d. 1980, Guðrún, f. 1914, d. 1997, Elín, f. 1916, Helga, f. 1917, Þor- björg, f. 1918, Magnea, f. 1919, d. 2000 , Laufey, f. 1920, Ingigerð- ur, f. 1921, stúlka, f. 1922, d. 1922, Óskar eldri, f. 1923, d. 1924, Svanlaug, f. 1924, Ingi- björg, f. 1925, Hrefna, f. 1927 og Óskar yngri, f. 1929. Jón hóf búskap árið 1935 með Guðrúnu Ásgeirsdóttur, f. 4.11. 1912, d. 11.7. 2000 frá Eiði í Hestfirði. Jón og Guðrún hófu sinn búskap á Blesastöðum á Skeiðum en fluttu árið 1940 til Hveragerðis. Þau slitu samvist- um árið 1973. Eignuðust þau sex börn og þau eru: 1) Þórarinn Ingi, f. 1935, kvæntur Björgu Hjartardóttur, f. 1937, og eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. 2) Guðmundur Kr., f. 1937, kvæntur Val- gerði Magnúsdóttur, f. 1941, og eiga þau þrjár dætur, átta barnabörn og eitt barnabarnabarn. 3) Ásgeir, f. 1942, kvæntur Maríu Hall- dórsdóttur, f. 1936, og eiga þau fjögur börn og þrjú barna- börn. 4) Sigurður, f. 1945, og á hann einn son og eitt barnabarn. 5) Bryndís, f. 1949, gift Ágústi Þorgeirssyni, f. 1949, og eiga þau fjögur börn og tvö barnabörn. 6) Valgeir, f. 1954, kvæntur Ingibjörgu Jóhannes- dóttur, f. 1954, og eiga þau þrjár dætur. Afkomendur Jóns og Guð- rúnar eru nú 47. Jón gekk í barnaskólann í Brautarholti og fór síðar á Hér- aðsskólann á Laugarvatni. Ungur byrjaði Jón að stunda smíðar og lærði hann síðar þá iðn sem var starfsvettvangur hans alla tíð. Jón var byggingameistari að mörgum byggingum á Suður- landi og má þar nefna Heilsuhæli NLFÍ og Hveragerðiskirkju. Útför Jóns verður gerð frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi og tengdapabbi Við andlátsfregn þína allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn tjáð var í bænunum mínum, en guð vill fá þig og hafa þig með englunum sínum. Við getum ei breytt því, sem frelsarinn hefur að segja, um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð Við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum við að muna, að guð, hann er góður og að hann veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért og horfinn burt þessum heimi, ég minningu þína ávallt í hjart mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Jónsdóttir.) Með þessu ljóði viljum við kveðja þig, elsku pabbi og tengdapabbi, og þakka þér fyrir alla þá umhyggju og ást sem þú gafst okkur og börnunum okkar. Megi Guð fylgja þér á nýjum slóðum. Minning þín lifir áfram í hjörtum okkar. Ástarkveðjur. Bryndís og Ágúst. Elsku afi. Lasleiki hafði hrjáð þig æ oftar síðustu árin en alltaf hafði þitt stóra hjarta vinninginn. Er mamma hafði samband við mig nokkrum dögum áður en þú lést og sagði mér að þú værir orðinn ansi slappur, hafði ég enga trú á því að þú myndir ekki rífa þig upp úr þessu, líkt og þú varst vanur að gera. Á stundu sem þessari streyma fram minningarnar. Enda varst þú stór partur af uppvexti mínum. Þú varst svo miklu meira en venjulegur afi. Hjartalag og umhyggja þín var engu lík. Alltaf vissir þú hvað var að gerast í lífi okkar og tókst þátt af mikilli innlifun í sigrum okkar og sorgum. Við bjuggum fyrstu fjögur árin mín í húsinu þínu á meðan mamma og pabbi gerðu húsið okkar klárt. Ég man ekki margt frá þessum tíma enda ung að árum. En alltaf er mér í fersku minni er þú komst með „lifandi“ páskaunga í pappakassa. Ekki man ég af hverju þú varst með þessa unga en mikið fannst okkur þetta gaman, mér og Jóni Inga bróð- ur. Til eru ófáar myndir af okkur systkinunum með þér. Við að atast á þér eða uppi í kjöltu þinni. Alltaf var faðmurinn opinn og eitthvert skiptið var haft eftir þér að „Telpan verður nú aldrei of stór til þess að koma upp í fangið á mér.“ Mamma hafði líka gaman af að sjá okkur um síðustu jól, ég sitjandi þétt upp við þig (enda orðin of þung til þess að þú gætir haldið á mér) með handlegginn utan um þig. Margar voru helgarferðirnar sem lítil stelpa fór með rútunni til Hvera- gerðis og alltaf tókstu á móti mér með opin faðminn. Söl frá Hælinu og Júmbó hamborgar, eða heimalagaðar pylsur voru í uppáhaldi. Aldrei þreyttist þú á að spila rommý við mig. Þú varst ótrúlega hress langt fram eftir aldri en þó að líkaminn væri far- inn að gefa sig þá var hugurinn alltaf á sínum stað. Þú ferðaðist víða um landið og hafðir mikla ánægju af. Ófá voru ferðalögin sem þú tókst okkur systkinin með í. Fyrst okkur Jón Inga og svo seinna Jóhönnu. Minn- isstæð er mér ferð þín með Þorfinni mági þínum og Þorgeiri vini þínum sumarið 1998. Þið höfðuð farið inn í Kerlingarfjöll og fleiri staði og endað inni á Laugarvatni, þar sem þú hafðir heyrt að ég og litla fjölskyldan mín værum stödd í sumarbústað. Þú komst drulluskítugur upp fyrir haus en brostir allan hringinn, ánægður með vel heppnaðan túr. Þarna áttum við yndislegar stundir saman, enda átti Laugarvatn stóran stað í hjarta þínu sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir fyrr en þá. Við skoðuðum gamla skólann þinn, Héraðsskólann, og aðr- ar byggingar sem standa enn frá þeim tíma er þú varst þarna í skóla. Þú fræddir mig og safnvörðinn mikið um þann tíma. Þú og skólabræður þínir höfðuð gert ykkur lítið fyrir og byggt íþróttahús þennan vetur sem þú varst þarna. Svona vinnubrögð og fórnfýsi myndi ekki þekkjast í dag! Elskulegi afi ferðagarpur! Góða ferð í ferðalagið. Takk fyrir allt. Þín afastelpa, Sigurveig. Okkur langar að minnast afa okkar í örfáum orðum en það hafði mátt bú- ast við því í þó nokkurn tíma að hann færi að kveðja okkur því líkaminn var orðinn þreyttur. Sem betur fer varð sjúkrahúslega hans mjög stutt í þetta síðasta skiptið því ekkert líkaði afa verr en að liggja á spítala vegna þess að hann vildi alltaf hafa nóg að gera og taka þátt í lífinu af fullum hug og það gat hann ekki liggjandi á spítala. Afi fylgdist mjög vel með öllu til síðasta dags hvort sem um var að ræða þjóðfélagsmál eða fjölskyldan. Sem dæmi má taka að hann keypti sjálfur allar jólagjafir handa langafa- börnunum sínum fram að níræðu og voru þetta alltaf mjög góðar gjafir sem hæfðu aldri hvers barns mjög vel. Hann vildi alltaf vera þátttakandi í því sem var að gerast hverju sinni og fyrir fjórum árum þá var eitt okk- ar systkina að undirbúa fermingar- veislu og afi kom með pabba að líta á salinn þá var gamli maðurinn fljót- lega kominn í það að hjálpa við að raða borðum og stólum og meira segja að setja dúkana á borðin. Afi hafði ekki bara áhuga á sínum nánustu, stórfjölskyldan þ.e. systkini hans og afkomendur þeirra skipuðu líkan stóran sess hjá honum og helst vildi hann hafa ættarmót á hverju ári þannig að hann gæti fylgst vel með öllum. Ættarmót afkomenda foreldra hans frá Blesastöðum voru venjuleg- ast haldin á fjögurra ára fresti en afi kom því til leiðar að haldið var eins- konar aukaættarmót á milli ættar- móta svo hann gæti nú hitt alla. Sem betur fer lifði afi að komast á ætt- armót síðastliðið sumar sem haldið var í Brautarholti á Skeiðum. Að sjálfsögðu vildi hann nú líka vera full- gildur þátttakandi þar og þegar verið var að undirbúa matinn í eldhúsinu þá var afi kominn þangað til þess að vita hvort allt færi nú ekki vel fram. Eins vildi hann líka fylgjast vel með því sem var að gerast í sveitinni sinni og fór þess á leit við pabba okkar að hann keyrði með sig á einhverja bæi á sunnudagsmorgninum svo hann gæti fengið fréttir af gömlum sveit- ungum og hverjir væru ábúendur hvar o.s.frv. Já, minningin um afa lifir í hjörtum okkar, minning um mann sem alltaf vildi hafa nóg fyrir stafni og fylgjast vel með sínu fólki. Smári, Rósa og Björk. Elsku afi minn, það eru margar minningarnar sem koma í huga mér við fráfall þitt. Fyrst og fremst minn- ingin um alla þá hlýju og ástúð sem þú veittir mér. Ég var ekki gömul þegar að ég byrjaði að þvælast ein í rútunni austur í Hveragerði til að fá að vera með þér. Margar dýrmætar samverustundir áttum við saman. Þær voru ófáar stundirnar sem við sátum saman og spiluðum rommí. Þau voru mörg ferðalögin sem þú bauðst mér í og við gistum í rauða tjaldinu þínu. En Lambhagaferðirn- ar eru mér alltaf kærastar. Það á eft- ir að vera tómlegt að fara í Lamb- haga án þín, afi minn. Elsku afi minn takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, þú átt alltaf eftir að eiga stað í hjarta mínu. Að lokum vil ég kveðja þig með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta JÓN GUÐMUNDSSON Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.