Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 28

Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 28
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 28 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.icelandair.is Alltaf ódýrast á Netinu „ÉG var með eitt koffort með mér sem ég smíðaði á Laugarvatni veturinn áður en ég flutti hingað á Selfoss og í því var aleigan,“ segir Sigurður Guðmundsson, húsasmíða- meistari á Selfossi, sem hefur hægt á í amstri dagsins. En hann hefur samt mikið að gera, svo mikið að kona hans, Ágústa Sigurð- ardóttir, segir að hann hafi vart tíma til að koma heim í mat og kaffi. Sigurður, sem þekktur er undir nafninu Siggi Gúmm, flutti á Selfoss 13. október 1947, ókvæntur ungur maður og fór að læra húsasmíði hjá Kristni Vigfússyni húsasmíðameistara. „Ég tók próf í húsasmíði fjórum árum síðar og vann hjá Kristni í átta ár en byrjaði síðan að vinna sjálfstætt,“ segir Sigurður, sem hef- ur alla tíð síðan verið með eigin fyrirtæki í húsasmíðinni. Fyrsta verk hans var að reisa sláturhús og frystihús Hafnar á Selfossi. Síð- an tóku við mörg verkefni og með vaxandi byggð gerðust þau umfangsmeiri. Hann var aðaleigandi SG-Einingahúsa og það fyr- irtæki, SG-hús, er enn í rekstri en eigendur aðrir. Sigurður er kominn út úr fyrirtækja- rekstri en er ekki hættur að smíða. Að hlaupa í kringum börnin og barnabörnin „Ég vinn mikið fyrir börnin og barnabörn- in og það er mikið að gera. Ég hef alla tíð ver- ið mjög vinnufús og mér finnst vinnan gefa mér mikið. Það er aðallega að mér finnst gott að hafa þessi verkefni sem ég er með fyrir stafni. Ég vil vakna til vinnunnar og sinna henni. Það er svo aftur mjög góð tilfinning að vinna fyrir börnin og barnabörnin. Ég hefði ekki trúað því hvað það var í raun auðvelt að hætta reglulegri vinnu í fyrirtækinu og fara í þetta að hlaupa í kringum börnin og barna- börnin. Það er nú svo aftur þannig að þakk- lætið er mikils virði og því fylgir svo mikil innri ánægja að fá þakklæti fyrir það sem maður er að gera að það trúir því enginn nema reyna það. Þetta er mjög mikil lífsfyll- ing að fást við þetta,“ segir Sigurður. Oft var glatt á hjalla í Selfossbíói Á fyrstu árum Sigurðar á Selfossi tvöfald- aðist íbúatalan sum árin. „Þá var heljarmikið líf og fjör á Selfossi og oft glatt á hjalla í Sel- fossbíói sem var aðalsamkomustaðurinn á Suðurlandi. Þar fóru allar samkomur fram, dansleikir og fleira og það var mikið slegist á böllunum á þessum árum, með hnúum og hnefum en sjálfur hef ég aldrei slegið nokk- urn mann. Það gekk oft mikið á og menn komu hér oft langt að, alla leið frá Suð- urnesjum, auðsjáanlega bara til að fljúgast á enda oft mikil hraustmenni á ferð sem þurftu að fá útrás og andinn var bara svona á þessum árum. Það var reyndar furðulegt að horfa á þetta stundum,“ segir Sigurður. „Nú er hér aftur mikill vöxtur en menn eru hættir að slást. Það er mjög ánægjulegt að fylgjast með þessum mikla vexti og það er ekki annað að sjá en hann haldi áfram því fólki finnst greinilega enn gott að búa hérna. Ég held að það muni byggjast upp hér mikil og góð þjónusta á öllum sviðum fyrir atvinnu- lífið, fólkið og menninguna í samfélaginu,“ segir Sigurður Guðmundsson sem reyndar sat í hreppsnefnd undir forsæti Sigurðar Óla Ólafssonar sem þá var oddviti Selfosshrepps. Og hann horfir greinilega enn á samfélagið með auga og sýn hreppsnefndarmannsins og leggur mat á hvern þátt í ljósi framtíð- arþróunar. Sigurður Guðmundsson kom á Selfoss 1947 með aleiguna í kofforti og hóf nám í húsasmíði Ég vil vakna til vinn- unnar á hverjum degi Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Sigurður Guðmundsson, húsasmíðameistari á Selfossi, tekur stöðugt til hendinni við húsbygg- ingar fyrir börnin og barnabörnin á Selfossi og segir það veita sér mikla lífsfyllingu. Selfoss FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND Ís- lands hefur í vetur boðið grunn- skólum landsins kynningu á frjáls- um íþróttum undir heitinu fjör í frjálsum. Kjartan Kárason íþrótta- kennari hefur farið í þá skóla sem þegið hafa þetta rausnarlega boð og leyft krökkum að prófa sig í ýmsum íþróttum, s.s. stökkum, hlaupum, köstum og fleiru. Kjartan segir að þetta sé fyrsti veturinn sem skólum sé boðið upp á þessa heimsókn, en faðir Kjartans, Kári Jónsson hefur verið að kynna þetta síðustu ár og farið m.a. á Landsmót unglinga og kynnt þetta þar. Fyrir áramót var haldin keppni á milli skóla þar sem nemendum úr 6. og 7. bekk var boðið að taka þátt. Nú á vordögum verður keppni krakka úr 8. og 9. bekk, und- ankeppni er hafin og verður loka- keppnin haldin 3. maí. Að sögn Kjartans er planið að bæta við næsta haust og bjóða þá nemendum úr 4. og 5. bekk að taka þátt í keppni. Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Guðrún Ósk Friðriksdóttir reynir að halda jafnvægi á slá. Fjör í frjálsum Hveragerði VERÐLAUNAAFHENDING í stærðfræðikeppni grunnskóla á Suð- urlandi var haldin í sal Grunnskólans í Þorlákshöfn sl. fimmtudag. Kristín Hreinsdóttir, forstöðumaður Skóla- skrifstofu Suðurlands, sem stjórnaði samkomunni sagði að aldrei hefðu fleiri keppendur tekið þátt eða 52 nemendur úr 8., 9., og 10. bekk frá 7 grunnskólum á Suðurlandi. Kristín, fyrir hönd Skólaskrif- stofu, og Björg Pétursdóttir, sviðs- stjóri Fjölbrautaskóla Suðurlands, voru umsjónarmenn keppninnar, sem fór fram í Fjölbrautaskóla Suð- urlands 26. febrúar. Kennarar fjöl- brautaskólans sjá um framkvæmd keppninnar og fara yfir úrlausnirn- ar. Þetta er í sjötta skipti sem slík keppni er haldin á Suðurlandi, upp- haflega var hún eingöngu fyrir nem- endur í 9. bekk en keppnin var fljót- lega færð út í þrjá elstu bekki grunnskólans. Verkefnin voru fengin frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði eins og undanfarin fimm ár og fór keppnin fram samtímis í sjö fram- haldsskólum á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Eins og undanfarin ár veittu Límtré, Kjörís og Samverk sigurvegurum veglega farandbikara. Auk þess fengu þrír efstu í hverjum bekk peningaverðlaun frá Lands- bankanum og gjafir frá Árvirkjan- um. Úrslit keppninnar: 8. bekkur: 1. sæti, Arnar Páll Gunnlaugsson, Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri, 2. sæti, Jón Guðni Gylfason, Grunnskólanum í Þorlákshöfn, 3.–4. sæti, Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, Vallaskóla, Selfossi, og Valdís Hermannsdóttir, Hvolskóla. 9. bekkur: 1. sæti, Helgi Héðins- son, Vallaskóla, Selfossi, 2. sæti, Laufey Ósk Magnúsdóttir, Valla- skóla, Selfossi, 3. sæti, Inga Berg Gísladóttir, Laugalandsskóla. 10. bekkur: 1. sæti, Stefanía Ósk Garðarsdóttir, Vallaskóla, Selfossi, 2. sæti, Guðrún Andrea Friðriks- dóttir, Vallaskóla, Selfossi, 3. sæti, Guðrún Nína Óskarsdóttir, Valla- skóla, Selfossi. Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Sigurvegarar í stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi ásamt stjórnendum keppninnar, Kristínu Hreins- dóttur, forstöðumanni Skólaskrifstofu Suðurlands, og Björgu Pétursdóttur, Fjölbrautaskóla Suðurlands. Fremst á myndinni eru keppendurnir sem lentu í fyrsta sæti í keppninni í áttunda, níunda og tíunda bekk. Aldrei hafa fleiri keppendur tekið þátt Þorlákshöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.