Morgunblaðið - 15.03.2003, Side 44
MESSUR Á MORGUN
44 LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSKIRKJA: Kirkjudagur Safnaðarfélags
Ásprestakalls. Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Guðsþjónusta kl. 14:00. Ingólfur
Helgason syngur einsöng. Richard Gilles
leikur á trompet. Kór Áskirkju syngur. Org-
anisti Kári Þormar. Kaffisala Safn-
aðarfélagsins eftir messu. Kirkjubíllinn ek-
ur. Kór Áskirkju heldur tónleika
mánudaginn 17. mars kl. 20. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl. 11.00.
Hljómsveit ungmenna undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar. Foreldrar hvött til
þátttöku með börnum sínum. Guðsþjón-
usta kl. 14:00. Félagar úr Kór Bústaða-
kirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Guð-
mundar Sigurðssonar, organista. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11:00.
Sr. Hjálmar Jónsson prédikar. Dómkórinn
syngur. Organisti Marteinn Friðriksson.
Guðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Jón A Bald-
vinsson sendiráðsprestur í London prédik-
ar. www.domkirkjan.is
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11:00.
Messa kl. 11:00. Altarisganga. Kirkjukór
Grensáskirkju leiðir söng. Organisti Árni Ar-
inbjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhanns-
son. Kvöldmessa kl. 20:00. Einfalt form,
gleði og hlýja. Sr. Ólafur Jóhannsson.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðs-
þjónusta kl. 14:00. Prestur sr. Tómas Guð-
mundsson. Organisti Kjartan Ólafsson.
Einsöngur Bryndís Jónsdóttir. Félag fyrrver-
andi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn kl.
10:00. Trúarskáldið Hannes Pétursson:
Þórður Helgason, dósent. Messa og
barnastarf kl. 11:00. Sr. Sigurður Pálsson
prédikar. Umsjón barnastarfs Magnea
Sverrisdóttir. Hópur úr Mótettukór Hall-
grímskirkju syngur undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar, organista.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11:00. Guðrún Helga Harðardóttir og sr.
Helga Soffía Konráðsdóttir. Messa kl.
14:00. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Tómas Sveinsson.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Hringbraut: Guðsþjónusta kl. 10:30. Sr.
Ingileif Malmberg.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11:00. Kór Kórskólans og Graduale futuri
syngja. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Barnastarfið
verður í kirkjunni. Hressing eftir stundina.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11:00. Kór Laugarneskirkju
syngur við undirleik Bjarna Jónatanssonar.
Sunnudagaskólinn er í umsjá Hildar Eirar,
Heimis og Þorvaldar. Sr. Bjarni Karlsson
þjónar ásamt Sigurbirni Þorkelssyni með-
hjálpara. Í messukaffinu er Kvenfélagið
með kökusölu til styrktar orgelsjóði kirkj-
unnar. Við messuna syngur hinn nýstofn-
aði barnakór Laugarness undir stjórn Sig-
ríðar Ásu Sigurðardóttur.
Aðalsafnaðarfundur kl. 12:30–14:00. Allt
fólk hvatt til að mæta á vel skipulagðan og
skilvirkan fund þar sem gefið er glöggt yf-
irlit yfir allt starf Laugarneskirkju. (Sjá síðu
650 í Textavarpi)
NESKIRKJA: Messa kl. 11:00. Kór Nes-
kirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Litli
kórinn-kór aldraðra syngur undir stjórn Ingu
J. Backman. Organisti Reynir Jónasson.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Sunnu-
dagaskólinn og 8–9 ára starf á sama tíma.
Eftir messu verður Alfa II kl. 12:30–13:30.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl.
11:00, altarisganga. Sigrún Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands,
flytur hugvekju. Prestur Sigurður Grétar
Helgason. Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngur, organleikari Viera Manasek.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kirkju-
kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar í boði
sóknarnefndar eftir messu. Verið öll hjart-
anlega velkomin.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Þessa helgi er
kór og prestur Fríkirkjunnar í heimsókn á
Sauðárkróki. Kórinn heldur tónleika á
Sauðarkróki kl.17:00 laugardag. Barna-
messa klukkan 11:00. Flutt verður leikritið
Palli var einn í heiminum. Allir velkomnir
aðgangur ókeypis. Safnaðarstarf Fríkirkj-
unnar í Reykjavík.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11.00. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar
fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju leiðir sönginn
undir stjórn Krisztínu Kalló Szklenár org-
anista. Sunnudagaskóli í safnaðarheim-
ilinu á sama tíma. Kaffi djús og kex í boði í
Guðspjall dagsins:
Kanverska konan.
(Matt. 15).
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kirkjan á Búðum á Snæfellsnesi.
SUNNUDAGINN 16. mars kl. 14.
mun sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson,
sendiráðsprestur í London, messa í
Dómkirkjunni. Messan er að frum-
kvæði heimfluttra sóknarbarna
hans, og er hún hugsuð sem kær-
komið tækifæri til endurfunda.
Gamlir félagar úr Íslenska kórnum í
London munu leiða sönginn. Org-
anisti verður Dagný Björgvinsdóttir
og aðrir hljóðfæraleikarar, Sig-
urður Halldórsson og Sigurður Þor-
bergsson. Tvísöng syngja Ólafur
Kjartan Sigurðarson og Hulda
Björk Garðarsdóttir.
Að messu lokinni verður kirkju-
kaffi í Apótekinu. Þar mun und-
irbúningsnefndin viðra hugmyndir
um árlegt samkomuhald þessa hóps.
Allir velkomnir.
Leikbrúðuland
í Grafarvogskirkju
LEIKBRÚÐULAND verður í fjöl-
skylduguðsþjónustu Grafarvogs-
kirkju sunnudaginn 16. mars kl. 11.
Sýningin heitir: „Fjöðrin sem
varð að fimm hænum“ og er unnið
upp úr ævintýri eftir H.C. Andersen
og „Ævintýrið um Stein Bollason“.
Kirkjudagur
Safnaðarfélags
Ásprestakalls
ÁRLEGUR kirkjudagur Safn-
aðarfélags Ásprestakalls er á
sunnudaginn kemur, 16. mars. Um
morguninn verður barnaguðsþjón-
usta í Áskirkju kl. 11 og síðan guðs-
þjónusta kl. 14. Ingólfur Helgason
syngur einsöng, Richard Gillis leik-
ur á trompet, sóknarprestur prédik-
ar og Kirkjukór Áskirkju syngur
undir stjórn Kára Þormar org-
anista.
Eftir guðsþjónustuna og fram eft-
ir degi verður kaffisala í Safn-
aðarheimili Áskirkju. Allur ágóði af
kaffisölu Kirkjudagsins, sem lengi
hafur verið einn helsti fjáröfl-
unardagur Safnaðarfélagsins, renn-
ur til barna- og unglingastarfs Ás-
kirkju. Kostnað við þann mikilvæga
þátt safnaðarstarfsins hefur Safn-
aðarfélagið lengi borið að mestu
leyti auk þess að hlúa að starfi með-
al aldraðra með ýmsum hætti. Enn-
fremur hefur félagið lagt mikið af
mörkum til kirkjubyggingarinnar
og búnaðar hússins.
Eins og jafnan á kirkjudaginn
verða glæsilegar veitingar á boð-
stólum í safnaðarheimilinu og vona
ég að sem flest sóknarbörn og vel-
unnarar Áskirkju leggi leið sína til
hennar á sunnudaginn og njóti þar
góðrar stundar og styðji jafnframt
starf Safnaðarfélagsins.
Bifreið mun flytja íbúa dval-
arheimila og annarra stærstu bygg-
inga í sókninni til og frá kirkju.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Framkvæmdastjóri
Rauða krossins talar í
Seltjarnarneskirkju
Á MORGUN, sunnudaginn 16. mars,
flytur Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Íslands,
hugvekju í messu í Seltjarnar-
neskirkju, sem hefst kl. 11:00. Sig-
rún mun m.a. fjalla um starf Rauða
krossins á ófriðartímum. Þá ræðir
hún um undirbúning vegna hugs-
anlegra átaka í Írak, hvað Rauði
krossinn mun leggja þar af mörkum
og hvað hann hefur verið að gera
þar undanfarin ár.
Þá mun Sigrún einnig fjalla um
starf RKÍ hér heima og hvað kirkjan
og Rauði krossinn eiga sameig-
inlegt.
Sigrún, sem er Eskfirðingur að
ætt og uppruna, hefur verið fram-
kvæmdastjóri RKÍ í nokkur ár og
hefur getið sér gott orð fyrir starf
sitt á vettvangi mannúðarmála og
hjálparstarfs, jafnt erlendis sem og
hér á landi. Kirkjukaffi.
Prestur verður séra Sigurður
Grétar Helgason, Kammerkór Sel-
tjarnarneskirkju syngur og org-
anleikari er Viera Manásek.
Ásdís Halla les
Passíusálma í
Fella- og Hólakirkju
SUNNUDAGINN 16. mars nk. er
guðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju
kl. 11:00.
Sr. Svavar Stefánsson og Lilja G.
Hallgrímsdóttir, djákni þjóna. Fé-
lagar úr Gideon kynna starf félags-
ins og lesa ritningarlestrana. Lenka
Mátéová organisti kirkjunnar leikur
á orgelið og stjórnar kór Fella- og
Hólakirkju. Á sama tíma er sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu í um-
sjón Elfu Sifjar Jónsdóttur. Eftir
guðsþjónustu og sunnudagaskóla
gefst kirkjugestum kostur á að
hlýða á upplestur Passíusálma á
föstunni. Að þessu sinni er það Ásdís
Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í
Garðabæ, sem les Passíusálm að eig-
in vali.
Eftir lesturinn gefst viðstöddum
kostur á að snæða saman léttan há-
degisverð og eiga gott samfélag.
Þeir sem vilja greiða fyrir súpuna
geta lagt frjáls framlög í bauk og
verður ágóðanum varið til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar – innanlands-
aðstoðar.
Sóknarnefndir
Fella- og Hólabrekkusókna.
Réttlátt stríð?
UM fátt hefur verið meira fjallað að
undanförnu í fjölmiðlum en þá styrj-
öld sem nú virðist yfirvofandi í Írak.
Þjóðir heims skiftast í fylkingar
varðandi spurninguna um réttmæti
stríðsins og allar kirkjudeildir hafa
lýst sig andvígar styrjaldarátök-
unum sem í vændum eru. Í guðs-
þjónustunni næstkomandi sunnudag
í Hafnarfjarðarkirkju verður leitað
svara við því hvað felst í hugtakinu
„réttlátu stríði“ og hvort það stríð
sem að öllum líkindum verður senn
háð Írak getur kallast réttlátt.
Prestur er sr. Þórhallur Heimisson
en Antonia Hevesi leikur á orgelið
og leiðir söng ásamt kór kirkjunnar.
Kvöldmessa í
Grensáskirkju
ANNAÐ kvöld, sunnud. 16. mars,
verður kvöldmessa í Grensáskirkju
og hefst hún kl. 20:00.
Við þessa kvöldmessu aðstoða
einstaklingar sem tekið hafa þátt í
Alfa-námskeiði í Grensáskirkju nú í
vetur.
Að vanda er kvöldmessan með
einföldu sniði með áherslu á hlýlegt
yfirbragð og aðlaðandi andrúmsloft.
Kirkjukórinn leiðir léttan söng við
píanóundirleik organistans, Árna
Arinbjarnarsonar. Bænastundin er
á sínum stað og hægt að ganga til
altaris.
Messan tekur tæpan klukkutíma
og að henni lokinni er kaffi og djús á
boðstólum í safnaðarheimilinu.“
Sunnudagur
í Seljakirkju
SUNNUDAGURINN 16. mars er 2
sunnudagur í föstu. Daginn hefjum
við á barnaguðsþjónustu kl. 11, þar
fer fram líflegur söngur, fræðandi
sögur og hressar brúður koma í
heimsókn.
Almenn guðsþjónusta hefst kl. 14.
Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar.
Gerður Bolladóttir syngur einsöng
og kór Seljakirkju leiðir söng undir
stjórn Gróu Hreinsdóttur.
Kvöldguðsþjónusta verður kl. 20.
Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar.
Þorvaldur Halldórsson leiðir söng-
inn. Við kvöldguðsþjónustu gefst
fólki kostur að koma til altaris og
þiggja þar gjöf Guðs í heilögu sakra-
menti.Verið velkomin í Seljakirkju.
Kvennakirkjan
í Laugarneskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guð-
þjónustu í Laugarneskirkju sunnu-
daginn 16. mars kl. 20.30. Yfirskrift-
in er: Þær sem kunna að vera
glaðværar eru alltaf í veislu. Svan-
hildur Blöndal guðfræðingur pré-
dikar. Sönghópurinn Fjórar klass-
ískar syngja nokkur lög. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir sönginn
undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins-
dóttur. Á eftir verður kaffi í safn-
aðarheimilinu.
Mánudaginn 17. mars kl. 17.30
hefst námskeið í Kvennagarði,
Laugavegi 59, 4. hæð. Það nefnist
Segjum, syngjum og dönsum. Við-
fangsefnið er að kenna konum að
taka til máls og standa óhræddar
fyrir máli sínu. Einnig verða dans-
aðir hópdansar, talað saman, slakað
á, beðið saman og sungið.
Stjórnendur verða Guðný Guð-
mundsdóttir, Margrét Há-
konardóttir, Þóra Björnsdóttir og
Auður Eir Vilhjálmsdóttir með öll-
um sem taka þátt.
Leiksýning í
Fríkirkjunni
í Reykjavík
LEIKSÝNINGIN Palli var einn í
heiminum næstkomandi sunnudag
klukkan 11.
Einn liður í safnaðarstarfi Frí-
kirkjunnar í Reykjavík eru barna-
messur sem haldnar eru annan
hvern sunnudag klukkan 11:00 í
kirkjunni okkar við tjörnina.
Næstkomandi sunnudag 16. mars
klukkan 11:00 mun hópurinn vera
hjá okkur í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Barnaleikritið sem nú verður flutt
er leikrit sem heitir: „Palli var einn í
heiminum.“
Munið leiksýningu í Fríkirkjunni
klukkan 11:00 næstkomandi sunnu-
dag 16. mars. Aðgangur er ókeypis.
Sjáumst hress.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í
Reykjavík,
sr. Hjörtur Magni Jóhannsson,
Hreiðar Örn Zoega Stefánsson.
Trúarskáldið Hannes
Pétursson
Á FRÆÐSLUMORGNI í Hall-
grímskirkju næstkomandi
sunnudag kl. 10.00 mun Þórður
Helgason dósent flytja erindi um
trúarskáldið Hannes Pétursson.
Hann mun rekja þróun trúarskálds-
ins eins og hún kemur honum fyrir
sjónir, frá efa til vissu og tengja trú-
arupplifunina myndum þeim og
táknum sem skáldið beitir til að
koma á framfæri því sem því liggur
á hjarta. Tækifæri gefst til fyr-
irspurna og umræðna áður en geng-
ið er til guðsþjónustu sem hefst kl.
11.00 og er í umsjá séra Sigurðar
Pálssonar.
Vísitasía prófasts
í Hjallakirkju
SUNNUDAGINN 16. mars nk. mun
prófastur Reykjavíkurprófasts-
dæmis eystra, sr. Gísli Jónasson,
heimsækja Hjallasöfnuð. Prófastur
prédikar í guðsþjónustunni kl. 11 og
þjónar fyrir altari ásamt prestum
safnaðarins. Að guðsþjónustu lok-
inni mun prófastur hitta starfsfólk
kirkjunnar og söfnuðinn í safn-
aðarsal kirkjunnar þar sem hin
ýmsu málefni safnaðarins verða tek-
in til umræðu.
Boðið verður upp á kaffiveit-
ingar. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Taizé – í
Lágafellskirkju
TAIZÉ – guðsþjónusta verður í
Lágafellskirkju nk. sunnudag kl.
20.30 Þetta er síðari kvöldguðsþjón-
ustan á þessu vori en mjög góð þátt-
taka hefur verið í þessum guðsþjón-
ustum í vetur.
Á sunnudaginn mun hinn vinsæli
söngvari Páll Rósinkrans syngja
einsöng. Prestur verður sr. Kristín
Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur.
Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir
sönginn og organisti safnaðarins
Jónas Þórir og Gunnar Hrafnsson
sjá um hljóðfæraleik.
Hjónastarfið í
Digraneskirkju
VIÐ í hjónastarfi Digraneskirkju er-
um alltaf að bæta tilhugalífið og er
nú komið að næsta fyrirlestri sem
verður sunnudagskvöldið 16. mars
kl. 20:30.
Gestur okkar að þessu sinni verð-
ur Berglind Magnúsdóttir sálfræð-
ingur.
Efni kvöldsins er: Hlutverkin sem
við gleymdum að gera ráð fyrir. Þar
mun hún fjalla um hin margvíslegu
hlutverk okkar á lífsleiðinni.
Hér er á ferð áhugavert efni sem
ætti að höfða til margra.
Fyrirlesturinn verður í nýju kap-
ellunni á neðri hæð Digraneskirkju.
Eins og vanalega verður boðið upp á
stutta kyrrðarstund uppi í kirkjunni
á eftir fyrirlestri fyrir þá sem vilja
og geta.
Dagskránni lýkur milli kl. 22–
22:30.
Lundúnamessa
í Dómkirkjunni
Kirkjustarf