Morgunblaðið - 15.03.2003, Page 43
þegar báturinn sem hann var á, var
kominn fram fjörðinn varð hann full-
frískur en gat þó ekki látið sjá sig ut-
andyra. Þessi bátur týndist með allri
áhöfn. Það er kannski ekkert skrítið
að svona menn verða langlífir.
Hannes afi var rólynda maður og
mjög barngóður, börn hændust að
honum og hann þurfti ekkert að elta
þau til að klappa þeim eða knúsa, þau
komu til hans.
Það er skrýtið að hugsa um afa ein-
an og sér, því alltaf kemur upp í hug-
ann Silla amma og Hannes afi. Þetta
órjúfanlega par sem eru sameinuð
aftur eftir 8 ára aðskilnað, ég er viss
um að amma og Inga frænka eru bún-
ar að halda veislu þarna uppi og hafa
tekið vel á móti afa. Það hafa verið
fagnarðarfundir og afi farinn að kíkja
í kringum sig og athuga hvernig kerf-
ið virkar þarna í himnaríki. Það er
hlýtt til þess að vita að afi þurfi ekki
að kveljast lengur, nú er hann kominn
upp til Guðs og ég er viss um að
Lykla-Pétur hefur haft Gullna hliðið
galopið fyrir afa því hann á svo sann-
arlega skilið sæluvist í Himnaríki.
Þegar ég kom til afa eftir að amma
dó, inn á Hrafnistu, var oft gaman að
tala við afa um gamla tímann, það
mundi hann alltaf svo vel, þó það hafi
ekki verið besti tíminn í hans lífi. T.d.
sagði hann mér oft frá frostavetrin-
um mikla 1918. Þá var stundum ekki
farið framúr vegna kulda nema þá
helst til að gefa skepnunum vatn. Þá
þurfti að brjóta klakann af læknum
og bera vatnið inní hús og ef að vatn
skvettist á skálmarnar á buxunum þá
kom það fyrir að þær brotnuðu af því
svo mikið var frostið.
Ísafjarðardjúpið var allt ísilagt og
ekkert hægt að róa.
Svona er hægt að halda áfram
endalaust, því afi var uppspretta fróð-
leiks, eða eins og karlinn sagði, „það
er sitthvað leikur eða fróðleikur“.
Afi minn, góði hirðirinn, afi minn,
sjómaðurinn, afi minn, smiðurinn, afi
minn, fræðarinn, og afi minn, vinur
minn. Ég og fjölskylda mín, Hanna,
Arnbjörg Elsa, Jóhann Ingimar og
Róbert Andri langalangafastrákur
þökkum afa fyrir allt og að lokum
minnumst við þess, sem afi kenndi
okkur, að horfa á ljósu punktana í til-
verunni og sjá það góða í öllu.
Hannes Lárus Jóhannsson.
Elsku afi Hannes. Ég veit að þér
líður miklu betur núna þegar þú ert
kominn til ömmu Sillu. Ég veit að þú
varst orðinn þreyttur og ferðin yfir
móðuna miklu var langþráður draum-
ur hjá þér enda varstu orðinn 97 ára
gamall. En samt varstu alltaf jafn
kátur og hress.
Ég kom til þín daginn áður en þú
dóst og ég man að Siggi sonur þinn
spurði þig hvernig þér liði og þú sagð-
ir að þú værir góður. Svona varstu
alltaf kátur, skemmtilegur og góður.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Ég elska þig. Þín
Sædís Bára Hallgrímsdóttir.
Sárt við söknum þín.
Þú varst alveg einstakur, með þitt
rólega fas og skiptir ekki skapi.
Alltaf var gott að koma til ykkar
ömmu, vel tekið á móti okkur og allir
velkomnir.
Ég vil þakka þér, elsku afi minn,
fyrir allt sem þú gafst mér, alla þá
hlýju, hjálpsemi og manngæsku sem í
þér bjó. Ég mun varðveita það í
hjarta mínu allt mitt líf.
Guð blessi minningu þína.
Sigrún.
Fleiri minningargreinar
um Hannes Lárus Guðjónsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 43
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
ÖNNU S. BJARNADÓTTUR,
Hlíf 1,
Ísafirði.
Óskar Kárason, Ásdís M. Hansdóttir,
Erla Þorbjörnsdóttir,
Sævar Gestsson, Ragna Arnaldsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR SVEINSSON,
Njarðvíkurbraut 16,
Innri Njarðvík,
lést á dvalarheimilinu Hlévangi fimmtudaginn
6. mars sl.
Útförin fer fram frá Innri Njarðvíkurkirkju
mánudaginn 17. mars nk. kl. 14.00.
Vigfús Heiðar Guðmundsson,
Svanhildur Stella Júnírós Guðmundsd., Óskar Ásgeirsson,
Dagný Austan Vernharðsdóttir, Herbert Kristjánsson,
Karl Vernharðsson,
Vígsteinn Vernharðsson,
Jóna Þórunn Vernharðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð
og vinarhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
UNNAR ÞÓRARINSDÓTTUR
frá Miðbæ í Haukadal,
Dýrafirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins
Tjarnar.
Katrín J. Gunnarsdóttir,
Guðrún Ó. Gunnarsdóttir, Una H. Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Ó. Gunnarsdóttir, G. Kristján Gunnarsson,
Erla Ebba Gunnarsdóttir, Jónína S. Gunnarsdóttir,
Einar G. Gunnarsson, Guðbjörg Ó. Gunnarsdóttir,
Sigurður Þ. Gunnarsson, Höskuldur B. Gunnarsson,
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÞÓRUNNAR BENEDIKTSDÓTTUR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík.
Haukur Brynjólfsson, Jóhanna Bertelsdóttir,
Benedikt Brynjólfsson,
Sigurður Andrésson,
Unnar Andrésson,
ömmubörn og langömmubörn.
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og lang-
ömmu,
MARGRÉTAR ELÍNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Túngötu 51,
Eyrarbakka.
Serstakar þakkir sendum við starfsfólki
gjörgæsludeildar Landspítalans við Hringbraut.
Ragnar Böðvarsson og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
KRISTÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hjúkrunarheimilinu Eir,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunar-
heimilinu Eir, 3. hæð S.
Málfríður K. Björnsdóttir, Guðmundur A. Þórðarson,
Margrét Björnsdóttir
og fjölskyldur.
Þökkum innilega öllum vinum og ættingjum
stuðning og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, tengdasonar og afa,
INGIMUNDAR ERLENDSSONAR,
Suðurhólum 6,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ester Þorsteinsdóttir og fjölskylda.
Elskulegur eiginmaður minn,
ÓLAFUR MARS ÁMUNDASON,
Melavegi 14,
Hvammstanga,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju
þriðjudaginn 18. mars kl. 13.30.
Guðrún Benediktsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and-
lát ástkærrar eiginkonu minnar, móður, ömmu
og langömmu,
REBEKKU SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
hjúkrunarkonu.
Jóhannes Kr. Magnússon,
Hjördís Guðbjörnsdóttir,
Rebekka Sigurðardóttir, Stefán Jónsson,
Atli Rafn Sigurðarson, Brynhildur Guðjónsdóttir
og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
MARGRÉT ÞORBJÖRG THORS,
Eiðistorgi 15,
Seltjarnarnesi,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 5. mars, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 18. mars kl. 13.30.
Páll Þormóðsson,
Anna F. Jónsson, Paul Masselter,
Margrét Þ. Þorsteinsdóttir, Aðalgeir Arason,
Ólafur Tr. Þorsteinsson, Auður Sigr. Kristinsdóttir,
Ingibjörg Thors,
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir minn,
HELGI MÁR KRISTJÁNSSON,
Bræðraborgarstíg 32,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 1. mars.
Bálför hefur farið fram að ósk hins látna.
Guðbrandur Kristjánsson.