Morgunblaðið - 26.02.2003, Síða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 10. Enskur texti
Stranglega b.i. 16 ára.
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem hefur
allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við “The Sixth Sense”
Áður en þú deyrð,
færðu að sjá
Hann hafði
drauma-
stúlkuna við
hlið sér...
...en áttaði
sig á því
þegar hún
var farin
Frumsýnd 28. febrúar
Sýnd kl. 6. ísl tal. Engin sýning í dag, sýnd á morgun.
Sýnd kl. 8 og 10.10. Sýnd kl. 8 og 10.
Radíó X
HK DV
ÓHT Rás 2
í mynd eftir Steven Spielberg.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8.
2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Aukahlutverk karla: Christopher Walken
Besta tónlistin: John Williams.
BAFTA verðalaunin fyrir Christopher
Walken sem besti aukaleikari
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. / Sýnd kl. 8 og 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.40, 8, OG 10.20. B. I. 16.
Magnaðasti spennuhrollur ársins sem
hefur allstaðar slegið í gegn.
Hefur verið líkt við “The Sixth Sense”
Áður en þú deyrð, færðu að sjá
ÁLFABAKKI AKUREYRI
ÚTVARPSSTÖÐIN
Múzík 885 tekur til
starfa með nýju sniði
hinn 1. mars næstkom-
andi. Fjölmiðlafyr-
irtækið Pýrít ehf. hef-
ur yfirtekið rekstur
stöðvarinnar en fyrir
rekur það tvær aðrar
útvarpsstöðvar, Steríó
895 og Íslensku stöð-
ina FM 91,9.
Eins og kunnugt er
hefur Múzík byggt á
því hingað til að hlust-
endur velji lögin í
gegnum Netið. Með
nýjum eigendum kem-
ur nýtt fólk og verður
Jón Gnarr með morg-
unþátt á virkum dögum og Hemmi
feiti og Jón Mýrdal láta í sér heyra
eftir hádegið. Ennfremur á eftir að
ganga frá ráðingu fleira útvarps-
fólks.
Sigurður Hlöðversson, betur
þekktur sem Siggi Hlö, er tals-
maður Pýríts. „Við ætlum að halda
vefnum áfram að hluta til,“ segir
hann og býst við að stöðin verði
með sama sniði og hún er nú eftir
klukkan sex á kvöldin og um helg-
ar.
Aðeins rokkaðri
Tónlistarstefnan tekur nokkrum
breytingum. „Hún verður aðeins
rokkaðari og meiri blanda. Við
köllum þetta topp 40 í jaðarmúsík.
Þessi músík, sem fær ekki aðgang
annars staðar, en er vinsæl hjá ung-
lingunum,“ segir Sigurður. „Við
ætlum að spila hipp-
hopp og rokk.“
Hann segir að stöð-
in verði aðallega í
samkeppni við
Radíó-X en Steríó 895,
sé meira á sömu nót-
um og FM957.
Aðspurður hvort ís-
lenskt hipp hopp, sem
hefur verið að-
alsmerki Múzík 885,
fái ekki lengur spilun
á stöðinni, segir hann
að svo verði ekki.
„Vægið minnkar nú
aðeins, ég neita því
ekki,“ segir Sigurður
og bætir við að stefn-
an sé alls ekki sú að
hrekja á brott núverandi hlust-
endur útvarpsstöðvarinnar.
„Eins og stöðin er í dag, þá þarf
aðeins að hressa hana við,“ segir
Sigurður.
Fjórða stöðin?
Pýrít hefur hug á því að stofna
eina útvarpsstöð til viðbótar og
reka alls fjórar útvarpsstöðvar.
Sigurður vill þó ekkert láta uppi
hvers eðlis fyrirhuguð stöð verði.
Eins og áður sagði er Pýrít í sam-
keppni við stöðvar Norðurljósa.
Þar sem auglýsendur og hlustendur
hafa verið að rugla stöðvunum sam-
an, ætlar Pýrít að útvarpa auglýs-
ingum til auðkenningar á eigin
stöðvum.
Múzík 885 tekur breytingum um mánaðamótin
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður Hlöðversson og Valgeir Magnússon koma að rekstrinum. Múzík
fer í loftið með nýju sniði laugardaginn 1. mars.
Jón Gnarr verður með
morgunþátt á Múzík
eftir breytingarnar.
TENGLAR
.....................................................
http://www.muzik.is/
Topp 40 í
jaðartónlist
SÚ leiða villa slæddist inn í frétt um
Íslandsmótið í frjálsum dansi í blaði
gærdagsins að dansdrottningin,
Inga Birna Friðjónsdóttir frá Sauð-
árkróki, var sögð hafa lent í þriðja
sæti í flokki 13-17 ára. Hið rétta er
að hún sigraði í keppninni með
glæsibrag.
Heiður Hallfreðsdóttir lenti í
öðru sæti og Helga Jóna Markús-
dóttir varð þriðja og að auki
Reykjavíkurmeistari. Inga Birna
varð svo einnig FRÆ-meistari í ein-
staklingskeppni.
Inga Birna og aðrir sem hlut eiga
að máli eru hér með beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Leiðrétting
Inga Birna Friðjónsdóttir varð Ís-
landsmeistari í einstaklingskeppni
og varð einnig FRÆ-meistari.
Inga
Birna
sigraði
Á FÖSTUDAGINN var frum-
sýndur í Vesturportinu einleikur-
inn Herra maður eftir írska leik-
skáldið Enda Walsh, sem í fyrra
átti leikverk í sama leikhúsi sem
heitir Diskópakk.
Það er Gísli Örn Garðarsson
sem leikur í einleiknum, Thomas
nokkurn Magill er býsna horn-
reka þar sem hann býr í litlum
smábæ enda á hann erfitt með að
skilja samferðamenn sína og er sí-
fellt að mistúlka framkomu og
hegðun annarra.
Leikstjóri verksins er Egill
Heiðar Anton Pálsson en tónlistin,
frumsamin og eftir aðra, er flutt af
Hildi Ingunnard. Guðnadóttur
sellóleikara. Leikmyndin er eftir
Eirúnu Sigurðardóttur úr Gjörn-
ingaklúbbnum en þýðandi verks-
ins er Magnús Þór Þorbergsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Sáttir á frumsýningardag. Aðstandendur sýningarinnar: Magnús Þór,
Hildur, Eirún, Egill og Gísli.
Enda Walsh á
ný í Vesturporti
Nýja vinkonan
(New Best Friend)
Spennumynd
Bandaríkin 2002. Skífan VHS. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Zoe
Clarke-Williams. Aðalhlutverk Mia
Kirshner, Meredith Monroe, Dominique
Swain, Taye Diggs.
UNGLINGAMYNDIR hafa
harðnað verulega undanfarið ár –
það er staðreynd. Meira af öllu, en
áður, ofbeldi, kynlífi, munnsöfnuði
og hreinni og beinni siðbrenglun.
Ástæðan? Scream, American Pie
og allar þeirra
eftirhermur. Ég
veit ég hljóma
eins og versti
postuli núna, bú-
inn að stein-
gleyma öllum ísr-
aelsku sleikjó-
myndunum,
Porky’s og allri
þessari lágkúru
sem við gelgjurnar gerðum heið-
arlegar tilraunir til þess að smygla
okkur inn á í Bíóhöllinni þegar þar
var ennþá stiginn trylltur dans í
kjallaranum. Má vera að ég sé bara
kominn á aldur fyrir viðlíka menn-
ingu í dag en það er eitthvað sem
gerir þessar myndir sem klárlega
er beint að unglingum – eins og sú
sem er til umræðu – grimmari,
háskalegri og vafasamari. Ætli það
sé ekki bara meiningin á bak við
því þegar öllu er á botninn hvolft
þá voru Porky’s-myndirnar sára-
meinlausar og fjölluðu um lítið
annað en það sem ungviðið var með
á heilanum. Það er vonandi að
þessi mynd gefi ekki hugmynd um
hvað unga fólkið er með á heilanum
í dag.
Hér er sem sagt unglingamynd-
in, dulbúin sem morðgáta. Hver
gekk í skrokk á nýju vinkonunni í
aðalpæjuhópnum? Þeirri sem eitt
sinn var nörd, en tókst með klækj-
um að koma sér inn í klíkuna og
verða aðaðalpæjan og sú frakkasta
af þeim öllum? Hver gekk í skrokk
á henni? Það var ekki langt liðið á
myndina þegar mér var orðið ná-
kvæmlega sama. Þá var lítið fútt
eftir, annað en þokkaleg keyrsla í
framvindu og býsna kröftug kvik-
myndagerð sem slík. Það er allt og
sumt. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Undir
áhrifum