Morgunblaðið - 26.02.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
KOMIN er út skýrsla um rannsókn á flugatviki
þegar þotur frá SAS og Flugleiðum voru of ná-
lægt hvor annarri yfir Arlanda-flugvelli við
Stokkhólm 25. janúar í fyrra. Er niðurstaða
skýrslunnar sú að flugmenn SAS-þotunnar hafi
ekki heyrt fyrirmæli flugumferðarstjóra um að
hætta við flugtak sem þeim hafði áður verið
heimilað en þá hafði flugstjóri Flugleiðaþotunn-
ar tilkynnt að hann myndi hætta við aðflug og
fljúga fráhvarfsflug.
Varð atvikið með þeim hætti að SAS-þotu var
gefin heimild til flugtaks í þann mund er Flug-
leiðaþotan var að lenda á flugvellinum á annarri
braut. Hafði flugstjóri Flugleiðaþotunnar ákveð-
ið örskömmu áður að hætta við lendingu (af öðr-
um ástæðum en þeim að SAS-þotan var í flug-
taki) og því voru báðar vélarnar yfir vellinum á
sama tíma og var fjarlægð milli þeirra 75 til 100
metrar lárétt en um 300 metrar lóðrétt.
Sænsk rannsóknarnefnd flugslysa rannsakaði
atvikið og hefur skýrsla nefndarinnar verið sett á
vef Rannsóknarnefndar flugslysa á Íslandi,
RNF.
Allir fóru að reglum
Í sænsku skýrslunni segir að SAS-þotan hafi
fengið flugtaksheimild á einni braut flugvallarins
og Flugleiðaþotan heimild til lendingar á annarri
braut, sem snýr næstum þvert á hina fyrri. Segir
að flugmenn SAS-þotunnar hafi ekki heyrt er
flugumferðarstjórar afturkölluðu heimild henn-
ar til flugtaks. Ekki þykir ljóst hvort skilaboð
flugumferðarstjórans heyrðust í hátalarakerfi
stjórnklefa SAS-þotunnar. Því hafi hún verið í
flugtaki á sama tíma og þota Flugleiða var á
lokakafla aðflugs og tilkynnti síðan að hún væri
hætt við lendingu og myndi fljúga fráhvarfsflug.
Í niðurstöðu skýrslunnar segir að flugmenn
beggja véla hafi farið að fyrirmælum og að flug-
umferðarstjórar hafi unnið samkvæmt vinnu-
reglum.
Sænska rannsóknarnefndin leggur til í fram-
haldi af atvikinu að flugmálastjórn landsins þrói
aðferðir fyrir flugumferðarstjóra til að ákvarða
hvort flugvél sé í rauninni lent, að þróa orðalag
sem nota eigi er upp komi neyðarástand til að
flugmenn grípi fyrirmæli sem best þegar þeir
séu undir miklu álagi og að kanna hvort bæta
þurfi vinnulag þegar í notkun séu þær tvær
brautir sem atvikið gerðist við til að draga sem
mest úr hættu á árekstri.
Skýrsla um atvik er þota SAS flaug of nálægt Flugleiðavél við Arlanda
Námu ekki fyrirmæli
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hefur lagt til við sjávarútvegsráð-
herra að veiðibann vegna friðunar
hrygningarþorsks verði lengt um
helming á einstökum svæðum, eða
úr 20 dögum í 40 daga.
Samkvæmt tillögu Hafrann-
sóknastofnunarinnar verður veiði-
bann á innra vestursvæði, vestan
Dyrhólaeyjar að Ísafjarðardjúpi, á
tímabilinu frá 20. mars til 30. apríl
en á innra austursvæði, austan
Dyrhólaeyjar að Hornafirði, frá 1.
apríl til 10. maí. Á svæðinu frá
Hornafirði norður fyrir land að Ísa-
fjarðadjúpi leggur stofnunin til
veiðibann frá 15. apríl til 15. maí.
Jafnframt hefur stofnunin lagt til
að hámarksmöskvastærð í netum
verði lækkuð í áföngum framtíð-
inni.
Björn Ævarr Steinarsson, fiski-
fræðingur á Hafrannsóknastofnun-
inni, segir markmiðið með þessum
tillögum að gefa þorski frið til að
hrygna, sérstaklega stórum fiski.
Eins sé tími veiðibanns lengdur til
að draga úr veiðiálagi á hrygning-
arstofninn, sem sé í sögulegu lág-
marki nú miðað við undanfarin 20
ár og nýliðun lengst af undir með-
allagi.
Hafrannsóknastofnunin hefur
síðustu daga kynnt tillögur sínar
útgerðarmönnum og hagsmuna-
samtökum í sjávarútvegi. Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri stofnunar-
innar, segir athuganir hafa leitt í
ljós að sókn í stórþorsk hafi verið
mun meiri á síðasta ári en gert var
ráð fyrir. Nauðsynlegt sé að bregð-
ast við því nú þegar með lengri lok-
un svæða en gilti á vertíðinni 2002,
þó ljóst sé að fyrirvarinn sé skamm-
ur, einkum með tilliti til breytinga á
leyfilegri möskvastærð í netum.
Veiðibann vegna hrygn-
ingar lengt um helming
KRAKKARNIR á leikskólanum
Arnarsmára í Kópavogi kunna
handtökin við tölvurnar enda er
tölvuvinna hluti af daglegu brauði
þeirra á leikskólanum.
Arnarsmári hefur farið af stað
með þróunarverkefni um tölvu-
notkun barna í tengslum við gerð
áætlunar um tölvuvæðingu leik-
skóla Kópavogs. Faglegur hluti
hennar var nýlega samþykktur í
leikskólanefnd bæjarins.
Á myndinni sjást þau Stefanía
Katrín, Sandra Kristín og Gísli
Snær, sem öll verða sex ára á
þessu ári, vinna saman við snerti-
skjá. Það vefst ekki hið minnsta
fyrir þeim hvernig nota á þetta
nútímalega tæki.
Morgunblaðið/Sverrir
Tæknisinnað smáfólk í Arnarsmára
Kubbar/18
PHARMACO hf. stefnir að
því að koma á fót skrifstofu í
Svíþjóð á þessu ári. Róbert
Wessman, forstjóri Pharma-
co, segir að þetta tengist því
að sænska lyfjaeftirlitið hefur
nýlega samþykkt markaðs-
leyfisumsóknir fyrir sam-
heitalyf frá fjórum markaðs-
aðilum af þunglyndislyfi
danska lyfjarisans Lundbeck,
Cipramil. Þar á meðal er lyfið
Citalopram, sem dótturfyrir-
tæki Pharmaco, Omega
Farma, þróaði á sínum tíma.
Að sögn Róberts er veltan
með Cipramil í Svíþjóð um
fimm milljarðar íslenskra
króna á ári. Hann segir að ef
vel takist til megi gera ráð
fyrir að Pharmaco geti jafn-
vel náð nokkur hundruð millj-
óna króna veltu með sam-
heitalyfið Citalopram.
Lundbeck hefur gert til-
raunir til að halda samheita-
lyfjafyrirtækjum eins og
Pharmaco frá markaði.
Pharma-
co stefnir
að rekstri
í Svíþjóð
Þunglyndislyf/14
„VERÐI þessar tillögur að veru-
leika er um hreina og klára aðför
að vertíðarbátum að ræða,“ segir
Hermann Stefánsson, formaður
Útvegsmannafélags Horna-
fjarðar. „Það hefur verið gengið
mjög á tilverugrundvöll vertíð-
arbátanna undanfarin misseri en
þessar tillögur gætu veitt þeim
náðarhöggið. Þarna er um að
ræða veiðibann á löngu tímabili,
einmitt á því tímabili sem gefið
hefur hvað best í netin. Þessar til-
lögur myndu þannig hafa mikil
áhrif hér á Hornafirði, ekki að-
eins á veiðarnar heldur ekki síður
á vinnsluna í landi,“ segir Her-
mann.
„Aðför að vertíðarbátum“
Enn aukast/21
MEÐALHITASTIG það sem af er febr-
úarmánuði á Akureyri er 1,8 stig á celsíus
sem er hæsti meðalhiti sem mælst hefur síð-
an árið 1965 en þá mældist meðalhiti 3,2
gráður í febrúar. Meðalhiti í Reykjavík það
sem af er febrúar er 1,7 gráða á celsíus, en
meðalhiti hefur ekki verið jafnhár síðan ár-
ið 1994 í höfuðborginni.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur á Veð-
urstofu Íslands, sagði mikinn kulda fyrstu
daga mánaðarins draga meðaltalið töluvert
niður. Hæsti meðalhiti sem mælst hefur
bæði í Reykjavík og á Akureyri síðan mæl-
ingar hófust var árið 1932 er meðalhiti
mánaðarins mældist 5 stig á báðum stöðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Þuríður Magnúsdóttir og Jóhanna María
Skarphéðinsdóttir leika sér á gamalli drátt-
arvél í Húsdýragarðinum í góða veðrinu.
Hlýjasti febrúar
nyrðra í 38 ár
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur feng-
ið heimild ríkisstjórnarinnar til að ganga frá
samningum við Reykjavíkurborg um stofnun
einkahlutafélags sem sjá mun um byggingu
og rekstur tónlistar- og ráðstefnuhúss. Síð-
astliðið vor þegar gengið var frá samkomu-
lagi milli ríkis og Reykjavíkurborgar um
byggingu hússins var gert ráð fyrir að heild-
arkostnaður yrði tæplega sex milljarðar
króna og að framkvæmdir gætu hafist í árs-
byrjun 2004.
Tómas Ingi Olrich segir að þessi heimild
komi í kjölfar viðræðna sem hafi farið fram á
milli fjármála-, menntamálaráðuneytisins og
Reykjavíkurborgar. „Niðurstaða þeirra við-
ræðna var sú að heppilegast væri að taka á
málinu þannig að stofna einkahlutafélag og
það hefði síðan umboð til þess að stýra mál-
inu.“
Menntamálaráðherra segir að einkahluta-
félagið verði í eigu ríkis og borgar í sömu
hlutföllum og verkefnið sjálft, þ.e. 54% í eigu
ríkisins og 46% í eigu Reykjavíkurborgar, ef
um það semjist með þeim hætti sem allt
bendi raunar til. „Nú verður gengið í það að
ganga frá þessum samningum við Reykja-
víkurborg og þá verður kominn einn aðili
sem hefur með höndum alla umsýslu um
þetta flókna verkefni, þ.e.a.s. að undirbúa
sjálft útboðið, undirbúa upplýsingagjöf til
fjárfestanna, annast ýmiss konar undirbún-
ing er varðar verkefnið sjálft eins og t.d. fag-
lega ráðgjöf varðandi hljómburð o.s.frv.“
Stofna einka-
hlutafélag um
tónlistarhús
Verðlaunatillaga að tónlistarhúsi.