Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta er allt Agnesi að kenna, hún byrjaði.
Málþing um Veru Hertzsch
Sannfærður
kommúnisti
ÍUMFJÖLLUN um af-stöðu Halldórs Kilj-ans Laxness til
kommúnismans í gegnum
tíðina hefur iðulega borið á
góma kvenmannsnafnið
Vera Hertzsch. Miðstöð
einsögurannsókna efnir nú
til málþings um Veru. Í
forsvari er dr. Sigurður
Gylfi Magnússon og svar-
aði hann nokkrum spurn-
ingum Morgunblaðsins.
– Á hvers vegum er mál-
þingið, hvenær er það
haldið og hvar?
„Málþingið er á vegum
hinnar nýstofnuðu Mið-
stöðvar einsögurannsókn-
ar í samvinnu við Reykja-
víkurAkademíuna og
Landsbókasafn Íslands og
verður haldið í Þjóðarbók-
hlöðunni í dag klukkan 14. Mál-
þingið er fyrsta verkefni Mið-
stöðvar einsögurannsókna og í
raun kjörið tækifæri til að beina
athyglinni að þessari sagnfræði-
legu rannsóknaraðferð einsög-
unnar. Hreinsanirnar í Sovétríkj-
unum á fjórða áratugnum eru
þekktar en lífsferill Veru
Hertzsch og milljóna annarra sem
biðu dauðans í fangabúðum Ráð-
stjórnarinnar eiga sér ólíka sögu
sem minna hefur verið fjallað um.
Einsöguaðferðin í sagnfræði gef-
ur slíkum röddum kost á að
hljóma á afdrifaríkan hátt. Hlut-
verk Miðstöðvar einsögurann-
sókna verður einmitt að halda ut-
an um þessar rannsóknir hér á
landi og hvetja áhugasama fræði-
menn til að ráðast í rannsóknar-
verkefni sem falla undir einsögu-
hefðina.“
– Hvers vegna að taka fyrir
Veru Herzsch?
„Um þessar mundir eru 60 ár
liðin frá því að Vera Herzsch lést í
fangabúðunum í Karaganda í
Kazakhstan. Vera og Benjamín
H.J. Eiríksson hagfræðingur
kynntust í Moskvu árið 1936.
Benjamín snéri frá Moskvu síðla
sama ár og í marsmánuði 1937
fæddi Vera barn þeirra, Erlu Sól-
veigu, í Moskvu. Ljóst er að fljót-
lega eftir fæðingu dóttur þeirra
var Vera í talsverðri hættu vegna
handtöku fyrrverandi manns
hennar og ofsókna á hendur er-
lendra kommúnista, en Vera var
af þýsku bergi brotin. Vera var
undir eftirliti Öryggislögreglunn-
ar í heilt ár og var dæmd í átta ára
fangelsi fyrir að vera eiginkona
föðurlandssvikara. Skilnaður
þeirra nokkru áður skipti þar
engu máli.
Halldór Kiljan Laxness varð
vitni að handtöku Veru í Moskvu
og skýrði Benjamín frá henni
strax þar á eftir. Hann skrifaði
löngu síðar um þennan atburð í
Skáldatíma sem kom út 1963.
Nokkrir Íslendingar voru Veru
einnig innan handar eftir að
Benjamín hélt til Stokkhólms
1936 og frá þeim fékk hann fréttir
af líðan hennar og Erlu Sólveigar.
Frá árinu 1992 hafa
Benjamín og afkom-
endur hans haldið uppi
spurnum um afdrif
mæðgnanna og leitað
og leitað eftir gögnum
um örlög þeirra. Nú er hugmynd-
in að skýra frá því sem tekist hef-
ur að grafa upp, en mörgu er enn
ósvarað.“
– Hverjir taka til máls á mál-
þinginu og hver verða umræðu-
efni fyrirlesara?
„Fyrirlesarar verða þrír heim-
spekingar: Arnór Hannibalsson
mun fjalla um fangabúðakerfi
Sovétríkjanna, Gunnar Harðar-
son tekur fyrir tímaröð atburða í
máli Veru Hertzsch og Jón Ólafs-
son mun segja frá tilraunum sín-
um til að afla upplýsinga um örlög
mæðgnanna eftir að Vera var
send í fangabúðir og meta horfur
á því að málið verði upplýst.
Fundarstjóri verður Lára Magn-
úsardóttir sagnfræðingur.“
– Hvaða spurningum verður
helst leitast við að svara?
„Það verður bæði reynt að
bregða ljósi á tímabilið sem er til
umræðu og ævi Veru Hertzsch
sjálfrar. Spurt verður m.a. eftir-
talinna spurninga: Hvert var um-
fang hreinsananna miklu og
fangabúðakerfisins sem komið
var á fót í Sovétríkjunum? Hve-
nær og hvers vegna var Vera
Hertzsch handtekin? Hvað varð
um Veru og hvaða sögu segja eft-
irlifandi starfsmenn í einum
fangabúðanna þar sem vitað er að
hún dvaldi? Hvaða lærdóm má
draga af lífshlaupi Veru Herzsch í
pólitísku ljósi alþjóðastjórnmála?“
– Verður eitthvað dregið fram
sem áður var hulið?
„Það er ekki stefnt að endan-
legu uppgjöri í sambandi við þetta
mál. Við sem komum að mál-
þinginu viljum frekar fjalla um
mjög flókið og margbrotið mál út
frá nokkrum ólíkum hliðum til að
skýra frá því sem þegar hefur
komið í ljós. Eins og áður sagði þá
er margt enn á huldu í sambandi
við framgang málsins og til dæmis
er ekki vitað hvað varð um Erlu
Sólveigu eftir að þær mæðgur
voru handteknar í marsmánuði
1937. Á það skal bent
að tekist hefur að afla
talsverðra nýrra upp-
lýsinga og verða þær
raktar á málþinginu.“
– Hvers konar kona
var Vera Herzsch?
„Hún var sannfærður kommún-
isti sem varð á endanum fórnar-
lamb hans. Fyrst og fremst var
hún þó venjuleg manneskja og
saga hennar endurspeglar bar-
áttu einstaklingsins með og síðar
við kerfi, ógnarstjórn sem engu
eirði. Slík saga á erindi við alla
sem láta sig mannleg örlög ein-
hverju varða.“
Sigurður Gylfi Magnússon
Sigurður Gylfi Magnússon er
fæddur í Reykjavík 1957. Stúd-
ent frá VÍ 1980. BA-próf í sagn-
fræði og heimspeki 1984. MA-
próf frá Carnegie Mellon-
háskólanum í Pittsburgh 1987 og
doktorspróf 1993. Háskólakenn-
ari í Bandaríkjunum og á Íslandi
frá 1990 og gefið út sjö bækur
um alþýðumenningu, persónu-
legar heimildir og einsögu. Einn
ritstjóra Sýnisbókar íslenskrar
alþýðumenningar og í forsvari
fyrir Miðstöð einsögurannsókna.
…var hún þó
venjuleg
manneskja
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
n
m
0
8
7
5
7
/ sia
.is
SAMKVÆMT nýjum samningum
verður íslensk tónlist leikin og
kynnt fyrir farþegum um borð í
flugvélum Flugleiða um allan heim.
Einnig hefur verið samið um að ís-
lensk tónlist verði leikin í flugvélum
annarra flugfélaga.
Í fréttatilkynningu frá Íslensku
tónlistarverðlaununum kemur fram
að undirritaður hafi verið samning-
ur milli Samtóns og írska fyrirtæk-
isins Inflight Audios um spilun á
verðlaunaefni frá Íslensku tónlist-
arverðlaununum á sérstakri tónlist-
arrás um borð í vélum Flugleiða.
Hugmyndin er sögð hafa kviknað
þegar unnið var með Flugleiðum að
undirbúningi verðlaunanna í febr-
úar. Einnig kemur fram að fyrir-
tækið Inflight Audios hefur umsjón
með tónlist fyrir 70 stærstu flug-
félög heims og hefur Samtónn sam-
ið við fyrirtækið um að íslensk tón-
list verði notuð í flugvélum fleiri
flugfélaga.
Að Samtóni standa STEF, Sam-
band tónskálda og eigenda flutn-
ingsréttar og SFH, Samband flytj-
enda og hljómplötuframleiðenda.
Íslensk tón-
list leikin í
flugvélum
DILBERT mbl.is
♦ ♦ ♦
HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr
gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Hér-
aðsdóms Norðurlands eystra yfir
karlmanni sem lögreglan á Akureyri
grunar um þátttöku í nokkrum inn-
brotum á Akureyri.
Lögreglan byggði kröfu sína á því
að ætla mætti að hann myndi tor-
velda rannsókn málsins gangi hann
laus, enda væri rannsóknin á frum-
stigi og ekki búið að ná til eða hand-
taka alla þá sem grunaðir eru um
þátttöku í framangreindum brotum.
Í dómi Hæstaréttar segir á hinn bóg-
inn að ekkert liggi fyrir um hverjir
aðrir eru grunaðir eða að hverju
öðru rannsókn eigi að beinast.
Manninum, sem hafði verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 17. mars,
var því sleppt.
Gæsluvarð-
hald fellt
úr gildi