Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 31
skemmtileg. Fólki kemur á óvart
hversu auðvelt er að gera breyt-
ingar á lífsháttum, það er ekki
tímafrekt og sparar reyndar oft
bæði tíma og peninga. Fundirnir
verða heldur ekki það aukaálag og
pressa sem margir eru smeykir við
í upphafi, heldur skemmtir fólk sér
konunglega og fær jafnframt
stuðning, hvatningu og hugmyndir
frá hinum þátttakendunum,“ segir
Bryndís.
Ísland er eitt 17 landa þar sem
verkefnið hefur náð að festa rætur.
244 kíló í tunnuna
Árangurinn lætur ekki á sér
standa, hvort heldur er fyrir um-
hverfið eða pyngjuna, segir Bryn-
dís ennfremur.
„Nú hafa um 320 heimili vítt og
breitt um landið tekið þátt í vist-
hópi, eða um 1.000 manns þegar
allir fjölskyldumeðlimir eru taldir.
Sem stendur eru 18 hópar með um
150 þátttakendum starfandi á land-
inu enda hefur verkefnið vaxið ört í
vetur.“
Bryndís segir að hver íbúi á höf-
uðborgarsvæðinu hafi sett að með-
altali 244 kg af úrgangi í tunnuna
hjá sér á árinu 2001. „Með því að
tileinka sér vistvæna lifnaðarhætti
má minnka þetta magn verulega.
Þátttakendur í Vistvernd í verki
hafa náð mjög góðum árangri því
hver þeirra losaði aðeins um 82 kg
af úrgangi á árinu.“
Fjallað verður reglulega um
Vistvernd í verki á neytendasíð-
unni á næstunni. Meðal annars
verða birtar upplýsingar fyrir
heimili í dálki með góðum ráðum
sem hlífa umhverfinu. Fyrsti dálk-
urinn birtist hér á síðunni í dag og
fjallar um sorp.
Sjá einnig heimasíðu Landvernd-
ar, www.landvernd.is/vistvernd.
Ljósmynd/Margrét Ísaksdóttir
Fulltrúar 5–8 heimila mynda visthóp og koma reglulega saman til fræðslu-
funda yfir um það bil tveggja mánaða tímabil.
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 31
www.icelandair.is
Alltaf ódýrast á Netinu
LISTIR
ALÞJÓÐADAGUR neytendaréttar
er í dag, 15. mars. Segja Neytenda-
samtökin lækkun verðs á vörum og
þjónustu brýnasta hagsmunamálið
hérlendis.
„Átta lágmarkskröfur neytenda
leggja grunninn að vinnu Neytenda-
samtakanna, eins og annarra sam-
taka neytenda um allan heim.
Grunnkröfurnar eru:
Réttur til fullnægjandi grunn-
þarfa.
Réttur til öryggis.
Réttur til upplýsinga.
Réttur til að velja.
Réttur til áheyrnar.
Réttur til bóta.
Réttur til fræðslu.
Réttur til heilbrigðs umhverfis.“
Í frétt frá Neytendasamtökunum
segir enn fremur að helsta hags-
munamál íslenskra neytenda um
þessar mundir sé að verð á vörum og
þjónustu lækki sem mest, til sam-
ræmis við það sem tíðkast í öðrum
löndum á Evrópska efnahagssvæð-
inu.
Samtökin telji að skortur á virkri
samkeppni, meðal annars á fjár-
mála-, trygginga- og matvörumark-
aði, standi þessari þróun fyrir þrif-
um.
Skorað á stjórnmálaflokka
„Neytendasamtökin skora á
stjórnmálaflokkana sem bjóða sig
fram vegna þingkosninganna í vor að
gera almenningi skýra grein fyrir
því í kosningabaráttunni hvort og þá
hvernig þeir hyggist vinna að þessu
mikilvæga hagsmunamáli neytenda.
Í þessu sambandi minna Neytenda-
samtökin á þrjár meginkröfur sem
samþykktar voru á fjölmennu þingi
samtakanna síðastliðið haust:
Evrópskt verð á vörum og þjón-
ustu.
Fjármálaviðskipti á frjálsan
markað.
Virka samkeppni á matvörumark-
aði.“
Alþjóðadagur
neytendaréttar
SÝNING á verkum Hlífar Ásgríms-
dóttur og Ólafar Oddgeirsdóttur
verður opnuð í Hafnarborg kl. 15 í
dag. Á sýningunni, sem þær nefna
Með lífsmarki eru að hluta til verk
sem listakonurnar hafa unnið í
sameiningu þar sem þær gera til-
raun í verki til að sameina hug-
myndir sínar.
Hlíf hefur undanfarin ár unnið
innsetningar sem taka mið af að-
stæðum og sýnir hún teikningar á
pappír, ljósmyndir og hversdags-
lega hluti í rými. Verkin fjalla um
breytingu algengra hluta sem
skildir hafa verið eftir á víðavangi.
Nánasta umhverfi þar sem harð-
gerður gróður fóstrar yfirgefna
hluti með því að umvefja þá og setja
á þá lífsmark.
Helstu viðfangsefnin í verkum
Ólafar til þessa eru íslensk menn-
ing og náttúra. Málverk unnin út
frá gömlum vefnaðar- og útsaums-
mynstrum, teikningar með bandi á
plexigler, þrívíð verk úr grasi og
innsetningar. Hér sýnir Ólöf teikn-
ingar á pappír. Verkin túlka vitund
um líf þar sem eitt er öðru háð.
Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 11–17 og lýkur
14. apríl.
Tilraun í verki
Verk eftir Ólöfu Oddgeirsdóttur.
SÝNINGIN Hraun-Ís-Skógur
verður opnuð í Norræna húsinu
kl. 14 í dag, laugardag. Sýning-
arrýmið verður opið í dag frá
kl. 10–18 þar sem listamaður-
inn John Court mun sýna
gjörning sinn Between Spaces í
tilefni af opnuninni. Verk hans
fjallar um að finna rýmið á milli
hins innra (persónulega) rýmis
og þess ytra.
Á sýningunni Hraun-Ís-
Skógur má sjá verk barna og
unglinga sem tóku þátt í list-
menntunarverkefni á Íslandi,
Grænlandi og Lapplandi og eru
verkin unnin í samvinnu við
listamenn og myndmennta-
kennara frá hverjum stað.
Unnið var með þessi þrjú
þemu; íslenskt hraun, finnska
skóga og grænlenskan ís. Settir
voru upp vinnuhópar og við-
fangsefnin voru fjölbreytileg –
málverk, höggmyndir, nútíma-
dans, ljósmyndun og gjörning-
ar.
Markmið listmenntunar-
verkefnisins, sem stóð yfir í
þrjú ár, var að efla vitund nor-
rænna barna og unglinga um
sérkenni norðurslóða, styrkja
menningarvitund þeirra og
kynna þeim og efla áhuga
þeirra á Norðurlöndum og nor-
rænni samvinnu. Jafnframt var
hugsunin sú að nýta menning-
ararf þessara norrænu land-
svæða til að virkja sköpunar-
þörf barna og unglinga,
starfandi listamanna og mynd-
menntakennara á þessum slóð-
um.
Sýningin stendur til 4. maí.
Þrjú lönd –
þrjú þemu
DIDDA Leaman og Inga Þórey Jó-
hannsdóttir opna sýningu í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39 í dag, laug-
ardag, kl. 16.
Í verkum sínum fjalla þær um
samband hugtakanna yfirborð og
umhverfi. Rúmdýnur/týpógrafía og
borgarskipulag eru hluti innsetn-
ingar listamannanna sem vísar til
hins líkamlega og andlega; hugrenn-
ingatengsla sem kvikna við sjón-
ræna upplifun og samspil texta og
mynda. Rými gallerísins verður jafn-
framt vettvangur huglægs ferðalags
þar sem farið er um mismunandi
stig vitundar frá svefni til vöku.
Eftirfarandi texti listamannanna
gefur vísbendingu um slíkt hugar-
ástand: „Neðanjarðarlestir hljóma
samtímis á ferð sitt í hvora áttina
milli Kings Cross og Knights
Bridge.“
„Fast in smooth out“ er lýsing á
áhrifum sefandi lyfs frá upphafi til
enda og myndlíking sem tengja má
við alla skynjun þ.e. sjónræna, hug-
læga og líkamlega.“
Sýningin stendur til 30. mars.
Gallerí Skuggi er opið alla daga
nema mánudaga kl. 13-17. Aðgang-
ur er ókeypis.
Huglægt ferðalag
Eitt verka á sýningunni í Skugga.