Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 72. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Braggabörn
hittast
Krakkar úr Laugarnescampi koma
saman á ný Höfuðborg 22
Þýsku evrópoppararnir í Scooter
halda tónleika á Íslandi Fólk 60
Garcia í
landsliðið
Jaliesky Garcia fer á íslensku vega-
bréfi til Berlínar Íþróttir 53
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi 39,5% atkvæða og 25 þing-
menn kjörna, ef gengið yrði til
kosninga nú, en Samfylking 34%
fylgi og 22 þingmenn, samkvæmt
könnun sem Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands hefur gert fyrir
Morgunblaðið. Fylgi Framsóknar-
flokksins mælist 11,7%, sem er
tveimur prósentustigum minna en
fylgi flokksins reyndist vera í síð-
ustu könnun sem Félagsvísinda-
stofnun gerði í febrúar og er óljóst
hvort flokkurinn fengi kjördæma-
kjörinn mann í Reykjavík. Miðað
við könnunina fengi Framsóknar-
flokkurinn sjö þingmenn. Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð fengi
9,4% fylgi og sex þingmenn. Frjáls-
lyndi flokkurinn nýtur 5% fylgis og
fengi þrjá þingmenn þar sem hann
ætti rétt á uppbótarþingsæti. Fé-
lagsvísindastofnun vekur athygli á
að útreikningum á skiptingu þing-
sæta beri að taka með fyrirvara.
Í febrúarkönnuninni mældist
Sjálfstæðisflokkur með 35,8% fylgi
og hefur fylgið því aukist um 3,7
prósentustig. Fylgi Samfylkingar
dalar aftur á móti um rúm 6 pró-
sentustig, fer úr 40,1% í 34%.
Vinstri-grænir og Frjálslyndir bæta
við sig frá síðustu könnun, VG
mælist nú með 9,4% en í febrúar
var flokkurinn með rúm 7%, Frjáls-
lyndir eru nú með 5% fylgi en
höfðu 3% í febrúar.
Óvíst að Framsókn fái mann
kjörinn í Reykjavík
Staða Sjálfstæðisflokksins er
sterkust í Suðvesturkjördæmi þar
sem 45,3% segjast ætla að kjósa
flokkinn, fylgið er 40,5% í Reykja-
víkurkjördæmunum tveimur og tæp
35% á landsbyggðinni. Samfylking
hefur svipað fylgi í Reykjavík og í
Suðvesturkjördæmi eða 37%, en
30% í landsbyggðarkjördæmunum.
Framsókn hefur mest fylgi á lands-
byggðinni eða 18,1%, samanborið
við rúm 7% í Reykjavík, þar sem
ekki er víst að flokkurinn fengi
mann kjörinn. Fylgi Vinstri-grænna
er rúmlega 10% bæði í Reykjavík
og í landsbyggðarkjördæmum en
fer niður í 7% í Suðvesturkjördæmi.
Frjálslyndir mælast með tæp 6% á
landsbyggðinni en 5,4% í Reykja-
vík. Í Suðvesturkjördæmi mælist
fylgi flokksins tæp 3%.
Könnunin var unnin dagana 9.–
14. mars. Stuðst var við 1.200
manna slembiúrtak úr þjóðskrá
sem náði til allra landsmanna á
aldrinum 18 til 80 ára. Nettósvörun
var 68%.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið
Sjálfstæðisflokkur fær
39,5% – Samfylking 34%
Frjálslyndir/6
„ÞAÐ var mjög góð stemning og konur fögnuðu því
innilega að búið væri að stofna nýtt kvenréttindafélag.
Það er greinilega mikil þörf fyrir svona félag um þess-
ar mundir,“ sagði Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, sem sat stofnfund Femínistafélags Ís-
lands í gærkvöldi. Á þriðja hundrað manns, þar af um
20 karlmenn, lagði leið sína á fundinn sem var haldinn í
sal Miðbæjarskólans. Félaginu er ætlað að vera frjáls
og óháður umræðuvettvangur og baráttutæki íslenskra
femínista með það að markmiði að efla gagnrýna og
femíníska umræðu á öllum sviðum þjóðfélagsins. Einn-
ig ætlar félagið að berjast fyrir mannréttindum sem
byggð eru á alþjóðlegum sáttmálum.
Í gærkvöldi voru 310 skráðir á póstlista félagsins.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Fögnuður á femínistafundi
Bentu Palestínumenn á að Banda-
ríkjaforseti hefði farið fram á frekari
umræður um áætlunina, í stað þess
að tilkynna að þegar yrði hafist
handa við að framfylgja henni.
Erlendir stjórnarerindrekar í
Miðausturlöndum létu einnig í ljós
undrun sína á að Bush teldi þörf á
frekari umræðum um áætlunina,
sem var samin af hinum svonefnda
kvartett – Bandaríkjunum, Evrópu-
sambandinu, Rússlandi og Samein-
uðu þjóðunum – sem hlutast hefur til
um friðarumleitanir í Miðaustur-
löndum. Er áætlunin í þremur liðum
og gerir ráð fyrir bráðabirgðaríki
Palestínumanna fyrir árslok og fullu
sjálfstæði þess fyrir 2005.
Talsmaður ríkisstjórnar Ísraels
sagði einungis að Ísraelar þyrftu
meiri tíma til að fara yfir tilkynningu
Bush. Þeir hafa einnig látið í ljós efa-
semdir um áætlunina og segja að of
óljóst sé hvaða tengsl eigi að vera á
milli frammistöðu Palestínumanna
og næsta skrefs áætlunarinnar.
Í gærmorgun felldu ísraelskir her-
menn fimm vopnaða Palestínumenn
í flóttamannabúðunum við Jenín á
Vesturbakkanum. Í gærkvöldi var
svo 18 ára Palestínumaður skotinn
til bana í þorpinu Azun á Vestur-
bakkanum. Í fyrradag felldu Ísrael-
ar fimm herskáa meðlimi Hamas-
samtaka Palestínumanna.
Bush boðar
„leiðarvísi“
HÁTTSETTIR palestínskir embættismenn segja að tilkynning
George W. Bush Bandaríkjaforseta í gær, um að birtur yrði „leið-
arvísir“ um stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis um leið og Yasser
Arafat Palestínuleiðtogi staðfesti skipan nýs forsætisráðherra Pal-
estínumanna, uppfylli ekki væntingar þeirra.
Reuters
Bush og Colin Powell utanríkis-
ráðherra boða birtingu „leiðarvís-
isins“ á fréttamannafundi í gær.
Jerúsalem, Washington, Jenín. AP, AFP.
MÖRG erindi hafa borist
starfsfólki Íslendingabókar,
ættfræðigrunnsins á Netinu,
um leiðréttingar á upplýs-
ingum sem þar birtast. Oft-
ast er orðið við þessum
beiðnum en stundum koma
upp vandamál sem tengjast
ættleiðingum, barneignum
utan hjónabands eða hjóna-
skilnuðum.
Friðrik Skúlason, forvígis-
maður Íslendingabókar, seg-
ir starfsmenn hennar leggja
sig fram við að finna við-
unandi lausn. Stundum sé
það þó torvelt þegar hlut-
aðeigandi eru ósammála um
hvernig upplýsingar eigi að
vera skráðar. Í því sambandi
koma stundum inn skrítin er-
indi að sögn Friðriks. Frá-
skilin hjón eru tengd í Ís-
lendingabók. Kona ein sendir
inn erindi og vill ekki hafa
sinn fyrrverandi eiginmann
tengdan við sig. Hins vegar
vill eiginmaðurinn fyrrver-
andi endilega tengjast kon-
unni. „Hvað gerum við?“
spyr Friðrik.
Að vera
eða vera
ekki tengd
Ljóstrað upp um/11
Snúnar skráningar
í Íslendingabók
Tæknótröll
á tónleikum