Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 27
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 27
tekur þátt í afmælissýningunni og
bankann prýðir nú margvíslegt
handverk. Alls fimm konur eiga
verk á sýningunni, þær Jóhanna
Elín Óskarsdóttir, Inga Stefáns-
dóttir, Íris Þrastardóttir, Guðrún
Antonsdóttir og Björk Aradóttir.
Á sýningunni er að finna málverk,
leirverk og ýmiskonar handavinnu
sem konurnar grípa í í frístundum
sínum. „Afköstin eru mismikil,
fara eftir því hversu mikið annað
maður er að gera. Ein okkar er í
námi með vinnunni og heimilin eru
misstór og allt hefur þetta að
segja um þann tíma sem maður
hefur í frístundir,“ sögðu Jóhanna,
Inga og Björk í samtali við blaða-
mann.
Sýningin stendur til 21. mars.
Landsbanki Íslands heldur þjónustukeppni
Keflavíkurútibúið fyrst
upp á topp Everest
Morgunblaðið/Svanildur Eiríksdóttir
Keflavíkurútibú Landsbanka Íslands prýðir nú verk nokkurra starfs-
kvenna bankans. Þær Jóhanna Elín Óskarsdóttir, Inga Stefánsdóttir og
Björk Aradóttir lögðu til verk á handverkssýningu félags starfsmanna
bankans í tilefni 75 ára afmælis félagsins.
Keflavík
KEFLAVÍKURÚTIBÚ Lands-
banka Íslands varð sigurvegari í
þjónustukeppni útibúa bankans og
tók starfsfólk útibúsins við verð-
laununum sl. fimmtudag. Þjón-
ustukeppnin var háð án vitundar
starfsfólks í þeim 54 útibúum og
afgreiðslum sem Landsbankinn
starfrækir um landið. „Hingað
kom huldufólk og tók út þjón-
ustuna. Við vissum aldrei um þetta
fólk, en það vann eftir ákveðnum
gátlistum og punktaði niður hjá
sér hvað væri gott við þjónustuna
hér og hvað mætti betur fara,“
sagði Jóhanna Elín Óskarsdóttir,
útibússtjóri í Keflavík í samtali við
Morgunblaðið.
Að sögn Hafsteins G. Einars-
son,ar deildarstjóra viðskipta- og
þjónustudeildar Landsbankans var
markmið keppninnar að kanna
ástand þjónustumála í útibúum
bankans, slík keppni væri leið til
að auka þjónustu við viðskiptavini
og um leið hvatning fyrir starfs-
fólkið til að veita áfram góða þjón-
ustu. „Við hönnuðum þessa keppni
eins og göngu upp á topp Everest-
fjallsins. Gerðar voru fjórar þjón-
ustumælingar og sneri hver og ein
að ákveðnum þjónustuþætti bank-
ans. Öll útibúin byrjuðu í grunn-
búðunum rétt eins og ganga upp á
Everest og með því að standast
allar fjórar mælingarnar komst
útibúið upp á toppinn. Í Keflavík-
urútibúi eru góðir göngugarpar en
þrjú útibúi fylgdu fast á hæla sig-
urvegarans,“ sagði Hafsteinn í
samtali við blaðamann.
Starfsfólk í brennidepli
Félag starfsmanna Landsbanka
Íslands varð 75 ára 7. mars sl. og í
tilefni þess var sett upp sýning á
handverki starfsmanna í öllum
útibúum bankans. Tilgangurinn
með sýningunni er að varpa kast-
ljósinu á starfsmenn bankans og
sýna hvað í þeim býr.
Starfsfólk Keflavíkurútibúsins
FIMM ungmenni frá Reykjanesbæ
taka þátt í málþingi um lýðræði
barna og unglinga sem haldið verður
á Þingvöllum laugardaginn 29. mars
nk. Þátttakendur eru valdir frá átta
sveitarfélögum á landinu og var ósk-
að eftir tilnefningum frá Reykja-
nesbæ. Þeir sem taka þátt í mál-
þinginu fyrir hönd Reykjanesbæjar
eru: Bryndís Hjálmarsdóttir, 16 ára,
formaður nemendaráðs Holtaskóla,
Kristín Helga Magnúsdóttir, 15 ára,
formaður nemendaráðs Myllubakka-
skóla, Lilja Karen Steinþórsdóttir,
15 ára, formaður nemendaráðs Heið-
arskóla, Ingibjörg Ósk Erlendsdótt-
ir, 16 ára, formaður nemendaráðs
Njarðvíkurskóla, og Runólfur Þór
Sanders, 18 ára, formaður nemenda-
félags Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Einnig taka þátt frá Reykjanesbæ
fulltrúi skólastjórnenda og bæjar-
fulltrúarnir Kjartan Már Kjartans-
son og Sveindís Valdimarsdóttir.
Vigdís Finnbogadóttir mun setja
málþingið en ráðstefnustjóri er Eva
María Jónsdóttir. Flutt verða sjö
kynningarerindi varðandi 12. grein
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
og framkvæmd ákvæðisins hér á
landi. Að loknum erindum fer fram
umræða í vinnuhópum unglinganna
og að lokinni gönguferð um þjóð-
garðinn verða niðurstöður þeirra
kynntar.
Ungmenni
þinga á
Þingvöllum
Reykjanesbær