Morgunblaðið - 15.03.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MARS 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Persóna þín er orkumikil,
hugmyndarík og þorir að
taka djarfar ákvarðanir.
Hjónabönd og viðskipta-
tengsl koma við sögu
á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það leikur allt í lyndi í dag
og þér tekst að sannfæra
fólk um ágæti hugmynda
þinna án þess að þurfa að
hafa sérstaklega fyrir því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að sýna börnum
sérstaka þolinmæði í dag.
Mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Auðlegð og kraftur annarra
kemur þér að góðum notum
í dag. Láttu ekki óþarfa
stolt koma í veg fyrir slíkt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert sérstaklega sannfær-
andi í samræðum þínum við
samstarfsfélaga og ætt-
ingja. Af þeim sökum verð-
ur þú að gangast við ábyrgð
á því sem þú segir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Rómantík og daður koma
við sögu í dag. Afbrýðisemi
gæti einnig skotið upp koll-
inum í samböndum. Því
skiptir máli að fara varlega
í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er allt í lagi að láta sig
dreyma ef þú bara heldur
þig á jörðinni í raunveru-
leikanum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugsaðu þig vandlega um
áður en þú segir af eða á um
tilboð sem þér berast. Betra
er að taka eitt skref í einu
og vera ánægð/ur með
framvinduna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert í skapi til þess að
eyða peningum í gjafir fyrir
einhvern sem er mikil-
vægur. Þá er ekki loku fyrir
það skotið að einhver hugsi
til þín og leiti að einhverju
sérstöku fyrir þig.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú skalt varast óþarfa
eyðslu í dag, að öðrum kosti
áttu á hættu að lenda í
skuld. Slíkt er eitthvað sem
þú hefur lítinn áhuga á.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Taktu það ekki nærri þér
þótt þér takist ekki að gera
svo öllum líki. Haltu þínu
striki og þá mun allt fara
vel.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú vekur aðdáun fólks og
ljómar af sjálfsöryggi.
Vertu samt á verði því
framkoma þín getur valdið
ýmiss konar andstöðu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hafðu heilsu þína í huga og
gættu þess að ofkeyra þig
ekki. Gættu þess að taka
ekki of mörg verkefni að
þér í einu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SLEMMA eða geim? Hvort
vildi lesandinn spila fimm
eða sex tígla á spil NS?
Norður
♠ ÁD954
♥ K10654
♦ G3
♣8
Suður
♠ --
♥ 8
♦ ÁD1096542
♣ÁKD4
Kannski fer það svolítið
eftir sögnum, því það er
ljóst að vörnin þarf að taka
á hjartaásinn sinn strax í
fyrsta slag, annars er
slemman á borðinu. Með
hjarta út verður tígulkóng-
urinn að skila sér. Þetta er
svona og svona.
En nú förum við til
Yokohama, þar sem Eng-
lendingar og Pólverjar
voru að spila síðustu spilin í
keppninni um NEC-bikar-
inn. Þeir Armstrong og
Callaghan sögðu þannig á
spilin í opna salnum:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 2 lauf !
Pass 2 tíglar Pass 4 grönd
Pass 5 tíglar Allir pass
Þetta er hárrísandi end-
ursögn á tveimur laufum,
því ekki er sögnin krafa.
Armstrong var í suður og
þegar makker hans breytti
veikt yfir í tvo tígla stökk
hann í lykilspilaspurningu.
Raunar er furðulegt að
hann skyldi ekki segja
slemmuna, því makker gat
allt eins átt hjartaásinn eða
tígulkónginn fyrir svari
sínu og þá er slemman
mjög góð.
Í lokaða salnum fóru Pól-
verjarnir Kwiecien og
Pszczola hefðbundnari leið
í sögnum:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 3 lauf
Pass 3 grönd Pass 4 tíglar
Pass 4 hjörtu Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Þarna kemur upp sú
ákjósanlega staða að norð-
ur sýnir fyrirstöðu í hjarta,
sem gæti fælt vestur frá út-
spili í þeim viðkvæma lit.
Nei, Brian Senior lagði
af stað með hjartaþristinn:
Norður
♠ ÁD954
♥ K10654
♦ G3
♣8
Vestur Austur
♠ G862 ♠ K1073
♥ G932 ♥ ÁD7
♦ K8 ♦ 7
♣G63 ♣109752
Suður
♠ --
♥ 8
♦ ÁD1096542
♣ÁKD4
Tíu IMPar til Englands
og þeir höfðu náð forystu.
„Eigi má sköpum
renna,“ skrifaði Eric Kok-
ish í mótblaðið – England
ÁTTI að vinna þennan leik.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson 75 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 15.
mars, er sjötíu og fimm ára
Ragnar Þorbergsson, Snæ-
landi 5, Reykjavík. Ragnar
er staddur á Kanaríeyjum, á
hóteli Los Volcanes.
60 ÁRA af-mæli. Sex-
tugur er í dag,
laugardaginn 15.
mars, Símon Á.
Sigurðsson. Eig-
inkona hans, Erna
M. Kristjánsdóttir,
verður sextug 15.
apríl. Í tilefni af-
mælis síns bjóða
þau hjónin ætt-
ingjum og vinum
að gleðjast með sér
í kvöld milli kl. 20–
23 í Þrastarheim-
ilinu, Flatahrauni
21, Hafnarfirði.
ERLAN
María Jesú móðir góð, mild og rjóð á vanga,
hún á litlu erluna með hefðarstélið langa.
Máríuerlan mín, mín, mikið hef ég saknað þín,
varstu úti í Danmörku að drekka mjöð og vín?
Erla góða Erla, englabarnið mitt,
lof mér nú að skoða betur langa stélið þitt.
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4.
Rf3 e6 5. Be2 c5 6. Be3
Db6 7. c4 dxc4 8. Rbd2 Bd3
9. O-O cxd4 10. Rxd4 Bc5
11. Bxd3 cxd3 12. Rc4 Da6
13. Dxd3 Rd7
Staðan kom
upp í seinni
hluta Íslands-
móts skákfélaga
sem lauk fyrir
skömmu í
Mennta-
skólanum í
Hamrahlíð.
Harriet Hunt
(2389) hafði hvítt
gegn Jóhanni H.
Ragnarssyni
(1980). 14. Rb5!
Dc6 14...Dxb5
gekk ekki upp
vegna 15. Rd6+
og hvítur vinnur
drottninguna. Í framhald-
inu lendir svartur í mikilli
úlfakreppu. 15. Hac1 a6 16.
Rbd6+ Kf8 17. Ra5 Dd5
17...Db6 18. Hxc5 Rxc5 19.
Da3 og hvítur vinnur. 18.
Dxd5 exd5 19. Bxc5 Rxc5
20. Hxc5 b6 21. Hc7! Rh6
svartur yrði mát eftir
21...bxa5 22. Hxf7# 22.
Rb3 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
Næsti, gerið svo vel!
Spilakvöld Varðar
sunnudaginn 16. mars
Hið árlega spilakvöld Varðar verður
haldið í Súlnasal Hótels Sögu á
morgun sunnudaginn 16. mars kl.
20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars: ferðavinningur fyrir
tvo til útlanda, hótelgisting út á
landi, leikhúsferðir, út að borða,
eldhústæki, matarkörfur, glæsilegir
bókavinningar og fl.
Gestur kvöldsins er Geir H. Haarde
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
og fjármálaráðherra
Aðgangseyrir er kr. 700
Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Allir velkomnir
Námskeið um meðvirkni
mars-maí
Lítið sjálfsmat, sífellt að reyna að þóknast öðrum,
depurð/þunglyndi, þú tjáir þig ekki opinskátt um hvað þér
býr í brjósti og veist ekki hver þú ert eða hverju þú vilt
ná fram. - Þetta eru nokkrar ásjónur meðvirkni.
Þetta námskeið er fyrir þig ef þú vilt:
- læra að þekkja meðvirkni og hvernig hún vinnur spellvirki á lífi þínu.
- lækna þig af meðvirkni.
Gitte Lassen, ráðgjafi, og heilari, s. 861 3174.