Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 21

Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 21 GERHARD Schröder, kanzlari Þýzkalands, kynnti í gær nýja áætlun um umbætur á efnahagskerfi lands- ins, en margir höfðu beðið þess með eftirvæntingu að sjá til hvaða ráða ríkisstjórnin hygðist grípa til að bregðast við kreppunni sem heltekið hefur stærsta þjóðhagkerfi Evrópu. Í þingræðu, sem sjónvarpað var beint, hvatti kanzlarinn þjóðina til að leggjast á eitt með stjórnvöldum um að hrinda í framkvæmd nauðsynleg- um kerfisumbótum, sem óhjákvæmi- lega fælu í sér niðurskurð á vissum þáttum velferðarkerfisins. Boðaði Schröder m.a. takmörkun atvinnuleysisstyrkja, að losað verði um reglur um uppsagnir launafólks hjá minni fyrirtækjum og ýjaði að því að takmörk yrðu sett við valdi verka- lýðssamtaka til að gera kjarasamn- inga sem gildi um allt landið í viðkom- andi starfsgrein. Allt eru þetta atriði sem ekki njóta vinsælda hjá vinstri armi Jafnaðarmannaflokks kanzlar- ans né forkólfum hinna máttugu verkalýðsfélaga landsins. „Nú eru endurbætur og endurnýj- un hins félagslega velferðarkerfis orðin óhjákvæmileg,“ sagði Schröder. „Land vort verður aftur að verða mið- stöð trúnaðartrausts í Evrópu,“ lýsti hann yfir. Í hinni 80 mínútna löngu ræðu var þó lítið að heyra um frekari útfærsluatriði umbótaáætlunarinnar, sem titluð var „dagskrá 2010“. Schröder eyddi hins vegar dágóðum hluta ræðunnar í að rekja röksemdir fyrir því að Þjóðverjar ættu að halda fast í það velferðarkerfi sem þeir hefðu byggt upp á síðustu áratugum og varði hlutverk verkalýðsfélaga þótt hann lýsti um leið þörfinni á um- bótum í anda markaðshyggju. Stjórnarandstæðingar sögðu um- bótaáætlunina, eins og kanzlarinn kynnti hana, bera vott um hugleysi; þar væri ekki boðið upp á viðunandi lausnir á brýnustu úrlausnarefnun- um. Hagvöxtur í Þýzkalandi var í fyrra aðeins um 0,2%, og fjárlagahallinn fór fram úr þriggja prósentustiga há- markinu sem kveðið er á um í stöðugleikasáttmála evrópska mynt- bandalagsins. Um síðustu mánaða- mót var fjöldi atvinnulausra í Þýzkalandi kominn yfir 4,7 milljónir, eða 11,3% vinnufærra manna, og þýzki seðlabankinn, Bundesbank, varaði við því í síðustu viku að búast mætti við því að enn sigi á ógæfuhlið- ina, bæði hvað atvinnuleysið og efna- hagsástandið almennt áhrærir, ef stjórnvöld gripu ekki til róttækra kerfisumbóta hið snarasta. Einstaklingarnir leggi meira af mörkum „Við erum knúnir til að skera niður útlát ríkisins, ýta undir frumkvæði fólks og krefja einstaklingana um að leggja meira af mörkum sjálfir,“ sagði Schröder. Allt í allt er markmiðið með umbót- unum að minnka kostnaðinn við að halda úti störfum í Þýzkalandi, en hann er einn sá hæsti í heiminum og óumdeilt er að hann á þátt í aukningu atvinnuleysis. Með áætlun sinni er Schröder að brjóta þá hefð, að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi sér sam- hljóða saman um meginramma efna- hagsstefnunnar, en efnahagsleg vel- gengni (Vestur-)Þýzkalands er ekki sízt rakin til þessarar hefðar. Þegar tilraunir Schröders til að endurlífga hringborðsviðræður með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins fóru út um þúfur í byrjun þessa mánaðar, lýsti hann því yfir að stjórnin myndi grípa til eigin ráða. Angela Merkel, leiðtogi kristilegra demókrata, gagnrýndi áætlun Schröders harkalega. Sagði hún hana uppfulla af hugmyndum sem allar hefðu verið reyndar áður. „Þarna var að mestu bara varlega ýjað að því hvað gera skuli,“ sagði hún. „Ég veit ekki hvort þú gerir þér alveg grein fyrir því hve alvarleg kreppa það er sem við eigum við að etja,“ sagði Merkel í andsvari við ræðu Schröders. AP Gerhard Schröder, í ræðustól í þinginu í Berlín í gær, speglast í rúðu. Schröder hvetur til þjóðarátaks gegn kreppu Þýzki kanzlarinn boðar niðurskurð velferðarstyrkja og að losað verði um regluverk atvinnulífsins Berlín. AP, AFP. BREYTINGAR á veðurfari áttu mestan þátt í því, að menning Maya í Mið-Ameríku leið undir lok fyrir meira en 1.000 árum. Er það niðurstaða fornleifafræðinga og annarra vísindamanna eftir miklar rannsóknir. Áætlað er, að Mayar hafi verið um 13 milljónir um miðja áttundu öld en 200 árum síðar höfðu borgir þeirra verið yfirgefnar. Hefur menn lengi grunað, að þurrkar hafi átt mikinn þátt í hruni ríkisins og undir það er tekið í grein, sem birtist í vís- indatímaritinu Science. Kom þetta fram á fréttavef BBC í gær. Við rannsóknirnar voru könnuð setlög úti fyrir ströndum Venes- úela og títanmagnið í þeim mælt en það berst til sjávar með fram- burði ánna. Lítið títanmagn bend- ir til lítils vatnsmagns í ánum og þar með til lítillar úrkomu. Niðurstaðan var sú, að mjög þurrviðrasamt var á 9. og 10. öld og þá voru þrisvar sinnum mjög alvarleg þurrviðraskeið. Gerald Haug, þýskur vís- indamaður, sem þátt tók í rann- sóknunum, segir, að þetta sýni vel hvaða áhrif loftslagsbreyt- ingar nú á dögum geti haft: „Þriggja til níu ára langur þurrkatími, sem getur verið af- leiðing af einhverri truflun á staðvindakerfinu í Afríku eða Indlandi, gæti haft skelfilegar af- leiðingar þar og raunar víðar.“ Þurrkar steyptu menningu Maya SKOÐANAKANNANIR hafa sett mikinn svip á umræðuna um hugs- anleg átök í Írak og telja sérfræð- ingar að almenningsálitið gæti nú haft meiri áhrif á stefnumótun vegna Íraks en gerst hafi í manna minnum á umbrotatímum í alþjóðamálum. Koma þar saman fullkomin tækni við gerð skoðanakannana og áberandi hlutverk Sameinuðu þjóðanna og hefur því verið haldið fram að þessir þættir báðir tryggi áhrif almenn- ingsálitsins á umræðuna um hugs- anlegt stríð. Bandarískur dálkahöf- undur orðaði það svo að aðeins væru tvö stórveldi eftir í heiminum, Bandaríkin og almenningsálitið. „Það er nánast eins og standi yfir þjóðaratkvæðagreiðsla um allan heim um það hvað Bandaríkin og restin af heiminum eigi að gera vegna Íraks,“ sagði Andrew Kohut, stjórnandi Pew-stofnunarinnar, sem hefur kannað skoðanir fólks um all- an heim. Víðtæk andstaða við stríðið víða um heim mun ef til vill ekki koma í veg fyrir að Bandaríkjamenn fari á endanum fyrir bandalagi ríkja um að ráðast inn í Írak. Hins vegar hefur mótstaða almennings reynst George Bush Bandaríkjaforseta erfiðari hindrun í tilraunum hans til að afla árás stuðnings en búist var við. „Hér blasir við ný staða,“ sagði Tom Bentley, stjórnandi stofnunar- innar Demos í London. „Vilji borg- aranna og almenningsálitið almennt séð eru þættir, sem hafa áhrif á ákvarðanir í alþjóðasamskiptum með hætti sem aldrei hefur gerst áð- ur.“ Sérfræðingar eru margir þeirrar hyggju að almenningsálitið sé svona fyrirferðarmikið í deilunni um Írak vegna þess að árás sé spurning um val, en hafi ekki verið hleypt af stað með ögrun á borð við innrás Íraka í Kúveit árið 1990. Endurspeglar kvíða vegna valdastöðu Bandaríkjanna Aðrir telja að almenningsálit víða um heim komi fram með slíkum krafti vegna þess að ágreiningurinn um Írak endurspegli almennari kvíða vegna þess hvernig Banda- ríkjamenn beiti valdi sínu í hlutverki eina stórveldisins, sem eftir er. „Ég held að það sé alveg ljóst hvað hér er á ferðinni og það er að al- menningur víða um heim er uggandi vegna valdastöðu Bandaríkja- manna,“ sagði Stephen Kull, sem er við Háskólann í Maryland. „Fólk um allan heim lítur til stjórnvalda heima fyrir og spyr hvort þau geti staðið á sínu gagnvart Bandaríkjunum.“ Áhrif almenningsálitsins og skoð- anakannana hafa komið fram með greinilegum hætti. Bush ákvað í september á liðnu ári að láta Sam- einuðu þjóðirnar fjalla um það hvort afvopna ætti Íraka eftir að skoðana- kannanir höfðu sýnt að stríð myndi njóta meiri stuðnings bæði í Evrópu og Bandaríkjunum ef samþykki fengist hjá SÞ. Þá hefur Bush neyðst til að fresta árás og leita þess að knýja fram aðra ályktun í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna vegna þess að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og helsti bandamaður hans, þarf á því að halda til að slá á óánægju heima fyrir. Einnig má segja að andstaða al- mennings við stríð í Frakklandi og Þýskalandi hafi eflt stjórnir land- anna í andstöðu sinni við Banda- ríkjamenn og Breta. „Það er orðið erfiðara fyrir rík- isstjórnir að styðja Bandaríkin vegna þess að almennan stuðning vantar,“ sagði James B. Steinberg, sem var aðstoðarþjóðaröryggisráð- gjafi Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Andrew Kohut sagði að Banda- ríkjamenn mættu vænta þess að al- menningur um allan heim fylgdist grannt með framferði þeirra vegna þess hlutverks, sem þeir gegndu orðið í heiminum. „Fólk um allan heim getur lagt sitt lóð á vogarskál- arnar í umræðum um stríð og frið með sama hætti og verið hefur í bandarískum stjórnmálum undan- farin 20 ár,“ sagði hann. „Gamla hugtakið heimsþorpið hefur öðlast sannleiksgildi.“ Almenningsálitið talið hafa áhrif á Íraksdeilu Washington. Los Angeles Times.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.