Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NJARÐVÍKINGAR hafa fengið
bandarískan leikmann til reynslu
og mun hann leika með liðinu
gegn Grindavík á föstudag. Leik-
maðurinn heitir Gregory Harris og
er 25 ára gamall bakvörður sem
hefur leikið sem atvinnumaður
með Wevelgem í Belgíu og var
hann stigahæsti leikmaður deild-
arinnar keppnistímabilið 2000–
2001 og að auki var hann með
flestar stoðsendingar að meðaltali.
Harris var leystur undan samningi
sínum við félagið ári síðar vegna
meiðsla.
Harris lék í fjögur ár með há-
skólaliði Mt.St. Mary’s þar sem
hann skoraði rúm 16 stig að með-
altali. Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Íslandsmeistaraliðs Njarðvíkur,
sagði í gær að hann vonaðist til
þess að Harris gæti leyst þau verk-
efni sem honnum væru ætluð og
markmiðið væri að verja titilinn.
„Við erum ekki það lið sem er lík-
legast til þess að vinna Íslands-
mótið en við stefnum auðvitað að
því að verja titilinn og miðað við
fortíð Harris vonar maður að hann
sé rétti maðurinn fyrir okkur. En
við verðum að láta verkin tala,“
sagði Friðrik en Njarðvík hóf leik-
tíðina með Bandaríkjamanninn
Peter Philo sem fór vegna meiðsla
og á dögunum var Gary Hunter
sagt upp störfum. Njarðvíkingum
hefur ekki gengið vel að und-
anförnu. Þeir hafa tapað fjórum af
fimm síðustu leikjum sínum og eru
í sjötta sæti deildarinnar.
Gregory Harris
kominn til liðs við
Njarðvíkinga
RÓBERT Gunnarsson skoraði 5
mörk fyrir Aarhus GF og Þorvarður
Tjörvi Ólafsson 4 þegar liðið tapaði
fyrir Skjern, 29:25, í dönsku 1. deild-
inni í handknattleik í fyrrakvöld.
Aarhus er í fimmta sæti deildarinnar
með 21 stig en Kolding er í toppsæt-
inu með 29 stig.
EXETER City sem situr á botni
ensku 3. deildarinnar og á þar með á
hættu að falla út úr deildarkeppninni
í vor rak í gær annan knattspyrnu-
stjóra sinn á tímabilinu. Sá sem fékk
að taka poka sinn að þessu sinni var
Neil McNab en í október fékk John
Cornforth reisupassann.
JEAN Tigana, knattspyrnustjóri
Fulhams, ætlar að áfrýja dómi Grah-
ams Barbers sem vísaði Maik Tayl-
or, markverði Fulhams, af velli í
leiknum við Tottenham í fyrrakvöld.
Tigana segir að Simon Davies hafi
látið sig falla eftir viðskipti við Tayl-
or og sjónvarpsupptaka af leiknum
sýni að Taylor var á undan Davies í
knöttinn og því hafi ekki verið um
vítaspyrnu að ræða.
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Skota í knattspyrnu, segist ekki hafa
í hyggju að láta af störfum sem
landsliðsþjálfari áður en samningur
hans við skoska knattspyrnusam-
bandið rennur út árið 2005. Eigin-
kona Vogts, Monika, hefur verið
mikið veik undanfarna mánuði – ver-
ið á sjúkrahúsi í Þýskalandi vegna
hjartakvilla og sögusagnir hafa verið
kreiki í Þýskalandi að vegna þess
kynni Vogts að láta af störfum fyrr
en ella.
VOGTS segir að það komi ekki til
greina. Hann segir að honum og fjöl-
skyldunni líði ákaflega vel í Skot-
landi. „Ég er með samning til 2005
og ég vil helst vera lengur í Skotlandi
því mér líður eins og heima að vera
hér,“ segir Vogts.
BANDARÍSKI landsliðsmark-
vörðurinn Kasey Keller hefur skrif-
að undir saming við enska úrvals-
deildarliðið Tottenham Hotspur sem
framlengir núverandi samningi hans
um eitt ár. Keller er 33 ára gamall og
hefur staðið sig vel á leiktíðinni en
Keller hefur leikið alla leiki liðsins á
tímabilinu.
BAKVÖRÐUR NBA-liðsins Dall-
as, Nick Van Exel, hefur verið gert
að greiða 1,5 millj. ísl. kr. í sekt eftir
að hann lét dómara fá það óþvegið
eftir sigurleik liðsins gegn Wash-
ington. David Stern, framkvæmda-
stjóri deildarinnar, hafði boðað
strangari viðurlög fyrir óíþrótta-
mannslega hegðun og er Van Excel
fyrsta „fórnarlambið“ vegna aðgerða
í deildinni.
FÓLK
UNGLINGAMÓT KR í sundi
fer fram í Sundhöll Reykjavík-
ur um næstu helgi og hefst
það á föstudagskvöld. Hátt í
500 þátttakendur taka þátt í
mótinu og koma til leiks þrett-
án sundmenn frá Danmörku.
Á laugardagskvöld fer fram
KR Super Challenge-keppni í
sundi þar sem átta bestu karl-
ar og konur hvorrar þjóða
muni keppa innbyrðis í flug-
sundi með útsláttarfyr-
irkomulagi.
Til að gera umgjörðina á
mótinu sem skemmtilegasta
verður settur upp sérstakur
ljósabúnaður og hljóðkerfi í
höllinni. Þá verður sett upp
áhorfendastúka yfir grunnu
laugina.
Danskir
sund-
menn í
heimsókn
Leikmenn virtust nokkuð tauga-trekktir í upphafi leiks, mikið
um mistök og óþarfa pústra manna á
milli, en sem betur
fer bráði óþolinmæð-
in af mönnum og úr
varð ágætur leikur –
alltént spennandi
leikur. Spennan náði hámarki undir
lokin. ÍR jafnaði þegar ein og hálf
mínúta var eftir og þegar hálf mín-
úta var eftir varði Hreiðar Guð-
mundsson, markvörður liðsins, skot
Framara og ÍR tók leikhlé og lagt
var á ráðin. Niðurstaðan var að láta
boltann ganga smástund og fara síð-
an inn úr hægra horninu. Það gerði
Ragnar Helgason þegar fimm sek-
úndur voru eftir og Héðinn Gilsson
braut á honum. Héðni var vikið af
velli og vítakast réttilega dæmt.
Sturla Ásgeirsson, fyrirliði ÍR, fór á
línuna og til varnar var fyrirliði
Fram, Sebastían Alexandersson.
Fyrirliði ÍR hafði betur og tryggði
liði sínu sigur.
Heimamenn hófu leikinn betur en
gestirnir og gerðu fyrstu tvö mörkin
en Breiðhyltingar gáfust ekki upp,
léku ágæta 3-2-1 vörn og náðu að
jafna 3:3 og síðan var jafnt á öllum
tölum upp í 7:7 en heimamenn þó
alltaf með frumkvæðið. Fram komst
í 9:7 og 11:9 og það fannst Júlíusi
Jónassyni, þjálfara ÍR, nóg og tók
leikhlé. Það hafði góð áhrif því liðið
gerði næstu þrjú mörk og komst yfir
í fyrsta sinn, 11:12, og 13:14, í leik-
hléi.
Upphaf síðari hálfleiks var svipað
og þess fyrri því Fram gerði fyrstu
tvö mörkin og spennan hélt áfram
allt til loka þar sem liðin skiptust á
um forystuna, eitt til tvö mörk.
ÍR komst í 17:20 eftir átján mín-
útna leik og Framarar skoruðu að-
eins eitt mark í 11 sóknum. Síðan
kom kafli þar sem allt gekk heima-
mönnum í hag, ýmsir dómar og tveir
útafrekstrar gerðu það að verkum að
ÍR-ingar voru einum færri í fjórar
mínútur samfellt og það nýttu Fram-
arar sér og jöfnuðu en Hreiðar varði
vítakast og bjargaði gestunum þann-
ig. Fram komst samt yfir skömmu
síðar, 23:22.
Hjá Fram átti Sebastían ágætan
dag í markinu, Guðjón Finnur
Drengsson var sprækur í fyrri hálf-
leik og öruggur á vítalínunni í þeim
síðari, leikstjórnandinn Valdimar
Þórsson átti fína spretti og Haraldur
Þorvarðarson stóð í ströngu á lín-
unni. Þorri Björn Gunnarsson var
fínní horninu fyrir hlé en hornin
nýttust lítt eftir hlé. Vörn Fram var
lengstum ágæt, einn fyrir framan
sem truflaði sókn gestanna.
Hjá ÍR var Hreiðar sterkur í
markinu, Sturla var sprækur, Ingi-
mundur Ingimundarson, Kristinn
Björgúlfsson, Guðlaugur Hauksson
og Ólafur Sigurjónsson allir ágætir.
Fannar Þorbjörnsson átti erfiðan
dag á línunni en gaf þó ekkert eftir
þrátt fyrir að fá lítið fyrir sinn snúð.
Tuttugasta tap Selfoss
Leikmenn Aftureldingar lukuskylduverki þegar þeir lögðu
Selfoss á heimavelli í gærkvöldi,
31:24, og þar með
varð 20. tap Selfoss í
21 leik á Íslands-
mótinu staðreynd.
Viðureignin verður
lítt minnisstæð enda var hún frekar
illa leikinn, leikmenn voru mistækir
og virtust á stundum ekki taka leik-
inn mjög alvarlega enda spilað upp á
fátt annað en stoltið.
Selfyssingar virtust ætla að hrista
af sér slyðruorðið í upphafi leiks þeg-
ar þeir náðu frumkvæðinu. Heima-
menn færðu sig hins vegar fljótlega
upp á skaftið, skoruðu hvert markið
á fætur öðru eftir hraðaupphlaup og
náðu sex marka forskoti, 12:6. Þar
með var eins og þeir héldu að björn-
inn væri unninn, en svo reyndist ekki
vera. Leikmenn Selfoss bitu frá sér
og söxuðu á forskot heimamanna á
þeim tíma sem Afturelding gaf yngri
leikmönnum tækifæri á að spreyta
sig. Leikmenn Selfoss jöfnuðu metin
og komust yfir, 15:14.Afturelding
jafnaði metin með marki rétt fyrir
lok fyrri hálfleiks.
Í upphafi síðari hálfleiks héldu
leikmenn Selfoss áfram að berjast af
krafti með von um að geta brotið
Mosfellinga á bak aftur. Framliggj-
andi vörn Selfoss-liðsins reyndist
leikmönnum Aftureldingar erfið.
Selfyssingar náðu tveggja marka
forskoti, 20:18. Þar með gyrtu Mos-
fellingar sig í brók, skoruðu fimm
mörk í röð á stuttum kafla. Eftir það
rann mótspyrna leikmanna Selfoss
út í sandinn og heimamenn sigldu
fleyi sínu örugglega í höfn. Getum-
unur liðanna kom glögglega í ljós á
síðasta stundarfjórðungnum.
Gísli Guðmundsson markvörður
var besti leikmaður Selfoss í leiknum
og frammistaða Harðar Bjarnasonar
vakti athygli. Þar er á ferð snjall örv-
hentur leikmaður.
Reynir Þór Reynisson stóð fyrir
sínu í marki Aftureldingar. Jón
Andri Finnsson var sterkur eins og
svo oft áður og Sverrir Björnsson
var drjúgur þrátt fyrir að hafa gert
alltof mörg mistök í sókninni.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fannar Þorbjörnsson virðist hissa á einhverju þar sem hann er með boltann.
Sigurmark frá Sturlu
ÍR-INGAR gefa ekkert eftir í baráttunni um efstu sætin í Esso-deild
karla í handknattleik. Í gærkvöldi lögðu þeir Framara 23:24 í Fram-
heimilinu og endurtóku þar með leikinn frá því liðin mættust í fyrri
umferðinni fyrir fjórum mánuðum, þá vann ÍR líka með einu marki,
25:24. ÍR skaust í annað sætið með sigrinum en Fram er sem fyrr í
sjöunda sæti, tveimur stigum á undan FH sem á leik til góða.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Ívar
Benediktsson
skrifar